Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
Fundahöld
formanns
Framkvæmda-
stofnunar
ríkislns
AlÞýðuflokkurinn hefur
efnt til fundahalda vítt
um land sem út af fyrir
sig er ekkert nema gott
að segja um. Það hefur
hins vegar vakið furöu,
hvern veg flokkurinn
hefur kvatt til fundar á
Vestfjöröum. Fundirnir
eru auglýstir sem
almennir borgarfundir og
framsögumaður (Sig-
hvatur Björgvinsson)
kynntur sem formaður
stjórnar Framkvæmda-
stofnunar ríkisins — en
ekki t.d. Þingmaður eða
formaður Þingflokks
AlÞýðuflokksins.
Hvers vegna er Þann
veg staðið aö málum?
Er Það vegna Þess að
Framkvæmdastofnun
ríkisins er „klettur í
kerfinu", sem hefur með
að gera bæði áætlana-
gerðir og fjármagnsdreif-
ingu í Þjóðfélaginu
(byggðasjóður og fram-
kvæmdasjóður)? Er Þaö
ti4 að undirstrika Þá
stöðu valds og fyrir-
greiðsiu, sem Þessi Þing-
maður AlÞýðuflokksins
er kominn í? Færi ekki
betur á Því að Sighvatur
Björgvinsson mætti á
fundum, er AlÞýöu-
flokkurinn boðar til, sem
Þingmaður hans og kjör-
dæmis síns en sem for-
maður Framkvæmda-
stofnunar ríkisins, sem
vera á hlutlaus ríkisstofn-
un?
Hvar eru nú háleitar
predikanir um „kerfis-
kalla“, „siðgæöi“, „póli-
tíska kommisara" og Þar
fram eftir götunum, sem
hæst var haft um vikurn-
ar fyrir kosningar í vor?
Ætlar AIÞýðuflokkurinn
ekki að linna látum í
vinnubrögðum fyr en
sannmæli verður, að
aldrei hafi jafn margir
Þingmenn svikið jafn
mörg heit jafn kyrfilega
og á jafn skömmum tíma
og Þingmenn hans?
Stefna
Sjálfstæöis-
flokksins
Ásgeir Þórhallsson
skrifar grein í Morgun-
blaðið í gær, Þar sem
hann dregur stefnu Sjálf-
stæðisflokksins saman í
nokkra meginpunkta.
Hann vitnar fyrst til oröa
Birgis heitins Kjarans,
greinar er hann reit í
Stefni, 3. hefti 2. árgangs
1958. Þar lagði Birgir
áherzlu á að hugmynda-
heimur Sjálfstæðis-
flokksins byggöi á
íslenzkum grunni, væri
ekki ínnflutt hugmynda-
fræði, Þótt tengsl væru á
mílli skyldra Þjóðfélags-
kerfa. En flokkurinn hefði
tekiö breytingum í sam-
ræmi við Þjóðfélags-
Þróunina. Núverandi
stefna hans sé í
hnotskurn:
• 1) Varðveita og tryggja
sjálfstæöi lands og lýðs
og standa vörð um
tungu, bókmenntir og
annan menningararf ís-
lendinga.
• 2) Treysta Þegnrétt-
indi, lýðræði og Þing-
ræði.
• 3) Vinna að víðsýnni
Þjóðlegri umbótastefnu
á grundvelli ein-
staklingsfrelsisins og
athafnafrelsisins með
hagsmuni allra stétta
fyrir augum.
• 4) Nýta Þekkingu og
tækni Þann veg, að
auðlindir lands og hafs
veröi hagnýttar af
hyggindum í Þágu
Þjóðarheildar.
• 5) Skapa öllum lands-
mönnum félagslegt
öryggi.
Þetta er grunnur sjálf-
stæöisstefnunnar. Nú er
unnið að Því aö marka
Sjálfstæöisflokknum
framtíðarstefnu, sem
byggð verði á Þessum
grunni, en taki jafnframt
mið af staðreyndum líð-
andi stundar, efnahags-
legum, atvinnulegum,
félagslegum og menn-
íngarlegum, og æskilegri
Þróun Þjóðfélagsins
næstu ár og áratugi.
Stefnt er að Því að Þessi
stefna verði lögö fram, að
Því er efnahagsmál
varðar, í næsta mánuði,
en á heildina litið verði
hún afgreidd á lands-
fundi í vor.
Ykkur öllum vinum og vandamönnum er heimsóttu
mig og glöddu meö gjöfum og skeytum á
áttræöisafmæli mínu sendi ég bestu kveöjur og
þakklæti.
Guö blessi ykkur öll. Ingibjörg Siguröardóttir,
Víkurbraut 18,
Vík í Mýrdal.
FRANZ SCHUBERT
vetrarferöin
„Die Winterreise"
SIMON VAUGHAN
(Bariton)
ÓLAFUR VIGNIR
ALBERTSSON
(píanó)
í Norræna Húsinu, Sunnudaginn 28. jan. kl. 3.
Verö aðgöngumiða 2000 kr.
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — S(mi 21240
Solex blöndungar
fyrirliggjandi í ýmsar geröir bifreiöa.
Einnig blöökur í Zenith blöndunga.
Útvegum blöndunga f flestar geröir
Evrópskra bifreiöa.
Hagstætt verö.
Gamall og slitinn blöndungur sóar bensíni
sá nýi er sparsamur og nýtinn.
Vegna sameignarslita veröur flugvélin TF-
MEY-Piper Cherokee PA-28-180 árgerð 1966
seld á uppboði í flugskýlinu við gamla
flugturninn mánudaginn 29. jan. kl. 4.30 e.h.
500 flugtímar á motor (1500 tímar eftir) Tvö
V.H.F. radio - A.D.F.- Marker Beacons-Rafmagns
Trim.
Stór
útsala
hefst i dag
Dömudeild Herradeild
Kjólefni Peysur
Metravara Skyrtur
Borödúkar Sokkar
Karlmanna-
og drengjaundirföt.
Ótrúlega lágt verð.
Égill Sacobsin
Austurstræti 9
Lítidtil beggja