Morgunblaðið - 23.01.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIOJUDAGU.R 23. JANÚAR 1979
3
Mál BSRB
í biðstöðu
EKKERT hefur gerzt í samnings-
réttarmálum Bandalags starfs-
manna rikis og bæja, en eins og
komið hefur fram í Morgunblað-
inu. svaraði samninganefnd
BSRB ekki tilboði ríkisstjórnar-
innar. en frestaði málinu. Er
jafnvel ekki búizt við að BSRB
svari fyrr en kannski um helgina.
Hins vegar sátu fulltrúar úr
stjórn BSRB í gær samráðsfund
með þremur ráðherrum.
A samráðsfundinum var rétt
aðeins drepið á samningsréttar-
málin og staða þeirra mála
stuttlega rædd. Síðan ræddu
ráðherrarnir Magnús H. Magnús-
son, Tómas Arnason og Hjörleifur
Guttormsson, um lánsfjáráætlun
ríkisins, sem bráðlega mun lögð
fram. Kynntu þeir BSRB einhverj-
ar hugmyndir sem uppi eru um 13
milljarða króna samdrátt.
BHM heyrir
ekkert frá
ríkisstjóminni
BANDALAG háskóla-
manna hefur ekkert heyrt
frá ríkisstjórninni um
hugsanlega lyftingu vísi-
töluþaks á laun, en banda-
lagið hafði gefið ríkis-
stjórninni ádrátt um að
samþykkja niðurfellingu
3% áfangahækkunar, ef
þakinu yrði lyft. Sam-
kvæmt upplýsingum Jóns
Hannessonar er talið að
eftir að snurða hljóp á
viðræður ríkisstjórnar og
BSRB hafi áhugi ríkis-
stjórnarinnar ekki orðið
eins mikill.
Mál BHM er nú fyrir kjaradómi
og verður væntanlega ákveðið á
næstunni, hvenær munnlegur mál-
flutningur fer fram. Kjaradómur
skal síðan lögum samkvæmt hafa
fellt úrskurð sinn fyrir 11. febrúar.
Jón Hannesson sagði um þessi mál
í gær, að erfitt væri að skilja,
hvers vegna svo mikið smámál
sem þetta vefðist svo fyrir ríkis-
stjórninni sem raun bæri vitni.
„Maður hlýtur að spyrja sig,
hvernig reiðir þá af hinum stærri
málum, þegar svona smámál á
erfitt uppdráttar," sagði Jón.
I þessari viku er ráðgerður
stjórnarfundur í BHM og launa-
málaráðsfundur í næstu viku.
Verða línurnar þá lagðar með
hliðsjón af því að ekkert fáist við
úrskurð kjaradóms.
Ilaraldur Aðalsteinsson
UM HELGINA fór fram
víðtæk leit að bátunum
tveimur frá Húsavík og
mönnunum fjórum, sem
saknað hefur verið síðan á
mánudaginn. Þrátt fyrir
mjög gott leitarveður bar
leitin engan árangur. Sem
fyrr voru gengnar fjörur
„Minn rökstuðningur er eink-
um sá, að Þóra Kristjánsdóttir
hefur að undanförnu starfað við
Norræna húslð við mjög góðan
orðstír og án þess að deilum hafi
valdið," sagði Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, formaður stjórnar
Kjarvalsstaða í samtali við Mbl.
„Þóra hefur í starfi sínu við
Norræna húsið aflað sér
dýrmætrar reynslu, sem
áreiöanlega verður lyftistöng
fyrir listræna starfsemi á
Kjarvalsstöðum í framtíðinni."
Einn af forsvarsmönnum
samtaka listamanna hefur sagt,
að listamenn hafi haft fyrir því
loforð stjórnar Kjarvalsstaða að
ekki yrði gengið fram hjá vilja
þeirra um ráðningu listráðu-
nauts en loforðið hafi einungis
verði munnlegt og það verið
Guðmundur Ilaraldsson
allt frá Skjálfandafljóti
austur að Kópaskeri.
Nú þykir fullvíst að
bátarnir tveir hafi farizt
og með þeim mennirnir
fjórir. Hefur skipulagðri
leit verið hætt, að sögn
björgunarsveitarinnar á
Húsavík, en fjörur verða i
svikið. Sjöfn svaraði því til, að
ráðning Þóru væri ekki svik á
neinu samkomulagi, því að
engin munnleg loforð hefðu
verið gefin fulltrúum FIM og
BIL um að þeir fengju bak við
tjöldin að ráða listráðunaut
staðarins. „Eg hef frá upphafi
hafnað slíkum vinnubrögðum,
sem ég tel óeðlileg í hæsta máta.
I umsögn BÍL og FÍM kom fram
að bæði Þóra og Ólafur teldust
hæf til starfans."
Davíð Oddsson, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í hússtjórninni,
sagði að þau Sjöfn hefðu látið
bóka ákvörðun sína, þar sem
kæmi fram að þau teldu um-
sækjendurna báða mjög hæfa en
það sem vegi þyngst sé sú
staðreynd að Þóra eigi að baki
gifturíkt og gott starf í Norræna
Guömundur Baldursson
gengnar áfram næstu
daga.
Á Guðrúnu ÞH 14 voru feðgar,
Haraldur Aðalsteinsson, 44 ára
gamall, Garðarsbraut 33, Húsa-
vík og sonur hans Guðmundur,
20 ára, Vallholtsvegi 1, Húsavík.
Haraldur lætur eftir sig eigin-
konu og tvö börn, uppkomna
dóttur og 14 ára son. Guðmundur
húsinu, og hafi einmitt oft verið
til þess vitnað í sambandi við
Kjarvalsstaðadeiluna til þessa.
Davíð ítrekaði að í samkoniulag-
inu við myndlistarmennina
hefði annað ekki verið tekið
fram en að stjórnir samtak-
anna ættu einungis að gefa álit
um hvaða umsækjendur upp-
fylltu hæfnisskilyrði og þær
hefðu því bersýnilega farið út
fyrir verkahring sinn, þegar þær
lögðust á sveif með öðrum
umsækjenda.
Guðrún Helgadóttir, fulltrúi
Alþýðubandalagsins í hús-
stjórninni, sagði að samkvæmt
samkomulaginu við myndlistar-
menn hefði verið kveðið á um að
samtök myndlistarmanna
skyldu fá til umsagnar hvort
umsækjendur væru hæfir eða
Kristján Arnbjörnsson
hætt
lætur eftir sig unnustu.
Á Þistli ÞH 88 voru tveir
menn, Guðmundur Baldursson
frá Bergi í Aðaldal, 34 ára
gamall og Kristján Arnbjörns-
son frá Bergsstöðum, Ásgarðs-
vegi 26, Húsavík, 35 ára gamall.
Guðmundur lætur eftir sig eigin-
konu og ungt barn og Kristján
lætur eftir sig unnustu og 2 börn.
óhæfir. „Það fer ekkert á milli
mála og ég vil raunar leggja á
það mikla áherzlu, að báðir
þessir umræddu umsækjendur
eru svo sannarlega hæfir," sagði
Guðrún. Hins vegar kvað hún
ríka áherzlu hafa verið á það
lagt af hálfu myndlistarmanna
í samningaviðræðunum í vetur
að þeir fengju að hafa veruleg
áhrif á ráðningu listráðunautar-
ins og á það hefði verið fallizt,
enda það talið vera mælikvarði
á gagnkvæmt traust borgar-
fulltrúa og myndlistarmanna.
Svo hafi það gerzt að úm
embættið sækja tvær ágætlega
hæfar manneskjur og mynd-
listarmenn hefðu ekki dregið dul
á það að þeir kysu fremur að
Ólafur Kvaran yrði ráðinn til
starfans. „Mín afstaða er ein-
faldlega sú, að ég sé ekki ástæðu
til að fara ekki að þeim óskum
nema þung rök liggi þar á móti,
en ég fæ ekki séð þau rök."
Aðalfundur Félags ísl. mynd-
listarmanna er í kvöld og ekki
talið ólíklegt að málið verði
tekið þar upp.
Skipulagðri leit
Þóra Kristjánsdóttir ráðin
listráðunautur Kjarvalsstaða
Samtök listamanna mæltu með öðrum umsækjanda
STJÓRN KJARVALSSTAÐA hefur ákveðið að ráða Þóru Kristjánsdóttur listfræðing í stöðu
listráðunauts Kjarvalsstaða. sem jafnframt er framkvæmdastjóri stjórnarinnar. Þóra Kristjánsdóttir
fékk atkvæði Sjafnar Sigurbjörnsdóttur, formanns stjórnarinnar og Davíðs Oddssonar en Guðrún
Ilelgadóttir greiddi Ólafi Kvaran atkvæði sitt. Samtök myndlistarmanna höfðu í umsögn sinni talið
þau bæði Þóru og Ólaf hæf til að gegna stöðunni en mæltu með Ólafi í starfið.
-................
____-_____—__________________—.
BYGGINGAVÖRUSÝNING
(Byggeri for milljarder)
24. feb. — 4 mars.
6 og 8 daga ferðir.
Gististaöir: Hótel Admiral
Grand hótel.
FERDA
KYNNING
HÓTEL LOFTLEIÐIR 4.febrúar
Dagskrá:
Ferðakynning
Bingo
Tískusýning Karonsamtökin
Töfrabrögð
Hljómsveit Stefáns P.
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstraeti 9 - Símar 11255 - 12940