Morgunblaðið - 22.10.1978, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1978
27
Hver er kjaraskerd-
ing ríkisstjórnarinnar?
Greinargerd frá Launamálaráði
Bandalags háskólamanna
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi greinargerð frá
Launamálaráði Bandalags
háskólamannai
Skömmu eftir að gengið hafði
verið frá samningum ríkisstarfs-
manna í árslok 1977 voru sett lög um
efnahagsráðstafanir, sem fólu í sér
verulega skerðingu á kjarasamning-
um. Víðtæk samstaða varð meðal
launþegasamtaka landsins um að
mótmæla þessari árás á samnings-
réttinn kröfuglega undir kjörorðinu:
Samningana í gildi. Fjölmennir
hópar launþega lögðu niður vinnu
dagana 1. og 2. mars s.l. til þess að
leggja áherslu á þessa kröfu. Þátt-
taka í vinnustöðvuninni var góð
meðal ríkisstarfsmanna innan BHM,
en ríkisstarfsmenn, einir allra laun-
þega, urðu síðan að þola sérstakan
refsifrádrátt vegna þessara aðgerða.
Við stjórnarskiptin í haust vöknuðu
vonir launþega um að kjaraskerðing-
unni yrði aflétt og samningar tækju
gildi að nýju, enda hafði stjórnar-
andstaðan lagt höfuðáherslu á þá
jjgfar?
ERU SAMNINGAR
ÞÍNIR í GILDI ?
Þetta verður tekið af launum
þínum á þessu ári :
Lfl, Mars, Aprí 1 Maí, Júní, júii. Agúst ,Sept. Okt., Nóv. , Des., Samtals.
110 112 114 117 12þús 13þús 14þús 1 6þús 1 2þús 1 2 þú S 14þús 1 Cþús 1 2þús 1 3þús 14þús 1 6þús 30þús 33þús 36þús 391 ús 30þús 33þús 36þús 39þús 30þús 33þú£ 36þú£ 39þÚ£ 9þús 14þús 19þús 26þús 9þús 14þús 1 9þús 26þús 9þús 14þÚS 19þÚS 26þús 14þÚS 21 þús 28þús 40þús 167 þús. 201 þús. 235 þús. 283 þús.
Ætlarðu að láta taka þetta af þér
á næsta ári ?
i,fi Jan , Febr .Mars • Apri l.Maí .Júni , JÚll , Aqús , Sep • Okt NÓV Des Samtals.
110 14þ 14þ 1 8þ 1 8þ 1 8þ 22þ 22þ 22þ 28þ 28þ 28þ 38þ 270 Þ-
112 2lp 21þ 28þ 28þ 28þ 34þ 34þ 34þ 43þ 43þ 4 3þ 56þ 413 Þ-
114 28þ 28þ 38þ 38þ 38p 47þ 47þ 47þ 59þ 59þ 59þ 75Þ 563 Þ.
117 40þ 40þ 53þ 53þ 53Þ 65þ 65þ 65þ 82þ 82þ ' 82þ 104þ 784 Þ-
HVAR ENDAR ÞETTA ?
Sumir sleppa undir þakið en aðrir ekki,
- þrátt fyrir sömu laun
kröfu í kosningabaráttunni. Sú von
* brást þó þegar septemberlögin um
ráðstafanir í kjaramálum litu
dagsins ljós. Einungis hluti launþega
fær greitt samkvæmt samningunum,
þeir sem höfðu laun yfir 200 þús í des
s.l. fá hins vegar verðbætur í fastri
krónutölu. Með þessu er umsömdum
launahlutföllum raskað verulega og
fer sú röskun vaxandi eftir því sem
lengra líður. Verðbólgan á sem sagt
að ákveða launamun í þjóðfélaginu,
það á ekki að gerast við samninga-
borðið. Þegar farið er að huga að því
hverjir það eru sem verða fyrir
þessari kjaraskerðingu kemur í ljós
að hún mun sennilega ekki ná til
neinna launþega innan ASÍ, þótt
margir þeirra hafi svipuð, og sumir
mun hærri laun en ríkisstarfsmenn
innan BHM. Má þar nefna iðnaðar-
menn og sjómenn. Niðurstaðan er
því sú, að það eru svo til eingöngu
ríkisstarfsmenn innan BHM, sem
verða fyrir þessari skerðingu. Þessar
ráðstafanir verða því ekki til þess að
minnka launamun í þjóðfélaginu,
heins vegar munu laun ríkisstarfs-
SAMNINGANA í GILDI
FÖSTUDAGINN 13. þessa mánað-
ar um klukkan 22 valt fólksbifreið
á Suðurlandsvegi, skammt fyrir
vestan Selfoss. Ökumaður var
kona, sem var ein í bifreiðinni.
Bifreið, sem þarna kom að, flutti
konuna að Selfossi, en hún hafði
eitthvað slasast. Vegna rannsókn-
ar á þessu slysi óskar lögreglan á
Selfossi að hafa tal af fólki því,
sem ók konunni að Selfossi.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
700 þús.
000 þús.
.‘»00 þús.
lOO.þús.
:100 þús.
200 þús.
100 þús
Kjaraskerðiiuf —1—
1978 ob IÍI7Í)
uwi
þú>
• l.ll.
110
manna lækka miðað við þá hópa sem
áður höfðu svipuð laun. Hver er þá
tilgangurinn með því að setja þak á
verðbætur á laun? Það minnkar ekki
launamun í þjóðfélaginu, sparnaður
ríkisins af þessari ráðstöfun er
innan við 1% af launagreiðslum
ríkisins og hér er um að ræða árás á
samningsrétt. Niurstaðan verður sú
að hér er um algera sýndarmennsku
að ræða, þar sem óverðskuldað er
reynt að gera ákveðinn hóp að
syndahöfrum efnahagsvandans.
Ríkisstjórnin ætti að sjá sóma sinn í
að setja samningana að fullu í gildi.
Launþegar munu veita því athygli
hvort þingmenn, sem kosnir voru á
Alþing undir kjörorðinu samningana
í gildi greiða atkvæði með þvingun-
arlögunum um kaupskerðingu og
samningsrof, þegar bráðabirgðalögin
frá í september hljóta afgreislu á
Alþingi.
Ymsir þeirra, sem verða fyrir
barðinu á vísitöluþakinu munu fá
annan glaðnin frá ríkisstjórninni í
þessari viku þ.e.a.s tilkynningu um
álagningu tekjuskattsauka vegna
j tekna ársins 1977. í hópi ríkisstarfs-
manna er þar einkum um að ræða
fjölskyldur þar sem bæði hjónin
vinna utan heimilis, svo og ungt fólk
sem er að koma þaki yfir höfuðið og
leggur á sig mikla vinnu vegna
tímabundinnar tekjuþarfar.
Ríkisstarfsmenn innan BHM eru
seinþreyttir til vandræða, en svo
kann þó að fara að langlundargeð
þeirra þrjóti. Launamálaráð BHM
hefur ákveðið að boða til almenns
fundar þriðjudaginn 24. október n.k.
kl. 13.30 og verður fundurinn haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu. Á fundinum
verður staðan í kjaramálum rædd og
tekin ákvörðun um áframhald bar-
áttunnar fyrir því að samningar
háskólamanna verði virtir.
Hér hefur verið leitast við að varpa ljósi á pá kjaraskerðingu,
sem leiðir af þeirri ákvörðun rikisstjórnarinnar að ^tanda ekki við
gerða samninga. Ljóst er af samanburði við aðra hópa launafólks með
svipuð laun, að ekki er verið að minnka launamun almennt í þjóðfélag-
inu, heldur að raska hlutföllum milli hópa, sem áður höfðu sömu laun.
Ríkisstjórnin er einfaldlega að blekkja þá stuðningsmenn sína sem
barist hafa fyrir meira jöfnuði. Þess vegna ræðst hún á þann hóp
launafólks, sem ekki nýtur verkfallsréttar.
Þessi’vinnubrögð sýna, enn einu sinni, að Xitið tiXlit er tekið
til þeirra sem aldrei bita frá sér. Sjómenn, iðnaðarmenn og fjölmargir
aðrir, sem hafa sambærilegar tekjur og háskólamenn, sleppa við vísi-
töluþakið vegna raismunandi aðferða við útreikning dagvinnutekna, ein-
faldlega af þvi, að rikisstjórnin hræðist samtakamátt þeirra.
Sýnum nú samtakamátt okkar í verki. Mætum á fundinn á Hótel Sögu,
þriðjudaginn 24. okt. kl. 13.30 og sameinumst um kröfuna
Selfosslögreglan
lýsir eftir ökumanni
SERTILB0Ð
meöan
birgðir endast