Morgunblaðið - 11.10.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.10.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978 Nýir þingmenn teknir tali: Telja að umræðan um efna- hagsmál einkenni þingstörf Guðmundur Karlsson (S). — Þetta þing leggst eiginlega engan veginn í mig. Fyrir mér er þetta algjörlega nýtt starf og ég geng að því sem slíku. Án efa mun þingstörfin í vetur einkennast af umræðunni um efnahagsmál og glímunni við verðbólguna. Ég mun sjálfur koma til með að beita mér á sviði atvinnumála, einkum á sviði sjáv- arútvegsmála. Efnahagsmálin og umbótamál Albýöuflokksmanna Vilmundur Gylfason (Afl). — Ég hef eðlilega litla reynslu og litla þekkingu á þeim störfum sem hér fara fram, en að öðru leyti leggjast þingstörfin vel í mig. Það liggur ljóst fyrir að stefna ríkis- stjórnarinnar í efnahagsmálum og verðbólguvandinn verða meginvið- fangsefni þessa þings. Hvað okkur alþýðuflokksmenn snertir þá munu almenn umbótamál verða okkur hugleikin, þau umbótamál sem við höfum haldið á loft en fengum ekki inn í stjórnarsáttmál- ann. Nú reynir á hvernig okkur vegnar í þeim efnum á þingi. Hvað endurskoðun vísitölumáls- ins snertir þá kemur afstaðan til með að mótast nokkuð af niður- stöðum nefndarinnar sem nú gerir úttekt á þeim málum. Ég á ekki UuAntundur Vilmundur Karlssun (iylfastin von á róttækum tillögum frá nefndinni. En einnig fer þetta nokkuð eftir því hvaða stefnu stjórnmálaflokkarnir taka. Ég held að skilningur allra sé að aukast á þessu máli og að aðgerðirnar sem boðaðar eru séu ekki eins óvinsælar og sumir kunna að halda. Efnahagsstefna næsta árs grund- völluö í haust ólafur R. Grímsson — Þing- störfin leggjast vel í mig. Fram að áramótum tel ég að umræðan um efnahagsmál og fjárlagagerðin einkenni störf alþingis. Á þessum tíma verður og efnahagsstefna næsta árs grundvölluð. Eftir Morgunblaðið tók nokkra nýja þingmenn tali við þingsetningu í gær. Voru þeir spurðir hvemig hið nýja starf legðist í þá, hver þeir teldu verða helztu verkefni þingsins, viðhorf þeirra í þeim efnum o.sfrv. Fara svörin hér á eftir: áramótin tel ég hins vegar að þingstörf muni einkennast af ýmsum málum ráðherra og þing- manna, og ekki er ólíklegt að þingmenn verði virkari í málatil- búningnum en á síðustu þingum. Breyta 0arf skattalögunum — Varðandi þá stefnubreytingu sem búast má við í sambandi við gerð fjárlaga tel ég að hafa beri ákveðin meginmarkmið í huga. í fyrsta lagi verður að skapa grund- völl í ríkisbúskapnum fyrir jöfnuði og standa verður við það sam- komulag sem gert hefur verið við samtök launafólks. í öðru lagi þarf að breyta skattalögunum. Það verður að vera í þeim dúr að hægt verði að nota þau til að knýja Ólafur K. Aloxander (irímssun Stofánssun atvinnuvegina til að fara inn á svið meiri framleiðni og meiri afkasta, þ.e. breytingarnar verða að vera í þágu efnahagsframfara. í þriðja lagi legg ég ríka áherzlu á að ríkisbúskapurinn verði skorinn upp og stuðlað að sparnaði. Á þessu verður að taka með mikilli festu, því staðreyndin er að margvísleg yfirbygging hefur hlaðist upp í því kerfi sem þróast hefur síðustu árin. í fjórða og síðasta lagi tel ég að tryggja verði að þær byrðar sem bera verður svo að hægt verði að vinna á verðbólg- unni, færist í ríkari mæli á herðar þeirra sem hagnast hafa á verð- bólgunni en ekki á launafólk. — Ríkisstjórnin var sem kunn- ugt er mynduð í byrjun september. Enn er nokkuð óunnið í sambandi við samkomulag um grundvallar- stefnur og munu þau mál senni- 13 lega verða að einhverju leyti mótuð á þinginu í vetur. Nýjan flöt á samgöngumálin Alexander Stefánsson (F). — Ég trúi því að þetta verði við- burðamikið þing sem nú fer í hönd, enda mikil þörf á. Aðallega munu störfin verða á sviði efnahagsmál- anna. Ég er fylgjandi róttækum breytingum svo að ná megi fram hjöðnun á verðbólgunni. Tel ég hjöðnun verðbólgunnar vera aðal- viðfangsefnið í glímunni við þann efnahagsvanda sem blasir við okkur. — Ég hef mikinn áhuga á samgöngumálum á landi, á láði og í lofti og mun því einkum fylgjast með þeim málum og beita mér á því sviði. Það er mjög mikilvægt fyrir okkar þjóð að samgöngumál- in verði í lagi. Að mínu viti er þetta eitt af þeim málum sem verður að finna nýjan flöt á því mikið er enn ógert svo ástandið geti talist viðunandi. Nefnd geri til- lögur um gjald- skrárbreytingar VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur skipað þriggja manna nefnd til að fjalla um gjaldskrár opinberra aðila. I nefndinni eiga sæti Guðmund- ur Ágústsson, hagfræðingur, for- maður nefndarinnar, Finnur Torfi Stefánsson, alþingismaður og Gísli Árnason, deildarstjóri. Nefndin gerir tillögur til gjald- skrárbreytingar, en endanlegar ákvarðanir eru teknar af ríkis- stjórninni í heild. (Fréttatilk.) Metsoluplatan: Prakkarinn Emil í Kattholti Utsöluverö Kr. m!\m Þriöja sending af hinni bráöskemmti- mlegu barnaplötu um sjónvarpsstjörn- m urnar Emil og ídu í Kattholti komin í verzlanir. A.A. hljómplötur Pöntunarsímar: 26139 ~ 16112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.