Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
Heimsfrœg sópran söngkona
syngur hér á 2 tónleikum á
vegum Fulbright-stofnunar
SÓI’RANSÖNGKONAN hoims-
fra'Ka. Anna Moffo, mun koma
fram á tvennum tónleikum hér í
Rpykjavík innan skamms. en það
er Fulhrinht-nefndin sem efnir
til þessara tónleika í samvinnu
við Háskóla íslands i tilefni af 20
ára afmæli Fulhright stofnunar
innar á íslandi.
Að sögn þeirra Frank Ponzis,
formanns Fulbright-nefndarinnar
of; Guðlauiís Þorvaldssonar,
háskólarekstors, kemur söngkon-
an sérstaklega til íslands frá
Bandaríkjunum vegna þessara
tónleika, en hún fékk einmitt sjálf
snemma á listamannsferli sínum
Fulbright-styrk til söngnáms á
Itáiíu, þar sem hún ávann sér hylli
tónlistarunnenda og raunar var
hún orðin stórstjarna í tónlistar-
heiminum í Evrópu áður en
hróður hennar tók að berast til
heimalands hennar, Bandaríkj-
anna.
Tónleikarnir verða haldnir í
Háskólabíói, hinn fyrri fimmtu-
daginn 26. október og sá síðari á
sunnudag kl. 14.30, en miðasala
hefst á mánudag nk. og verður á
skrifstofu Happdrættis Háskóla
íslands í Tjarnargötu. Verð
aðgöngumiða er kr. 4 þúsund. Að
því er forsvarsmenn þessa tón-
leikahalds sögðu var ákveðið að
efna fremur til tvennra tónleika
fremur en einna þar sem búizt er
við að margir vilji fá færi á að sjá
og heyra þessa glæsilegu söng-
konu, sem hingað kemur ásamt
undirleikara sínum Martin Smith.
Islendingum er hún vel kunn fyrir
söng sinn af hljómplötum í
Ríkisútvarpinu og fyrir söng sinn í
hlutverki Violettu í óperunni „La
Traviata" eftir Verdi, sem sjón-
varpið sýndi ekki alls fyrir löngu.
Anna Moffo er eina alþjóðlega
söngkonan, sem er jafnvíg í
óperum og á einsöngssviði, með
hljómsveitum, í útvarpi eða sjón-
varpi, á hljómplötum og í kvik-
myndum. Óperur hefur hún sung-
ið við Metropolitan-óperuna í New
York, í San Francisco, Chicago, La
Scala í Mílanó, Vín, Búdapest,
Stokkhólmi, Berlín og Múnchen.
Sem konsertsöngvari hefur hún
komið fram um öll Bandaríkin og
Evrópu. Hún hafði sinn sjónvarps-
þátt í ítalska sjónvarpinu, sem í 35
vikur á ári sást um alla sunnan-
verða Evrópu, og hún hefur oft
komið fram í sjónvarpi vestan
hafs. Fyrir hljóðritun sína hjá
RCA á „Söngvum frá Auvergne"
úts. af Canteloube (undir stjórn
Leopolds Stakowskis) Hlaut hún
heiðursverðlaunin „Grand Prix du
Disque“, og fyrir „Kvenhetjur"
Verdis halut hún „Orfée d‘Or“.
„Hans og Gréta" hlaut verðlaunin
„Plata ársins" hjá Stereo Review
og Record World valdi hana einnig
sem „Óperu ársins". Hún hefur
gert meira en tylft kvikmynda.
Óperurnar „La Traviata" og
„Lucia di Lammermoor", sem
kvikmyndaðar voru í Evrópu, hafa
verið sýndar um víða veröld, þar á
meðal í íslenzka sjónvarpinu. I
viðurkenningarskyni hefur ítalska
stjórnin veitt Önnu Moffo æðsta
heiðursmerki, sem hún ræður yfir:
Commendatoreheiðursorðu
ítalska lýðveldisins.
Anna Moffo.
\brum aó fá75 rúllur afhinum
vkWirkcnndu
Donnaghadee
gólfteppum
ÓBREYTT WRÐ á pcssari sendingu
UTAVER
GfensásvegllðHreyílshúsinu Shi 82444
Forráðamenn Veltis h.f. fyrir framan nýja Volvoinn. er þeir kynntu
bflinn fyrir fréttamönnum. Talið frá vinstrii Ásgeir Gunnarsson
framkvaemdastjóri. Árni Filipusson sölustjóri og Kristján Tryggvason
þjónustustjóri.
Nýtt úflit á nýja
V olvo-bílnum
VOLVOUMBOÐIÐ á íslandi.
Veltir h.f.. efndi nýlega til
hlaðamannafundar. þar sem
kynntar voru 1979 árgerðirnar af
Volvo. en fyrstu bflarnir af þeirri
árgerð eru nú að koma til
landsins. Volvo-bflar njóta sífellt
meiri vinsælda hér á landi og
hafa í ár verið fluttir inn fleiri
hflar af þeirri tegund en nokkru
sinni fyrr. Fyrstu tíu mánuði
ársins var fluttur inn 531 fólks-
bfll og 51 vörubfll. en allt árið
1971. sem var áður metár. voru
fluttir inn 482 fólks-bflar af
Volvo-gerð.
Á blaðamannafundinum voru
kynntar þær breytingar, sem
gerðar hafa verið á Volvo-bílnum
að þessu sinni, en margar mikil-
vægar breytingar hafa verið gerð-
ar á hinum ýmsu gerðum Volvo.
Áþreifanlegasta breytingin er sú,
að nú er hægt að velja á milli
beinskiptingar og sjálfskiptingar í
Volvo 343. Áður var hann aðeins
fáanlegur sem sjálfskiptur. 343 er
nú með nýrri innréttingu og væg
n.vjung er aukið akstursöryggi
VOLVO 240 og 260.
Þrátt fyrir það, að sjálfskipting
hefur marga kosti umfram bein-
skiptingu, eru þeir margir sem
kjósa heldur beinskiptan bíl.
Volvo 343 er þess vegna nú
fáanlegur með beinskiptingu fyrir
þá sem kjósa það frekar.
Það kom fram á blaðamanna-
fundinum að hlutfall sjálfskiptra
Volvo-bíla eykst stöðugt. Árið 1971
var 10% af Volvo-bílum hérlendis
sjálfskiptir bílar en í ár er hlutfall
þeirra orðið 40%. Sögðu forráða-
menn Veltis að venjan væri sú að
ef Volvo-eigendur breyttu til og
fengju sér sjálfskiptan bíl í stað
beinskipts keyptu þeir framvegis
sjálfskipta bíla.
Gírkassinn í Volvo 343, sem
hannaður er af Volvo, og er
fjórskiptur, heitir M45, og er hann
framleiddur af Volvo
KÖPINGVERKEN. Hann er stað-
settur aftast í bílnum í beinni
tengingu við afturöxul bílsins. Með
þessari staðsetningu hefur Volvo
tekist að halda sömu þyngdarhlut-
föllum og í sjálfskipta bílnum.
í framhaldi af þessu, hefur
sjálfskiptingin á Volvo 343 verið
endurbætt, þannig að bíllinn nær
betri hraðaaukningu frá 70—100
km/klst.
Volvo 343 árgerð 1979 er með
algjörlega nýju mælaborði, í meira
samræmi við stóru bræður, Volvo
240 og 260.
Volvo 240 og 260 hafa í mörg ár
verið einkenndir sem ein af
öruggustu bílategundum í heimi.
Tæknifræðingar Volvo-verksmiðj-
anna hafa þess vegna stuðlað að
ennþá örúggari bílum í akstri hvað
varðar VOLVO 240 og 260. Þetta
hefur verið gert með mörgum
breytingum á yfirbyggingu bílsins.
Volvo 240 er nú breyttur að
framan, þannig að framljósin eru
nú ferköntuð í stað hringlaga áður.
Afturendinn er nú í meira
samræmi við framendann, þannig
að hann hefur mýkri línu, og er
ávalur og ná nú afturljósin fyrir
hornin.
Verðin á Volvo árgerð 1979 eru
þannig.
Volvo 343 DL, beinskiptur kost-
ar kr. 4.447.000.- og sjálfskiptur
kr. 4.550.000-
Volvo 244 DL kostar kr.
5.077.000 - Volvo 244 GL kostar kr.
5.493.000.-, beinskiptur og
5.872.000.- sjálfskiptur.
Volvo 244 er nú aðeins fluttur
inn með vökvastýri og eru ofan-
greind verð miðuð við það.
Samkeppni
um bamabók
MÁL og menning -efnir í tilefni af
alþjóðlegu barnaári til samkeppni
um frumsamdar barnabækur og er
skilafestur til 1. ágúst 1979. Ein
verðlaun verða veitt, kr. 500
þúsund, auk höfundarlauna er
nema 18% af forlagsverði að
frádregnum sölulaunum.
Dómnefnd skipa Kristín Unn-
steinsdóttir, Silja Aðalsteinsdótt-
ir, Vilborg Dagbjartsdóttir og
Þorleifur Hauksson.
Sumarsýninguitni að
ljúka í Ásgrímssafni
. í dag lýkur sumarsýningunni í
Ásgrímssafni sem opnuð var 28.
maí s.l. Verður safnið lokað um
tíma meðan komið er fyrir
haustsýningu þess. en á henni
verða eingöngu sýndar teikning-
ar og vatnslitamyndir frá
Þingvöllum.
Sumarsýningin er yfirlitssýning
á verkum Ásgríms Jpnssonar sem
hann málaði á hálfrar aldar
tímabili. Margt erlendra gesta
skoðaði sýninguna á þessu sumri.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur er ókeypis.