Morgunblaðið - 23.01.1979, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.01.1979, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979 Aðalsteinn Guðjohnsen: Raforkuverð - kiami málsins í desember s.l. barst iðnaðar- ráðuneyti undirskriftaskjal íbúa í Rangárvallasýslu, svo og ályktun sýslunefndar, þar sem mótmaelt var háu raforkuverði RARIK og samanburður gerður við verð RR. í kjölfar athugasemda minna við þessi mótmæli hafa síðan birzt þrjár greinargerðir til að andmæla þeim athugasemdum. Ein barst frá RARIK og tvær frá Rangæing- um, þ.e. frá báðum mótmælaaðil- um, sýslunefnd og hinum 1318 undirskriftaaðilum. Á það ber að leggja áherzlu, að oft er erfitt að gera raunhæfan samanburð á raforkuverði, hvort heldur eru borin saman meðalverð eða gildandi gjaldskrár, m.a. vegna þess að þær hækka á mismunandi tímum, og gjaldskrár ýmissa rafveitna eru illa sambæri- legar. Þetta býður þeirri hættu heim, að dregnir séu fram einstak- ir taxtar í samanburði, en slíkt getur skilið eftir villandi hug- myndir um heildarsamanburð. Frekari talnaskrift í dagblöðum um einstaka rafmagnstaxta tel ég því ástæðulaus, en kýs að ræða slíkan samanburð beint við þá þrjá aðila, sem að framan greinir, enda ýmis misskilningur enn á ferðinni. Þegar borið er saman raforku- verð og gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins (RARIK) annars vegar og Rafmagnsveitu Reykjavíkur (RR) hins vegar — svo og í öllum umræðum um raforkuverð al- mennt, ber að hafa eftirfarandi í huga, sem ég tel kjarna málsins: 1. Verðlagning raforku er engan veginn einfalt mál. Af ýmsum ástæðum greiða notendur misjafnt orkuverð (krónur á kílówattstund, kr/kWh) eftir því, hvernig þeir nota orkuna — notkunarmagn og útjöfnun hafa að jafnaði áhrif til lækkunar. Rafmagnsnotandi, sem kaupir orkuna jafnt og þétt, nýtir raf- orkukerfið betur og á því að fá lægra verð en notandi, sem skyndilega þarf á miklu afli (kólówött, kW) að halda, en kaupir í heild engu meiri orku (kWh). Þessu markmiði er til dæmis náð í iðnaði og ýmsum atvinnurekstri með svonefndum afltaxta. Ef rafveita býr yfir afgangs- orku, þ.e. orku sem fellur til utan álagstoppa, getur hún selt hana við mun lægra verði en ella, t.d. með því að rjúfa notkunina með sjálfvirkum búnaði. Þetta er algengt við orkusölu til rafhitunar. 2. Raforkufyrirtæki kjósa helzt að selja orkuna á því sem næst raunvirði, þ.e. verði, sem endur- speglar þann kostnað, sem að baki viðkomandi orkusölu liggur. Því miður eru þó gjaldskrár margra rafveitna orðnar mjög brenglaðar af ýmsum ástæðum. Einnig eru margar þeirra óþarflega flóknar og nánast illskiljanlegar hinum almenna' notanda. Gjaldskrá RR er hins vegar orðin sæmilega einföld, enda hefur verið unnið að lagfæringum á henni undanfarin ár, sem hófust með gagngerri úttekt á árunum 1970—72. Nú fyrir skömmu ákvað stjórn RARIK, að slík úttekt skyldi gerð á gjaldskrá fyrirtækis- ins, og mun hún eiga að hefjast innan skamms. 3. RARIK selur raforku til hitunar á tvennan hátt, annars vegar á svonefndum markaflstaxta (eink- um ætlaður til búrekstrar), hins vegar á sérstökum hitunartaxta (rofin hitun). I nágrannalöndum okkar er markaflstaxti (marktaxti) hvergi notaður nema í Noregi, og á það sínar sérstöku skýringar. Þó eru nú uppi raddir um að hverfa frá honum í Noregi, m.a. vegna þess, hve geysilega dýrir mælarnir eru, og vegna þess, að þróunin stefnir í átt að einföldum og auðskildum töxtum. Kjarni málsins, að því er hitunartaxta RARIK áhrærir, er þessi: Aflstillingin (aflmarkið) verður að vera það lág og umframorku- gjaldið það hátt, að um sé að ræða umtalsverða hvatningu til sparn- aðar og/eða tilfærslu (útjöfnun) á orkunotkun. „Rofin hitun“ hjá RARIK er að sjálfsögðu ekki rofin á sama hátt og hjá RR, þ.e. á vissum álagstím- um, enda þýðingarlaust. Hitunar- sala RARIK er mjög stór hluti af heildarorkusölu fyrirtækisins. Hjá RR er þessi sala hlutfallslega mjög lítil. Aðalsteinn Guðjohnsen Þegar hitun er mjög stór hluti orkusölunnar, er útilokað að rof komi að gagni, nema í mjög litlum mæli, til að forðast áhrif á hámarksálag („topp“) viðkomandi rafveitu. Jafnvel er hugsanlegt aö eins hagkvæmt sé, að ekkert rof fari fram. Því verður þessi orku- sala hjá RARIK að mestu eða öllu leyti forgangsorka, gagnstætt því sem er hjá RR, en þar er í notkun fullkomið álagsstýrikerfi í þessum tilgangi. Það segir sína sögu, að orku- notkun hjá RARIK skv. marktaxta og hitunartaxta hefur á s.l. áratug um það bil tífaldast, en skv. lýsingar- og heimilistöxtum aðeins aukizt um 20—25%. 4. Stjórnvöld ákveða stundum að raska gjaldskrársetningu, t.d. vegna vísitöluáhrifa. Þannig er rafmagnsþáttur framfærsluvísi- tölu miðaður við rafmagnsverð „til heimilisnota í Reykjavík". Annað dæmi um röskun af þessu tagi er sú ákvörðun stjórnvalda, að raf- hitun, t.d. hjá RARIK, megi ekki vera dýrari en olíuhitun. Sé það stefna stjórnvalda, að greiða þannig niður verð til rafhitunar, hlýtur það að kosta fé. Fé þessu nær RARIK að hluta til með því að verðleggja aðra taxta, svo sem lýsingar-, heimilis- og iðnaðartaxta, hærra en ella. M.a. af þessum sökum er sprottin samanburður Rangæinga á verði RARIK og RR. Jafnframt sést þar og greinilega sá mikli munur, sem er á töxtum RARIK í þéttbýli annars vegar og í sveitum hins vegar. Þessi tekjuöflun hefur þó ekki dugað til, enda óskaði RARIK eftir því við iðnaðarráðuneytið, að fjárhagsvandi RARIK yrði leystur með beinu framlagi úr ríkissjóði til viðbótar við núverandi verð- jöfnunargjald í óbreyttri mynd. Væri jafnvel í raun ekki úr vegi að greiða sérstakan rafhitunarstyrk, ef niðurgreiðsla rafhitunar er stefnuatriði. Þá má reyndar minna á, að olía til húshitunar er niðurgreidd með sérstökum olíu- styrk. Olíustyrkurinn rýrir enn tekjur RARIK af rafhitasölu vegna bindingar taxtans við olíu- verð. Ennfremur er tollur á olíu mjög lágur, en tollur á efni til rafveitna verulegur. Viðbrögð ráðuneytisins við til- lögu RARIK urðu hins vegar á þann veg, að leggja til, að notend- ur rafveitna sveitarfélaga skyldu leysa hluta vandans með hækkun verðjöfnunargjalds. „Verðjöfnun- argjald" er vissulega rangnefni, þar eð það leggst þyngst á þá rafmagnsnotendur, sem hæsta verð greiða fyrir — ekki sízt notendur RARIK. Sjóminjasafn á Austurlandi Stofnfundur sjóminjasafns Austurlands var haldinn á Eski- firði 7. desember s.l. Hugmyndin að stofnun þess kom fyrst fram í tillögum safnanefndar þeirrar sem vann árið 1971 á vegum Sambands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi að stofnun Safna- stofnunar Austurlands og mótun framtíðarstefnu í uppbyggingu sfna f fjórðungnum. Verksvið safnsins er m.a. söfnun og varðveisla þjóðlegra verðmæta er snerta sögu sjávarútvegs, siglingar og eldri verslunarhátta á starfssvæði safnsins. Núverandi stjórn safnsins skipa Hilmar Bjarnason, Eskifirði, for- maður, Þórður Sveinsson, Neskaup- stað, ritari, Geir Hólm, Eskifirði, varaformaður, Kristmann Jónsson, Eskifirði, og Sigfinnur Karlsson, Neskaupstað. Framtíðarhúsnæði Sjóminjasafns- ins verða Gamla-Búð á Eskifirði, danskt verslunarhús sem þar var byggt um 1830. Undanfarin ár hefur staðið yfir endurgerð hússins sem næst upprunanlegri mynd á vegum Byggðasögunefndar Eskifjarðar undir leiðsögn Þorsteins Gunnars- sonar arkitekts. Viðgerðin er langt komin og standa vonir til þess að hefja megi uppsetningu safnsins í Gömlu-Búð eftir u.þ.b. 2 ár. Fram til þess tíma verður megin- verkefni Sjóminjasafns Austurlands söfnun sjóminja og annarra hluta en í tengslum við Sjóminjasafnið er fyrirhugað að koma upp sýnishorni af sölubúð með aldamótasniði. Nú þegar er í eigu safnsins fjöldi muna sem Hilmar Bjarnason og Gunnlaugur Haraldsson, minjavörð- ur Austurlands, hafa safnað og skráð á liðnum árum. I því sambandi má geta að á vegum Minjasafns- nefndar Neskaupstaðar hefur á undanförnum árum verið safnað um 300 munum sem að stærstum hluta renni síðar meir í sjóð Sjóminja- safns Austurlands. Litídtílbeggía kasta henni út í hafsauga. Gefðu honum heilnæma dægradvöl í staðinn. Gönguferðir, sund, já hopp og hí með barnabörnum sínum. Mundu, Drottinn, hvað hann orti stórbrotna játningu, þegar Þórður safnvörður hafði endurbyggt gömlu Svalbarðskirkj- una við Minjasafnið á Akureyri. ÞA gamla, láxa guðshAs sem gestum opnar dyr. Enn leið í djApri iotning er liigð til þín sem fyr. Vor önn er yndisvana, vor auður gerviblóm. Því heimur. gulli tflæstur. án guðs er fánýtt hjóm. „An Guðs er fánýtt hjóm“ Nýja skáldið þitt, Drottinn, mundi verða þjóðinni og þér enn máttugra ef það kastaði þessu gamla gulli sínu í hafið, eða geymdi það sem forngrip í lokaðri hirslu. Og nú finnst mér að þú segir mér að halda áfram að skafa í Jesú nafni. Amen. Ég hafði lokið verkinu í þögulli bæn. Mér fannst vangamyndin breyt- ast stórlega til batnaðar, skáldið var frjálst. Mér fannst ég hafa unnið þarft verk, meira en minn eiginn vilja. Svr„s™ Bænheyrsla og reykjarpípa skáldsins Ég held ævinlega til hjá Ágústi bróður mínum þegar ég kem til Akureyrar. Fyrir nokkrum árum, líklega þegar mér tæplega átt- ræðum var boðið norður til að taka þátt í afmælishátíð Iðnskólans, sátum við í stofunni síðla dags, bræðurnir, og skoðuðum ijóðabók eftir Kristján frá Djúpalæk. Ég hafði ekki kynnst honum persónu- lega, en vissi að hann var vinur Ágústar. Ágúst þurfti út en ég settist við borðið með bókina. Æ, hver skollinn. Kápuforsíðan bar stóra vangamynd af skáldinu með reykjarpípu upp í sér. Reykj- andi menn á myndum í blöðum og bókum hafa lengi gramið mig. Því þarf að vera að auglýsa þennan ljóta ávana mætra manna sem ungt fólk vill gjarnan taka sér til fyrirmyndar? Ég blaðaði í bókinni og las stystu kvæðin. Jú, eitthvað hreif mig. Er skáldið örugglega búið að skilja við guðleysið, kommúnis- mann, einræðið, þvinganirnar? Þá er nú líklega meiniaust þó að svo fullorðinn maður fái að halda pípunni sinni. En ekki getur Guði verið það þóknanlegt að endurfætt skáld sé auglýst með stærðar reykjarpípu upp í sér? Ósjálfrátt tók ég ryðfría kutann minn og byrjaði að skafa pípuna burtu. Fyrst hausinn, gætilega, og hélt svo áfram, áleiðis til munns- ins þangað sem andi og öndun hvers manns brýst fram. Ljúfur höfgi kom yfir mig. Var ég að smitast af anda skáldsins? Stóð ekki eitthvað inni í bókinni bak við vangamyndina og pípuna um fánýti heimsins án Guðs? Því skyldi ég ekki biðja fyrir þessu endurfædda skáldi sem ég ekki þekkti nema af afspurn og lestri. Ég skóf gætilega en hugsaði af lífs og sálarkröftum: Góði Guð hjálp- aðu þessum ágæta manni til að losna við þessa ljótu reykjarpípu, eitrið sem hann sýgur í sig frá henni, lyktina, sóðaskapinn sem fylgir henni og öskuna. Láttu hann En í því kemur Ágúst inn aftur, og nú gef ég honum orðið. Hann man vel þennan atburð, sjálfur mun ég hafa verið annars hugar: „Við höfum setið saman í sófa bræðurnir og verið að skoða ljóðabók Kristjáns, sem hann hafði gefið mér áritaða þannig: Við fórumst A mis. En fegurð lffsins unnum við báðir eins. — Seint ok um síðir sáiir okkar mættust í myndfleti steins. Teiknimyndin af skáldinu var eftir séra Bolla Gústafsson. Ég varð að skreppa frá og þegar ég

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.