Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979
29
23. janúar—reyklaus dagur
Leiðbelninjgar
um hvermg má
hætta aö reykja
„ÞANNIG getur þú hætt að reykja“ nefnist bæklingur sem
Samstarfsnefnd um reykingavarnir hefur gefið út í tilefni
reyklausa dagsins næstkomandi þriðjudag og verður honum
dreift um allt land. m.a. þar sem mjólk er seld, í yfir 20 þúsund
eintökum.
Bæklingurinn er byggður á
leiðbeiningum, sem gefnar hafa
verið út erlendis um hvernig
megi hætta að reykja og byggt
er einnig á reynslu sem fengist
hefur á námskeiðum er haldin
hafa verið fyrir fólk sem hyggst
hætta að reykja. Fjallað er um
þau atriði sem vert þykir að
leggja áherzlu á og þykja
árangursríkastar í þessum efn-
um og er m.a. bent á að forðast
beri ýmsar venjur sem tengst
hafa reykingunum og að menn
skuli hafa nóg fyrir stafni
þannig að minni tími gefist e.t.v.
til að hugsa um tóbak.
hætt
aó
reykja
Gefa út plötu á jafn-
virði sígarettupakka
BURT með reykinn nefnist
hljómplata er Samstarfsnefnd-
in hefur gefið út ísamvinnu við
Illjómplötuútgáfuna. Á henni
eru tvö lög og textar Jóhanns
G. Jóhannssonar. sungin og
leikin á annarri hlið hennar. en
eingöngu leikin á hinni. með
það fyrir augum að þeir sem
vilja geti sungið sjálfir með
þeim megin, og eru textarnir
prentaðir á umslag plötunnar.
Brunaliðið annast flutning
laganna ásamt Ernu Hildi
Gunnarsdóttur, Ernu Þórarins-
dóttur og Evu Ásrúnu Alberts-
dóttur frá Akure.vri, sem syngja
annað lagið. Hitt lagið syngja
Halli og Laddi. Hljómpiatan er
jafnstór venjulegum 12 laga
plötum en leikin á 45 snúninga
hraða.
Auk höfundar, flytjenda og
upptökumanna gáfu vinnu sína,
Flugleiðir, Gunnar H. Baldurs-
son teiknari, Hljóðriti, Hótel
Esja, Imynd, Kassagerð Reykja-
víkur, Prentsmiðja Friðriks
Jóelssonar, Prisma og Prent-
stofan Blik.
Samstarfsnefndin segir í frétt
sinni að þrátt fyrir samþykki
ráðherra hafi fjármálaráðu-
neytið ekki séð sér fært að gefa
eftir yörugjald og tolla af
plötunni og greiddi Samstarfs-
nefndin þau gjöld til ríkisins til
að hægt yrði að selja hana á
samá verði og sígarettupakka
eða 565 kr. Platan er til sölu í
öllum hljómplötuverzlunum
Magnús Kjartansson hrunaliðsstjóri og Tómas Þorvaldsson
starfsmaður Samstarfsnefndarinnar með hluta upplags plötunn-
ar.
Reykingar hafa nei-
kvæð
RICHARD L. Naeye pró-
fessor við háskóla í Penn-
sylvaníu kynnti niður-
stöður rannsókna fyrir
hópi sérfræðinga nýlega
a fostur
og bentu þessar rann-
sóknir til þess að reyk-
ingar hefðu skaðleg áhrif
á fóstur.
Samkvæmt athugunum á
50.000 þunguðum konum á 12
sjúkrahúsum í Bandaríkjunum
kom fram að reykingar þeirra
einhvern tíma ævinnar ýttu
undir ýmsa sjúkdóma er drógu
fóstur og nýfædd börn til dauða.
Sagðist Naeye vera undrandi á
þessum niðurstöðum, en eina
ráðleggingin sem hann gæti
gefið væri sú að konur sem
hygðust eiga börn, hættu að
reykja hið fyrsta. Hann gæti
ekki sagt til um hversu lengi
áhrifa tóbaksreykinga gætti á
fóstur í þessu sambandi, en
rannsóknirnar bentu eindregið
til þess að reykingar mæðra
ykju líkur á fósturláti, og þar
yrði einnig að taka með í
reikninginn reykingar þeirra
áður fyrr.
Hjálpar fólki til
að taka ákvörðun
— segir Tryggvi Ásmundsson iæknir
— EG ER mjög meðmæltur þessum degi og það gerir ekki nema
gott að menn hætti að reykja í einn dag. Reyklausi dagurinn
gefur mönnum líka tilefni til að framlengja bindindið. en það
þarf jafnan að byggja sig vel upp og undurhúa slíka ákvörðun
sem þá að hætta reykingum. og það er gagnlegt að hjálpa fólki til
þess. sagði Tryggvi Asmundsson læknir. en hann er lungnasér-
fra“ðingur og starfar við Landspítalann og Vífilsstaði.
— Ég sé fyrst og fremst þetta
gagn með þessum degi, en það
neikvæða er að sumir verða
hálfvegis andsefjaðir og segjast
framvegis ganga með tvær
sígarettur í munni í einu í stað
einnar. En í mínu starfi rekst ég
á afleiðingar reykinga þar sem
er lungnaþemba, króniskur
bronkítis og lungnakrabbamein
og þó að þessir sjúkdomar séu
einnig til hjá fólki gem aldrei
hefur reykt þá eru menn
almennt orðnir sammála um að
oftast megi rekja þá nokkuð
beint til reykinga sjúklinga.
Enda hefur það verið sagt að
það yröi lítið að gera í minni
grein ef reykingar legðust niður
með öllu og það er nokkuð til í
því.
Þá sagði Tryggvi Ásmundsson
að þakkarvert væri hversu
mikið Krabbameinsfélögin
Samstaða á
vinnustöðum
Margir áhugamenn um
reykingavarnir hafa sett sig í
samband við Samstarfs-
nefndina um reykingavarnir
vegna reyklausa dagsins og
hefur nefndinni borist
vitneskja um að á nokkrum
vinnustöðum verði samstaða
um að leggja reykingar niður
í dag og að það hafi jafnvel í
för með sér að einhverjir
hætti alveg að reykja.
Þá nefndi Esther
Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri Samstarfs-
nefndarinnar að á sumum
vinnustöðum ætti að reyna
að hluta sundur t.d. kaffi-
stofur og skipta þeim milli
reykingafólks og hinna sem
ekki reyktu, og fleira i
þessum dúr væru menn að
reyna að gera til að útiloka
reykinn. Á einstaka vinnu-
stað var ætlunin að safna í
sérstakan sjóð andvirði eins
sígarettupakka á dag á hvern
starfsmann og nota til ferða-
laga eða einhvers í þá áttina.
Samstarfsnefndin ráðgerði
að koma saman nú í morgun
og ætlaði síðan að fylgjast
með hverju fram yndi í dag.
REYKINGAMAÐUR sem not-
ar einn pakka á dag reykir
samtals 7.300 sígarettur ár-
lega. Ávani hans er því tengdur
þessari athöfn 7.300 sinnum á
ári eða 73.000 sinnum hafi
hann reykt í 10 ár. Fjöidinn er
orðinn 116.000 eftir 20 ára
reykingar miðað við pakka á
dag. Þennan ávana þurfa menn
því að losna við og því er lögð
áherzla á það við þá sem vilja
hætta að reykja að þeir brjóti
upp vanann og reyni að taka
upp nokkuð breyttar venjur ef
verða ma'tti til þess að draga
úr tóbakslöngun og að reyking-
ar verði ekki ósjálfrátt tengdar
við einhver hefðbundin atriði
hinna daglegu athafna.
hefðu unnið að reykingavörnum
og nefndi m.a. starf Þorvarðar
Örnólfssonar framkvæmda-
stjóra, en hann hefur heimsótt
grunnskóla og haft fræðslufundi
þar. Kvaðst Tryggvi álíta að slík
starf væri það raunhæfasta, illa
gengi oft að sannfæra fullorðið
fólk en fyrirbyggjandi starf
meðai barna væri það sem gæfi
béztan árangur.
50 milljón
reykinga-
menn
Baráttan hefur harðnað
mjög síðustu misserin hjá 50
milljón reykingamönnum í
Bandaríkjunum, en þeir eru að
verða eins og peð á taflborði
milli tóbaksframleiðenda og
þeirra ýmsu samtaka sem herja
á reykingamenn til að fá þá
ofan af venju sinni.
Sala tóbaks nemur á ári yfir
20 milljörðum dala í Banda-
ríkjunum og auk þess er varið
árlega nokkrum milljörðum
dala til að reka áróður gegn
reykingum. Um 500 milljónum
dala er varið til að auglýsa
tóbak og koma þær auglýsingar
hvarvetna fyrir í daglegu lífi
Bandaríkjamannsins, á inn-
kaupapokum, í kvikmyndum og
sjónvarpi og með flugvélum sem
iátnar eru „teikna" á himininn.
Fyrir nokkru var kynnt í
Bandaríkjunum skýrsla um
Eru reykingar
aðallega ávaninn?
áhrif tóbaks á manninn og
spannar hún 30 ára tímabil og
meira en 30 þúsund rannsóknir
sem benda ótvírætt til þess að
reykingar orsaki lungnakrabba.
Skýrsla þessi sem unnin var af
sérfræðingum hefur hlotið
nokkra gagnrýni tóbaksfram-
leiðenda, sem segja hana vera
óáreiðanlega.
Þetta er í annað sinn sem
landlæknir Bandaríkjanna legg-
ur fram slíka allsherjarskýrslu,
hin fyrri var lögð fram árið
1964. Sýnir hún nú að reykingar
hafa aukizt nokkuð meðal
kvenna og ungra stúlkna en
fremur staðið í stað eða minnk-
að meðal karlmanna. Síðan 1964
hafa unt 30 milljónir manna
hætt að reykja. Reykingamenn
voru 42% fullorðinna 1964 en
eru nú 35% fullorðinna.