Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978 plnrgmmMalííil* Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Hlutfallskosning í stéttarfélögum Ráðstefna Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins um síðustu helgi hefur sent frá sér merkar og margvíslegar ályktanir um innri mál verkalýðshreyfingarinnar og þjóðmál almennt. Þar á meðal er ályktun þess efnis, að í lög skuli leitt, að hlutfallskosningar séu upp teknar við stjórnar- og fulltrúakjör í launþegasamtökunum. Þetta er m.a. rökstutt með stórauknu valdi þessara samtaka og beitingu þess á sviði efnahags- og atvinnumála, enda mundi slík löggjöf draga úr þeirri hættu, að því yrði misbeitt í pólitískum tilgangi, um leið og réttur lýðræðislega kjörins minnihluta til gagnrýni og eftirlits yrði tryggður. Hér er hreyft mjög athyglisverðu máli og tímabæru, þegar horft er til þeirrar þjóðfélagslegu þróunar, sem verið hefur. Það er liðin tíð, að alm'enningur sætti sig við, að almannasamtök innan launþegahreyfingarinnar sem annars staðar séu í rauninni lokuð. Menn fái ekki að fylgjast með, hvernig og hvers vegna ákvarðanir séu teknar, hvað þá að hafa áhrif á ákvarðanatökuna nema í orði kveðnu. Ljósasta dæmið um þetta er kúvending verkalýðs- hreyfingarinnar gagnvart núverandi ríkisstjórn, þar sem skýringarlaust er fallið frá kröfunni um samningana í gildi og fallizt á, að samningsrétturinn sé nánast tekinn af verkalýðshreyf- ingunni í eitt ár. Dæmi sama eðlis er það, að grundvöllur kaupgjaldsvísitölunnar er nú til endurskoðunar. Verkalýðshreyfingin forðast það eins og heitan eldinn að taka það mál til opinberrar umræðu, heldur eiga1 launþegar að bíða þess aðgerðalausir, hverjar málslyktir verða, og sætta sig síðan við þá niðurstöðu umyrðalaust. Vinnubrögð af þessu tagi heyra til liðinni tíð og eru í hróplegri mótsögn við þá kröfu, sem uppi er í þjóðfélaginu um opna umræðu og rétt minnihlutans til að fylgjast með og hafa áhrif á gang mála. í þessu sambandi er einnig íhugunarvert, að verkalýðshreyfingin ræður yfir gífurlegum fjármunum beint og óbeint. Félagsgjöld éru víðast í formi launaskatts, 0,75% til 1%, þar við bætast margvíslegir sjóðir og munar þar mest um lífeyrissjóðina, en til þeirra renna um 10% af launum. Það getur naumast verið álifamál, að hinn almenna launþega varðar það miklu, hvernig þessu mikla fjármagni sé varið og á kröfu til þess, að réttur minnihlutans sé tryggður í þeim efnum. Það hefur naumast farið fram hjá neinum, að sum verkalýðsfélög hafa notað sjóði sínai pólitískum tilgangi og nægir í þeim efnum að skírskota til þeirra útvarpsauglýsinga sem dunið hafa í eyrum manna út af meira og minna pólitískum deilumálum. Síðast en ekki sízt liggur það fyrir, að það er opinber stefna Alþýðubandalagsins að beita verkalýðshreyfingunni pólitískt fyrir sinn flokksvagn. Þannig hefur einn af þingmönnum þess talað um alþingi götunnar í því sambandi og hvatt til þess, að samtökum verkalýðsins yrði beitt í pólitískum tilgangi gegn löggjafarsam- kundu þjóðarinnar. Þegar til alls þessa er litið, er sízt að undra þótt sú krafa komi fram frá launþegum sjálfum, að réttur minnihlutans innan verkalýðshreyfingarinnar sé tryggður. Vinnuréttur roskins fólks Það kemur fram í frétt Mbl. sl. þriðjudag að Flugleiðir hafa dregið til baka uppsagnir 10 starfsmanna á aldrinum 67 til 70 ára. Hámarksaldur starfsfólks hjá þessu stóra fyrirtæki verður því framvegis 70 ár, eins og almennt gildir í þjóðfélaginu, nema að sérstaða starfs réttlæti annað. Þessari ákvörðun ber að fagna. Þeir aðilar eru öðrum rismeiri og til fyrirmyndar sem leiðrétta mistök með bragarbót, sem stuðlar að auknu réttlæti í þjóðfélaginu. Mbl. staðhæfði í leiðara 21. sept. sl., að bætt almenn lífskjör og heilsugæzla í landinu hefðu ekki einungis lengt meðalævi íslendinga verulega, heldur og viðhaldið starfshæfni og starfsþreki einstaklinga til mun hærri aldurs en áður. Vinnuþörf vaxandi hóps roskinna, sem hefur vilja og þrek til starfa, er viðblasandi staðreynd. Hvort tveggja er, að vinnan, þátttakan í daglegri önn þjóðfélagsins, er stór þáttur mannlegrar hamingju og velferðar, — og að fámenni þjóðSrinnar og sérstaða atvinnuhátta hennar skapar þörf og rými fyrir hvern einstakling á vinnumarkaði, sem vill og getur unnið. Auðlindir láðs og lagar eru mikilvægar en mikilvægust sú auðlindin, sem býr í manneskjunni sjálfri, huga hennar og höndum. í Mbl. 30. sept. sl. birtast síðan tvær greinar utn málefni aldraðra. Önnur frá hendi Birgis ísl. Gunnarssonar, f.v. borgarstjóra, um byggingu íbúða fyrir aldraða við Furugerði, Lönguhlíð og Dalbraut í Reykjavík. Hin eftir Matthías Bjarnason, fv. heilbr.- og tryggingaráðherra, um rétt aldraðra til atvinnu, þar sem mælist til þess við stjórn Flugleiða að hún nemi úr gildi samþykkt um uppsögn aldraðra. Það hefur nú verið gert. Mbl. fagnar þessari afstöðu og þakkar hana. Hún er mikilvægur stuðningur við óhjákvæmilega baráttu til að tryggja vaxandi hópi aldraðra í þjóðfélaginu atvinnu við hæfi, ef vilji stendur til og geta leyfir. Bréfdúfa frá Bret- landi á Akureyri? Akureyri 18. 11. ÞEGAR hjónin í Hjarðarlundi 7, Ásta M. Eggertsdóttir og Hannes Óskarsson, komu heim til sín um kl. 20.30 í gærkvöld sáu þau hvítan fugl fyrir utan húsið og fóru að gefa honum nánari gætur. Kom þá f ljós að þar var komin dúfa, sérlega gæf og mannelsk, enda ef til vill svolítið lerkuð cftir að herjast um í hvassviðrinu sem verið hafði. Þau náðu henni fyrirhafnar- laust og fóru með hana inn í húsið. Þegar þau komu inn í birtuna þótti þeim dúfan óvenju- leg í útliti og flaug í hug að þar væri komin ein af bréfdúfunum, sem hurfu út í buskann á Bretlandseyjum fyrir nokkru. Dúfan er alhvít á fiðrið, em Ljósm. Sv.P. Dúfan sýndi flugtökin fyrir ljósmyndarann Dúfan sem talin er ein af bréfdúfunum frá Bretlandi er nokkuð öðru vísi útlits en þær dúfur sem hér á landi eru. með fagurrauða fætur og nokkuð áberandi hnúð ofan á nefrótinni. Þau Ásta og Hannes komu dúfunni fyrir í forstofu hússins, sem hefur síðan verið einkaher- bergi hennar og þar hefur húri nógan kornmat og vatn. Þar verður hún þangað til úr því hefur verið skorið hvort hún er ósvikin bréfdúfa og hvað gera skuli við hana, sleppa henni eða senda hana til Bretlands. Á meðan verður heimilisfólkið og heimilishundurinn að láta sér lynda að ganga aðeins um bak- dyramegin. Sv. P. Guðmundur J. og Karl Steinar um hlutfallskjör í launþegasamtökum; jr Ottast að það auki á sundrungu í félögunum TVEIR verkalýðsleiðtogar úr röðum vinstri flokkanna leggjast gegn hugmyndum verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins um að tekin verði upp hlutfallskosning innan verkalýðsfélaganna og telja þeir að slíkt fyrirkomulag mundi aðeins auka á sundrungu innan verkalýðshreyfingarinnar. í ályktun verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins var stjórn ráðsins falið að hefja undirbúning að gerð lagafrumvarps um hlutfallskosningar við stjórnar- og fulltrúakjör í launaþegasamtökunum, og kemur fram í ályktuninni að stóraukið vald samtaka þessara og beiting þess á sviði efnahags- og atvinnumála þjóðarinnar geri þá kröfu til Alþingis að það setji slík lög og að slík löggjöf myndi draga úr hættu á því að valdi samtakanna væri misbeitt í pólitískum tilgangi. svo og tryggja eftirlit og gagnrýni lýðræðislega kjörins minnihluta. Morgunblaðið bar þetta undir þá Guðmund J. Guðmundsson, for- manna Verkamannasambandsins og Karl Steinar Guðnason, vara- formann þess. — Eg held nú að slík hlutfalls- kosning væri aðeins til þess fallin að auka pólitískar deilur í stjórn félaga, sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, er Morgunblaðið bað hann að segja álit sitt á þessari ályktun. Þessi hugmynd kom fram fyrir mörgum árum, en niðurstaða þeirra umræðna var sú að slíkt væri félögum alls ekki til heilla. Það ættu frekar að vera hlutfalls- kosningar til landsþinga ASÍ eða Sjómannasambandsins. Af hverju sömdu þessir ágætu vinir mínir ekki frekar tillögu um að hlutfalls- kosning skuli ráða myndun ríkis- stjórnar, sagði Guðmundur að lokum. Það að hlutfallskosningar eru ekki notaðar innan verkalýðsfélag- anna á sér nokkuð langa sögu,“ sagði Karl Steinar Guðnason, formaður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur, þegar Mbl. bar þétta atriði undir hann. „Það var horfið frá því ráði fyrir áratugum síðan, og ég hygg að það fyrirkomulag sem er í þessum efnum sé fremur fallið • til að varðveita einingu innan verkalýðs- samtakanna. Eg óttast að verði teknar upp hlutfallskosningar, þá verði það til að magna alls kyns sundrungu og erfiðleika, sem ekki er á bætandi í starfi verkalýðs- félaga." „Umræða um þetta efni hefur engin verið utan þess að á síðasta Alþýðusambandsþingi var þetta baráttumál nokkurra marx-lenín- ista eða nokkurs konar „últra- komma“, svo að það kemur mér mjög á óvart að verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins skuli nú bind- ast samtökum við þann óhrjálega hóp,“ sagði Karl Steinar. Karl Steinar sagði ennfremur, að oft væri um það rætt að félagsstarf verkalýðsfélaganna væri ekki með þeim blóma er þyrfti að vera. „Þetta vandamál er ekki einangrað við Island," sagði Karl Steinar. „Þetta sama hefur skeð á Norðurlöndum og í Ame- ríku og eru uppi umræður og viðleitni í hreyfingunni til að bæta úr með félagsstarfi, m.a. á vegum Félagsmálaskóla alþýðu. En sú deyfð sem er því rriiður ríkjandi í félögunum er að mínu mati ekki vegna kosningaskipulagsins held- ur eru ástæðurnar allt aðrar.“ Tillaga á Alþingí; Gjald á veiðileyfi útlend- inga í islenzkum laxám 8 þingmenn Alþýðuflokks og 1 þingmaður Alþýðubandalags hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um sérstakt gjald á veiðileyfi útlendinga, scm veiða í íslehzk- um ám. Efnisatriði tillögunnar fela það í sér aö ríkisstjórnin undirbúi löggjöf um sérstakt gjald á veiðileyfi, seld útlend- ingum, til veiða í íslenzkum laxveiðiám. Gjaldið renni í ríkissjóð og skal fjármunum, sem þannig aflast, varið til tilrauna með fiskirækt í sjó og vötnum, Fyrsti flm. er Árni Gunnars- son (A). Meðflutningsmaður úr Alþýðubandalagi er Ólafur Ragnar Grímsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.