Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 48
Al (.LYSINí.ASIMINN KK: 22480 Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19 BUÐIN sími ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979 4500 sextán áranem- ar þrey ta próf í dag Um 4500 nemendur sem verða 16 ára á þessu ári taka samræmd grunnskóla- próf um allt land næstu fjóra daga, en fyrsti próf- dagurinn er í dag. Þessir nemendur ljúka við grunn- skólapróf í vor samkvæmt upplýsingum Árna Stefáns- sonar formanns prófa- nefndar, en samræmdu prófin eru nú í fjórum greinum. Valgreinar eru danska eða enska og sam- félagsfræði eða raungrein- ar, en í samfélagsfræði er um að ræða landafræði og sögu og í raungreinum íslenzku og stærðfræði. Prófin eru á sama tíma yfir allt landið og á föstudags- morgun verður útvarpað munnlega þættinum í dönsku og ensku. Þessi miðsvetrarpróf eru liður í útskrift nemenda úr grunn- skóla og gildir skólaprófið í vor jafn mikið. Flugslysið á Sri Lanka: Hólmavík: Reyklaus skóli hjá yngri sem eldri Ilólmavík. 22. janúar í tilefni reyklausa dagsins má geta þess að í grunnskóla Hólmavíkur þar sem eru nemendur á aldrinum 6—16 ára um það bil 90 að tölu, reykir enginn. Við skólann eru starfandi 6 kennarar og enginn þeirra reykir, svo að í þessum skóla eru allir dagar reyklausir. Sajít er frá reyklausa deKÍnum á bls. 29. Séra Andrés. Formleg málsmeð- ferð gagna í febrúar Ráðstefnu sem halda átti í janúar á Sri I.anka vejfna rannsókna flujíslyssins þar 15. nóv. s.l. hefur verið frestað fram í febrúar n.k.. samkvamt upplýsinjíum frá Sri Lanka. en þá verður málið tekið f.vrir í formletíri málsmeðferð. Þeir aðilar sem unnið hafa að rannsókninni hafa að undan- fiirnu unnið úr ýmsum jíiijínum varðandi fJujjslysið m.a. upplýs- inj'um úr „sviirtu kiissunum" ok af soKulböndum í stjórnklefa fluiívélarinnar. Votrarvertíð er nú að hefjast af fullum krafti í stærstu verstiið landsins. Vestmannaeyjum. ok eru milli 30 og 40 bátar af liðlejja 70 byrjaðir róðra. Sívaxandi fjöldi línuháta hefur verið s.l. ár, en þessa mvnd tók SijjurBeir í Eyjum í jja-r í einum beituskúrnum þar sem strákainir kepptust við að beita. Stanzlaus loðnulöndun á Eskifirði Eskifirði. 2á. janúar STANZLAUS loðnulöndun hefur verið hér síðan á sunnu- da«smorgun og er nú búið að taka á móti 10 þúsund tonn- um. Fyrsta loðnan barst hér á land siðastliðinn fimmtudaK. Bræðsla loðnunnar hófst í dag, mánudaK, en afköst verk- smiðjunnar eru eitt þúsund tonn á sólarhring. Línubátarnir voru að koma að með misjafnan afla, frá 3—8 tonn á bát. Línuafli hefur verið ágætur það sem af er, en 6 bátar róa héðan með línu. Togararnir lönduðu 60 og 80 tonnum um helgina eftir stuttar veiðiferðir. A laugardag héldum við okkar árlega þorrablót hér á Eskifirði. Mikið fjölmenni sótti blótiö og skemmtu menn sér konunglega fram undir morgun við söng, skemmtiatriði og dans. Heiðursgestir blótsins að þessu sinni voru hjónin Viggó Loftsson og Kristín Þorsteins- dóttir, en þau hjón bjuggu um árabil hér á Eskifirði og var hann bakari og hótelhaldari á staðnum og sá um matartil- búning á fjölmörgum þorra- blótum. Blótsgoði að þessu sinni var Gunnar Finnsson kennari. — Ævar. Björgvin Guðmundsson formaður borgarráðs: Horfur á að borgin þurfi 12% útsvar „MÉR sýnist málið standa þannig í dag, að það sé útlit fyrir að það þurfi a.m.k. hluta af þessu 12 prósentustigi ef ekki allt, sagði Björgvin Guðmundsson, borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins og einn af talsmönnum borgarstjórnarmeirihlutans, þegar hann var inntur eftir afstöðu til þess að leggja á 12% útsvar í Reykjavík. Erindi frá Sambandi ísl. sveitarfélaga liggur nú hjá félagsmálaráðherra um að sett verði í lög heimild þar að lútandi. Björgvin sagði, að þessa stund- ina væri unnið að niðurskurði á fjárhagsáætlun borgarinnar milli untræðna og kvaðst hann álíta að nást yrði um einn milljarður króna með þessum niðurskurði til að vega upp á móti ýmsum kostnaðarhækkunum á yfirstand- andi ári. Þá yrði að gera ráð fyrir fyrirsjáanlegum launahækkunum hjá borgarsjóði á árinu á fjár- hagsáætlun en hún væri lauslega áætluð um 1200 milljónir króna eða nokkurn veginn sú fjárhæð sem hækkunin úr 11% í 12% útsvar myndi gefa í tekjur. Að vísu kvað Björgvin mögulegt að fara sömu leið og fráfarandi meirihluti sjálfstæðismanna hefði jafnan gert, að reikna ekki með launahækkunum af þessu tagi á fjárhagsáætlun en núverandi meirihiuta þætti miður að skilja eftir slíkt gat. Björgvin kvað allar horfur á því að fjárhagsáætlunin yrði afgreidd 15. febrúar. Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi Framsóknarfiokksins, kvað engar formlegar samþykktir liggja fyrir um þetta efni hjá PVamsóknarflokknum. Vara- borgarfulltrúi flokksins, Eiríkur Tómasson, hefur lýst því yfir að 12% útsvar komi ekki til greina, en Kristján sagði að væntanlega væru skoðanir manna innan hans flokks sem og í öðrum flokkum mjög skiptar um þetta atriði. Hann kvað ekki verða tekna afstöðu í þessu máli fyrr en lokið væri þeirri endurskoðun sem nú stendur yfir á fjárhagsáætlun en hins vegar færi ekki á milli mála að Reykjavíkurborg veitti ekki af þessari hækkun. Sigurjón Pétursson, borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins og for- seti borgarstjórnar, kvaðst ekki vita að formleg afstaða um þetta atriði lægi fyrir hjá neinum flokkanna og kvaðst ekki gera ráð fyrir að tekin yrði afstaða til álagningargjalda nema í tengslum við annað hvort væntanleg útgjöld eða framkvæmdir og það gerðist þá ekki nema við lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar. Lamb nærðist í krafei 50 hreindýra Höfn í Hornafirði, 22. jan. ÞRÍR eftirleitamenn komu í gær úr Kollumúla- göngu og fundu þeir 13 kindur þar og 9 í Eski- fellsfjöllum, eða samtals 22. Auk þess vita þeir af tveimur lömbum sem þeir gátu ekki handsamað vegna harðfennis í klett- um sem lömbin voru í. Ferðin var farin á snjó- sleða inn eftir Jökulsár- gljúfri allt inn að Vestur- dalsrákum. Skarpa hjarn var yfir öllu og vita haglaust utan kvistbeit. í Víðidal fundu leitarmenn eitt lamb í 50 hreindýra hópi og nærðist það í krafsi dýranna. Eftirleit þessa átti að fara fyrir jól en það tókst ekki vegna slæmra veðurskilyrða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.