Morgunblaðið - 23.01.1979, Page 1

Morgunblaðið - 23.01.1979, Page 1
48 SlÐUR 18. tbl. 66. árg. ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÍIAR 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. íransher gera ekki lof ar að byltingu Þúsundir manns nutu veðurblíð- unnar á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu með því að bregða sér á skíði í helztu skfðalöndum Reykvíkinga um helgina. Enn- fremur voru hundruð manna á skfðum í Bláfjöllum í gærdag þegar blm. Mbl. litu þar við, en þá tók ljósm. Mbl. Emilfa þessa mynd af móður og syni sem voru að búa sig undir brekkurnar. Sjá nánar bls. 19. Teheran, 22. jan. Reuter. YFIRMAÐUR franska heraflans, Abbas Qarabaghi hershöfðingi. lýsti því yfir í dag að heraflinn mundi aldrei gera byltingu og að hann stæði sameinaður á bak við gildandi stjórnarskrá. Yfirlýsing hershöfðingjans bendir til þess að það bráðabirgðakcrfi í stjórn landsins sem keisarinn skildi eftir þegar hann fór úr landi njóti öflugs stuðnings hersins. Hinsvegar er með öllu óljóst hvað muni gerast í fran þegar trúarleiðtoginn Khomeini kemur aftur til landsins á föstudag. Hann hefur lýst því yfir að núverandi kerfi sé ólöglegt. Gert er ráð fyrir því að milljónir manna muni fagna Khomeini sem þjóðhetju þegar hann kemur aftur úr 15 ára útlegð. Stuðningsmenn hans líta svo á að hann sé sá þjóðarleið- togi sem beri ábyrgðina á því að • keisarinn fór úr landi. Qarabaghi hershöfðingi, forseti herráðs heraflans, fékk það hlutverk að stjórna hernum í fjarveru keisar- ans. Hann sagði fréttamönnum: „Eg get fullvissað þjóðina um að herinn er sameinaður og að hann er ekki klofinn og mun ekki klofna." Hershöfðinginn sagði í yfirlýsingu sem var útvarpað til hermanna hans að þeir yrðu að varðveita samstöðu „og láta ekki vandræðamenn lauma sér inn í raðir ykkar." Núverandi valdakerfi varð þó fyrir nýju álagi í dag þegar einn níu fulltrúa í ríkisráðinu, sem var myndað þegar keisarinn fór, Seyed Jalal-Eddin Tehrani, lýsti því yfir í Frakklandi að hann hefði sagt af sér. Haft var eftir Tehrani í yfirlýs- ingu sem aðstoðarmenn Khomeinis lásu upp að Tehrani teldi ríkisráðið ólöglegt. Tehrani fór til Frakklands í Samsæri 1 Uganda Nairobi, 22. ;;:iúar. Reuter. ÚTLAGAR frá Uganda sögðu í dag að yfirmenn í (Jgandaher hefðu gert samsæri um að steypa Idi Amin forseta en vitneskja um samsærið hefði síazt út og það hefði verið bælt niður. Á stormasömum fundi á eftir ræddi Amin forseti við sam- særismennina sem sökuðu hann um að steypa landinu út 1 öngþveiti. Þegar fundurinn fór fram umkringdu hermenn hlið- hollir Amin bygginguna. For ingjar samsærisins voru Yusuf Gowon hershöfðingi og Isaac Malyamunungu hershöfðingi. Útlagarnir segja líka að sprengingar hafi orðið í Kampala og reynt hafi verið að eyðileggja mikilvæg mannvirki. Sendikerfi Uganda-útvarpsins skemmdist í einni sprengingunni. Stuttbylgju- stöð útvarpsins hóf aftur útsend- ingar í dag eftir tveggja daga hlé. _____ Sjá frétt bls. 46. síðustu viku í sáttaferð sem mis- tókst. Jafnframt staðfesti stjórnin í Teheran áð bankastjóri seðlabank- ans, Youssef Khoshkish, hefði sagt af sér vegna heilsubrests, þótt haft -sé eftir áreiðanlegum heimildum að hann hafi sagt af sér vegna blaða- árása sem hafi komið stjórninni í bobba. Á Indlandi lögðu íranskir stúdentar undir sig skrifstofu aðal- ræðismanns Irans í Bombay og sögðu að þeir mundu framselja fimm. starfsmenn sem þeir tóku í gíslingu á morgun eftir sólarhringslöng mótmæli gegn stjórninni í Teheran sem þeir sögðu að væri „ólögleg". Og í borginni Marrakesh í Suður- Marokkó lenti keisarinn sjálfur Boeing 707 þotu sinni á flugvellinum þar sem geysistrangar öryggisráð- stafanir voru gerðar og fór síðan ásamt konu sinni Föruh keisarafrú í lokuðum bíl til nálægs og einangraðs bústaðar. íranskeisari hefur verið í sex daga í Egyptalandi og er kominn til Marokkó i snögga heimsókn á leið sinni til Bandaríkjanna. Mesti verkfallsdagur í Bretlandi í hálfa öld London, 22. janúar. Reuter. EIN og hálf milljón lágt launaðra ríkisstarfsmanna lagði niður vinnu f Bretlandi í dag og hermenn voru kallaðir út til að sinna neyðarútköllum í stað ökumanna sjúkrabifreiða sem tóku þátt f verkfallinu. Uppgjör ríkisstjórnarinnar og verkalýðsfélaga hefur þegar valdið truflunum í atvinnulífinu en nú kom deilan niður á gömlu fólki og sjúku. Fjögur verkalýðsfélög stóðu að verkfallinu í dag og í þeim eru meðal annars sorphreinsunarmenn, dyra- verðir í sjúkrahúsum, vega- viðgerðarmenn, þvottahússtarfsfólk, salernisverðir og líkgrafarar. Um 100.000 vörubifreiðastjórar halda áfram verkfalli sínu sem hefur staðið í 11 daga og lestarstjórar gera eins dags verkfall á morgun — hið þriðja í þessum mánuði. „Tölfræðilega er þetta sennilega mesti verkfallsdagurinn síðan á árunum eftir 1930,“ sagði talsmaður ríkisstjórnarinnar. David Ennaeks heilbrigðisráðherra gagnrýndi sjúkrabifreiðastjóra fyrir „forherta" afstöðu þar sem þeir neituðu að fallast á áskorun verka- lýðsfélagsins sem þeir eru í að sinna neyðarútköllum þrátt fyrir verkfall- ið. Hermenn og lögreglumenn voru kallaðir út til að veita lágmarksþjón- ustu í London og í nokkrum borgum á landsbyggðinni. Haft var eftir embættismanni að ástandið væri glundroðakennt. Ennals beindi máli sínu til sjúkra- bifreiðastjóra í Neðri málstofunni og sagði: „Það getur ekki þjónað nokkrum tilgangi að níðast á slösuð- um og sjúkum." Bokassa fær her frá Zaire eftir uppreisn París, 22. janúar. Reuter. BOKASSA KEISARI í Mið-Afríkukeisararíkinu hefur kvatt herlið til landsins frá grannríkinu Zaire til þess að koma á lögum og reglu eftir stúdentauppreisn samkvæmt áreiðanlegum heimildum í dag. Zaire-hermenn eru nú á verði á götum höfuðborgar keisaradæmis- ins Bangui samkvaemt heimildun- um. Bokassa keisari hefur skipað her sínum að halda sig innan búða Hermennirnir frá Zaire voru sendir flugleiðis á laugardag þegar yfir stóðu óeirðir sem kostuðu nokkur mannslíf. Hermennirnir munu vera nokkur hundruð talsins samkvæmt heimildum í París. Nákvæmar tölur liggja ekki fyrir. Stúdentauppreisnin hófst þegar Bokassa keisari skipaði öllum menntaskólanemendum og stúd- entum að klæðast ríkiseinkennis- búningunt, en seinna afturkallaði keisarinn skipun sína herma heimildirnar. Morðí Beirút Boirút, 22. janúar. Reuter. AP. PALESTÍNSKI skæruliðafor- inginn Abu Hassan. einn helzti aðstoðarmaður Yasser Arafats og einn þeirra manna sem ísraelsmenn hafa helzt viljað hafa hendur f hári á, beið bana í dag þegar bifreið hans sprakk í loft upp af völdum fjarstýrðrar sprengju í miðborg Beirút. Palestínumenn kenna ísraels- mönnum og bandamönnum þeirra um dauða Abu Hassans, sem er talinn hafa skipulagt fjöldamorðin á Olympíuleikunum í Miinchen 1972. Fjórir aðstoðar- menn Abu Hassans biðu bana í sprengingunni. Sprengjunni var komið fyrir í kyrrstæðum bíl og var sett í gang með útvarps- merkjum þegar bifreið Abu Hassans ók hjá. Nokkrir vegfarendur biðu bana eða særðust í sprengingunni. Vörubílstjórar hafa lokað höfnum og verksmiðjum, en viðræður í launadeilu þeirra hófust að nýju. Ráðherrar munu ákveða á morgun hvort lýst skuli yfir neyðarástandi, en James Callaghan forsætisráð- herra sagði að hann léti ekki hræða sig til ónauðsynlegra ráðstafana. I þinginu tókst þingmönnum Ihaldsflokksins að knýja fram skyndifund um þessa mestu ólgu á vinnumarkaðnum síðan 1974. Pundið riðaði en náði sér aftur. Njósnarinn sem slapp... Bonn. 22. janúar. Reuter. AUSTUR-Þjóðverjinn Reiner Fúlle, einn fimm manna sem hafa verið handteknir í Vestur-Þýzka- landi grunaðir um njósnir eftir flótta austur-þýzks leyniþjónustu- starfsmanns um helgina, slapp úr haldi lögreglunnar þar sém leyni- lögreglumaður braut starfsreglur og handjárnaði hann ekki að sögn talsmanns vestur-þýzku stjórnar- innar í dag. Leynilögreglumaðurinn var mjög reyndur að sögn tals- mannsins en hann braut aðra reglu þar sem hann var aðeins einn í fylgd með Fúlle. Hann mun hafa hrasað í hálku þannig a< Fúlle komst undan. Sjá frétt bls 47.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.