Morgunblaðið - 19.10.1978, Síða 33

Morgunblaðið - 19.10.1978, Síða 33
MORCUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1978 33 fclk í fréttum + Dalai Lama hinn útlægi trúarleiðtogi Himalæjaríkisins Tíbets var fyrir nokkru í Tokyo. Var þessi mynd tekin af honum þar (sitjandi til hægri), er trúarleiðtoginn var í Búddhahofinu Zojoji, ásamt Búddhapresti einum, sem er við bænagjörð. Fór Dalai Lama til Tokyo á alþjóðlegan fund Búddhatrúarmanna. Einn þriggja + Þessi náungi heitir James W. Cosgrave og er einn þeirra þriggja manna, sem alríkislög- reglan í Bandaríkjunum hand- tók á dögunum í sambandi við þau áform þremenninganna að ná saman 12 mönnum til að ræna kjarnorkukafbátnum Treppgang, sem er í flota Bandarikjamanna. Þeir ætluðu að sigla honum í námunda við einhverja austurstrandarborg Bandaríkjanna og skjóta á hana kjarnorkueldflaug. Síðan átti að stinga af til hafs og finna kaupanda að kafbátnum, í útlöndum. Vakti þessi fregn furðu. Flotastjórnin sagði að útilokað væri með öllu að samsærismönnunum 12 myndi hafa tekizt þetta, því að til þess að sigla kjarnorkukafbáti þessum og hafa á honum fulla stjórn þyrfti 100 manna áhöfn. + Ræfla-rokk-stjarna. — Á myndinni hér að ofan er bandaríska ræfla-rokk-stjarnan Lita Ford, „á fullu.“ — En á minni myndinni er gamanleik- arinn Pyllis Diller syngjandi hástöfum. Var myndin tekin af þeim stöllum í gleðskap í Los Angelesborg í tilefni af Broadway gamanleiknum „Annie“, þeg- ar byrjað var að sýna hann þar í borginni. Tísku- sýning ★ Alla föstudaga kl. 12.30—13.30. Sýningin er haldin á vegum Rammagerðarinnar, íslensks Heimilisiðnaöar og Hótels Loftleiða. Módelsamtökin sýna skartgripi og ýmsar gerðir fatnaðar sem unninn er úr íslenskum ullar- og skinnavörum. Hinir vinsælu réttir kalda borðsins á boöstólum. ★ Verið! velkomin. HOTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322 Lotus: Frábært matar- og kaffistell hannað af Björn Wiinblad. Glasasett og hnífapör i sama stíl. Lítið á gjafavöruúrvalið í Rosenthal verzluninni, — skoðið jólaplatta, mánaðardiska og postulín. Rosenthal vörur Gullfallegar — gulltryggðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.