Morgunblaðið - 15.10.1978, Page 16

Morgunblaðið - 15.10.1978, Page 16
48 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978 49 Morgunblaðið og ástarsorg Jacobsons Það var dag einn seint í júlí á nýliðnu sumri. Ég sat við ritvélina hér á Morgunblaðinu, með fætur uppi á borði og niðursokkinn í krossgátu, því að vinnudagur var ekki hafinn. Þá hringdi síminn. Símastúlkan sagði að einhver í New York væri að biðja um símtal við blaðið, og hvort ég gæti tekið það. Ekkert var sjálfsagðara. — Góðan daginn, þetta er Buddy Jacobson hjá My Fair Lady fyrirsætufélaginu í New York, sagði maðurinn í símanum. Ég var að sjálfsögðu engu nær. Hann hélt áfram, og spurði mig til nafns, en sagði svo» Ég er hér með ljómandi hugmynd fyrir Morgunblaðið. Ég vil koma á samkeppni á íslandi um „Iceland’s Fair Lady“. Við borgum allan kostnað, og verðlaunin verða samningar við fyrirtæki okkar, ferðir fram og til baka til Bandaríkjanna, og allur ferðakostnaður greiddur fyrir tíu efstu stúlkurnar í samkeppninni. Þetta verður mjög gott fyrir blaðið ykkar, ætti að auka útbreiðsluna verulega. Ég varð að vonum undrandi. Þetta kom svo á óvart, og ég vissi alls ekkert hvert maðurinn var að fara. Og hvað útbreiðslu blaðsins snertir, þá láðist mér að benda honum á að betur hæfði að reyna að hjálpa heimablöðum hans sjálfs. Útbreiddasta blað New York borgar selst í tveimur milljónum eintaka, en miðað við útbreiðslu Morgunblaðsins þyrfti útbreiðslan hjá þeim að tuttugufaldast. En Buddy Jacobson hélt áfram. Hann vildi strax hefjast handa um skipulagningu hálfgerðrar fegurðarsamkeppni á íslandi í samvinnu við Morgunblaðið, þar sem stúlkur á aldrinum 15-21 árs kepptu um titilinn Iceland’s Fair Lady. Bauðst hann til að senda fulltrúa sína á vettvang til að aðstoða við keppnina. Það var rétt með naumindum að ég gat skotið því inn í að þetta væri nú allt gott og blessað, en við hér úti á hjara veraldar hefðum bara ekki hugmynd um hvers konar fyrirtæki þetta My Fair Lady hans væri. Nokkuð kom á Buddy Jacobson, en hann sagði að úr því mætti bæta. Við gætum fengið allar upplýsingar hjá helztu tízkublöðum Bandaríkjanna, eins og til dæmis Mademoiselle Magazine, Glamour, Seventeen, Vouge og svo framvegis. Þetta var á fimmtudegi, og ég sagði þessum Buddy að við yrðum að athuga málið, og ég skyldi minnast á það við ritstjóra. Hann gæti svo reynt að hafa samband við okkur eftir helgina. Þetta lét maðurinn sér nægja í bili, en sagðist hringja aftur. Ég lagði á og leit yfir minnispunktana, sem ég hafði skrifað niður meðan á símtalinu stóð. Furðufugl þessi Buddy. Málið kannað Eftir nokkra umhuíísun gekk ég á fund Matthíasar ritstjóra og skýröi honum frá símtalinu. Eins og búast mátti við þótti Matthíasi þetta einkennilegt tilboð, og ekki beinlínis á verksviði Morgunblaðs- ins. Hann vildi þó ekki alveg útiloka málið, en bað mig að afla upplýsinga um fyrirtækið í New York. Helgin leið fljótt að vanda, en á blaðinu biðu engin svör við fyrir- spurnum mínum varðandi My Fair Lady þegar ég mætti til vinnu á mánudag. Var það reyndar ekki óeðlilegt, því að tíminn hafði verið naumur. Hugsaði ég því ekki nánar um málið í bili Um kaffile.vtið hringdi síminn. Þar var þá kominn Buddy Jacob- son á ný. Spurði hann hvort Morgunblaðið væri reiðubúið til samstarfsins, og hvort nú mætti setja á fulla ferð. Eg svaraði því til að við þyrftum meiri tíma, við hefðum ekki fengið neinar upplýs- ingar enn um þetta fyrirtæki hans. Buddy sagði þá að My Fair Lady hefði staðið fyrir svona keppnum r ■ - s ■■■ ■ Buddy Jacobson um gjörvöll Bandaríkin, og þær jafnan tekizt mjög vel. Enginn vandi væri að koma þessu af stað, og hann gæti sent fulltrúa sína til Reykjavíkur fyrirvaralaust. Morg- unblaðið þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af kostnaðinum, því að hann yrði allur greiddur ytra. Ég fór undan í flæmingi, því að maðurinn var mjög ákveðinn. Svo bauðst hann til að senda í pósti upplýsingar um My Fair Lady og fyrirkomulag hugsanlegrar sam- keppni, og við það létum við sitja í bili. Keppnin skipulögð Það liðu nokkrir dagar, Svo barst í pósti stórt umslag frá My Fair Lady, merkt „Morgun Blabid, Reykjavit". Þar var heldur lítið um upplýsingar um þetta fyrir- sætufélag í New York, en meira af myndum af fyrirsætum á vegum þess og svo ítarleg áætlun um framkvæmd keppninnar á íslandi. Þar segir Buddy Jacobson meðal annars að tilgangurinn sé að auka útbreiðslu Morgunblaðsins og ráða sýningarstúlkur á íslandi til starfa í New York. Rétt væri að velja fyrst 50 stúlkur til aðal- keppninnar, og síðan tíu, sem allar IAT MAKES A AAAN pOOD LOVER AMOUS WOMEN jANDTELL *T YOUR N BUSINESS THEFACTS ? FIGURES V BABIES m fUTLOVE H. BRAZELTON buELINE BISSET MKYSTAR THE DEEP” ÍEDBOOK 1L PLUS VTSTORIES GOLD-TRIM H: ESAND ES OF /-TO'S ANTSOFT 5AGE IAKE ISELF Melanie Cain á forsíðu Redbook. fengju starfssamninga við My Fair Lady, mismunandi langa. Allar fengju svo þessar tíu stúlkur ókeypis flugferðir fram og til baka auk alls uppihaldskostnaðar. Skilyrði var að stúlkurnar væru á aldrinum 15—21 árs, og hæð þeirra á bilinu 170—180 sentimetr- ar. Svo kom heilmikið mál um það hvernig keppninni skyldi hagað, og hvernig lesendur Morgunblaðsins tækju þátt í að dæma um ágæti keppendanna. Einnig hafði Buddy þessi skipulagt hvernig áróðri ætti að beita til að keppnin vekti verðskuldaða athygli, og hvernig blaðið gæti haldið áfram að fylgjast með sigurvegurunum eftir að þær væru komnar til New York. Átti allt þetta umstang að standa allt að því í eitt ár. OBJECTrVES: BUbid „ar.et aree. fashion models in Icelan, * 'e career in New York Citv Mechanics: | -up of 50. one grand „inneí Z :Ugge8t/alllng the - ' tCSLAlro'S FATR T flnv" ' 197S | periods of time ii ‘ " and a co j^ugust, 3* thel Week Morgul I invite | Week 3I As soon photos of Paper and , Morgun Blab: Week 5 CSpecV Atter the i section cAf/ ballot incW gnolosed vs daVelopinS ■n very enthused “iStÍU'““““ Cordlally yours. [ense paid trip to m • awarded descendingl L- all expenses paidl . Mr. Thors who meet ^Kinches to iy yours, /2 feddy Jacobson 163** ,t 8 t, 1003® r^utlines a >etition and Ps received). ^aper and will >aper. fPromotion valuej I publishing |o appear in Ifcablished by Rcad Mefanie Cctitn ntory ort pxige 4 ‘Aiu - --------------‘C^tTsSrfSÍ í111 PUbllsh Special I one Of the 50 finalisLÍ?LmV^ichThehg™nf°i1Ce °f glrl «ifnfÍhf.iSTe60 ' Bréf, sem fylgdi áætlun Buddy Jacobsens um keppnina á Islandi. Þetta var allt mjög forvitnilegt, og eftir að hafa lesið öll gögnin frá Buddy Jacobson gekk ég enn á fund Matthíasar fitstjóra til að skýra honum frá því hvað gerzt hefði. Enn á ný var helgi framund- an, og Matthías kvaðst vilja kýnna sér málið. Tók hann því við gögnunum og var málið þar með úr mínum höndum að sinni. Nýjar upplýsingar Það liðu nokkrir dagar. Ég sat við ritvélina mína og var að fletta bandaríska vikuritinu TIME. Þar rak ég augun í mynd af skuggaleg- um náunga og undir myndinni stóð: Buddy Jacobson. Áhugi minn vaknaði. Þetta reyndist „rétti‘‘ maðurinn, sá sem vildi koma á Iceland’s Fair Lad.v keppninni, en nú hafði heldur sigið á ógæfuhlið- ina hjá honum. En látum TIME segja söguna, og fer hún hér á eftir nokkuð stytt. Melanie Cain lauk stúdentsprófi fyrir fimm árum og ákvað að verða tízkusýningarstúlka. Hún komst fijótlega að hjá Ford sýningar- samtökunum þekktu á Manhattan. Hún umgekkst mikið Howard (Buddy) Jacobson, sem víðfrægur var á veðhlaupabrautunum. Hann stofnaði handa henni hennar eigið fyrirsætufélag, sem bar nafnið My Fair Lady. Myndir af henni tóku að birtast í Vouge og McCall’s, og meir að segja á forsíðu Redbook, og brátt voru árslaun hennar komin upp yfir 100.000 dollara (rúmar 30 miiljónir króna). Dag einn í fyrri viku fór Melanie Cain út að leita sér að nýrri íbúð, en sneri svo heim í íbúðina þar sem hún bjó með nýja elskhugan- um, John Tupper, 34 ára fráskild- um veitingamanni. Þegar þar var enginn, sgði hún síðar, áleit hún að Tupper væri úti að trimma. En þegar hún sá hlaupaskóna hans varð hún áhyggjufull. Hún fór þá fram á gang og yfir að íbúð Buddys Jacobsons, sem hún hafði sagt skilið við til að taka upp sambúð með Tupper. Jacobson neitaði að hleypa henni inn, en hún sá að íbúð hans var öll í óreiðu, og blóðblettir voru á gólfteppinu. Þegar hún kom aftur inn í íbúð Tuppers hringdi hún til lögreglunnar og skýrði frá því að hann væri horfinn. Þennan sama dag var gulum Cadillac ekið að auðri lóð í Bronx hverfi í New York borg. Tveir menn stukku út úr bílnum og drógu á eftir sér nær tveggja metra trékassa. Eftir að hafa ausið bensíni á kassann kveiktu þeir í honum, flýttu sér upp í bílinn og óku á brott. Nærstatt vitni tók niður skráningarnúmerið og gerði lög- reglunni strax aðvart. í kassanum Prlnt: 861-1700 Nokkrar af fyrirsætum My Fair Lady. Television: 861-1701 Auglýsingaspjaid frá My Fair Lady. fannst brunnið lík Johns Tuppers. Honum hafði verið misþyrmt, og hann skotinn og stunginn nokkr- um sinnum. Þegar lögreglumenn náðu Cadillac-bílnum, sat Buddy Jacobson undir stýri. Daginn eftir var hann ákærður fyrir morð. Vafasamur ferill Jacobson er 48 ára, lubbalegur og skapbráður. og var um skeið einn af þekktustu verðhlaupa- hesta-þjálfurum landsins. Hann lenti hins vegar í margs konar vandræðum, og árið 1970 missti hann þjálfararéttindin í 5 ár fyrir svik, falsanir og fjármálamisferli. Hann lét það þó ekki á sig fá og hélt umsvifum sínum áfram á öðrum sviðum. Átti hann meðal annars sjö hæða fjölbýlishúsið þar sem Tupper bjó. Leigði hann þar flugfreyjum og fyrirsætum, en bjó sjálfur á efstu hæðinni þar sem hann hafði eigin sundlaug. Viðskiptin fóru að ganga skrykkjótt, og Buddy þurfti að leita til vina sinna um lán. Ástarsambandið við Melanie var að rofna. Þegar hún fór frá honum, reiddist hann. Hann sár- bað hana að koma aftur og bað hana afsökunar á hegðan sinni. Þegar það bar engan árangur er sagt að hann hafi boðið Tupper 100.000 dollara fyrir að fara frá henni. Og það var til þess að komast í burtu frá Buddy sem Melanie var að leita að íbúð daginn sem Tupper hvarf. „En ég virðist hafa dregið það of lengi að komast burtu,“ sagði hún. ★ Svona fór um sjóferð þá. Svona eftir á má spyrja sjálfan sig hvort það hefði einhverju breytt ef Buddy þessi hefði snúið sér til Morgunblaðsins svo sem mánuði fyrr. Hvort meðmæli frá tízku- blöðum Bandaríkjanna hefðu ef til vili getað leitt til samvinnu blaðsins við May Fair Lady. Og hvort Buddy hafi verið að leita sér að nýrri Melanie þegar hann sneri sér til okkar. Þessum spurningum verður vart svarað héðan af, en þær sýna að það er eins gott að flana aldrei að neinu. bt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.