Morgunblaðið - 11.10.1978, Page 11
Ingveldur
Ingveldur Hjaltested hefur
stórkostlega rödd. Söngsaga
hennar er merkileg og í raun-
inni táknræn fyrir flesta okkar
söngvara. Hún hóf söngferil
sinn í Þjóðleikhúskórnum, er
hann var stofnaður en tók ekki
til við reglulegt nám í söng fyrr
en fyrir fimm árum, er Söng-
skólinn í Reykjavík var stofnað-
Tðnllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
uy. Margir söngvarar hefja söng
sinn i kórum og er það í flestum
tilfellum ekki óæskileg byrjun,
hreinlega til að læra að opna
munninn. Til langframa er vera
í kór mjög hæpin fyrir þann sem
ætlar að læra að syngja, því að í
kór er mótun raddarinnar mið-
uð við þarfir kórsins sem
heildar, en einstaklingnum ekki
sinnt og jafnvel haldið niðri til
að skemma ekki heildarhljóm-
inn. Sé stjórn kórsins mjög
stílföst getur söngvarinn orðið
fastur í raddbeitingu, sem háir
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978
11
Hjaltested
honum alla tíð. Að syngja í kór
er góð byrjun og menntandi, en
söngnám er tímafrekt nám
einstaklinga og þarf þjálfun
hans að vera hverju sinni miðuð
við margvislega einstaklings-
bundna þætti, þar sem ein-
strengingslegar kenningar og
kennsluaðferðir geta stýrt þjálf-
uninni í blindgötu. Sá sem ætlar
að verða söngvari má að sjálf-
sögðu syngja í kór, jafnframt
því sem hann lærir söng og þær
greinar sem tilheyra allri söng-
þjálfun, en hann verður aldrei
söngvari af því einu að syngja í
kór. Ingveldur Hjaltested er
fæddur söngvari og syngur
mörg ár í kór. Eftir þann tíma,
þegar flestir hafa gefist upp við
að verða söngvarar, snýr hún við
blaðinu og fer að læra. Til þess
að þarf trú á hæfileika sína og
hugrekki til að brjóta niður
venjur sínar. Söngúr Ingveldar
var í góðu jafnvægi og oftast
tandurhreinn. Það er nauðsyn-
legt að stíga fyrstu sporin
varlega, enda mát^i heyra á allri
túlkuninni að kennarinn var á
bak við. Þessir tónleikar voru
mjög ánægjulegir og nú er
aðeins að bíða, hversu Ingveldi
tekst að halda sinu striki til
fullnaðar sigurs.
Jónína Gísladóttir lék undir
og var flutningur hennar vel
samstilltur söng Ingveldar.
Eigum ávallt fyrirliggjandi
Fenner reimar og reimskífur,
Fenner gírmótorar,
Fenner leguhús,
Fenner ástengi í miklu úrvali.
Látið okkur leiðbeina yður
um val á Fenner drifbúnaði.
VALD POULSEN H/F
Suðurlandsbraut 10, sími 38520 — 31142.
Tónllsl
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
verki þarf að ríkja kyrrð og
friðsæl fegurð. I Fantasíunni
var leikur Rögnvalds á köflum
glæsilegur.
Næst síðasta verkefnið voru
fjórar prelúdíur eftir Debussy.
Túlkun Rögnvalds á fíngerðum
blæbrigðum er mjög sérstæð og
má vera að óróleiki og ákefð
hans sé skýringin á því hve
lítinn tíma hann gefur sér að
staldra við hægferðugt tónferli.
Munurinn á því hvernig menn
skynja hraða er mjög mikill og
má vera að þar liggi skýringin á
tækni og hæfni manna til að ná
valdi á margslungnu tónferli í
miklum hraða. I síðasta verkinu,
í sónötu op. 28 eftir Prokofjeff,
var tækni Rögnvalds stórglæsi-
leg og leikur hans gæddur
miklum galdri. I heild voru
tónleikarnir sterkir og tilþrif
Rögnvalds mögnuð miklum
átökum. Tilfinning hans fyrir
„drama" tónverksins er mjög
sterk en lendir oft í efri
mörkum, sökum stórhuga ákafa.
Rögnvaldur Sigurjónsson er
stórpíanisti og mættu íslend-
ingar sýna manni eins og honum
nokkurn þakklætisvott fyrir
liststörf og kennslu í yfir 30 ár,
fyrir störf hans sem eins af
skapendum tónmennta í land-
inu.
Shell
Olíufélagið Skeljungur hf
lil
Höfum opnaó nýtísku
Bensínstöð í
Garðabæ
Höfum opnað glæsilega bensín- og þjónustustöð í Garðabæ,
á mótum Bæjarbrautar og Vífilsstaðavegar.
Þar verður rekin fjölþætt bifreiðaþjónusta, svo sem:
Bensín- og olíusala frá nýtísku tölvudælum.
Verslun með fjölbreytt úrval bifreiðavarnings.
Ákjósanleg aðstaða til að hreinsa, þvo og ryksuga bíla.
Síðar hefst starfræksla smurstöðvar og skyldrar þjónustu.
Garðbæingar og aðrir vegfarendur.
Gjörið svo vel og reynið þjónustuna, verið velkomin
á Shellstöðina í Garðabæ. Simi 42074