Morgunblaðið - 19.10.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OXTÓBER 1978
19
Skýrsla um
K anariey jaslysið:
Flugstjóri
KLM ber
allasök
Madrid 18. okt. - AP
FLUGSTJÓRI KLM/vélarinnar
var aö hefja vél sína til flugs án
þess að hafa fengið til þess leyfi
flugturnsins og er þetta megin-
orsök árekstursins við PAN AM
vél 747 á Kanaríeyjuni með þeim
afleiðingum að fleiri fórust en í
nokkru öðru slysi, eða 579
manns. Þetta gerðist 27. marz
1977 og vakti þessi atburður
mikla skelfingu. Síðan hefur
rannsóknarnefnd unnið að því
að kanna málið, enda þótt
fljótiega virtist Ijóst að eitthvað
hefði farið milli mála og allt
benti til mistaka hjá flugstjóra
KLM vélarinnar. Hann hét
Jacob Veldhuizen van Zanten og
var einn reyndasti og þekktasti
flugmaður félagsins.
I skýrslunni segir að flug-
stjórinn hafi látið véiina halda
sér í viðbragðsstöðu eftir að
honum hefði verið tjáð að PAN
AM þotan væri enn á hrautinni.
Þá voru veðurskilyrði einnig
óhagstæð og skyggni lélegt, en
ekki er þaö talið hafa ráðið
úrslitum.
í skýrslunni kemur fram að
PAN AM vélin hafi ekki beygt
út af aðalbrautinni eftir að
flugturnin hefði bent henni á að
gera það. Aftur á móti sé
augljóst að meginorsökin sé
óhlýðni KLM flugstjórans sern
að flestra dómi sé gersamlega
óskiljanleg. Ekkert hefur komið
fram sem benti til þess að Van
Zanten hefði ekki verið í and-
legu eða líkamlegu jafnvægi.
Mótorhjóla-
kötturinn
Maurice
mæðist
I.ondon. 18. okt. — Reuter
KÖTTURINN Maurice er bæði
hnugginn og hnípinn þessa daga
eftir að eigandi hans Roger Bulien
hefur verið dæmdur til sektar-
greiðslu og fyrirsjáanlegt er að
Maurice fái ekki að njóta eftirlæt-
isiðju sinnar í bráð. Svo er mál
með vexti að Maurice hefur
sérstaklega gaman af því að fá að
sitja á mótorhjólinu hjá eiganda
sínum og líður ekki í annan tíma
betur en þegar farið er verulega
geyst. Dýravinir töldu þetta at-
hæfi hið alvarlegasta fyrir kðttinni
og kærðu Bullen með þeim afleið-
ingum að hann var dæmdur eins
og fyrr segir og varð að lofa því
hátíðlega að reiða Maurice ekki
framar á mótorhjólinu.
„Ég hafði meira að segja búið til
hjálm handa Maurice svo að hann
væri ekki í hættu“, segir Bullen
mæðulega. — „Ekkert fannst
honum skemmtilegra en þeytast
um allar trissur á hjólinu með
mér.“ _______»_
Gonzalo
Santos
látinn
Mexico, 18. okt. AP.
GONZALO N. Santos, einhver
áhrifamestur stjórnmálamanna í
Mexico á árum áður, andaðist úr
kransæðasjúkdómi í dag. Hann
varð 82ja ára. Santos var kjörinn
fimm sinnum í neðri deild þings-
ins og síðar öldungadeildarmaður
og hann var ríkisstjóri San Luis
Potosi. Nokkuð er síðan hann
settist í helgan stein og hefur sætt
gagnrýni fyrir að jörð hans væri
sú hin stærsta í Mexico. Fyrir
nokkru var hluti eigna hans
gerður upptækur til ríkisins.
Noregur:
Þingið fjallar um stefnu-
ræðu stjómarinnar
Ósló 18. óktóber.
UMRÆÐUR um stefnuræðu
norsku ríkisstjórnarinnar voru
hafnar í norska þinginu í gær og
dró fljótlega til tíðinda er leiðtogi
þingflokks Hægri, Kare Willoch,
hafði notað lungann úr deginum
til að gera skyndiatrennu að
10 milljónir
alkóhólista
Washington, 18. okt. AP.
TÍU MILLJÓN Bandaríkja-
manna. eða 7% allra fullorðinna.
eiga við áfcngisvandamál að
stríða og misnotkun alkóhóls
veldur beint eða óbeint dauða um
205 þúsund manns þar áriega og
kostnaður sá sem samfélagið ber
vegna þessa er um 43 milljarðar
dollara. Frá þessu segir í skýrslu
sem Joseph Califano. ráðuneytis-
stjóri í heilbrigðis- og mennta-
málaráðuneytinu. birti í dag.
Hann sagði að lagt yrði til áð
viðkomandi yfirvöld myndu hefja
mikla herferð til að snúa þessari
óheillaþréiun við.
I skýrslunni kemur einnig fram
að um 3,3 milljónir unglinga
14—17 ára eiga við áfengisvanda
að stríða og er það nálega 20%
fólks á þessu aldursskeiði. Rann-
sóknir benda til þess að suma
sjúkdóma megi beint eða óbeint
rekja til ofnotkunar alkóhóls, svo
sem ýmsa kransæða- og hjarta-
sjúkdóma, lifrarsjúkdóma og
krabbameinssjúkdóma.
Alkóhólneyzla í Bandaríkjunum
hefur færzt í aukana síðustu árin
Árnaðar-
óskir frá
Amin til páfa
Kampala. Uganda 18. ukt. AP.
IDI Amin forseti Uganda hefur
sent Jóhannes Páli páfa II per-
sónulegar árnaðaróskir sínar í
tilefni af kjöri hans. í skeyti
Amins er páfa óskað gleðiríks og
farsæls páfadóms fyrir hönd hans
sjálfs, stjórnarinnar og þjóðarinn-
ar allrar. Kvaðst Amin vonast eftr
að hlý og hjartanleg tengsl yrðu
áfram milli Páfagarðs og Uganda.
eða frá 1970 og hefur ekki í annan
tíma síðan 1850 verið jafnmikil og
nú. Mun láta nærri að hver
einstaklingur 14 ára og eldri
drekki að meðaltali 15 lítra
áfengis af ýmsu tagi á ári.
Veður
Akureyri 4 léttskýjað
Amsterdam 12 skýjað
Apena 24 skýjað
Berlín 10 poka
Brussel 13 Þoka
Kairó 32 léttsk.
Chicago 14 skýjað
Frankfurt 9 rigning
Genf 9 skýjað
Helsinki 8 skýjað
Jerúsalem 26 skýjaö
Jóhannesarb. 21 sól
Kaupmannah. 11 sól
Lissabon 23 léttskýjað
London 12 léttskýjað
Los Angeles 24 skýjað
Madrid 19 heiðskírt
Miami 26 heiöskírt
Montreal 7 heiðskírt
Moskva 6 heiöskírt
Nýja Delhi 33 sól
New York 12 heiðskírt
Ósló 8 skýjað
París 11 sól
Reykjavík 5 léttskýjað
Rómaborg 21 skýjað
San Francisco 20 heiöskírt
Stokkhólmur 10 sól
Teheran 26 skýjað
Tel Aviv 28 skýjað
Tókíó 21 sól
Vancouver 14 sól
Vínarborg 13 poka
Þetta gerðist
1972 — Heinrich Böll fær
Nóbelsverðlaun í bókmenntun.
1962 — Landamærabardagar
Indverja og Kínverja hefjast á
tveimur vígstöðvum í Hima-
layja-fjölium.
1960 — Bandaríkin setja við-
skiptabann á Kúbu.
1954 — Samningur Breta og
Egypta um brottflutning herliðs
frá Súez.
1944 — Landganga Bandaríkja-
manna á Filippseyjum.
1943 — Þjóðverjar hörfa frá
Volturno-ánni á Ítalíu.
1935 — Þjóðabandalagið fyr-
irskipar refsiaðgerðir gegn ítöl-
um.
1912 — Umsátur Búlgara með
Adríanópel hefst.
1812 — Undanhald Napoleons
frá Moskvu hefst.
1781 — Her brezka hershöfð-
ingjans Cornwallis gefst upp í
Yorktown.
1768 — Tyrkir segja Rússum
stríð á hendur að undirlagi
Frakka. ,
Afmæli dagsinst Sir Thomas
Browne, brezkur læknir —
rithöfundur (1663—1704) —
Leigh Hunt, brezkur rithöfund-
ur (1785-1859) - Yakubu
Gowon, fyrrum þjóðhöfðingi
Nígeríu (1934 ---).
Innlenti Sambandslögin sam-
þykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu
1918 — Opnuð fyrsta hveraraf-
stöð á íslandi 1946 — Kona
undir Eyjafjöllum fæðir sam-
vaxna tvíbura 1802 — Kristinna
laga þáttur afnuminn í Hóla-
biskupsdæmi 1354 — D. Einar
Ásmundsson alþm. 1993 — F.
Páll Briem amtmaður 1856 —
Sigurbjörn Sveinsson 1878 —
Þorsteinn E. Jónsson flugmaður
1921 — Stofnfundur Iðnaðár-
banka 1952.
Orð dagsinsi Ef siðmenning
okkar líður undir lok, verður það
vegna þess að hún átti ekki
skilið að halda velli — Lewis
Mumford, bandarískur rithöf-
undur (1895 -----).
ríkisstjórninni og efnahagsstefnu
Verkamannaflokksins. Flokksfor-
menn hinna borgaralegu flokk-
anna voru gætrtari í orðum sínum
en Lars Korvald, fyrrverandi
forsætisráðherra og nú forsvars-
maður Kristilega þjóðarflokksins,
lagði áherzlu á, að borgaraflokk-
arnir væru hvenær sem er reiðu-
búnir til að mynda stjórn. Ýmsir
þingmenn Verkamannaflokksins
reyndu að reka fleyg á milli
borgaraflokkanna til að draga
athyglina frá þeim kosti sem
kynni að vera innan seilingar ef
annað brygðist — þ.e. ríkisstjórn
borgaraflokkanna.
Þessum umræðum var síðan
haldið áfram í dag, miðvikudag, og
svaraði Odvar Nordli forsætisráð-
herra nú málflutningi andstæð-
inga sinna. Hartn taldi að stefna
borgaraflokka byði ekki upp á
lausn vandamála þeirra sem við
væri að glíma og allra sízt væri
hún vænleg til að leysa það mál
sem væri mesta verkefnið hvar-
vetna — að koma í veg fyrir
atvinnuleysi.
Flókin efnahagsvandi sem virð-
ist blasa við Norðmönnum hefur
sett mjög svip sinn á umræðurnar
og er eins konar forsmekkur að
fjárlagaumræðunum og umræðum
um launa- og verðstöðvun sem
koma innan tíðar til umfjöllunar í
þinginu.
Anker til
Ungverja-
lands
Kaupmannahöfn. 17. okt. Reuter.
ANKER Jörgensen forsætis-
ráðherra Danmerkur fer í
þriggja daga opinbera heim-
sókn til Ungverjalands og
hefst hún næstkomandi
mánudag. Skrifstofa danska
forsætisráðherrans sendi frá
sér tilkynningu þessa efnis í
morgun.
Callaghan
vinsælli en
Thatcher
London, 18. okt. Reuter
ÍHALDSFLOKKURINN í Bret-
landi nýtur meira fylgis en
stjórnarflokkurinn Verka-
mannaflokkurinn, en munurinn
hefur minnkað síðan hliðstæð
skoðanakönnun var gerð fyrir
mánuði. Nú segast 48% munu
kjósa íhaldsflokkinn, en 44%
styðja Verkamannaflokkinn.
Þessar niðurstöður eru birtar í
Daily Mail í dag. Þar kemur
fram að sama blað greindi frá
sams konar könnun 11. sept. og
hafði íhaldsflokkurinn þá 6%
forystu fram yfir Verkamanna-
flokkinn.
Stuðningur við Frjálslynda
flokkinn hefur og minnkað úr 8
prósentum í fimm prósent.
James Callaghan forsætis-
ráðherra nýtur persónulega
meiri vinsælda en Margaret
Thatcher leiðtogi Ihaldsflokks-
ins að því er kemur þarna fram.
Hann hefur 44% á móti 36%
hjá Thatcher.
Munið
Útsýnarkvöldið
að Hótel Sögu
sunnudagskvöld
NánaraugSýst
á morgun
Austurstræti 17, II hæA, símar 26611 og 20100
IIIIIIIIIIIIIIIIIII