Morgunblaðið - 23.01.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979
23
Júlíus Hafstein nýkjörinn formaður HSÍ:
„Fjármálin krabbamein
í íslenzku íþróttalífi“
— ÉG GET EKKI verið bjartsýnn. það getur enginn forystumaður
íslenzkum íþróttum verið í því náttmyrkri sem ríkir í fjármálum
íþróttahreyfingarinnar. en fjármálin eru hálfgert krabbamein í
íslenzku íþróttalífi. Mín skoðun er sú að innan skamms verði mikill
hörgull á hæfum forystumönnum til starfa í iþróttunum ef ekki verður
gerð bragarbót af hálfu hins opinbera með styrki og stuðning við
íþróttahreyfinguna. Það krefst orðið svo gífurlegrar vinnu að
fjármagna íþróttastarfið að menn geta varla gert sér það í hugarlund.
011 íþróttahreyfingin fékk á síðasta ári fiO miiljónir króna í styrki frá
hinu opinbera en það er minna fé en velta HSÍ. Ég vona þó. að ef allir
leggjast á eitt við uppgang og þróun handknattleiksins þá megi vel
takast og ég tók ekki að mér formennsku í Handknattleikssamband-
inu með annað í huga. Ég vona að allir áhugamen um handknattleik
standi við bakið á mér og þeim mönnum sem starfa með mér í
stjórninni.
Þannig mæltist Júlíusi Hafstein
nýkjörnum formanni Handknatt-
leikssambands Islands er Morg-
unblaðið tók hann tali að þing-
störfum loknum á laugardaginn.
Júlíus var gjaldkeri síðustu stjórn-
ar og tekur nú við formennsku af
Sigurði Jónssyni, sem dregið hefur
sig út úr stjórn HSÍ eftir dugmikið
starf undanfarin ár. Júlíus Haf-
stein er aðeins 31 árs að aldri, en
hefur eigi að síður lagt gjörva
hönd á félagsstörf íþróttahreyf-
ingarinnar siðastliðin 14—15 ár.
Fyrst starfaði hann í stjórn
handknattleiksdeildar IR og varð
síðan formaður deildarinnar.
Hann var á sínum tíma formaður
Handknattleiksráðs Reykjavíkur, í
stjórn íþróttabandalags Reykja-
víkur, varaformaður IR og síðan
gjaldkeri HSÍ.
Miklar breytingar urðu á stjórn
HSI á þinginu um helgina. Auk
Sigurðar Jónssonar hættu nú í
stjórninni þeir Birgir Björnsosn og
Birgir Lúðvíksson. I stjórn HSI til
tveggja ára voru kosin Gunnar
Torfason, Gunnlaugur Hjálmars-
son og Svana Jörgensdóttir. Til
eins árs voru kjörnir Jón H.
Magnússon, Jón Sæmundur Sigur-
jónsson og Jón Kr. Óskarsson. í
varastjórn voru kosnir Ólafur
Aðalsteinn Jónsson, Friðrik Guð:
mundsson og Hiimar Sigurðsson. í
raun var ekki um kosningar að
ræða í hin einstöku störf innan
HSI. Mótframboð voru engin og
þeir sem upp á var stungið fengu
lófaklapp sem stuðningsyfirlýs-
ingu.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Júlíus Hafstein að sitt
aðalverkefni væri breytt skipuiag
á mótafyrirkomulaginu. Sagði
Júlíus að nauðsynlegt væri að
menn settust niður og íhuguðu
hvort mótin væru ekki orðin of
B-keppnin kost-
ar 3.5 milljónir
í FJÁRIIAGSÁÆTLUN IISÍ fyrir tímabilið frá síðustu áramótum og
út maímánuð næstkomandi er gert ráð fyrir að velta sambandsins
verði 17 milljónir króna. í áætluninni er reiknað með að tap verði á
rekstrinum upp á eina milljón króna. Kostnaður vegna b-keppninnar á
Spáni er áadlaður 3.5 milljónir króna. cn vegna þátttöku landsliðsins í
Baltica keppninni er reiknað með 2.5 milljónum kr. í kostnað. Annar
kostnaður vegna landsliðsins er áætlaður 2.5 milljónir króna.
Á tímabilinu er aðeins reiknað með einni heimsókn erlends
landsliðs. þ.e. Póllands. sem keppti hér á dögunum. í áætluninni er
reiknað með 1 miiljón króna hagnaði vegna Pólverjaleikjanna.
stór í sniðum og farin að vaxa
íþróttinni yfir höfuð. Aðstæðurnar
væru bundnar húsnæðisvandamál-
um og hugmyndir væru uppi um
breytt fyrirkomulag mótanna,
sérstaklega hjá yngri aldurshópn-
um. Margir vildu koma á minni
háttar mótum með hraðkeppnis-
fyrirkomulagi, með þeim væri
hægt að koma við aukinni kennslu,
en eins og fyrirkomulagið væri
núna fengju yngri flokkarnir
kannski ekki leik nema á tveggja
mánaða fresti.
— Varðandi erlend samskipti er
b-keppnin á Spáni í næsta mánuði
eðlilega efst á baugi og í rauninni
eina stórverkefni Iandsliðsins í tíð
þeirrar stjórnar sem nú var kjörin,
en HSÍ-þing verður á ný haldið í
júnímánuði, segir Júlíus Haf-
stein.— Ofarirnar í Danmörku
síðasta vetur hafa kennt okkur
öllum okkar lexíu og ég held að við
höfum öll verið alltof bjartsýn
fyrir þá keppni.
— Nú er stutt í b-keppnina á
Spáni og þar hef ég trú á að við
sýnum hvers við erum megnugir í
handknattleiknum en ég vara við
of mikilli bjartsýni. I Balt-
ic-keppninni náðum við athyglis-
verðasta árangri, sem við höfum
náð í handknattleiknum í langan
tíma. Landsliðið er eðlilega alltaf
okkar stolt og takmarkið er að ná
góðum árangri í b-keppninni og
uppskera laun erfiðisins. Það næst
þó ekki nema með sameinuðu átaki
og stuðningi og ég vara enn við of
mikilli bjartsýni, slíkt kann aldréi
góðri lukku að stýra, sagði Júlíus.
I spjalli okkar kom ennfremur
fram að mörg önnur mál knýja á
hjá nýkjörinni stjórn HSI. Bragar-
bót þarf að gera í dómaramálum
. og sagði Júlíus að vonandi yrðu
nokkur dómaranámskeið haldin á
næstu mánuðum, bæði fyrir lands-
og héraðsdómara. Sagði hann það
sína skoðun að gera þyrfti félögin
ábyrgari í dómara málunum. Þá
sagði hann að fjármálin hefðu
haldið aftur af stjórn HSÍ í
fræðslumálunum, en Jóhann Ingi
Gunnarsson hefði drifið þau áfram
á undanförnum mánuðum og
vonandi yrði framhald á því starfi.
— áij.
• Júlíus Hafstein nýkjörinn formaður HSI ásamt Sigurði Jónssyni
formanni HSÍ siðustu árin og Sveini Ragnarssyni þingforseta.
Ljósm. Mbl. RAX.
Breytt tekjuskipting í 1. deild karla:
Leikaðilar
með sér tekjuiíum S
Á ÞINGI HSÍ um helgina var þinginu um verkefnalaust þing og
skipti
!
samþykkt tillaga þess efnis að
tekjuskipting í 1. deild karla
verði á þann veg að þau félög.sem
leika hvern Icikdag skipti jafnt
með sér tekjum eða tapi af
leikdeginum. Af brúttótekjum
leikja í 1. deild karla eiga \0% að
renna til framkvæmdaaðila og
verður því fé varið til að greiða
tap á leikkvöldum annarra
flokka. Þessi tilhögun á keppn-
inni í 1. deild er sú sama og verið
hefur í knattspyrnunni undanfar-
in ár. en hjá handknattleiks-
mönnum var þessi tillaga aðeins
samþykkt fyrir það keppnistíma-
bil. sem nú stendur yfir. Á
HSI-þinginu. sem halda á í júní
verður þetta fyrirkomulag tekið
til endurskoðunar.
Heldur var HSÍ-þingið snautt af
verkefnum og ofangreind tillaga í
rauninni sú eina sem eitthvað var
rædd. Ólafur A. Jónsson formaður
mótanefndar talaði í ræðu á
ma það til sanns vegar færa.
Tíminn, sem þingið var haldinn á,
á trúlega mesta sök á hve fá mál
voru til umræðu, þar sem nú
stendur handknattleiksvertíðin
sem hæst og um þetta leyti árs er
erfitt að breyta hlutum, sem
byrjað er að starfa eftir.
Samþykkt var að í Norðurlands-
riðli íslandsmóts yngri flokkanna
yrði leikið heima og heiman í vetur
til að fjölga leikjum yngri flokk-
anna nyrðra, en það hefur löngum
háð Norðlendingum hve fáa leiki
lið þeirra hafa fengið áður en til
úrslitakeppninnar hefur komið.
Kosin var á þinginu nefnd til að
endurskoða reglur um dómstól
HSÍ og í nefndina voru kosnir
Bergur Guðnason, Rósmundur
Jónsson og Guðmundur Óskars-
son. Þá var samþykkt að stjórn
HSI skipaði nefnd fyrir 15. febrúar
til að kanna hugsanlegar breyting-
ar á mótafyrirkomulagi. ~ áij
Velta HSI yfir 70 millj. króna
Skuldir umfram eignir 4,3 milljónir
NIÐURSTÓÐUTÖLUR reikninga Handknattleikssambandsins námu
liðlega 53.5 milljónum króna á tímabilinu frá 1. júní 1977 til 31.
desember síðastliðinn. Velta HSÍ á þessu tímabili v;ar þó í rauninni
talsvert meiri eða 73—74 milljónir króna. Tap HSÍ á starfstímabili
síðustu stjórnar nam 3.1 milljón króna pg skuldir sambandsins
umfram eignir eru nú 4.3 milljónir króna. í reikningum IISÍ kemur
fram að víxilskuldir sambandsins nema nú 8.5 milljónum kr.
Kostnaður vegna utanferða landsliðanna nam á tímabilinu 12.2
milljónum króna, a-landsliðsins samtals 8,fi milljónum, unglingalands-
liðs karla 1.9 milljónum króna og a-landsliðs kvenna 1.7 milljónum. Af
einstökum utanferðum a landsliðsins kostaði ferðin á HM í Danmörku
fyrir ári síðan 3.3 milljónir og Frakklandsferðin í nóvember sl. 3
milljónir.
Annar kostnaður vegna a-lands-
liðsins á þessu tímabili nam
samtals 10,4 milljónum. Þar vega
þyngst dagpeningar og vinnutap
alls rétt tæplega 6 milljónir króna.
Liður sem kallaður er landsliðs-
þjálfunin í reikningum HSÍ kost-
aði 1,5 milljónir, en kostnaður
vegna Janusar Cerwinskys nam
218 þúsund krónum. Húsaleiga
vegna æfinga var 709 þúsund og
fatnaður vegna HM-ferðarinnar
522 þúsund kr. Kostnaður HSÍ
vegna leikmanna erlendis nam 824
þúsundum.
í fræðslustarfsemi HSÍ var á
• tímabilinu varið rúmlega einni
milljón króna og skiptist sá
kostnaður í þrennt, þjálfaranám-
skeið 386 þúsund, þjálfaraskóli í
Póllandi 303 þúsund, leikreglur
347 þúsund. Dómaranefndin kost-
aði HSÍ 898 þúsund krónur og
tveir stærstu liðirnir þar eru
IHF-dómaraferð til Kaupmanna-
hafnar, 386 þúsund krónur, og ferð
landsdómara til Finnlands, 569
þúsund.
Tekjur HSÍ af samningum við
sjónvarpið námu á árinu 1977—78
1,5 milljónum króna, en sá samn-
ingur var hækkaður um hálfa
milljón króna í haust og er 2
milljónir fyrir það keppnistímabil,
sem nú stendur yfir. Samningur
HSI og útvarpsins fyrir það
tímabil, sem nú stendur yfir
nemur einni milljón króna. Ýmsar
auglýsingatekjur HSI námu 5,4
milljónum, úr Afreksmannasjóði
ISI fékk Handknattleikssamband-
ið 3 milljónir á starfstímabili
síðustu stjórnar. Nettó hagnaður
af þingi Alþjóða handknattleiks-
sambandsins hér á landi síðastlið-
ið haust nam 2,9 milljónum króna.
Tekjur af pressu- og úrvalsleikjum
námu 1,8 milljónum, styrkir ÍSÍ
einni milljón. Ýmsir styrkir vegna
HM á síðasta vetri námu 1,4
milljónum króna og ferðastyrkur
frá IBR 689 þúsundum.
Þeir landsleikir, sem mestar
tekjur gáfu af sér á starfstímabil-
inu voru landsleikirnir við Dani í
desembermánuði síðastliðnum.
Hagnaður af þeim nam rúmlega
5,4 milljónum króna, en þá komu
tæpar 7 milljónir í aðgangseyri á
leikina tvo. Aðgangseyrir á Norð-
urlandamótið í október 1977 var
hins vegar samtals 4,2 milljónir og
tekjur af NM rösklega ein milljón.
Mótane-fnd HSÍ kostaði 939
þúsund krónur vegna Islandsmóts-
ins 1977—78. Stærsti gjaldaliður
nefndarinnar var vegna verð-
launapeninga en þeir kostuðu 928
þúsund krónur. Þátttökugjöld
námu rösklega 1,1 milljón króna.
í viðamikilli skýrslu HSÍ er birt
skipting á útbreiðslustyrk ÍSÍ og
fer sú tafla hér á eftir:
SERSAMBAND, IÐK-
fj. 76 rm
Badmintonsamh. 2936 500.000.-
Blaksamb. 1974 500.000.-
Borðtennissamb. 1681 500.000.-
Fimleikasamb. 3136 500.000.-
Frjálsíþr.samb. 6331 500.000.-
Glímusamb. 489 500.000.-
Golfsamb. 1017 500.000.-
Handknatt-
leikssamb. 8858 500.000,-
Judosamb. 687 500.000.-
Knattspvrnu-
samb. 14239 500.000.-
Körfuknatt-
leikssamb. 3253 500.000.-
Lyftinga-
samb. 440 500.000,-
Siglingasamb. 208 500.000.-
Skíðasamb. 6511 500.000,-
Sundsamband 4128 500.000,-
30Ýr
236.000,-
159.000-
135.000-
253.000-
510.000-
39.000-
84.000,-
20%
50.000-
61.000-
164.000-
244.000-
874.000-
0.0
Samt.
786.000-
720.000,-
799.000-
997.000-
1884.000,-
539.000-
584.000-
713.000- 487.000,- 1700.000-
55.000- 250.000- 805.000-
1146.000.-0- 1646.000-
262.000,- 545.000- 1307.000,-
35.000- 189.000 - 724.000-
17.000- 0- 517.000-
524.000- 0- 1024.000-
332.000- 136.000 - 968.000-
55921 7.500.000 - 4.500.000.-3.000.000.-15.000.000-
I