Morgunblaðið - 08.11.1978, Síða 1
32 SÍÐUR
255. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Aukaþingkosningar á Indlandi:
Ótvíræður sigur
Gandhi í sjónmáli
Nýja Delhi, 7. nóvember. AP.
INDIRA Gandhi, fyrrum forsætisráðherra Indlands,
stefndi á ótvíræðan sigur yfir keppinaut sínum í
aukaþingkosningum í heimaríki hennar, Chikmagalur á
Indlandi, þegar um helmingur atkvæða hafði verið talinn
seint í gærkvöldi. Gandhi hafði þá um 30 þúsund atkvæði
fram yfir keppinaut sinn, en heildarfjöldi atkvæða er um
450 þúsund.
Ef fer sem horfir, þ.e. að Gandhi
vinni sigur, mun hún snúa aftur á
indverska þingið eftir um 20
mánaða fjarveru og gerast leiðtogi
stjórnarandstöðunnar. Gandhi
beið á sínum tíma mikinn kosn-
ingaósigur vegna ákæra um ýmiss
konar misferli.
Er Gandhi var spurð álits á
stöðunni í gærkvöldi, sagði hún, að
það væri ekki spurning um sigur
eða tap, heldur það að hún væri
alltaf til í slaginn. — Mikill fjöldi
stuðningsmanna Gandhi þusti á
götur út þegar tilkynnt hafði verið
um stöðuna í gær og söng og
dansaði.
Fjöldi manns safnaðist
saman við bústað Gandhi og
fagnaði henni ákaft er hún ávarp-
aði fjöldann.
SÍAMSTVÍBURAR — Nei, þetta er ekki barn þétt upp við spegil, heldur eru þetta síamstvíburarnir Lisa
og Elisa Hansen, fæddir í Bandaríkjunum. Þarlendir læknar hafa allt frá því í sumar verið að skilja
systurnar að, en til þess að það sé unnt verður að gera ótrúlegan fjölda skurðaðgerða.
Kosningar í Bandaríkjunum:
Demókratasigur vegna
Camp David-fundar?
Washimfton. 7. nóvember AP.
TALIÐ er nær fullvíst að afskipti Jimmy Carters, Bandaríkjaforseta, af
friðarsamningum milli ísraeis og Egypta og Camp David fundurinn muni
leiða til öruggs sigurs demókrata í kosningunum í dag. Kosið er til 35 sæta
í öidungadeildinni, allra 435 sætanna í fuiltrúadeildinni og í embætti 36
ríkisstjóra.
Alls munu um 155 milljónir Banda-
ríkjamanna hafa rétt til að ganga að
kjörborðinu að þessu sinni, en ekki
er talið að nema þriðjungur þeirra
muni beita rétti sínum og ef svo fer
er það lélegasta kosningaþátttaka
frá stríðslokum, 1945. Ein undan-
tekning er þó talin verða á þessu, en
það er í Kaliforníu, þar sem Jerry
Brown, ríkisstjóri, stefnir að miklum
sigri til að styrkja stöðu sína með
tilliti til forsetakosninga 1980. Búist
er við allt að 80% kosningaþátttöku
þar.
Helztu hitamál þessara kosninga
hafa verið háir skattar og verðbólg-
an, sem sjaldan hefur verið meiri. —
Verðbólgan hefur verið aðalvopn
rebúblikana í gagnrýni þeirra á
stjórn landsins og hafa þeir lýst
sérfræðinga forsetans alls óhæfa í
þessum efnum.
Carter hefur aftur á móti vísað
þessum ásökunum á bug og sagt að
efnahagur landsins verði komin í
samt lag þegar á næsta ári og stefnt
sé í aukinn hagvöxt á árinu 1980.
Carter segir að staða dollarans eftir
að tilkynnt var um aðgerðir honum
til styrktar sýni ótvírætt að stefnt sé
í rétta átt.
Næg olía
Rio de Janeiro. 7. nóv. — AP
ÞÆR RÓSTUR sem verið hafa í
Iran og lokun olíustöðvar þar mun
ekki hafa áhrif á framboð á olíu í
heiminum, nema lokunin verði
langvinn eða í allt að þrjá mánuði,
að því er Nicolas Sarkis, forstjóri
aðalstöðva olíuleitarfyrirtækisins
Oilar, sem er rekið sameiginlega af
olíuútflutningsríkjum OPEC,
sagði á fundi með fréttamönnum í
dag.
B ankar æninginn
mikli handtekinn
Los Angeles, 7. nóvember — AP
STANLEY MARK Rifkin. tölvusérfræðingur, var í gærkvöldi
handtekinn af bandarísku alrikislögreglunni, FBI, og ákærður
fyrir bankaránið mikla. þar sem bandarískur banki var rændur
með aðstoð tölvu, alls um 10.2 milljónum dollara, eða liðlega 3
milljörðum íslenzkra króna.
Rifkin tókst eins og skýrt
hefur verið frá í Mbl. á mjög
undraverðan hátt að draga að
sér þessa miklu fjárhæð á mjög
skömmum tíma án þess að
nokkurn grunaði neitt.
Rifkin hafði þann háttinn á
að breyta forritum tövlu þannig
að peningarnir voru fluttir frá
bandaríska bankanum yfir á
svissneskan banka á nafni so-
vésks skartgripasala, sem hann
síðan keypti skartgripi af fyrir
andvirðið.
Rifkin keypti skartgripi á
heildsöluverði að jafnvirði 8.1
milljónar Bandaríkjadollara, en
á útsöluverði eru þeir metnir á
a.m.k. 13 milljónir dollara, eða
liðlega fjóra milljarða íslenzkra
króna.
Korchnoi ákallar Fide-þingið:
Hjálpið fjölskuldu
minni að losna frá
Sovétríkjunum
„ÉG BIÐ FIDE að senda Sovétstjórninni beiðni um að fjölskylda mín
fái að fara frjáls ferða sinna frá Sovétríkjunum,“ eru niðurlagsorðin
í bréfi, sem Viktor Korchnoi ætlar að leggja fyrir Fide-þingið í
Buneos Aires. í bréfinu sem Korchnoi kynnti fréttamanni Mbl. í
Buenos Aires Högna Torfasyni segir hann að frá því hann yfirgaf
Sovétríkin hafi kona hans og sonur lifað óbærilegu lífi.
Ég vann fyrir fjölskyldu minni.
Nú fá þau ekki að vinna fyrir sér.
Þeim er neitað um vinnu og þau fá
ekki að stunda nám. Þau eru svipt
allri lífsbjörg og þau eru sam-
bandslaus við umhverfi sitt, þar
sem fólk óttast þau og fyrirlítur.
Þau eru umkringd tortryggni,
reiði og fyrirlitningu stjórnvalda.
Þau lifa sem gíslar, eru talin
óalandi og óferjandi í sovézku
þjóðfélagi en geta hvergi farið.
Þau eru dæmd til að svelta. Og
sonur minn 19 ára er stöðugt
beittur þrýstingi til að fá hann í
herinn. Stjórnvöld gera honum að
velja milli hersins, en sem her-
maður fengi hann aldrei að fara
frá Sovétríkjunum, eða hælis, eða
fangelsis."
Korchnoi rekur í bréfinu til-
raunir hans og konu hans til að
hún og sonur þeirra fái leyfi til að
yfirgefa Sovétríkin og hann nefnir
dæmi um stórmeistara: Larsen og
Andersson, sem hafi tekið upp
búsetu utan föðurlands síns og
einnig getur hann um ungverska
stórmeistarann Benkö sem gerðist
landflótta í Reykjavík, varð
bandarískur ríkisborgari og skipt-
ir nú tíma sínum milli Bandaríkj-
anna og Ungverjalands. „Hvers
vegna sæti ég og fjölskylda mín
þessari meðferð?" spyr Korchnoi.
Þá minnir Korchnoi á það, að
Sovétríkin hafi undirritað
Helsinkisáttmálann, en í honum
eru m.a. ákvæði sem eiga að stuðla
að endurfundum fjölskyldna sem
járntjaldið aðskilur.
Sjá bréf Korchnois á- bls. 16
Bretar nær
brauðlausir
London, 7. nóvember. AP.
TUGÞÚSUNDIR breskra húsmæðra stóðu í löngum
biðröðum utan við allar litlar brauðsölur í morgun þegar
opnað var. Ástæðan fyrir þessu er, að allar hinna stóru
brauðgerða landsins, sem framleiða yfir 70% alls brauðs
sem landsmenn neyta, eru í verkfalli.
Þetta er í annað sinn á aðeins
14 mánuðum sem samtök
brauðgerðarmanna skera upp
herör gegn „of lágu verði“, að
þeirra mati og um 25000 bakar-
ar fara í verkfall.
Deilurnar nú eru þannig til
komnar, að samtök bakara
settu fram kröfu fyrr í haust
um að þeir fengju a.m.k. 26%
hækkun á brauði, en fengu
aðeins heimild fyrir 11% hækk-
un. — Forssvarsmenn þeirra
segja að 11% hækkun sé hreint
fáránleg og myndi koma þeim á
kaldan klaka innan tíðar.
Þegar eftir að tilkynnt var
um verkfallið lækkaði verð á
hlutabréfum í brauðgerðum
verulega.
DoUar lœkkar
Washington, London, Tokyo,
7. nóvember. AP. Reuter.
STAÐA Bandarfkjadollars versnaöi
lítillega á gjaldeyrismörkuðum víða
um heim í dag, eftir að gengi hans
hafði stöðugt hækkað alla síðustu
viku í kjölfar yfiriýsingar Carters
um aðgerðir honum til styrktar.
Sérfræðingar telja þrátt fyrir
lækkun dollarans í dag enga ástæðu
til að óttast, þar sem hún sé eðlileg í
kjölfar mjög óeðlilegrar hækkunar á
skömmum tíma.