Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978 37 VELVAKANDI , SVARAR Í SÍMA 0100KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI "uœ'u ir • Hvar eru afreksverkin? „Mikiö mega hinir ungu sósía- listar, sem í dag erfiða við að troða þessari líka kenningu í ungling- ana, öfunda þessa gömlu, sem byrjuðu að predika áður en nokkur reynsla var fengin á þessa hel- stefnu. Núna þegar heimurinn stynur undan glæpum sósíalimans og hvert mannsbarn sem þarf að búa í kommúnistaríkjunum, verður að lifa með K.G.B. yfir höfði sér alla ævina. Allt er skammtað og enginn má kvarta, því þá taka við Gulag- þrælabúðirnar eða geðveikrahæl- in. Álmenningur verður alltaf að líða skort, því hvorki samyrkjubú né verksmiðjur geta borgað mann- sæmandi laun. Maður sá skipa- smiðina í Stettin og núna vilja þeir að verkamannasambandið þeirra láti banna að vinna í kolanámun- um á sunnudögum. Hvað skyldu vera margir klukkutímar í 40 stunda vinnuvikunni í sósíalista- ríkjunum? En nú er bezt að hverfa frá þessu og leita að því góða sem heimurinn hefur- fengið frá sósí- aismanum. Hvenær hefur nokkur Sovétmaður fengið vísindaverð- laun Nóbels? Bókmenntaverðlaun hafa 2 Rússar fengið og þá hafa þeir verið gerðir útlægir, því þeir skrifuðu ekki eftir flokkskokka- bókinni og þeir sem ekki gera það dvelja ýmist í þrælabúðum eða á geðveikrahælum. Hvar eru verfc þeirra sem skrifa eftir flokks- ritúalinu? Hvernig stendur á því að sósíalistarnir koma ekki með þær bókmenntir handa manni? Hingað kom á vegum M.Í.R. frægasta skáldkona Úkraínu að sagt var, en hvers vegna fáum við ekki að lesa svo merkilegan skáldskap? Hvar eru rússnesku tónskáldin sem sósíalistarnir framleiða? Ef Kortsnoj verður næsti heimsmeistari í skák er búið að eyðileggja þjóðaríþrótt Rússa og allir heimsfrægir Rússar verða þá útlægir því þeir fá ekki inni hjá K.G.B. Hvar eru afreksverk sósíalismans? Þeir sem hann predika verða að sýna þau eða að snúa sér að einhverju öðru sem vit er í og við getum notið góðs af. Allt sem hingað til hefur verið gert í nafni sósílismans hefur bara verið til ills og bölvunar. Húsmóðir." Þessir hringdu . . . • Minna talað við börnin? Kona, sem búsett var úti á landi í 25 ár, sagðist vilja and- mæla því sem menntamálaráð- herra sagði á ráðstefnu um ár barnsins nýlega að börn í fiski- þorpum liðu fyrir það að minna væri við þau talað en börn í stærri bæjum m.a. vegna mikillar vinnu fólksins. Konan sagði að víst væri unnið mikið í þorpum og bæjum þar sem fiskvinnslufyrirtækin væru, en þar sem annars staðar væri vissulega talað við börnin og ekkert minna en annars staðar. — í þessum litlu þorpum þekkjast allir og menn tala meira við náungann, heldur en í stórum sambýlishúsum í Reykjavík, en þetta veit ég af reynslu minni af 25 ára búsetu úti á landi og því þarf ekkert að tala niðrandi um „fiski- þorpin“, eins og mér fannst koma fram í frásögnum af ávarpi SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á IBM skákmótinu í Amster- dam í sumar kom þessi staða upp í meistaraflokki í skák þeirra Larry Christiansens, Bandaríkjunum, sem hafði hvítt og átti leik, og Taulbuts, Englandi. 26. Rxe5! — dxe5 (Staða svarts er einnig töpuð eftir 26 ... Dd4, 27. Red7!) 27. Dxe5 og svartur gafst upp. Hvítur hótar bæði 28. Re8++ og 28. Rh5++ og 27... Kf8 yrði einfaldlega svarað með 28. Re8!. Hinn 18 ára gamli Jusupov frá Sovétríkjunum sigraði í meistara- flokknum, hann hlaut 9 '/2 v. af 13 mögulegum. Næstur kom Christiansen með 8'/2 v. ráðherrans á umræddum fundi, sagði konan, en þessar fullyrðing- ar hans tel ég að fái ekki staðizt. • Upplýst um Láru Þá hringdi kona nokkur sem kvaðst geta veitt örlitlar upp- lýsingar um Láru Bjarnason, sem spurt var um hjá Velvakanda í gær. Sagði hún að Lára hefði verið gift Jóni Bjarnasyni presti í Winnipeg og verið dóttir Péturs Guðjohnsen organleikara og Guðrúnar Knudsen og hefði hún m.a. safnað efni í bækurnar Laufblöð og Söngbók bandalagsins og sagði konan einnig um hana að Lára hefði leikið á píanó og gítar og kennt söng. HÖGNI HREKKVÍSI i-11 HAvCo, L®.VCM\(5... I Póstsendum GEísiP? fcfra 5VLVANIA Ijóskastarar 500W — 1000W og 1500W. Takmarkaöar birgöir — Hagstætt verð. UMBOÐSMENN G. Þorstcinsson & Jobnson h.f. REYKJAVlK — S I M I 85533 Þegar skyggja fer, eru endurskinsmerki nauösynleg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.