Morgunblaðið - 11.10.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1978
31
Valsmenn
meistarar
eftir hörkuleik
VALSMENN tryggðu sér sinn
fyrsta Reykjavíkurmeistaratitil í
körfuknattleik í gærkveldi er
þeir sigruðu Framara í fjörugum
og spennandi leik. Liðin skiptust
á um að hafa forystuna og var
staðan í hálfleik 42—38 Val í vil.
Mikil villuvandræðu steðjuðu
síðan að báðum liðum í seinni
háifleik. en Valsmenn, sem virt-
ust hafa meiri breidd en Framar-
ar, sigu fram úr á lokasprettinum
og sigruðu 91—83.
Valsmenn komust í 7—0 áður en
Framarar komust á blað og virtust
ætla að taka leikinn í sínar hendur
strax á upphafsmínútunum. En
þegar Framarar höfðu losnað við
mesta taugaæsinginn fóru þeir
jafnt og þétt að vinna upp muninn.
Á 14. mínútu fyrri hálfleiks
komust þeir svo yfir 28—27. Þá
varð spil Framara hálf vandræða-
legt og Valsmenn gengu á lagið og
höfðu yfir í hálfleik 42—38.
Strax á upphafsmínútum fyrri
hálfleiks fékk Valsmaðurinn Tim
Dwyer sína 5. villu og varð honum
þá að orði, að dómararnir hérna
ættu að læra að dæma. Dómarar
þessa leiks, þeir Jón Otti Ólafsson
og Erlendur Eysteinsson, dæmdu
þennan leik hvorki betur né verr
en við höfum átt að venjast, en
þeir Bandaríkjamenn sem hingað
hafa komið hafa sáran kvartað
yfir dómgæslunni hér, svo að
eitthvað virðist að í þeim efnum.
En þegar Dwyer var kominn útaf
bjuggust menn við, að John
Johnson myndi leiða Framara til
sigurs, en Valsmenn stóðu saman
og unnu ágætan sigur með geysi-
legri baráttu. Lokatölur: 91—83.
Valsmenn voru vel að þessum
sigri komnir og jafnvel þótt þeir
hefðu misst 4 máttarstólpa útaf
með 5 villur létu þeir aldrei slá sig
út af laginu. Bestir Valsara voru
Kristján Ágústsson og Þórir
Magnússon, sem báðir skoruðu 20
stig. Þá var Tim Dwyer góður
meðan hans naut við, en hann
skoraði 18 stig.
Það sem varð Frömurum að falli
í þessum leik var reynsluleysi
Reykjavík-
urmótið í
handknattleik
TVEIR leikir fara fram í Reykja-
víkurmótinu í handbolta í kvöld og
hefst sá fyrri klukkan 20.15. Leikir
kvöldsins eru Ármann — Valur og
Víkingur — KR. Þetta er önnur
umferðin í keppninni um fjögur
efstu sætin í mótinu.
leikmanna liðsins. Þegar Johnson
missti taktinn þá voru Framarar
ráðalausir og gerðu afdrifarík
mistök. En Framarar þurfa ekki
að vera óánægðir því að augljóst
er, að þeirra tími kemur. Liðið er
ungt og bráðefnilegt. Vissulega er
erfitt að tapa úrslitaleik, en þá er
bara að reyna aftur.
Bestur Framara var John
Johnson, sem skoraði 41 stig. Var
hann mjög óánægður að leik
loknum og var harðorður í garð
dómara leiksins. En næstur John-
son komu Ómar Þráinsson með 12
stig og Símon Ólafsson með 10
stig. gíg.
(Ljósm. Emilía).
• Valsmenn unnu sitt íyrsta meiriháttar mót í gærkveldi. Hér sjást hinir nýbökuðu
Reykjavíkurmeistarar. Aftari röð frá vinstri. Einar Mathiesen, Auðunn óskarsson,
Helgi Sigurðsson, Kristján Ágústsson, Hafsteinn Ilafsteinsson, Sigurður Hjörleifsson,
Gústaf Gústafsson og Sigurður Helgason form. Körfuknattleiksdeildar Vals.
Neðri röð frá vinstri. Jóhannes Magnússon, Torfi Magnússon, Tim Dwyer, Lárus Hólm,
Ríkharður Hrafnkelsson og Þórir Magnússon.
i
II á allt að seliast
JX m * t mm ■ mrn f
og verðið er eftir því
Og þú mátt jafnvel
örtw
steO
dot &
V,ao9a,
öe\os
veð1
ýáa
66
d&9a
Einliðleiks-
mót TBR
Sunnudaginn 15. október verður
haldið opið badmintonmót á veg-
um Tennis- og badmintonfélags
Reykjavíkur. Mótið verður haldið í
húsi félagsins, Gnoðarvogi 1, og
hefst það kl. 14.00.
Keppt verður í einliðaleik karla
og einliðaleik kvenna. Þeir sem
tapa fyrsta leik fara í sérstakan
aukaflokk.
Mótsgjald er kr. 2000.
Þátttökutilkynningar frá ein-
stökum badmintonfélögum skulu
hafa borist til félagsins í síðasta
lagi, miðvikudaginn 11. október
n.k.
HVAÐ ER TIL
PD Gallabuxur □ Kakhibuxur □ Flauelsbuxur
□ Fínflauelsbuxur □ Terelynebuxur herra
□ terelynebuxur dömu □ Herraföt □ Stakir
herrajakkar □ Bolir □ Dömudragtir
□ Dömujakkar □ Ullarpils □ Blússur □ Herrastuttjakkar
□ Kjólar □ Dress □ Og ýmislegt fleira
LAUGAVEG 66 SiMI FRA SKIPTIBORÐI 2815S