Morgunblaðið - 22.10.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978
15
leið er einmitt fjármagn til
þessara nota tekið af atvinnu-
rekstrinúm.
Þannig er gengið lækkað til þess
að auka tekjur atvinnufyrirtækja í
krónutölu og lofað er vaxtalækk-
un, sem er algerlega óraunhæft, en
um leið eru stórauknar álögur á
atvinnuvegina. Hvers konar hring-
dans vitleysunnar er hér á ferð-
inni? En var á öðru von af vinstri
stjórn?
Stefna Sjálfstæðisflokksins í
skattamálum er skýr:
1. Takmarka ber umsvif hins
opinbera og þar með heildar-
skattlagningu á landsmenn
enda lækkaði hlutfall ríkisút-
gjalda á síðasta stjórnartíma-
bili miðað við þjóðarfram-
leiðslu.
2. Skattlagning á fremur að vera á
eyðslu með óbeinum sköttum en
síður með beinum sköttum á
tekjur eða verðmætasköpunina í
þjóðfélaginu. í samræmi við það
lækkaði hlutfall beinna skatta í
tekjuöflun ríkisins um þriðjung
á síðasta kjörtímabili.
3. Tekjuskattar eiga ekki að vera
lagðir á almennar launatekjur
og hæsti skattur í heild ekki að
fara fram úr 50% af síðustu
tekjum, sem menn fá í sinn hlut.
Engin samræmd stefna
Þótt stutt reynsla sé komin af
störfum ríkisstjórnarinnar og
árangur þeirra bráðabirgðaráð-
stafana sem hún sjálf kallar svo og
ætlar ríkisstjórnin jafnvel bæði að
lækka og hækka vexti, og missir
þannig tökin á peningamálum, og
á stjórn fjárfestingar. Sjálfstæðis-
menn hafa bent á að dregið hafi
verið úr fjárfestingu með almenn-
um aðgerðum á síðasta kjörtima-
bili úr 33%. í 27% af þjóðarfram-
leiðslu og telja eðlilegt að fjárfest-
ingin sé jafnan um fjórðungur
þjóðarframleiðslunnar, til þess að
veita svigrúm til aukinnar einka-
neyslu. Bersýnilega ætlar stjórnin
hins vegar að grípa til vinstri
stjórnar úrræða í fjárfestingar-
stjórn, boða og banna og þess
misréttis, sem þau leiða af sér
milli atvinnugreina og einstakl-
inga. Tilraunir i þá átt eru bæði
stórlega skaðlegar og ná heldur
ekki þeim árangri, sem til er
ætlast.
í stað þess að gæta þess
árangurs, sem fyrrverandi fjár-
málaráðherra hafði náð og áætlun
gerð eftir mitt ár í fjármálaráðu-
neytinu staðfesti, að greiðslujöfn-
uður mundi nást hjá ríkissjóði á
þessu ári eru ákveðin útgjöld sem
óhófleg aukin tekjuöflun stendur
þó ekki undir þar sem komið er
aftan að borgurunum með aftur-
virkum siðlausum og jafnvel ólög-
mætum hætti.
A næsta ári er og fyrirsjáanlegt
að tugmilljarða bil þarf að brúa
hjá ríkissjóði með enn aukinni
skattheimtu samkvæmt frásögn
forsætisráðherra. Enda bólar enn-
þá ekki á fjárlagafrumvarpi sem
þó er venjulega fyrsta mál þings-
ins,
Slíkur hallarekstur og háttalag
sem útlit er fyrir magnar auðvitað
Engan tekjuskatt
á almennar
launatekjur
hefur staðið fyrir, þá er samt ljóst,
að hvorki ríkisstjórnin í heild né
einstakir ráðherrar gera sér grein
fyrir, hvert stefnir og því síður
hvert á að stefna og hvaða leiðir
skuli velja.
Samræmd efnahagsstefna er
engin fyrir hendi.
Aðgerðir í kaup- og kjaramál-
um, þ.á m. verðlagsmálum hafa
kynnt verðbólgueldinn, svo að við
blasir 1. desember meiri hækkun
vísitölu en ætlað var að ógerðum
þessum bráðabirgðaráðstöfunum.
Núverandi ríkisstjórn hefur ekki
leyst vandann heldur aukið hann.
Undirstöðuatvinnuvegir eru
reknir með halla, þrátt fyrir að
sölusamtök frystihúsa hafi hækk-
að útborgunarverð til húsanna til
viðbótar hækkun í kjölfar gengis-
fellingar í september. Þetta er gert
í krafti loforðs ríkisstjórnarinnar
að láta gengið síga og það sig er
þegar hafið eins og skráning
dollarans ber með sér og á því
miður eftir að aukast.
í stað þess að auka samkeppni
og frelsi í verzlun og vöruvali, er
horfið frá nýrri skipan sem
samkomulag hafði orðið um í
fyrrverandi stjórn til að tryggja
heilbrigða verzlunarhætti og sem
lægst vöruverð til gamals og úrelts
skipulags, sem búið er að vera
skaðvaldur í atvinnulífi landsins í
hart nær fjörutíu ár og raunar
beint og óbeint verðbólguvaldur á
þessu tímabili, og allar nágranna-
þjóðir hafa horfið frá.
I stað þess að marka raunhæfa
vaxta- og verðtryggingarstefnu
verðbólguna til viðbótar vð allt
annað.
Þessi upptalning sýnir, að sam-
ræmd stefna í baráttunni gegn
verðbólgunni er engin mörkuð.
Botnleysa Alþýðubandalagsins
ræður ferðinni en Alþýðuflokkur
og Framsóknarflokkur eru stefnu-
lausir, bandingjar, týndir og
tröllum gefnir.
Óbreytt stefna í
utanríkismálum
En í einu á þó núverandi
ríkisstjórn heiður skilið. aö fylgja
óbreyttri stefnu í utanríkismálum.
Þessi staðreynd er athyglisverð,
þegar tekið er mið af fyrri vinstri
stjórnum, sem báðar hafa haft það
sem yfirlýsta stefnu sína að gera
landið varnarlaust með því að
rifta varnarsamningnum við
Bandaríkin.
Af umræðum meðal stjórnar-
sinna frá því að ríkisstjórnin var
mynduð má helst ráða, að þeir ætli
að láta sér nægja að deila um
keisarans skegg á sviði utanríkis-
mála að þessu sinni. Alþýðubanda-
lagsmenn hafa dregið fram í
dagsljósið hugmynd um friðlýs-
ingu. Hins vegar hefur utanríkis-
ráðherra sagt, að slíkar friðlýsing-
arhugmyndir séu algjörlega
óraunhæfar. An þess að ég ætli að
blanda mér í þessar deilur vinstri
manna, vil ég þó ekki láta hjá líða
að lýsa yfir stuðningi /við sjónar-
mið utanríkisráðherra. Það er því
miður óraunhæft að gera sér vonir
um, að Sovétríkin fallist á nokkra
takmörkun á sívaxandi flotaum-
svifum sínum á höfunum umhverf-
is Island.
Ríkisstjórnin ætlar að skipa
nefnd með fulltrúum allra þing-
flokka til að gera úttekt á öryggi
íslands. Sjálfstæðisflokkurinn
fagnar því, að ætlunin er að láta
draga saman allar staðreyndir um
hernaðarlega stöðu landsins. Af
flokksins hálfu verður stuðlað að
því, að þetta starf verði unnt að
vinna á hlutlægan hátt með aðstoð
fróðustu manna innanlands og
utan. Flokkurinn mun hins vegar
ekki taka þátt í störfum þessarar
nefndar, ef ætlunin er að misnota
hana í flokkspólitískum tilgangi.
Við íslendingar höfum haldið
vel á utanríkismálum okkar þótt
hliðarspor hafi raunar verið stigin
á árum vinstri stjórnar, er leiðrétt
hafa verið sem betur fer.
Sigurinn í 200 mílna útfærslu
fiskveiðilögsögunnar í tíð fyrrver-
andi ríkisstjórnar er glöggt dæmi
hvernig halda ber á málum
gagnvart öðrum þjóðum.
I beinu framhaldi af þeim sigri
þarf að mörgu að hyggja.
Þrjú fyrstu mál þingsins fjalla
um hafréttarmálefni. Þau eru flutt
af 8 sjálfstæðismönnum, einum úr
hverju kjördæmi.
Fyrsta málið fiallar um rann-
sókn á landgrunni Islands, annað
um réttindi á Islandshafi og þriðja
um landgrunnsmörk Islands til
suðurs.
Hér er um að ræða hin mikil-
vægustu mál, sem stjórnarand-
staðan hefur forustu um og býður
þar með stjórnarflokkunum fulla
samvinnu og samstöðu um að
tr.vggja réttindi okkar á sviði
hafréttarmála.
Efa ég ekki, að ríkisstjórnin
rnuni ganga til samstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn um fram-
kvæmd þessara mikilvægu mála
og vona að engin bið verði á því,
þar sem á miklu ríður að vera vel
undirbúin þegar næsti fundur
Hafréttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna verður haldinn eftir
nokkra mánuði.
Herra forseti.
Ég skal engu spá um langlífi
þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr,
en margt bendir til þess að tvennt
geti gerzt. Annað hvort gefst
ríkisstjórnin blátt áfram upp af
því hún hefur í byrjun reist sér
hurðarás um öxl og á engin
sameiginleg úrræði, eða hún verð-
ur að beita meiri hörku i anda
þeirra auknu ríkisafskipa,
skömmtunar, hafta og banna, sem
svokallaðir vinstri flokkar ýmist
fylgja eða eru svo hneigðir til að
nota, í þeirri trú að nauðsynlegt sé
að ríkið beiti foreldravaldi gegn
fullorðnu fólki.
Við sjálfstæðismenn erum þessu
algerlega andvígir. Skarpari skil
kunna því nú að véra í íslenzkum
stjórnmálum en oft áður.
Við sjálfstæðismenn teljum að
baráttan gegn verðbólgunni verði
að hafa algeran forgang, þar sem
hún stofnar lýðræði, einstaklings-
frelsi og lífskjörum fólksins í voða.
En viö þurfum einnig að horfa
fram á við og beina athygli okkar
að öðrum málefnum. Sumir segja
að um miðjan síðasta áratug hafi
þjóðin náð því marki í öllum
meginatriðum að búa við sam-
bærileg lifskjör og aðrar og er það
afrek út af fyrir sig. Þá hafi
athygli okkar og annarra beinzt að
verndun umhverfis og náttúru og
nú hafi tekizt að vekja fólk til
vitundar um nauðsyn slíkrar
umhverfisverndunar. I umróti
nútímaþjóðfélags hafi hins vegar
sálarheill fólksins sjálfs, einstakl-
ingsins ef til vill gleymzt. Þess
vegna þurfum við í vaxandi mæli
að beina athygli okkar að einstakl-
ingnum sjálfum. Það er og í
samræmi við þá grundvallarstefnu
sjálfstæðisflokksins, að halda
fram hlut hins frjálsa ábyrga
einstaklings, sem neytir hæfileika
sína sjálfum sér til lífsfyllingar og
öðrum til gagns í frjálsu réttlátu
samfélagi.
(Ég þakka þeim sem hlýddu.)
Bridgefélag Selfoss
Urslit í eins kvölds tvímenn-
ingskeppni 28.9 1978.
Stig.
Vilhjálmur Þ. Pálsson
— Halldór Magnússon 111
Arni Erlingsson
— Ingvar Jónsson 83
Bjarni Guðmundsson
— Brynjólfur Gestsson 83
Gunnar Andrésson
— Sigurður Þorleifsson 83
Ólafur Þorvaldsson
— Bjarni Jónsson 82
Gunnar Þórðarson
— Hannes Ingvarsson 80
Þórður Sigurðsson
— Guðmundur S.' 78
Erlingur Þorsteinsson
— Símon Grétarsson 72
Meðalskor 84
Nú er lokið 4 umferðum í
hraðsveitakeppni, sem 7 sveitir
taka þátt í. Efstar og jafnar eru
sveitir Halldórs Magnússonar
og Jónasar Magnússonar með 60
stig og hafa báðar setið yfir.
Bridgefélag
Húnvetninga
Fimm , kvölda tvímennings-
keppni stendur yfir hjá félaginu
og er þremur umferðum lokið.
Staða efstu para:
Haukur ísaksson
— Steinn Sveinsson 469
Sigriður Ólafsd.
— Sigurður Gunnarsson 456
Baldur Ásgeirsson
— Hermann Jónsson 456
Jón Ólafsson
— Ólafur Ingvarsson 434
Guðni Skúlason
— Zophanías
Benediktsson 429
Næsta keppni félagsins
verður hraðsveitakeppni. Fjórða
umferð verður spiluð á miðviku-
daginn kemur. Spilað er í
Félagsheimili Húnvetninga
Laufásvegi 25. Gengið er inn
beint á móti Verzlunarskólan-
um.
Bridgefélagið
Asarnir Kópavogi
Þá er lokið tveimur umferðum
í Butler-keppni félagsins, og er
staða efstu para þessi:
imp.
1. Óli Már Guðgiundsson
— Þórarinn Sigþórsson 80
2. Guðmundur P. Arnarson
— Egill Guðjohnsen 61
3. Páll Valdimarsson
— Vigfús Pálsson 52
4. Jón Hilmarsson
— Oddur Hjaltason 52
5. Jón Páll Sigurjónsson
— Hrólfur Hjaltason 35
6. Guðbrandur Sigurbergsson
— ísak Ólafsson 34
7. Lárus Hermannsson
— Rúnar Lárusson 33
8. Jón Baldursson
— Sverrir Ármannsson 24
Keppni lýkur næsta mánudag,
en minnt er á, að spilamennska
hefst kl. 19.30 stundvíslega.
Næsta keppni félagsins, er 3
kvölda hraðsveitakeppni. Látið
skrá ykkur til stjórnar eða
keppnisstjóra hið fyrsta.
Bridgefélag kvenna
Að 9 umferðum loknum hafa
þær Ilalla Bergþórsdóttir og
Kristjana Steingrímsdóttir tek-
ið forystu með 258 stig.
Röð efstu para er að öðru leyti
þessi:
Gunnþórunn Erlingsdóttir
— Ingunn Bernburg 217
Aðalheiður Magnúsdóttir
— Kristín Karlsd. 185
Júlíana Isebarn
— Margrét Margeirsd. 176
Ása Jóhannesdóttir
— Laufey Arnalds 123
Kristín Þórðardóttir
— Guðríður
Guðmundsdóttir 113
Hugborg Hjartardóttir
— Vigdís Guðjónsd. 88
Gróa Eiðsdóttir
— Valgerður Eiríksd. 79
Steinunn Snorradóttir
— Þorgerður Þórarinsd. 78
Sigríður Pálsdóttir
— Ingibjörg Halldórsd. 77
Meðalskor er 0
Á mánudaginn kemur verða
spilaðar 3 umferðir.
Bridge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Eftir 2 umferðir í aðaltví-
menningskeppni B.H. er staða
efstu manna þessi:
Björn Eysteinsson
— Magnús Jóhannss. 499
Bjarni Jóhannsson
— Þorgeir Eyjólfsson 478
Albert Þorsteinsson
— Sigurður Emilsson 452
Halldór Bjarnason
— Hörður Þórarinsson 450
Jón Pálmason
— Orri Illugason 448
Árni Þorvaldsson
— Sævar Magnússon 445
Runólfur Sigurðsson
— Þorsteinn Þorsteiss. 439
Kjartan Markússon
— Óskar Karlsson 437
Meðalskor 420
Þeir Björn og Magnús slógu
heldur betur í í 2. umferð og
nældu sér í 281 stig sem er 67%.
Næstir komu þeir Halldór og
Hörður með 247, þá jón og Orri
með 238.
Bridgefélag
Akureyrar
Tveimur umferðum er lokið í
Akureyrarmótinu í tvímenningi,
en keppnin er þriggja kvölda.
Röð efstu para:
Alfreð Pálsson
— Mikhael Jónsson 373
Soffía Guðmundsd.
— Baldur Árnason 358
Þórarinn B. Jónsson
— Páll Jónsson 358
Ármann Helgason
— Jóhann Helgason 352
Frímann Frímannsson
— Páll Pálsson 343
Pétur Guðjónsson
— Stefán Ragnarsson 343
Jóhann Gauti
— Ingimundur Árnason 343
Jón Friðriksson
— Arnar Daníelsson 335
Angantýr Jóhannsson
— Rafn Gunnarsson 332
Meðalárangur 312
Síðasta umferðin verður
spiluð á þriðjudaginn kemur í
Félagsborg og hefst keppnin
klukkan 20.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Næsta miðvikudag, hefst hjá
félaginu Butler-stórtvímenn-
ingskeppni með riðlafyrirkomu-
lagi. Skráning er þegar hafin, og
eru þeir sem hug hafa á
þátttöku beðnir um að láta skrá
sig hið fyrsta hjá stjórnarmeð-
limum eða framkv.stjóra.
Ákveðin hámarksþátttaka
verður í keppninni þannig að
menn geta ekki treyst á að
komast inn í keppni án fyrir-
fram skráningar. í stjórn BR
eru: Baldur Kristjánsson, Páll
Bergsson, Sigmundur Stefáns-
son, Þorfinnur Karlsson og
Sævar Þorbjörnsson.
Sl. miðvikudag lauk hjá félag-
inu Monrad-hraðkeppni sveita,
með þátttöku alls 16 sveita.
Sveit Þórarins sigraði örugglega
og virðist vera komin á nokkuð
gott strik. í sveit Þórarins eru,
auk hans: Óli Már Guðmunds-
son, Hörður Arnþórsson og
Stefán Guðjohnsen.
Úrslit urðu annars þessi:
stig
1. Sv. Þórarins Sigþórss. 94
2. Sv. Helga Jónss. 75
3. Sv. Magnúsar Aspelund 72
4. Sv. Hjalta Elíass. 71
5. Sv. Björns E.vsteinss. 68
6. Sv. Óðals 66
7. Sv. Odds Hjaltas. 65
8. Sv. Heijmanns Láruss. 62
Keppnisstjóri var Ólafur
Lárusson.
Spilað er í Domus Medica, og
hefst keppni kl. 19.30 á miðviku-
dögum.
r