Morgunblaðið - 11.10.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978
Hver selur hvem
Athugasemd frá Knattspymufélaginu Víkingi
í Mornunblaðinu s.l. laujíardají
0(j sunnudají birtast furðulegar
líreinar um Arnór Guðjohnsen,
knattspyrnufélajíið VíkinK og
belfíiska félajjið Lokeren. Þar er á
mjön einhæfan hátt haldið á
málum. Ranjtfærslur af versta
ta«i» sem blaðið gerir jafnvel að
sínum. Aðeins fjallað um aðra hlið
málsins 0« knattspyrnufélagið
Vikinjíur þjófkennt. Stjórn Vík-
injjs telur ástæðu til að víta
Mornunblaðið fyrir þessi skrif.
Þau virðast aðeins ætluð til þess
að sverta Víkinf; í aujium almenn-
intís, sem lítið fylf?ist með í þessum
málum. Furðulefí vinnubrögð Mbl.
í þessu máli hafa komið á óvart ok
rýrt álit það, sem við höfum á
blaðinu. Ekkert samband var haft
við forystumenn Víkinfjs áður en
viðtalið við Eið Guðjohnsen var
birt.
Stjórn Víkinfjs biður Morjíun-
blaðiö að birta eftirfarandi stað-
reyndir:
Hinn 17. júlí 1978 skrifaði stjórn
Víkinfts bréf til stjórnar Knatt-
sf)yrnusambands Islands. Þar var
KSI beðið að hafa milligönfíu um
að kæra belf;íska félafjið Lokeren
vefjna brots á 10. grein lafja
l’IFA-alþjóða knattspyrnusam-
bandsins — þar sem segir að
félöfjum sé bannað að setja sig
beint í samband við leikmenn á
miðju keppnistímabili.
Niðurstaðan af þessari kæru er
bréf FIFA til KSÍ dafísett 15/8 þar
sem FIFA staðfestir, að hér sé um
lagabrot að ræða og búið sé að
senda út bréf til allra belgískra
félaga og þeim sagt að hætta
þessum ólöglegu aðgerðum.
Um miðjan júlí s.l. hafði Eiður
Guðjohnsen gert samning fyrir
hönd sonar síns við belgíska
félaffið Lokeren. Víkingur hafði
ekkert við þann samning að
athuga og skrifaði undir flutnings-
beiðnina þá strax, en setti það eina
skilyrði að Lokeren hefði samband
við þá f.vrst, en það vildu þeir ekki
og þess vegna dróst þetta. Eina
athugasemd Víkings var brot
Lokerens á rétti Víkings sam-
kvæmt 10. grein laga FIFA. Þetta
er forsaga málsins og Víkingur vill
undirstrika, að umræður félagsins
við fulltrúa Lokerens voru ein-
göngu um brot Lokerens gagnvart
Víkingi.
Þá kemst stjórn Víkings ekki
hjá því að svara nokkrum rang-
færslum í Morgunblaðinu.
1. Eiður býður peninga
Eiður Guðjohnsen segir í við-
tali í Mbl. „Mitt álit er að þeir
(Víkingur) hafi engan rétt til að
gera pcningakröfur. en það ,sé
annað mál hvaða samkomulagi
hægt er að ná við viðkomandi
leikmann". Víkingur vill taka
fram, að samningur Arnórs við
Lokeren var aldrei til umræðu og
þar af leiðandi fráleitt að halda
því fram, að félagið hafi sótzt eftir
peningum hans.
2. Við höfum
hreinan skjöld
Þá segir Eiður. „Við höfum
mjiig svo hreinan skjiild gagnvart
Knattspyrnudeild Víkings. Þeir
vissu ávallt hverjar gerðir okkar
voru". Vegna þessa atriðis vill
formaður Víkings, Jón Aðalsteinn
Jónasson, taka fram, að hann sem
vinnuveitandi piltsins sá fyrst í
dagblaði, að starfsmaður hans,
Arnór Guðjohnsen, var floginn út
til Belgíu til að semja við Lokeren.
Það sýnir best hinn „hreina
skjöld“ þeirra gagnvart Víkingi.
Launungin var svo mikil á ferða-
lagi þeirra, að búið var að velja
Arnór í unglingalandslið íslands
til keppni við Færeyjar. Eiður
tilkynnti þjálfara unglingalands-
liðsins, að Arnór gæti ekki Ieikið
vegna þess, að fjölskylda hans
væri að fara í ferðalag, sem fyrir
löngu hefði verið búið að ákveða og
hún gæti ekki breytt.
3. Lokeren biöur um leynd
Eiður segir í Mbl. „Mér var
kunnugt um þessa fundi en þau
skilyrði voru sett af stjórn
Víkings, að cg fengi ekki að vita
um niðurstöður fundanna." Á
þessum fundum með fulltrúa
Lokerens var samningur Arnórs
ekki til umræðu. Hins vegar óskaði
fulltrúi Lokerens eftir að skaða-
bótasamningur Víkings og Loker-
ens yrði ekki birtur. í viðtali við
þennan fulltrúa Lokerens í Mbl.
kemur fram, að það hafi komið
honum mjög á óvart, að áhuga-
mannafélag skyldi krefjast samn-
inga og skaðabóta vegna félaga-
skipta leikmanns. Þarna hlýtur
málum að vera blandað — senni-
lega vegna tungumálaerfiðleika.
Víkingur krafðist aðeins skaða-
bóta — og skrýtin er sú staðhæf-
ing, að belgísk félög hafi ekki
greitt dönskum félögum skaðabæt-
ur vegna félagaskipta fyrr en eftir
að atvinnumennska var innleidd í
Danmörku. Þetta er aðeins afsök-
un — ef hún er rétt — manns hjá
félagi, sem var að brjóta lög FIFA
til að komast hjá greiðslum.
4. Mótmæli leikmanna
Eiður segir einnig. „Eitt er
það. sem ég vil að komi fram.
Það. sem gerðist um það bil viku
fyrir síðasta lcik Víkings í
Islandsmótinu. sem var gegn ÍBK
í Keflavík. Nokkrir af yngri
drengjunum í liði Víkings af-
hentu stjórn knattspyrnudcildar
hréf þess efnis. að þeir lékju ekki
umræddan leik og gengju úr
Víkingi ef félagið skrifaði ekki
tafarlaust undir félagaskipti
Arnórs." Þetta er rétt, en eftir að
þessir sömu leikmenn höfðu kynnt
sér alla málavexti drógu þeir bréf
sitt til baka. Sjá meðfylgjandi
yfirlýsingu frá leikmönnum Vík-
ings.
5. Hver svipti Arnór
persónufrelsi?
Þá segir í viðtalinu: „Ég held
að almenningi sé að verða ljóst
hvað hér cr að gerast. Það er
verið að svipta drengina persónu-
frelsi og þá kemur það verst
niður á þeim drengjum sem
mörgum finnst að frekar ætti að
hampa en troða á." Þá er spurn-
ingin hver sviptir hvern persónu-
frelsi? Eiður Guðjohnsen semur
fyrir hönd sonar síns, 16 ára
gamals, við atvinnumannafélag.
Víkingur kom hvergi nærri þeim
samningum, en við þorum að
full.vrða í dag að aðrir en Eiður
hefðu getað náð mun hagstæðari
samningi fyrir hönd Arnórs.
Persónuhagsmunir föðurins virt-
ust skipta meira máli í samning-
um við Lokeren en drengsins. Nú
brýzt reiði Eiðs út og bitnar á
Víkingi vegna eigin mistaka í
samningum við Lokeren, þrátt
fyrir ábendingar og tillögur
þeirra, sem best þekkja til þessara
mála.
6. Hver er meö höndina
í vasa Arnórs?
Viðtalinu við Eið lýkur þannig.
„Þar á ég við að ekki sé verið með
aðra höndina ofan í peningaveski
strákanna." Hver er með höndina
ofan í peningaveski hvers. Eiður
hafði samið fyrir hönd sonar síns
um ákveðna greiðslu frá Lokeren.
Ef einhver hefur farið í veski
Arnórs þá er það einhver annar en
Knattspyrnufélagið Víkingur.
Ákæra Eiðs á hendur Víkingi er
fráleit og út í hött. Samningur
Arnórs við Lokeren er óbreyttur,
enda aldrei verið til umræðu hjá
Víkingi. Það, sem Eiður samdi um
við Lokeren, viljum við sem
minnst um vita. Af þeim pening-
um, sem komu í hlut Árnórs,
rennur ekki króna til Víkings.
Hins vegar vildi Lokeren fallast á
að greiða Víkingi skaðabætur
frekar en að eiga yfir höfði kæru
og sekt FIFA.
Stjórn Víkings vill taka fram, að
mjög góður andi ríkti í umræðum
Víkings og Lokerens. Fulltrúi
Lokerens lýsti áhuga sínum á
samskiptum milli félaganna í
framtíðinni.
Að lokum:
Knattspyrnufélagið Víkingur er
áhugamannafélag, þar sem margir
fórna bæði tíma og peningum til
að vinna að störfum félagsins, um
leið og unnið er þarft verk í þágu
borgarbúa. Það er því lítt skiljan-
legt af hvaða hvötum Mbl. birtir
heila síðu af alls kyns svívirðing-
um og óþverraáburði á félagið án
þess að hafa samband við forystu-
menn félagsins áður. í sunnudags-
blaðinu er enn haldið áfram og nú
er Arnór að lýsa því yfir, að hann
muni aldrei aftur leika með
Víkingi. Allt frá því að Arnór, 10
ára gamall, varð Islandsmeistari í
5. flokki með Víkingi, höfum við
haft ánægju af að fylgjast með
þessu snjalla knattspyrnumanns-
efni og komum til með að sakna
hans. Við óskum honum alls hins
besta á atvinnumannsferlinum, og
vonum að grein sú þar sem hann
segist aldrei aftur leika með
Víkingi, komi til með að flokkast í
sama gæðaflokk og önnur skrif
Mbl. til þessa varðandi þetta mál.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar
Knattspyrnufélagsins Víkings.
Jón A. Jónasson.
Reykjavík,
9. október 1978
Við undirritaðir leikmenn
meistaraflokks Víkings í knatt-
spyrnu lýsum yfir undrun okkar,
um leið og við hörmum þau
blaðaskrif sem birst hafa undan-
farna daga varðandi félagaskipti
félaga okkar, Arnórs Guðjohnsens,
yfir til Lokerens.
Eftir að við af gefnu tilefni
höfum fengið að fylgjast með
þessu máli, teljum við, að stjórn
Víkings hafi staðið bæði rétt og
eðlilega að þessu máli.*
Jóhannes Bárðarson
Jóhann Torfason
Magnús S. Þorvaldsson
Gunnar Örn Kristjánsson
Gunnlaugur Þór Kristfinnsson
Magnús Ólafs Hansson
Róbert B. Arnarsson
Diðrik Ólafsson
Lárus Þór Guðmundsson
Guðm. Þ. Guðm.
Ileimir Karlsson
Ragnar Gíslason
óskar Pálmason
Kári Kaaber
Ilelgi Helgason
* Allir leikmenn sem náðist í
skrifuðu undir.
Aths. ritstj.t
Morgunhlaðið vísar til föður-
húsanna „vítum" Knattspyrnu-
félagsins Víkings á blaðið, stað-
hæfingum félagsins um „furðuleg
vinnubrögð" og ásökunum um að
Morgunblaðið hafi viljað „sverta
Víking í augum almennings".
Frá sjónarmiði Morgunblaðs-
ins er ckkert athugavert við að
birta viðtal við Eið Guðjohnsen
án þess að fyrst sé haft samband
við forsvarsmenn Vikings. Þar er
um eðlileg vinnubrögð blaðs að
ræða. Það er ekki heldur gagn-
rýnisvert að birta viðtal við
Arnór Guðjohnsen, þar sem hans
sjónarmið koma fram. Forsvars-
mönnum Víkings gafst kostur á
að koma athugasemdum við um-
mæli Eiðs Guðjohnsen á framfæri
þegar sl. sunnudag, en höfnuðu
því.
Morgunblaðið er opið fyrir
sjónarmiðum þeirra feðga og
Víkings. Stóryrðum félagsstjórn-
ar Víkings í garð Morgunblaðs-
ins er því vísað á bug.
Mbl. hefur ekki verið með
neinar aðdróttanir í þessu máli,
en íþróttafréttaritarar þess telja
það sjálfsagða skyldu sína að
fylgjast með frama íslenskra
knattspyrnumanna á erlendum
vettvangi, og ef aðstendendum
þeirra eða þeim sjálfum finnst á
þá hallað. hafa þeir rétt til að
koma aðfinnslum sinum á fram-
færi án þess að þar sé um að ræða
tilraun Mbl. að „sverta" einhvern
eða „rýra" álit fþróttafélagsins.
Þetta er sérstætt mál, sem ræða
ætti málefnalega og leggja spilin
sársaukalaust á borðið. Mbl. á
hvorki í útistöðum við Víking né
önnur íþróttafélög. en greiðslur
fyrir fslenska knattspyrnumenn
hvort scm menn kjósa heldur að
kalla þær „nauðungarsamninga",
eins og Eiður Guðjohnsen gerði
eða „skaðabætur" eins og forráða-
menn Víkings gera, er ekkert
einkamál íþróttafélaga, heldur
sjálfsagt umræðuefni á opinber
um vettvangi. ekki síst í landi þar
sem atvinnumennska er á frum-
stigi og raunar óskilgreint hug-
tak samkva'mt ísicnskum lögum.
Njóttu dagsins með
Dentokej
Xylitol er náttúrulegt sætief'ni
Hressandi, sykurlaust
tysgigúmmí frá Wrigley’s