Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
21. tbl. 66. árg.
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Santo Domingo. 25. janúar. AP, Reuter.
JÓHANNES Páll páíi 2. kom í
kvöld til Santo Domingo í
Dóminikanska lýðveldinu á leið
sinni á biskuparáðstefnu í Mexíkó.
Þetta er fyrsta utanlandsferð páfa
frá því hann tók kosningu sem
slíkur í október sl. Páfi kraup eftir
að flugvél hans var lent og kyssti
jörðina. en örstuttu síðar bauð
Antonio Guzman forseti Dóminí-
kanska lýðveldisins hann velkom-
inn og hleypt var af 21 fallbyssu-
skoti. í stuttri ræðu við komuna til
Santo Domingo sajfði páfi að
latneska Ameríka hefði lykilhlut-
verki að gegna í þróun kaþólsku
kirkjunnar á næstu árum.
Jóhannes Páll páfi er fyrsti
páfinn sem kemur til Dóminíkanska
lýðveldisins, en þaðan breiddist
kristin trú upphaflega út um nýja
heiminn.
Á leið sinni yfir Atlantshafið í
sérlega útbúinni DC-10 þotu frá
ítalska flugfélaginu Alitalia ræddi
páfi óformlega við fréttamenn í
rúma klukkustund og er slíkt samtal
án fordæmis í páfagarði.
Páfinn staðfesti í samtali sínu við
fréttamenn, að hann myndi á
næstunni fara í heimsóknir til
Bandaríkjanna og Frakklands. Jafn-
framt sagði hann að sér væri ekki á
móti skapi þegar stjórnir
kommúnistalandanna gagnrýndu
störf hans. Páfi átti fund með
Andrei Gromyko í drykklanga stund
í gær, en Gromyko er nú í Róm.
Fundur þeirra er fyrsti einkafundur
páfa og háttsetts embættismanns
sovézku stjórnarinnar.
Jóhannes Páll ræddi við frétta-
menn á mörgum tungumálum. Hann
staðfesti m.a. að hann hefði tekið að
sér að miðla málum í deilu Argen-
tínu og Chile um yfirráð yfir
smáeyjum syðst í Suður-Ameríku.
Pafi heldur áleiðis til Mexíkó á
morgun, föstudag.
Bretland:
Liggur vid
öngþveiti
London, 25. janúar. Reuter. AP
BREZKA stjórnin bar í kvöld
sigurorð af stjórnarandstöðunni i
atkvæðagreiðslu í þinginu um
meðfeð stjórnarinnar á verkfallinu,
sem lamað hefur athafnalíf og
þjónustu í landinu undanfarna
daga. Fékk stjórnin 289 atkvæði, en
stjórnarandstaðan 273. í umræð-
unni á undan atkvæðagreiðslunni
sakaði Healy fjármálaráðherra
verkfallsmenn um ábyrgðarleysi og
sagði kröfuhörku þeirra vera að
leiða til öngþveitis.
Lestarþjónusta í Bretlandi var
lömuð í dag vegna verkfalls lestar-
stjóra og opinber þjónusta lá víða
niðri vegna verkfalls verkamanna í
þjónustu hins opinbera. Á spítala
einum þurfti að senda krabbameins-
sjúklinga heim, þar sem verkfalls-
menn komu í veg fyrir að aðföngum
væri komið í sjúkrahúsið.
Sjá viAtöl við íslrnzka námsmenn í
Bretlandi á bls. 19.
Jóhannes Páll páfi 2. kyssir jörðina í Dóminíkanska lýðveldinu eftir
komu sína þangað í ga“r. símam.vnd ap
„Suóur-Ameríka gegn-
ir lykilhlutverki innan
kaþólsku kirkjunnar”
— sagði páfi við komuna þangað
1 rá hópgöngu stuðningsmanna Bakhtiars forsa'tisráðherra í Teheran í gær
Nordli hefur ekki endanlega
kveðið upp úr með það að hann muni
segja af sér verði málalok á þessa
lund, en hann dregur enga dul á að
samningurinn skipti sköpum fyrir
framtíð stjórnarinnar. Á blaða-
mannafundi í morgun sagði Nordli
að hann vissi að meirihluti væri
fyrir þvi í Stórþinginu að staðfesta
samninginn en að einstakir fulltrúar
borgaraflokkanna myndu hafna hon-
um vegna þess þeir væru beittir
þrýstingi flokka sinna. Nordli sagði
að Noregur færðist mörg skref aftur
á bak í öllu tilliti væri samningnum
hafnað.
Kínverjar skila uppteknum eignum
Pekinjt. 25. jan. Reuter. AP.
KÍNASTJÓRN hefur ákveðið að skila kaup-
sýslumönnum og öðrum þeim sem urðu fyrir
eignaupptöku í menningarbyltingunni á
árunum 1966—G9 aftur eignum sínum og
fjármunum, að því er fréttastofan Hsinhua
skýrði frá í dag. Ákvörðun þessi kemur mjög
á óvart, en vestrænir fréttaskýrendur telja að
með þessu vilji leiðtogar landsins reyna að
tryggja að hæfileikar þessa fólks í stjórnun,
viðskiptum og iðnaði nýtist til fulls. Sömuleið-
is er litið á þetta skref sem vísbendingu til
Kínverja erlendis og á Taiwan, að séreignar
stefna sé ekki eitur í bcinum ráðamanna.
í framhaldi af þessari ákvörðun hefur einnig
verið ákveðið að ýmsir forstjórar og stjórnend-
ur iðnfyrirtækja skuli fá endurgreitt með
fullum vöxtum þau laun, sem af þeim voru
tekin í menningarbyltingunni og hafa verið
skert síðan. Talið er að um sé að ræða
geysimikla fjármuni m.a. í formi bankainn-
stæðna, sem hugmyndin er að skila fyrri
eigendum. Jafnframt verður öllum húsum og
persónulegum munum, sem teknir voru af fólki
í menningarbyltingunni, skilað.
Hsinhua segir í frétt sinni í dag, að
eignaupptakan í menningarbyltingunni hafi
verið brot á stjórnarskránni og eigi hinir fyrri
eigendur nú fullan rétt á því að fá eigur sínar
aftur með bótum og einnig fyrri starfsheiti og
titla. Jafnframt beri að hegna þeim, sem
notfært hafa sér eigur þessa fólks í eigin þágu
undanfarin ár.
Margt af því fólki, sem nú fær eignir sínar á
ný, stundaði verksmiðjurekstur eða rak önnur
fyrirtæki, þegar kommúnistar tóku völdin í
Kína árið 1949. Stjórnin þjóðnýtti þessi
fyrirtæki árið 1956, en eigendurnir fengu
bætur, sem síðan voru gerðar upptækar í
menningarbyltingunni.
„Kem næstu daga
þótt það muni kosta
blóðsúthellingar’ ’
Teheran. París, 25. janúar. AP. Reuter
ÍRANSKI trúarleiðtoginn Khom-
eini frestaði í dag för sinni til (rans
um nokkra daga, en sagðist jafn-
framt mundu snúa til baka til
landsins jafnskjótt og flugvellir þar
verða opnaðir, jafnvel þótt það
kynni að leiða til blóðsúthellinga.
Búizt er við því, að Khomeini leggi
af stað frá París á laugardagskvöld
og komi til Teheran á sunnudags-
morgun. stuttu eftir að fyrirhugað
er að opna þar flugvöilinn að nýju.
Talsmaður hans hefur sagt að verði
flugvöllurinn ekki opnaður muni
Khomeini grípa til „annarra ráða“.
Sendimaður frá Bakhtiar for-
sætisráðherra Iran hugðist í dag ná
fundi Khomeinis, en trúarleiðtoginn
neitaði að ræða við hann. Sendi-
maðurinn hafði þau skilaboð með-
ferðis frá Bakhtiar, að þess væri
óskað að Khomeini frestaði heim-
komu sinni í a.m.k. þrjár vikur eða
þar til hinni nýju stjórn hefði gefist
nokkurt svigrúm til að koma á ró í
landinu.
Mjög stór hópur stuðningsmanna
Bakhtiars fór í göngu um götur
Teheran í dag til að hvetja til þess að
forsætisráðherrann fengi starfsfrið
og farið yrði eftir stjórnarskrá
landsins. Er talið að margir hafi
reiðzt ákvörðun Khomeinis að hafa
að engu tilmæli forsætisráðherrans
um að fresta heimkomu sinni og
ákveðið að taka þátt í göngu
stuðningsmanna Bakhtiars. Engu að
síður telja fréttamenn í Teheran að
fjöldagöngur fylgismanna trúarleið-
togans hafi verið töluvert fjölménn-
ari en gangan í dag.
Khomeini var í dag spurður að því
í París, hvort hann hygðist hvetja til
vopnaðrar andstöðu gegn stjórn
Bakhtiars, en hann sagðist ekki hafa
það í huga „að svo komnu rnáli". I
bréfi því sem Bakhtiar sendi
Khomeini og lesið var í útvarpi í
Teheran er trúarleiðtoginn varaður
við því að leggja á ráð um að brjóta
gegn stjórnarskránni, því þá gætu
skapast aðstæður, sem stjórnin gæti
ekki borið ábyrgð á.
Stjórnarkreppa í
aðsigi i Noregi?
Ósló. 25. jan. Frá Jan Erik Laurc frcttaritara MorRunblaósins
ÝMSAR blikur eru nú á lofti í norskum stjórnmálum og stjórn
Verkamannaflokksins undir forsæti Nordlis í hættu og kynni að verða að
segja af sér. Það er hið umtalaða Volvomál sem gæti orðið ríkisstjórninni
að falli. f gærkvöldi varð það ljóst í miðstjórnum Hægriflokksins og
Kristilega þjóðarflokksins. að þær munu mæla með því að fulltrúar
þessara flokka á þingi greiði atkvæði gegn Volvo samningum og það
bcndir fátt til þcss að þingmcnn hiýðnist ekki þcssum boðum.
Fulltrúar Miðflokksins munu að
líkindum greiða atkvæði gegn
samningnum, en það kemur ekki
endanlega í ljós fyrr en á mánudag-
inn. Áður var orðið ljóst að
Sósíalíski vinstriflokkurinn og
Vinstri munu greiða atkvæði á móti.
Þar með væri meirihluti þingmanna
á móti samningnum og Odvar Nordli
yrði þá að leggja fram lausnarbeiðni
sína.
Þótt það virðist mótsagnakennt
lítur nú svo út fyrir að þeir einu sem
gætu bjargað norsku stjórninni
væru hlutafjáreigendurnir í Volvo.
Volvo mun halda aðalfund hinn 30.
janúar. Ef samningurinn verður
felldur þar mun hann ekki koma til
afgreiðslu í norska stórþinginu og
þar með yrði ríkisstjórn Nordlis
lengri lífdaga auðið. Er því aðalfund-
ar VOLVO beðið með mikilli eftir-
væntingu. Það dugar að þriðjungur
hlutabréfaeigenda greiði atkvæði
gegn fyrirhuguðum samningi og
verður þá málið tekið út af dagskrá.
Mjög skiptar skoðanir eru hjá
sænskum hlutafjáreigendum
varðandi þetta mál og sem stendur
ógjörningur að spá hvernig leikar
fara að lokum en ekki beinlínis
líklegt að samningurinn verði giltur.