Morgunblaðið - 19.10.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978
15
Hr. forstjóri Ásgeir Ólafsson
Laugavegi 103
Reykjavík.
„Á síðasta fundi brunamála-
stjórnar lýsti ég því yfir, að ég
myndi hætta störfum á bruna-
málastofnun strax að lokinni
endurskoðun ríkisendurskoðun-
ar á bókhaldi og fjárreiðum
hennar. Ég hefi afhent ríkis-
endurskoðun ávísanahefti og
sjóð stofnunarinnar og lyklana
að peningaskáp hennar. Umboð
mitt til að gefa út ávísanir á
ávísanareikning hennar hefi ég
dregið til baka. Ég hefi og
fjarlægt alla þá muni, er ég átti
persónulega, úr húsnæði stofn-
unarinnar. Tveir menn úr
brunamálastjórn, þeir Ágúst
Bjarnason og Rúnar Bjarnason
hafa litið yfir húsnæðið og sé
viðskilnaðinn. Þeim hefi ég
afhent lykla mína að húsnæð-
inu.“
Virðingarfyllst,
Bárður Daníelsson.
Lokaorð
Nýlega var auglýst 20% lækkun
á iðgjöldum brunatrygginga. Fyrir
4 árum voru þau lækkuð um 25%
af fasteignum. ?etta merkir að á
árinu 1979 munu íslendingar
væntanlega greiða amk. 1400
milljónum krónum minna í iðgjöld
af brunatryggingum en þeir hefðu
gert, ef taxtar (í hundraðshlutum
af tryggingarupphæðum) væru
hinur sömu og þegar brunamála-
stofnun tók til starfa. Reksturs-
kostnaður hennar árið 1977 var
16.7 milljónir króna. Ég leyfi mér
að álíta, að hún hafi átt nokkurn
þátt í þessari þróun. Þetta getur
hæglega verið lognið á undan
storminum, ef brunamálastofnun-
in verður látin drabbast niður.
Mér virðist það augljóst mál, að
brunamálastofnunina beri að
byggja upp sem tæknilega stofnun,
sem á hverjum tíma sé fær um að
gegna hlutverki sínu. Tillögur
mínar byggðust á þessari skoðun.
Valdsmenn voru á öðru máli. Þeir
höfðu að vísu góð orð um, að ég
gæti fengið að ráða verkfræðing til
starfa, en eftirlitskerfinu mætti
ekki breyta, þótt það sé orðið bæði
tannlaust og halt. Engin rök hefi
ég heyrt gegn breytingartillögum
mínum önnur en þau, að það sé
nánast ósiðlegt að leggja niður
störf opinberra starfsmanna, sbr.
viðtal Visis við félagsmálaráð-
herra fyrir skömmu. Þetta merkir
að nytsemissjónarmið skuli víkja
fyrir framfærslufjónarmiði. Við
þetta vil ég ekki una. Það er því
rökrétt að ég víki, því að það er
ekki, og hefir aldrei verið vand-
kvæðum bundið fyrir mig að sjá
mér og mínum farborða á frjálsum
vinnumarkaði. Ég hafði raunar
fyrir löngu sagt Ásgeiri Ólafssyni
og fleiri mönnum í brunamála-
stjórn, að ég myndi hætta sem
brunamálastjóri, er ég hefði komið
hinni nýju reglugerð í gagnið og
fengið verkfræðing, sem tekið gæti
við af mér.
Það er því síður en svo áfall
fyrir mig að hætta. Ég hefði þó
kosið að skilja við brunamála-
stofnunina í betra ásigkomulagi.
Því miður var mér gert það ókleift,
þar eð engu mátti breyta.
Bárður Daníelsson.
Nýtt blik
Yfir 30 greinar og frásagnir
ÞORSTEINN Þ. Víglundsson fyrr-
verandi skóla- og sparisjóðsstjóri í
Vestmannaeyjum sendi nýlega frá
sér nýtt eintak af BLIKI, ársriti
Vestmannaeyja. Þetta er 33. ár-
gangur ritsins, 240 síður vandað í
formi og efni. Sögulegur fróðleikur
er einn af burðarstólpum ritsins,
en meðal greina að þessu sinni má
nefna grein um Tollgæzluna á
fyrri hluta þessarar aldar og
Filippus Árnason tollvörð; þá er
bráðfyndin frásögn af „hneykslan-
legri sambúð" eins og geistleg og
veraldleg yfirvöld skilgreindu
hana fyrr á tímum. Húsanafna-
skrá í Eyjum kemur fram í heild
sinni í fyrsta sinn, en þar á meðal
eru auðvitað mörg hús komin
undir hraun eða á annan hátt
orðin náttúruhamförunum miklu
að bráð.
Minjaskrá Byggðarsafns Vest-
mannaeyja hefur að geyma ramm-
sögulegan fróðleik, en munina er
hægt að skoða velflesta í Byggðar-
safni Vestmannaeyja. Mun þetta
fátítt að byggðarsöfn eigi svo
ítarlegar skrár. Safnið er nýflutt í
nýbyggingu á Stakkagerðistúni.
Gnægð er af skemmtilegum
myndum í ritinu. Vélbátamyndir
með skýringum, íþróttakappar og
Eyjagarpar og síðast en ekki síst
fegurðardísir eins og þær alast
best á heilagfiski og lunda í
BLIK
AHSRIT VESTMANNAEYJA 1978 33. ARGANOUH
Forsíða Bliks, 33. árgangs ársrits
Vestmannaeyja.
Þorsteinn Þ. Víglundsson.
sjávarloftinu þarna úti í Atlants-
hafinu.
Hin persónulega þungamiðja
ritsins eru æviþankar Þorsteins,
skrifaðir af honum hátt á áttræð-
isaldri. Þessir þættir, sem hann
nefnir „Bréf til vinar míns og
frænda", eru af mörgum það efni
ritsins, sem fyrst er lesið og af
hvað mestri forvitni. í fyrri ritum
hefur Þorsteinn gert upp viðskipti
sín við andstæðingana í Eyjum
fyrr á dögum á léttan og gaman-
saman hátt, en að þessu sinni
ræðir hann um námsár sín og
fléttar það trúmálum og hugmyn-
dum um ástina og eilífðina.
Enn mætti lengi upp telja efni
þessa ágæta rits, sem nú birtist
prentað á vandaðan pappír af
Setbergi, fullar 240 blaðsíður af
magnaðri frásagnarlist.
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRÆTI • - SlMAR: 17152-17385
lÉÍ 1 p
>
<7 "*•
r;L,v •% '«• > »•-. '
i-T.
-'• " ••■ ■ ' •-Sv"' -i.-.-,2; V vj
* (.-'-’••« -■, ".■,--•• r-r, •;•■*#'• <’•>
■,t\* vi >' ii.--- • ** - > .«55?»
i 7 ' v.. ■ . .. •*. • vs>.. > ... .::.■•. .■... .•
• ^
~
Landssamband stangaveiðifélaga:
Kannar ásókn
útlendinga í lax
Á AÐALFUNDI Landssambands
stangaveiðiíélaga. sem haldinn
var fyrir skömmu. var skipuð
nefnd. sem ætlað er að kanna
ásókn útlendinga í lax hér á
landi. Aðild að sambandinu ciga
nú 28 félög. en 93 fulltrúar sátu
þennan aðalfund.
LJÓSBROT
Kristján Kristmundsson
Ljósbrot —
Ljóðabók
Kristjáns
Kristmundssonar
LJÓSBROT nefnist ný ljóðabók
eftir Kristján Kristmundsson, en
hún hefur að geyma vakningar-
ljóð, sem höfundur hóf að yrkja
fyrir nokkru, en á bókarkápu segir
að fyrir liðlega tveimur áratugum
hafi þau straumhvörf orðið í lífi
hans er leiddu hann til lifandi
trúar og væntir hann þess, að
ljóðakorn þessi mættu vekja ein-
hverja til umhugsunar um eilífð-
arvelferð kynslóðanna.
Kristján Kristmundsson er
fæddur í Þjóðólfstungu í Bol-
ungarvík 16. nóv. 1908 en fluttist
til Reykjavíkur 1920 og hefur búið
þar síðan. Vann hann fyrri hluta
ævinnar við trésmíði og verzlun og
hefur síðan 1948 rekið verzlunina
Nova í Reykjavík.
Ljósbrot hefur að geyma yfir 70
ljóð, en bókin er gefin út á kostnað
höfundar, unnin í Isafoldarprent-
smiðju og Prentmyndastofunni.
Karl Ómar Jónsson var ein-
róma endurkjörinn formaður
fyrir næsta starfsár. en aðrir í
stjórn Landssambandsins eru.
Birgir J. Jóhannsson varaformað-
ur. Friðrik Sigfússon gjaldkeri,
Rósar Eggertsson ritari og Bene-
dikt Jónmundsson meðstjórn-
andi. Varamenn eru Sigurður I.
Sigurðsson. Gylfi Pálsson og
Matthías Einarsson.
í skýrslu stjórnar var sagt frá
störfum nefndar, sem hafði það
hlutverk að gera tillögur um
úrbætur varðandi eftirlit með
veiði á laxi í ám og sjó til að
sporna við ólöglegri veiði.
í skýrslunni kom fram, að
töluvert er um brot á reglum um
veiðar í sjó. Landssamband
stangaveiðifélaga telur því
nauðsynlegt að herða löggæslu
með áðurnefndum veiðum.
Rætt var einnig um vandamál
stangaveiðiíþróttarinnar hérlend-
is, og snerust þær einkum um
ásókn erlendra veiðimanna í
íslenskar laxveiðiár, en sem kunn-
ugt er hafa þeir margar bestu
veiðiárnar um hásumarið.
Stangaveiðifélag Akraness vann
að þessu sinni fagran farandbikar
fyrir hlutfallslegu bestu fluguveiði
á sumrinu, en í Andakílsá í
Borgarfirði veiddust 54% laxanna
á flugu.
Kastmót var haldið í Laugardal
í tengslum við aðalfundinn. Keppt
var í flugulengdarköstum, beitu-
lengdarköstum með 7,5 g lóð og
beitulengdarköstum með 18 g lóði.
Úrslit urðu sem hér segir;
Fyrstu verðlaun í flugulengdar-
köstum hlaut Geir Birgir Guð:
mundsson, sem kastaði 27,24 m. í
öðru sæti varð Sigurður Guð-
mundsson með 25,42 m og þriðju
verðlaun fékk Rafn Hafnfjörð með
25,40 m.
I beitulengdarköstum með 7,5 g
lóð fékk Rafn Hafnfjörð fyrstu
verðlaun með 41,86 m. Annar varð
Karl Gunnlaugsson með 40,1 m og
þriðji Gottfreð Árnason en hann
kastaði 39,80 m.
Fyrir beitulengdarköst með 18 g
lóð hlaut fyrsta sæti Þröstur
Sigtryggsson með 56,41 m. Annað
sætið hlaut Karl Gunnlaugsson
með 55,98 m, en hið þriðja Rafn
Hafnfjörð með 55,54 m.
EIGENDUQ ■
Við viljum minna ykkur á að það er áriðandi að koma
með bílinn I skoðun og stillingu á 10.000 km. fresti
eins og framleiðandi Mazda mælir með.
Nú er einmitt rátti tíminn til að panta slika skoðun og
láta yfirfara bílinn. Notið ykkur þessa ódýru þjónustu
og pantið t!ma strax.
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23
Verkstæði sími 81225
OLIUOFNAR
MEÐ RAFKVEIKJU
\/í£addw\
SMÍÐAJÁRNSLAMPAR
B0RÐLAMPAR
HENGILAMPAR
VEGGLAMPAR
0LÍU0FNAR
GASLUKTIR
OLÍUHANDLUKTIR
OLÍULAMPAR
10“, 15“. 20“.
HANDLUKTIR
MEÐ RAFHLÖÐUM.
VASALJOS
FJÖLBREYTT URVAL.
HESSIANSTRIGI
SEGLDUKUR
SEGLK0SSAR
BÓMULLARGARN
HÖRGARN
HAMPGARN
NÆL0NGARN
GIBS
HANDRIÐSFESTINGAR
STILL-L0NGS
ULLARNÆRFÖT
NÆLONSTYRKT
BÖKKBLÁ FYRIR BÖRN
OG FULL0RDNA
S0KKAR
MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI
S0KKAHLÍFAR
REGNFATNAÐUR
KULDAFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
KL0SSAR
GÚMMÍSTÍGVÉL
VINNUHANZKAR