Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
41
Frétta-
molar
Ungverjaland
Stöðugt fleira ungt fólk í
Ungverjalandi játar nú kristna
trú. Ungverski biskupinn
Sandor Szato sagði meðal ann-
ars, meðan á heimsókn hans í
V.-Þýskaland stóð, að nú ætti
sér stað vakning meðal ungs
fólks í fjölmörgum kirkjum í
Ungverjalandi.
Biskupinn sagði að það væri
ekki talinn „kostur" að vera
kristinn í Ungverjalandi. En
hann sagði einnig að yfirvöldin
virtu þá sem væru „sannkristn-
ir“. Þeir eru „bestu verka-
mennirnir" og eru til „fyrir-
myndar í hjúskaparháttum
sínum“.
Zambía
Ailar kirkjudeildir í Zambíu
hafa sameinast um fjöl-
miðlunarmiðstöð í höfuðborg-
inni Lusaka. „Multimedia
Zambia" sér um dagská tvisvar
í viku í sjónvarpi og 15 stundir í
útvarpi, auk þess sem stofnunin
gefur út mánaðarblað, annast
bókaútgáfu og lánar kvikmynd-
ir.
Markmið dagskrárgerðarinn-
ar í útvarpi og sjónvarpi er að
afla fjölbreytilegs efnis, svo
sem fræðsluefnis, skemmtiefnis
og efnis sem sérstaklega miðar
að boðun kristinnar trúar.
Þar sem fyrirtækið er sam-
eign ólíkra kirkjudeilda er
leitast við að leggja áherslu á
hið miðlæga í kristinni trú sem
eining er um.
Metsölubók
Biblían og ýmsir hlutar
hennar hafa aldrei selst í jafn
miklum mæli og á árinu 1977,
samkvæmt upplýsingum frá
Sameinuðu Biblíufélögunum.
Alls seldust á árinu 410 milljón
eintök af Biblíunni og einstök-
um hlutum hennar og hafði
aukningin frá árinu áður orðið
80 milljón eintök. Mest var
söluaukningin í Asíú og á
Kyrrahafssvæðinu.
I Norður og Suður-Ameríku
seldust ritningar í 213,5
milljónum eintaka. Minnst var
salan í Evrópu eða 1,4 milljón
Biblíur og 10.1 milljón eintaka
af einstökum hlutum Biblíunn-
ar.
Biblían öll er nú fáanleg á
266 tungumálum og Nýja testa-
mentið á 420 tungumálum, en
auk þess eru einstakir hlutar
Biblíunnar fáanlegir á 925
tungumálum.
Vatnaskógur
Á liðnu sumri voru 55 ár liðin
frá því fyrsti dvalarflokkurinn
sló niður tjöldum sínum í
Vatnaskógi á vegum Sumar-
starfs KFUM. Síðan hefur
KFUM í Reykjavík starfrækt
sumarbúðir á þessum stað.
„Skógarmenn KFUM“ hafa nú
byggt upp staðinn og þar sem í
upphafi voru fáein tjöld og lítill
skúr með eldurnaraðstöðu
standa nú svefnskálar, matar-
skáli, stórt íþróttahús og báta-
skýli og ógleymdri kapellunni.
Aðsókn að sumarbúðunum hef-
ur verið mjög góð og í sumar
komust færri en vildu. Alls
geta um 90 drengir dvalið á
staðnum í einu.
Allargeröir af WHVIVI!L\ LJOSAPERUM
LJÓSKASTARAR 500w- 100W 1500W FYRIRLIGGJANDI.
UMBOÐSMENN
Q. Þorsteínsson & Jobnson h.f.
REYKJAVlK — SlMI 85533
Suöurlandsbraut 16
sími 35200