Morgunblaðið - 19.10.1978, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978
Sovézkir ki
dagar 1 Re j
SOVEZKIR kvikmyndadagar
vorða haldnir í Reykjavík nú
fram að helgi og hefjast með
sýningu á myndinni Eigin
skoðanir í Laugarásbíó í kvöld kl.
8.30. Auk hennar verða sýndar
tvær nýjar myndir næstu tvo
daga — Ástarsaga aí skrif-
stofunni og ívan grimmi sem er
hallctt-mynd með Bolshoj-ballett-
inum heimsfræga. Allar
sýningarnar verða í Laugarásbíó.
Myndirnar þrjár lýsa hver um
sig ákveðna hlið á sovézkri kvik-
myndagerð og fléttast þar saman
gaman og alvara í viðfangsefnum.
Fyrsta myndin, Eigin skoðanir,
gerist í stórri verksmiðju og
fjallar um efni sem löngum hefur
verið áleitið viðfangsefni sovézkra
kvikmynda, þ.e. sem Rússar kalla
sjálfir framleiðslumyndir og
greina frá vandamálum sem upp
koma manna á milli vegna skipu-
lags- og framleiðslutilhögunar.
Ilópatriði úr hallcttmyndinni Ivan grimmi.
Með eitt af aðalhlutverkunum í
þessari mynd fer leikkonan Ljud-
mila Churshina og er hún hingað
komin í tilefni þessara kvik-
myndadaga.
Ástarsaga af skrifstofunni er á
hinn bóginn gamansöm mynd, þar
sem gert er grín aö skriffinnsk-
unni sem hefur löngum verið
alræmd í Rússlandi. Myndina
gerði Eldar Risanov. ívan grimmi
er eins og áður segir ballettmynd
frá Bolshoj-leikhúsinu, og er
tónlistin eftir Sergei Prokovief en
dansahöfundur er Juri Grigorovits
og helztu dansarar þau Juri
Vladimirov, Natalia Déssmért-
nova og Boris Akimov.
Listasafn íslands:
Sýning Snorra Arinbjarn-
ar framlengd um eina viku
VEGNA mikillar aðsóknar
hefur verið ákveðið að fram-
lengja yfirlitssýningu á
verkum Snorra Arinbjarnar
í Listasafni íslands um eina
viku, og mun hún því standa
til sunnudagsins 29. októ-
ber.
Snorri Arinbjarnar — sjálfs-
mynd.
Frá mánudegi 23. október
til sunnudags 29. október
verður sýningin opin kl. 13.30
til 16, en um næstu helgi, 21.
og 22. október, verður sýning-
in opin milli kl. 13.30 og 22.
Skólum er sérstaklega bent
á að utan venjulegs sýningar-
tíma stendur nemendum til
boða að skoða sýninguna í
fylgd kennara.
Bridgefélag
Kópavogs
S.l. fimmtudag lauk 3 kvölda
tvímenningskeppni hjá Bridge-
félagi Kópavogs. Úrslit urðu
þessi:
Jónatan Líndal
— Þórir Sveinsson 544
Ármann J. Lárusson
— Haukur Hannesson 532
Óli M. Andrasson
— Guðmundur Pálsson 531
Birgir Isleifsson
— Karl Stefánsson 509
Barði Þorkelsson
— Júlíus Snorrason489
I kvöld hefst hraðsveita-
Bridge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
keppni, sem jafnframt verður
undankeppni fyrir aðalsveita-
keppni félagsins, sem haldin
verður eftir áramót. Stjórnin
mun freista þess eftir því sem
mögulegt er að mynda sveitir ef
einstök pör vantar mótspilara.
Þátttaka tilkynnist í síma 41794.
Spilað er í Þinghól, Hamraborg
11.
Barðstrendinga-
félagið í Reykjavík
Árangur eftir 3. umferð
tvímenningskeppni félagsins.
Stefán Eyfjörð
— Gunnlaugur Þorsteinss. 383
Ari Þórðarson
— Díana Kristjánsson 357
Helgi Einarsson
— Erla Lorange 357
Ragnar Þorsteinsson
— Eggert Kjartansson 353
Þórarinn Árnason
— Finnbogi Finnbogason 348
Isak Sigurðsson
— Árni Bjarnason 343
Sigurður Kristjánsson
— Hermann Ólafsson 334
Albert bið-
ur að heilsa
Stundum er veruleikinn svo
óbærilegur, að best er að gleyma
honum. Þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins reynir greinilega
þessa dagana á þolrifin í heit-
trúuðum lesendum Morgun-
blaðsins. Þar sitja allir á
svikráðum við alla og Alþingi er
gert óstarfhæft meðan verið er
að slátra Albert. Síðustu daga
hefur þjóðin rætt fátt meira en
óöldina í Sjálfstæðisflokknum
og skepnuskap flokksklíkunnar í
garð prófkjörssigurvegarans, 1.
þingmanns höfuðborgarinnar.
Jafnvel glíma okkar í stjórnar-
liðinu við að koma saman
fjárlögum hefur bliknað í sam-
anburði við aftökuna á Albert í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
Þegar allt er í háalofti á eigin
heimili er stundum gripið til
þess ráðs að segja óþekktarorm-
unum skröksögur í þeirri von að
það iægi í þeim rostann. I
Morgunblaðinu í gær var gripíð
til þessa gamla húsráðs. í því
skyni að sætta hina óbreyttu við
aftökuna á Albert, var birt
„frétt“ um „baráttu" og „tog-
streitu“ innan þingflokks Al-
þýðubandalagsins um sæti í
utanríkismálanefnd og var und-
irritaður aðalpersóna þessa
harmleiks. „Morgunblaðið hefur
fregnað" var upphafið og svo var
útlistað á stuttan en dramatísk-
an hátt, að Ólafur Ragnar
Grímsson hefði „sótzt mjög
eftir“ að fá sæti í utanríkis-
málanefnd og fallið í kosningu
innan þingflokks Alþýðubanda-
lagsins, bæði sem aðalmaður-og
varamaður.
Það skemmtilegasta við þessa
frétt var, að hefði staðið Albert
Guðmundsson í stað Ólafs
Ragnars Grímssonar, Ragnhild-
ur Helgadóttir í stað Svövu
Jakobsdóttur, Friðjón Þórðar-
son í stað Gils Guðmundssonar,
Eyjólfur K. Jónsson í stað
Jónasar Árnasonar og Geir
Hallgrímsson í stað Kjartans
Ólafssonar — þá hefði verið
hægt að heimfæra fréttina
orðrétt upp á Sjálfstæðisflokk-
inn.
En, elskurnar mínar, var
einhver óþokki að plata ykkur á
erfiðum tímum eða eruð þið að
reyna að plata fólkið með
alþekktum Albaníuvinnubrögð-
um. Þið hafið ruglast á flokkum
í þessari ágætu „frétt“. I þing-
flokki Alþýðubandalagsins voru
og eru engin átök. Þar vinna
menn einhuga að málefnum
þjóðarinnar og hagsmunum
launafólks. Þar sækjast menn
ekki éftir setu í nefndum, heldur
sinna þeim skyldum, sem að
kalla hverju sinni: Þar eru
engar kosningar urft sæti í
nefndum, heldur öllu ráðstafað
á markvissann hátt. „Fréttin" í
Ólafur Ragnar Grímsson
Morgunblaðinu í gær er því öll í
plati.\Undirritaður sóttist ekki
eftir sæti í utanríkismálanefnd.
Það fór engin kosning fram og
enginn féll.
Það er, því miður fyrir ykkur,
aðeins einn þingmaður á Alþingi
íslendinga, sem hefur fengið svo
kaldar kveðjur frá flokksbræðr-
um sínum (og einnig hatrammri
flokkssystur) að vera meinað að
sitja í þeim nefndum, sem hann
óskaði. Þetta fórnarlamb öf-
undarinnar í eigin flokki er ekki
í Alþýðubandalaginu. Hann er í
Sjálfstæðisflokknum. Hann
sigraði sjálfan forsætisráðherr-
ann í prófkjöri á s.l. vetri. Hann
er 1. þingmaður Reykvíkinga.
Hann heitir Albert Guðmunds-
son. — Og hann biður kærlega
að heilsa ykkur á Mogganum.
ólafur Ragnar Grímsson
Beizkja og spenna hafa ein-
kennt einvígid frá öndverdu
Baguio Filippseyjum 18. okt.
Frá Harry Golombek.
(rcttaritara MorKunblaðsins
EINS og við hafði verið búizt gaf
Korchnoi 32. skákina án þess að
halda áfram að tefla hana. Bið-
leikur hans var Rb7 og eftir það
hefði verið sýnt að hvítur hefði
orðið ofan á: Þar með var Karpov
orðinn sigurvegari einvígisins að
vísu naumlega með 6 vinninga en
Korchnoi hlaut 5 vinninga.
Tuttugu og einni skák lyktaði með
jafntefli. Karpov heldur þar með
heimsmeistaratitilinum. En
spurningin um það hvort Karpov
hafi teflt á þessu móti eins og
sæmdi heimsmeistara er aftur
annað mál og maður hefur þá
ónotatilfinningu að úrslitin séu
óréttlát og betri skákmaðurinn
hafi tapað. Með því að segja betri
skákmaður á ég við sá sem betur
lék í þessu einvígi, þar sem ég er
sannfærður um að Karpov getur
teflt eins og sá sem valdið hefur
enda þótt í þessu einvígi hafi
sjaldan brugðið fyrir slíkum
Harrif Golombek
skrifar fi/rir
Moraun blaöiö
tilþrifum. Korchnoi lítur svo á að
hann hafi verið ósanngirni beittur
af hálfu forsvarsmanna og skipu-
leggjenda mótsins og telur að flest
hafi verið gert til að trufla sig og
erta, m.a. er hann mjög gramur
yfir tilraunum Sovétmanna til
þess að svipta hann aðstoð
Ananda Marga-fólksins.
Þetta hefur verið lengsta einvígi
hvað tímalengd snertir sem ég hef
verið viðstaddur og er lengsta
heimsmeistaraeinvígi frá því slík
keppni var í upphafi hafin. Mikil
beizkja og spenna hefur einkennt
mótið og ég hef orðið vitni að því
að skákmennirnir hafa neitað að
takast í hendur við upphaf skákar
og endi hennar. Meiningin er að
pólitík og skák sé ekki blandað
saman en það verður að segjast
eins og er, að keppendur hér hafa
gefið öldungis afleitt fordæmi
hvað þetta snertir.
Korchnoi við jógaæfingar í
Baguio.
Vetrarstarf
liknarfélags
Mormóna-
kirkjunnar
VETRARSTARF Líknarfélags
Kirkju Jesú Krists, en það er
félag sem starfar innan
Mormónakirkjunnar, hófst um
síðustu mánaðamót. Eins og
undanfarna vetur verða allir
fundir í kennsluformi og haldnir
á fimmtudagskvöldum kl. 20.00,
fyrst um sinn að Austurstræti
i2.
Á fundunum verður m.a.
trúarfræðsla, hússtjórnar-
fræðsla, uppeldis- og félags-
fræðsla og menningarfræðsla.
Einnig verða sýndar myndir.
Þriðji fundur félagsins verður
í kvöld fimmtudag, klukkan
20.00 að Austurstræti 12. Á
dagskrá verða. uppeldis- og
félagsfræðsla.
Allar konur eru velkomnar og
er þátttaka ókeypis.