Morgunblaðið - 11.10.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.10.1978, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978 Gunnar Egilson klarinettuleikari um mál Sinfóníuhljómsveitar íslands: IIIÐ NÝJA SKÓLAIIÚSNÆÐI FÁSKRÚÐSFIRÐINGA. Nýtt skóla; húsna'ði var vígt á Búðum við Fáskrúðsfjörð á sunnudag og er þessi mynd af því. Með tilkomu þessa húss hefur orðið mikil hreyting í skólamálum Fáskrúðsfirðinga. því kennt hefur verið í litlu og þröngu húsi. Nýi skólinn er 1400 fermetrar að stærð og tvær hæðir. Framkvæmdir við skólann hófust 1972 og er heildarkostnaður við hygginguna því sem næst 90 milljónir. Skólinn var vígður við hátíðlega athöfn á Búðum og verður nánar sagt frá athöfninni í Mbl. s,^ar- • Ljósm. Ágúst Ásgeirsson. Fréttabréf úr Patreksfirði „Til þess að hægt sé að bæta þarf að segja sannleikann,, Patreksfirði. 9.10.1978. MIKLUM gatnagerðarfram- kvaemdum er nú að ljúka hér á Patreksfirði á vegum sveitar- félagsins. Lagt hefur verið slitlag á Aðalstræti svo að segja allt eða frá Þórsgötu og upp á Mikladalsá, um 1,5 km, Strandgötu og hluta Sigtúns. Má segja, að alveg nýr svipur sé kominn á kauptúnið við þessar framkvæmdir og eru þorps- búar að vonum mjög ánægðir. Slitlag er þá komið á langmestan hluta gatnagerðar í þorpinu. Fyrir tveimur árum var myndarlegt átak gert í þessum efnum af fyrri hreppsnefnd, og átti að Ijúka þessu verkefni sem nú var unnið sumarið 1977, en sökum mjög mikillar undirbúningsvinnu við lagnir og annað við Aðalstræti hafðist þetta ekki af þá en er sem sagt lokið nú. Einnig hefur verið lögð mikil vinna af hálfu sveitarfélagsins í að snyrta Aðalstræti og fleiri götur í sambandi við lagningu slitlagsins. Byggingarframkvæmdir Byggingarframkvæmdir hafa verið allmiklar, eru það aðallega einbýlishús hér á vegum einstakl- inga. Á árinu hefur verið hafin bygging 12—14 einbýlishúsa, bygging heilsuverndarstöðvarinn- ar gengur samkvæmt áætlun og verður lokið á næsta ári. Hafinn er undirbúningur að byggingu rað- húsa í þorpinu á vegum sveitar- félagsins. Vopnafjörður: Þyngsti dilkurinn 27,1 kg Vopnafirði, 10. október. SLÁTRUN hófst hér á Vopnafirði hinn 17. september síðastliðinn og verður alls slátrað hér 17 þúsund fjár. Meðalvigt er um 15,8 kg, sem er hálfu kílói meiri meðalþungi en var í fyrra miðað við sama fjölda fjár. Bezta meðalþyngd var 17,6 kg og þyngsti dílkurinn er nú 27,1 kg, en eigandi hans er Friðbjörn H. Guðmundsson, bóndi Hauksstöð- um. Slátrun lýkur hér á Vopnafirði hinn 27. október og hefst þá nautgripaslátrun, sem áætlað er að standi í eina viku. Ráðgert er að slátra um 200 nautgripum. — Katrín. Útgerö Skuttogarinn Guðmundur í Tungu hefur aflað vel í sumar, en afli handfæra- og dragnótabáta hefur verið allmisjafn. Góður afli var í júlí, en lakari seinni part sumarsins, enda ógæftir þá oft hamlað veiðunum. Gylfi, Vestri og Jón Þórðarson hafa fiskað fyrir erlendan markað, Helga Guðmundsdóttir er á loðnu, María Júlía er byrjuð á línu, en aflinn er ti-egur. Fleiri bátar búast nú á línu í þessum mánuði. Atvinna Atvinna hefur verið nokkuð góð og nú er alvarlegur skortur á vinnuafli í fiskvinnslustöðvunum. Sauðfjárslátrun er hafin í ná- grannasveitarfélögunum og streymir kjöt nú daglega til frystingar og slátur til sölu og er slátursala allmikil. Allmiklir flutningar hafa verið á fyrra árs kjöti til Reykjavíkur og eru ekki allir jafnánægðir með það. Menntamál Grunnskóli Patreksfjarðar hóf starfsemi sína hinn 18. fyrra mánaðar. Nemendafjöldi er á þriðja hundrað, forskóli fyrir 6 ára nemendur er nú í fyrsta sinn. Tónskóli Patreksfjarðar er tekinn til starfa. Iðnskóli starfar ekki fyrr en um áramót, en annar og þriðji áfangi verða strax í byrjun janúar. Menningarmál og skemmtanalíf Sinfóníuhljómsveit Islands kom hér fyrir skörtimu og hélt hljóm- leika fyrir okkur Patreksfirðinga við mjög góðar undirtektir, og ánægjulegast við þessa heimsókn var m.a. það, að hljómsveitin lék í samkomusal félagsheimilisins, sem nú er verið að vinna við að fullklára og stefnt er að því að vígja það 1. desember n.k. Dans- leikir, diskótek og kvikmyndasýn- ingar eru með hefðbundnum hætti og alltaf vel sótt. Félagsmálastarf- semi er nú að fara í gang hjá félögum staðarins, sem hæfir þessum árstíma. Heilbrigðismál Heilsufar er yfirleitt gott en illa gengur að fá lækna til starfa nú um sinn. S.I. áratug höfum við Patreksfirðingar verið svo heppnir að hafa jafnan tvo unga lækna starfandi hér. Þetta hefur verið einvala lið, bæði mannkostamenn og -konur og góðir læknar. Slæmt hve þetta fólk stoppar stutt í byggðarlaginu. Vonandi ræðst bót á þessu sem fyrst. Margt hefur verið ritað og rætt um gagnrýni, — tilgang hennar til uppbyggingar hinsvegar og niður- rifsmátt hennar hinsvegar. Fer þar allt eftir því hvernig gagnrýn- in er fram borin og ekki hvað síst með hvaða hugarfari hún er viðhöfð. Hef ég ekki í hyggju að ræöa um gagnrýni á víðum grund- velli, heldur taka til umfjöllunar ummæli Vladimirs Ashkenazy í septemberhefti tímaritsins „The Grammophone", sem Mbl. skýrði frá í gær og ennfremur viðtal blaðamanns Mbl. við V.A. í tilefni af þeim orðum, sem hann lét þar falla um Sinfóníuhljómsveit ís- lands. Hver sem les vitnisburð þann, sem V.A. gefur S.I. eins og hann birtist í hinu víðlesna erlenda tímariti fær óhjákvæmilega þá tilfinningu, að hér sé um lélega hljómsveit að ræða, vel fyrir neðan meðallag, hálfgerð áhuga- mannahljómsveit („semi- professional" eins og hann orðar það), þar sem þurfi að urr^gangast hljómsveitarfólk nánast eins og börn, eða með öðrum orðum dæmigerð neikvæð, órökstudd, niðurrífandi gagnrýni. I viðtali blaðamanns Mbl. við Ashkenazy áréttar V.A. gagnrýni sína, en rökstyður nánar skoðun sína á S.I. Við Iestur þess viðtals kemur hinsvegar í ljós jákvæð gagnrýni hans. V.A. endurtekur þar allt það, sem hann hefur oft sagt áður opinberlega um það, hvað mætti betur fara hjá S.í. og ég hef reyndar áður gert að umræðuefni í blaðagrein af tilefni ummæla hans. Áður en ég sný mér að viðtali blaðamannsins við y.A. vil ég segja það, að okkur Islendingum þykir ávallt gott að sjá, ef iof er borið á okkur í einni eða annarri mynd á erlendum vettvangi og að sama skapi erum við mjög hörund- sárir ef á okkur er hallað, jafnvel þótt við gerum okkur fulla grein fyrir réttmæti slíkra ummæla. Ég viðurkenni fúslega að mér þótti miður að erlendir tónlistaráhuga- menn skulu hafa fengið að lesa jafn neikvæðan vitnisburð um hljómsveitina okkar og í orðum V.A. lá, og tel ekki rétt af honum að hafa viðhaft þau á þessum vettvangi, því að þau þjóna engum jákvæðum tilgangi, nema ef vera skyldi að hleypa af stað umræðum hér heima, sem gætu leitt af sér bót á þeim atriðum sem betur Gunnar Egilson. mega fara til þess að gera S.í. að betri hljómsveit. Ashkenazy tilgreinir þrjár meg- inástæður fyrir því að S.I. sé tæknilega ekki nógu góð; að hljómsveitarfólki sé ekki gert kleift að einbeita sér að hljóm- sveitarstarfinu sem skyldi vegna allskonar aukavinnu; það eru of fáir góðir hljóðfæraleikarar í hljómsveitinni og allt of mikið um mannaskiptingar. Þessi þrjú atriði eiga rót sína að rekja til einnar og sömu ástæðunnar; starf hljóm- sveitarfólks er allt of illa launað, hið langa nám (10—15 ár) er allt of dýrt og hljóðfærin kosta hundruð þúsunda og jafnvel milljónir króna með tollum, vörugjaldi og ótal sköttum. Við þessar aðstæður hefur S.í. verið byggð upp af áhugasömu fólki, sem hefur neitað sér um þægilegt líf og vellaunuð störf til þess að sinna hugðarefni sínu og halda uppi ómissandi menningarstarfi með þjóðinni. „I hljómsveitinni er talsvert af gömlu fólki, sem einfaldlega er búið að spila of lengi,“ segir Ashkenazy. Eftirlaunaaldur hljómsveitarfólks hér fellur undir sömu reglur og annarra starfs- manna, þótt allir sjái að enganveg- inn er hægt að líkja hljómsveitar- starfi við venjulega skrifstofu- vinnu, þar sem fólk hefur fulla starfsorku til sjötugs. Hvergi í heiminum er eftirlaunaaldur hljómsveitarfólks jafn hár og hér. „ — það er líka of mikið af nemendum, sem eru ekki komnir svo langt að þeir séu færir um að leika í sinfóníuhljómsveit og eru reyndar vart af barnsaldri," held- ur Ashkenazy áfram. Þetta er líka rétt hjá honum, en það stafar af þvi að ráðamenn, sem ekkert vit hafa á málum, takmarka stærð hljómsveitarinnar við 59 menn, svo ógerlegt er að flytja sinfónísk verk, nema með því að bæta við aukafólki og eina aukafólkið sem hægt er að fá eru nemendur. íslendingar eiga Vladimir Ashkenazy mikið að þakka, meira en margur gerir sér grein fyrir, því að fyrir hans tilstilli höfum við orðið aðnjótandi listflutnings margra fremstu tónlistarmanna heims, sem við ella hefðum seint eða aldrei fengið hingað. Hann er opinskár og talar tæpitungulaust um það, sem honum finnst mega betur fara, — kröfuharður á sjálfan sig og þá um leið á aðra. Hann gagnrýnir ekki S.í. af því að hann telji sjálfan sig frábæran hljómsveitarstjóra, heldur vegna þess að honum er hlýtt til hljómsveitarinnar og vill veg hennar sem mestan. „Til þess að hægt sé að bæta þarf að segja sannleikann," segir hann og er það von min að allir sjái, að gagnrýni V.A. er ekki beint gegn S.I., þótt hijómsveitin fái skellinn, heldur eru það ráðamenn menntamála, sem mættu gjarna fara að skilja sinn vitjunartíma. Rögnvaldur Sigurjónsson Safa píanóleiks á íslandi er stutt en rís snögglega með mönnum eins og Markúsi Kristjánssyni, Árna Kristjáns- syni og Rögnvaldi Sigurjóns- syni. Listamannsferill Rögn- valds er lýstur upp af stórhug og miklum ákafa. Þessi ákafi kem- ur sérkennilega fram hjá Rögn- valdi í upphafi laga. Hann byrjar á undan áheyrendum. Þetta er ekki kæruleysi heldur ákafi og þörfin fyrir að taka til starfa. Tónleikar Rögnvalds í Þjóð- leikhúsinu 8. okt. s.l. voru glæsilegir og ramma inn rúm- lega þrjátíu ára starf hans sem kennara og píanóleikara. Tón- leikarnir hófust á Fantasíu í e-moll, eftir Mozart. Fantasían er sérkennileg tónsmíð, allt að því rómantísk, en þó mjög svipuð sams konar verkum eftir Philip Emmanuel Bach. Yfir leik Rögnvalds var blær kyrrðar og jafnvægis. Annað verkið var h-moll sónatan eftir Liszt. Það lýsir vel stórhug Rögnvalds að leika þetta verk á fyrstu tónleik- unum sínum í New York og fróðlegt þætti, ef hægt væri, að bera saman leik hans nú og þá. Undirritaður hefur heyrt Rögn- vald leika h-moll sónötuna með árs millibili og var flutningur hans nú með allt öðrum hætti. Bæði er munur á hljóðfærum og í fyrra skiptið hafði Rögnvaldur ekki leikið opinberlega í nokkur % mm W ár. Tækni hans er af þeirri stærð, sem skipar honum í flokk með heimspíanistunum en um leið ber hún svip þeirra örlaga að vera sonur lítillar þjóðar, sem ekki kann né getur búið honum skilyrði til að þroska hæfileika sína til hins ýtrasta. Eftir hlé lék Rögnvaldur tvö verk eftir Chopin, Berceuse op. 57 og Fantasíu op. 49. Berceuse er byggt á tveimur hljómum sem mynda „bordún" undir glitrandi tónvefnaði. Yfir þessu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.