Morgunblaðið - 19.10.1978, Síða 31

Morgunblaðið - 19.10.1978, Síða 31
MORG’JNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978 31 Löngu liðið atvik kemur í hugann. Ég geng inn í gildaskála á Akureyri ásamt félaga mínum um hádegisbil 17. júní 1942. Síðar sama dag eigum við að taka við stúdentsprófsskírteinum við skólaslit á Sal. Við borð undir glugga framarlega í veitingasaln- um sitja miðaldra hjón. Maðurinn vörpulegur og fasmikill. Andlits- drætti hans þekki ég af myndum. Konan glæsileg, brosmild og svip- heið. Þetta eru foreldrar félaga míns, Garðar Þorsteinsson hæsta- réttarlögmaður og alþingismaður og kona hans Anna Pálsdóttir. Þau eru komin norður yfir heiðar tveggja erinda. Hann er að hefja framboðsfundi í kjördæmi sínu, Eyjafjarðarsýslu, og hún fylgir honum til þeirrar viðureignar í átthögum sínum. Jafnframt ætla þau að vera viðstödd og samfagna elsta syni sínum, Hilmari, við skólaslitaathöfnina. Bæði eru þau mér ókunn. Þó er ég hingað kominn í boði þeirra til hádegis- verðar. Nýt ég þar vinfengis við son þeirra. Löngu er mér nú gleymt allt sem um var rætt, meðan málsverður var snæddur. Fráleitt hefur það verið neitt, sem í frásögur sé færandi. Hitt þykist ég muna með sæmilegri vissu, að óframfærni mín við þetta ókunnuga fólk hafi horfið sem dögg fyrir sólu við hispurslausa glaðværð og alúðlegt viðmót frú Önnu. En langt um minnisstæðast er mér það þó, þegar hún í lok máltíðar, er risið var frá borðum, tók af því rós, sem hún hafði látið senda sér frá Reykjavík með flugvél fyrr um morguninn, og festi í barm mér til að ég bæri hana við þá athöfn, sem í vændum var. Þetta gerði hún af sömu umhyggju, nærfærni og þokka og hún hafði áður gert við sinn eiginn son, og frá henni stafaði þeirri hlýju hjartans, er snart mig og greypti atvikið í huga mér. Síðar átti fyrir mér að liggja að kynnast frú Önnu miklu nánar. Ég kom um haustið til Reykjavíkur til náms í Háskólanum. Þá lá hús- næði ekki á lausu í miðri heim- styrjöld, Gamli Garður hersjúkra- hús, en nýr stúdentagarður ekki risinn. Þó átti ég vísan samastað. Fyrir því hafði Anna séð. Engu að síður atvikaðist það svo, að ég gisti fyrstu næturnar á heimili þeirra hjóna á Vesturgötu 19. Það urðu mín fyrstu kynni af heimili, sem var sérstætt á sinni tíð, en á sér varla hliðstæðu lengur. Húsakynni voru þar bæði rýmri og búnaður allur ríkmannlegri en ég hafði átt að venjast. Það var þó ekkert tiltökumál. Heimili sambærileg í þeim efnum þekktust vissulega víðar bæði þá og nú. En fjölmenn- ið, glaðværðin, gestrisnin og heimilisbragur allur var einstak- ur. Þar bjuggu ekki aðeins hjónin með börnum sínum fjórum, heldur einnig foreldrar húsbóndans, öldr- uð hjón en lítt þrotin af sálar- kröftum. Þar var að staðaldri vænn hópur ungs fólks, mest megins námsfólk, sem naut stuðn- ings húsráðenda. Sumir höfðu þar bæði fæði og húsnæði, aðrir komu á matmálstímum eingöngu. Við þetta bættust svo stúlkur, oftast fleiri en ein, sem voru húsmóður- inni til aðstoðar við heimilisstörf- in. Ótaldir eru þá þeir gestir, sem hvern dag gengu inn um þær dyr, en þeim stóðu jafnan opnar til að leita sér félagsskapar í þessu húsi, þar sem glaðværðin ríkti óskorað og afdráttarlaust. I þeirra tölu var konan mín, sem bjó sem barn og unglingur í húsi handan götu, en átti hér því atlæti að mæta, að vísast vissi hún stundum naumast, hvort heimilið var hennar eigð. Það lætur að líkum, að nokkurs hafi þurft með til forsjár slíks heimilis af hendi hjónanna beggja. Húsbóndinn gegndi umsvifamikl- um störfum utan heimilis og sá vel fyrir öllu, sem heimilið þarfnaðist. í hlut húsmóðurinnar kom að standa við stjórnvöl á heimilinu frá því að hún reis úr rekkju að morgni, uns hún gekk til hvíldar að kvöldi. Það gerði hún af þeirri festu og myndarskap, að aldrei virtist neitt fara úr skorðum á því heimili, en þó með þeirri mildi, að hún hafði hvers manns hylli ofar öllu skilorði. Er fram liðu stundir hlaut þetta sérstæða heimili að breytast á ýmsa lund. Af sjálfu leiddi. Sumt varð það þó með sneggri hætti og harkalegri en vænta hefði mátt. I maí 1947 andaðist tengdamóðir frú Önnu, þá orðin öldruð kona. Aðeins örfáum vikum síðar fórst Garðar maður hennar í miklu flugslysi í Héðinsfirði. Þarf eigi mörgum orðum að því að eyða, að það var henni þungt áfall. Hvorki bugaði það hana þó né braut, til þess var hún of sterk og þróttmik- il. En heimilið varð eigi lengur með sama hætti og verið hafði, enda fækkaði nú óðum heimilis- fólki, þegar börnin stofnuðu eigin heirriili. En allt um það tókst frú Önnu, meðan heilsa og kraftar leyfðu, að halda því andrúmslofti glaðværðar og hlýju á heimili sínu, að hver, sem þangað kom, fór þaðan glaðari og ánægðari en hann hafði komið. Á skilnaðarstund erurn við hjónin henni þakklát fyrir þær gleðistundir, sem hún hefur veitt okkur með sínum glaða hug og góða hjarta. Blómið, sem hún festi í barm mér forðum daga, átti fyrir sér en visna á sama degi. En eftir er minningin um hana, sem það gerði, minning sem nærst hefir af löngum kynnum og góðum og heldur áfram að gróa og vaxa í huga mínum þó að þessi elskulega kona sé nú horfin af sjónarsviði. Magnús b. Torfason. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég er áttræður og lullkomlega sæll og glaður. Ég get ómögulega trúað því, sem þér eruð að predika um að eyða eilífðinni í víti. Einkaskoðanir mínar ráða alls engu um predikun mína. Ég trúi því af öllu hjarta, að Guð hafi gefið okkur Biblíuna til þess að skýra okkur frá því, sem við öll þurfum að þekkja og trúa. Biblían staðhæfir aftur og aftur, að við séum öll haldin þeim voðalega sálarsjúkdómi, sem heitir synd. Hún kennir líka, að laun syndarinnar séu dauðinn. Honum er líst svo, að þetta sé andlegur dauði og eilífur aðskilnaður frá Guði. En Biblían segir meira en þetta. Hún boðar, að Guð elski okkur svo heitt, að hann sendi son sinn í heiminn til þess að deyja fyrir syndir okkar, í okkar stað. Allt, sem við þurfum að gera, er að veita því viðtöku, sem Kristur hefur þegar gert fyrir okkur. Ef við gerum það, erum við „endurfædd“, eins og Biblían kallar það. Við verðum nýir menn, því að Kristur umbreytir hjarta okkar og lífi. Þetta eru nokkrar einfaldar staðreyndir í boðskap fagnaðarerindisins, og ég er einungis boðberi, sem kunngjöri það, er Biblían segir. Vera má, að þér trúið þessum atriðum nú þegar og bendið á minni háttar greinarmun, sem er á kristnum mönnum. En ef þér hafið aldrei veitt Kristi viðtöku sem frelsara sálar yðar og herra lífs yðar, þá vil ég hvetja yður til að gera það nú þegar. Þetta er ekki skoðun manns. Þetta er heilagt, innblásið orð Guðs, og það snertir eilíf örlög okkar. Biblían segir: „Hvernig fáum vér undan komizt, ef vér vanrækjum slíkt hjálpræði?" Glæpur og refeing Þessi fyrirsögn er nafn á einni frægustu skáldsögu heimsins, en þaö veröur þó ekki efni hennar, sem rakið verður í eftirfarandi orðum. Glæpur er athöfn, sem skapar einum eða mörgum þjáningu, böl og eymd. Og einmitt út frá því þarf að meta glæpinn. En sé rétt skoðað, þá er og hefur margt verið kallaður glæpur,. sem er það ekki út frá þessu sjónarmiði séð. Því hafa sumar kynslóðir, þjóðir og þjóðflokkar dæmt hart og refsað fyrir ýmislegt, sem varla átti skylt við glæp, með þessari skilgreiningu. Þar réðu og ráða fordómar og erfikenningar, sem síðar féllu úr gildi eða fólk fór að líta allt öðrum augum, með breyttum aðstæðum. Tökum þar til dæmis ýmiss konar matarhæfi, sem talið var og talið er glæpur og refsivert athæfi. Það mun t.d. hafa varðað dauðarefsingu einhvers staðar, meira að segja talið samkvæmt Guðs boði, ef einhver varð sannur að sök um að eta hrossakjöt. Sama mátti segja um ýmiss konar sifjaspell, ástarsamband og kynsambönd, að ógleymdum öllum galdra- og trúmálaglæpum liðinna tíma. En þeir birtast enn í breyttri mynd í mörgu, sem nú eru nefndir stjórnmálaglæpir og skoðanaskekkja í einveldislönd- um og liggja þar við hin hörðustu viðurlög og refsingar, þótt margsannist síðar að „glæpamennirnir“ dauðadæmdu voru jafnvel mestu og beztu synir þjóðar sinnar og jafnvel plls mannkyns á jörðu. Er þar skemmst að minna á Krist, sem dæmdur var til dauðarefsingar fyrir glæpi gagnvart trú og siðum þjóðar sinnar og uppreisn gegn ríkjandi hefðum. Én þús- undir, já, hundruð þúsunda svokallaðra glæpamanna hafa hlotið svipuð örlög fyrir svipað- ar sakir eða glæpi. í slíkum tilfellum er í raun- inni skipt um hlutverk og refsingin, dómurinn verður versti og mesti glæpurinn og samfélagið, sem ber ábyrgð á refsingunni, ógeðslegasti morð- inginn. Það má því gjarnan gæta sín, og sumir, sem eru fastir í fordómum gagnvart glæpum og refsingum gera ósjálfrátt Guð sinn að grimmasta dómaranum og mesta glæpa- og grimmdar- seggnum. Samanber hina ógeðs- legu útskúfunarkenningu sjálfrar kirkju Krists. En af hverju stafa glæpir og glæpahneigð, sem margir telja nú aukast hraðfluga, jafnvel í þeim löndum, sem talin eru bezt kristin og á hæstu menningar- stigi? Glæpir stafa af meðfæddri ofbeldishneigð, löngun til að ráða umhverfi sínu, innibyrgðri minnimáttarkennd, hatri, grimmd. heimsku og fordómum, sem oft er saman- blandað á hinn furðulegasta hátt og hitað upp með öfund og illgirni. Nútíma þjóðfélag, ekki sízt hin háþróuðu, kynda undir þessum kenndum bæði beint og óbeint og efla þannig glæpa- hneigð og glæpi. í fyrsta lagi óbeint með því að láta ofbeldis- hneigðina ekki fá rétt viðfangs- efni til að glíma við. Maðurinn og þá ekki sízt æskumaðurinn í vanþróaða samfélaginu, þar sem enn þekkist varla vél né þæg- indi, fann ærin viðfangsefni til að láta ofbeldishneigð sína og umframorku bitna á. Hann fann þetta í átökum við höfuðskepn- urnar, baráttu upp á líf og dauða við æstar öldur á smá- fleytu sinni, eða við stórhríðar og hættur um fjöll og firnindi, bardögum við villidýr og ímynd- aða drauga og vofur, anda og örlög, ef ekki vildi betur til með áþreifanlega vætti. Þetta dró að vissu leyti úr ofbeldishneigð, hún fékk útrás . án þess að verða öðrum til þjáningar, böls eða hættu. Það væri því nauðsyn í upp- hafi fyrir nútímaæsku í tækni- þróuðu samfélagi, að gefa ungl- ingum kost á að beita ofbeldis- hneigðum sínum á svipaðan hátt, gefa þeim útrás án þess að öðrum yrði að meini. Láta þau erfiða, lenda í hættum og vanda, en veita þeim samt vernd til að standa. Til þess væri svonefnd þegnskylda bráðnauðsynleg, ekki sízt hér á Islandi. En auk þess er svo margt óbein útlausn ofbeldishneigða og öfl til að hindra að þær verði að voða, þótt við tökum ekki eftir því. Þar mætti t.d. nefna bítlaöskrin og hljóðfæraglamrið, meira að segja búninga unga fólksins, afkáraskapinn í listum, skeggjúðann, hársíddina og mínípilsin. En samt er fleira alveg hefðbundið og sjálfsagt, sem haft er til að lina ofbeldis- hneigð og glæpsemi. Allir þekkja hin friðandi áhrif söngs og tóna, predikana. hljómleika og helgisamkoma, þetta eru einnig nokkurs konar óbeinar girðingar gegn yfirflóði ofbeldis, grimmdar og heimsku að ógleymdum boðorðum og regl- um, sem stundum geta þó gert illt verra. I öðru lagi kynda nútímasam- félög mörg undir ofbeldishneigð og glæpsemi með sífelldum áróðri og stanzlausri áreitni af glæpasýningum og frásögnum í öllum sínum fjölmiðlunartækj- vió gluggann eftirsr. Árelíus IMielsson um, blöðum, útvarpi og sjón- varpi, kvikmyndum og listum. Þar er yfirleitt sýnd önnur hlið þjáningarinnar eða ofbeldisbeit- ingar. Það er stungið, lagt, skotið, sprengt og misþyrmt eins og ekkert sé eðlilegra. En stunur og vein, afskræming og andstyggð, ótti og kvalir fórnar- dýrsins, það er ekki sýnt, nema eins og í leik. Að vísu kann slík sýningastarfsemi að veita vissri tegund ofbeldishneigðar og grimmdarlosta útrás að vissu marki. En hún gerir samt miklu meira í því að efla glæpahneigðina og kenna tökin á viðfangsefnum ofbeldsins. Þessu þarf kristinn dómur að berjast gegn sem einni mestu viðurstyggð vorra tíma. Ekki getur meiri synd en þá að auka þjáningar og hættu á þjáning- um. Þess vegna eru styrjaldir mesti glæpur allra tíma. En þar eru mestu gla'pamennirnir verðlaunaðir og morðingjar af djöfulsins náð settir á tignar- trón. Um refsingar er hægt að vera fáorður. Allar refsingar eru sama eðlis og glæpir, og sumar hefðbundnar, lögfestar refsing- ar eru svörtustu glæpir. Engum verður refsað til þroska og batnaðar og sízt í fangageymsl- um og svartholum sem enn tíðkast víða um lönd. Glæpamanni á ekki að refsa í venjulegri merkingu þess orðs. Það á að meðhöndla hann sem vanþroska eða sjúkling á háu stigi. Að vísu þarf að takmarka frelsi hans að vissu marki, svo að hann ekki vinni umhverfi sínu mein eða gefist tækifæri til þess. En jafnframt verður að gera allt, sem unnt er til þess að losa hann við sjúklega ofbeldis- hneigð og árásaráráttu, en gera hann sem fyrst færan um að komast inn í raðir samfélagsins á ný. Það er t.d. stórglæpur samfé- lags og dómara, en kannski skylda ennþá í heimsku þjóðfé- lagi og vanþróuðu félagslífi, að dæma morðingja í ævilangt fangelsi. Maður, sem er 'morð- ingi, getur verið fyllilega jafn- snjall til að lifa og starfa til gagns og hamingju sjálfum sér og öðrum, þegar hann er laus við þá fjötra eða það brjálæði, sem hann var í þegar glæpurinn var framinn, eins og einhver, sem aldrei hefur gert flugu mein. Og það á að vera auðvelt fyrir sálfræðinga og presta nútímans og annað menntað sálgæzlufólk að dæma um, hvenær glæpa- maður er laus úr sínu andlega fjötri. Og eftir það er honum og öllum bezt, að hann sé frjáls, hvort sem það eru tveir mánuðir eða 20 ár frá því að hann framdi sinn glæp. Eitt er víst, mörg fangelsisár gera hann hvorki betri né hæfari til skyldna sinna eða göfugs lífs að nýju, sá tími er refsing en jafnframt glæpur þess samfé- lags, sem dæmdi hann, kannski verri glæpur en hann framdi. Það almenningsálit sem ríkir gagnvart glæpum og refsingum enn í dag er ókristilegt og eykur glæpi og þjáning. Refsing er alltaf þjáning og því oftast hryllilegur glæpur. Munið, að Kristur sagði: Þér skuluð ekki rísa gegn meingjörðamannin- um. Og hann sagði einnig: Faðir fyrirgef þeim, þeir vita ekki, hvað þeir gjöra. Arelíus Níelsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.