Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 15 Mexico: 400 milljónir svelta að staðaldri í heiminum Wa-shinKton 25. jan. — AP HUNGUR og skortur í fátækustu löndum heims mun að öllum likind- um aukast enn þó svo að matvæla- framleiðslan í heiminum sé svo mikil, að nægilegur matur ætti að vera handa öllum ef rétt væri skipt. Maurice J. Williams, framkvæmda- stjóri Alþjóðamatvælaráðsins, sagði þetta í ræðu sem hann flutti á fundi matvælanefndar bandarísku fulltrúadeildarinnar í dag. Hann sagði að um 400 milljónir manna í þróunarlöndunum væru soltnar að r Ognari Ankers fundinn Kaupmannahöfn. 25. jan. — AP PIETRO nokkur Sassara. þrítug- ur ítali. sem hefur verið leitað um þvera og endilanga Evrópu. var í dag ákærður fyrir að skrifa hótunarbréf til Ankers Jörgen- sens. forsætisráðherra Dana. og skipuleggja sprengjusamsæri. sem varð til þess að yngri bróðir hans lét lífið. Enrico Sassara. 20 ára gamall. fórst fyrir hálfum mánuði þegar sprengja sprakk í höndum hans. Um þær mundir höfðu margar sprengjur fundist hér og hvar um Kaupmannahöfn þótt ekki hafði mannskaði af hlotizt. Samtímis því að sprengjur fundust streymdu hótunarbréf til forsætisráðherra og var gæzla öryggisvarða um hann stórlega efld eins og sagt hefur verið frá. Talið er að ástæðan fyrir þessu sé sú að Sassara missti forræði sonar síns er hann skildi við danska eiginkonu sína ekki alls fyrir löngu. Þetta gerðist 1978 — Geislavirkni vart í Kanada úr braki sovézks gervi- hnattar. 1968 — ísraelsks kafbáts sakn- að á Miðjarðarhafi og 68 taldir af. 1964 — Brezkt herlið bælir niður uppreisnir hermanna í Tanganyika, Kenya og Uganda. 1957 — Stjórnarskrá Kasmírs um innlimun í Indland tekur gildi. 1952 — Shepherd’s hótelið í Kaíró brennt til ösku í óeirðum. 1950 — Indland veröur lýðveldi i brezka samveldinu. 1943 — Rússar sigra Þjóðverja við Voromezh. 1939 — Spænskir þjóðernissinn- ar taka Barcelona með aðstoð ítala. 1931 — Þjóðverjar gera 10 ára griðasamning við Pólverja. 1931 — Mahatma Gandhi sleppt úr haldi til að taka þátt í viðræðum. 1885 — „Mahdíinn” tekur Khartoum. 1855 — Piedmont gengur í lið með Bandamönnum gegn Rúss- um. 1699 — Friðurinn í Kariowitz: Austurríkismenn, Rússar, Pólverjar og Feneyingar sam- einast gegn Tyrkjum. 1627 — Wallenstein tekur Mecklenburg. 1564 — Píus páfi IV staðfestir ákvarðanir Trent-ráðsins. Afmælii Karl XIV Svíakonung- ur (1763—1844) Ugo Foscolo, ítalskt skáid (1778-1827) - Douglas Marcarthur, bandarísk- ur hermaður (1880—1964) — Eartha Kitt, handarísk söng- kona. Andláti Edward Jenner, braut- ryðjandi í bólusetningum, 1823. — Charles Gordon hershöfðingi 1885 - W.P. Yeats, skáld, 1939. Innlenti d. Sveinn Björnsson forseti 1952 — Verkamanna- Fjöldi týndra sagður hafa fallið í átökum staðaldri og vannærðar og verst væri ástandið í 40 fátækustu ríkjunum. Hann tilgreindi ekki þau lönd. Williams sagði, að þróunarlöndin yrðu að flytja inn obbann af öllum matvælum sínum og spáði því að sá innflutningur sem hefði árið 1977 verið um 52 milljón tonn myndi þrefaldast á næstu áratugum. Hins vegar hrykki það ekki til og fátæk- ustu þjóðirnar yrðu ekki færar um að auka innflutninginn eins og þær þyrftu vegna þess að þær skorti fjármagn til að greiða verð sem alltaf væri að hækka. Hann sagði að ekkert útlit væri fyrir að breyting til batnaðar væri í sjónmáli næstu 25 árin. Hann sagði að kannski væri átakanlegast að íhuga þá staðreynd, að matvælaframleiðslan í heiminum væri út af fyrir sig næg og allir ættu að geta fengið í sig ef horft væri einvörðungu á framleiðslutölur, en hins vegar væri víða' vitandi vits dregið úr framleiðslunni til þess að halda verðlaginu eins háu og unnt væri. Lausnin kynni að liggja í ví að reyna að efla atvinnuvegi og finna þar fleiri störf handa íbúum, ýta undir framleiðslu smábænda og vinna að bættum hag þeirra. Hann mælti og með því að erlend hjálp yrði stórkostlega aukin. Mexicoborit. 25. jan. AP. FULLTRÚI Mexicostjórnar, Flores Sanchez dómsmálaráð- herra, sagði í dag að 154 af 314 manns sem saknað hefur verið, hefðu látið lífið í átökum við lögreglu eða hermenn. Hann neitaði að fangar hefðu verið pyndaðir og að til væru leynifangelsi og ólöglegar fangabúðir. Hann sagði að þeir 160 sem ekki hefðu farizt í átökum við lögreglu væru annaðhvort látnir af öðrum ástæðum, sætu í fangelsi ellegar væru á flótta. Sanchez var að svara ýmsum alvarlegum ásökunum sem fram hafa verið settar í alþjóðlegri skýrslu þar sem talið er að alvarleg brot á mannréttindum hafi verið framin í Mexico. I skýrslunni er talið að töluvert sterkar sannanir hafi fundist fyrir því að líkamlegum og sálarlegum pyndingum hafi verið beitt við fanga og einnig að þar séu rekin eins konar leynifangelsi þar sem aðbúnaður fanga sé hinn ömurleg- asti. Flores Sanchez vék einnig að skýrslu Amnesty Int. frá 1977 þar sem mjög alvarlegar ásakanir koma fram á hendur Mexicostjórn að þessu leyti og sagði, að hún væri ekki á neinum rökum reist og talsmenn Amnesty hefðu lítið vitað um málið. Sanchez sagði að stjórnin liti svo á, að hún þyrfti aðeins að svara til um slíkt gagnvart mexikönsku þjóðinni og fráleitt væri að alþjóðasamtökum, páfanum eða öðrum kæmi málið við. 8 ára stjóm- arafmæli Idi Amins Nairobi 25. jan. — Router IDI AMIN forseti Uganda hélt í dag upp á að átta ár eru liðin síðan hann komst til valda. Hann sagði í ræðu sem hann flutti þjóðinni að hersveitir Tanzaniu- manna sem nytu stuðnings hvítra málaliða væru komnar fimm kílómetra inn í Úganda. Ilann rifjaði upp í ræðu sinni þegar hann náði völdum af Obote. en sagðist enn vera að velta því fyrir sér hvernig bezt væri að fara að því að brjóta Tanzaníumcnn á bak aftur í eitt skipti fyrir öll. Stjórn Tanzaníu sagði frá því í gærkvöldi að hún hefði skotið niður þrjár orrustuvélar frá Úganda rétt við landamærin. Það hefur ekki verið staðfest. Hins vegar ber öllum saman um að hátíðahöld Amins vegna afmælis hans hafi verið óinnblás- in og litlaus og mikil spenna ríki í landinu. 18 þúsund hvitir menn fluttu frá Ródesíu í f yrra Flugslys Algeirsborg. 25. jan. — AP. FJÓRTÁN manns fórust og tíu slösuðust í flugslysi í innanlands- flugi í Alsír í dag, skammt frá landamærum Marokkó. Vélin var tveggja hreyfla og með henni voru 25 farþegar. Ekki er vitað um orsakir, en mikið hvass- viðri var á þessum slóðum og stóð áttin af eyðimörkinni. Salisbury. 25. jan. — AP ÁTJÁN þúsund hvítir menn fluttu frá Ródesíu síðasta ár og er það mesti brottflutningur hvítra manna í þau sex ár sem liðin eru síðan skærur, deilur og væntanleg stjórn svertingja komst á dag- skrá þar fyrir alvöru. Hvítum mönnum í Ródesíu hefur á sl. ári fækkað um 5 prósent og er trúlegt að sú þróun haldi áfram. Hvítir menn i landinu eru nú 250 þúsund og er hlutfallið gagnvart svertingjum 1 á móti 27. Búizt er við því að svo geti farið að hvítum mönnum fækki svo að þeir nái ekki 200 þús. innan örfárra ára. Einnig kemur fram í skýrslunni að rúmlega fjögur þúsund hvítir innflytjendur hafi setzt að í landinu á árinu 1978 og er það langtum minna en árið 1977 þegar til landsins fluttust ellefu þúsund hvítir menn. félagið Dagsbrún stofnað 1906 — Skipaábyrgðarfélag Vest- mannaeyja (elzta starfandi tryggingafélagið) stofnað 1862 — Kvenfélagið Hringurinn stofnað 1904 — Vb. „Hulda“ frá Keflavík talin af (neitað um afgreiðslu í Reykjavík) 1932 — „Egill rauði“ strandar við Gramuhlið 1955 — „Kingston Peridot" ferst út af Axarfirði 1968 — f. Þorsteinn Gíslason 1867 — Valtýr Stefánsson 1893 — Friðrik Ólafsson 1935 — d. Eysteinn Erlendsson erkibiskup 1188 — Húsfreyjan í Bræðra- tungu sver af sér hórdómssakir 1702. Orð dagsinsi Umburðarlyndi er beztu trúarbrögðin — Victor Hugo, franskur rithöfundur (1802-1885). Sjöundi njósnarinn gómaður VesturBerlín 25. jan. Reuter SJÖUNDI njósnarinn hefur nú verið handtekinn í Vest- ur-Berlín í kjölfar flótta Aust- ur-Þjóðverjans þangað í íyrri viku. I fréttum er sagt, að maður þessi, sem var nú gripinn, hafi starfað í rafveituskrifstofu Vestur-Berlínar í nokkur ár. í gær voru tveir gripnir í Karls- ruhe eins og þá var sagt frá. Annar þeirra er blaðamaður við hið útbreidda þýzka blað Bild Zeitung. Veður víða um heim Akureyri -4 skýjaö Amsterdam 2 skýjaö Apena 15 bjart Berlín 0 bjart BrUssel 2 skýjað Chicago -5 bjart Frankfurt 2 snjókoma Genf 3 mistur Helsinki •5 snjókoma Hong Kong 21 bjart Jerúsalem 11 skýjaó Jóhannesarb. 24 sól Kaupmannah. -3 snjókoma Lissabon 12 rigning London 4 rigning Los Angeles 19 skýjaö Madrid 9 skýjaó Miami 26 bjart Moskva -16 snjókoma Nýja Delhi 23 bjart New York 1 snjókoma Ósló -7 bjart París 3 sól Reykjavík -3 léttskýjaó Rómaborg 13 skýjaó San Francisco 13 skýjað Stokkhólmur -5 skýjað Tel Aviv 11 skýjaö Tókió 12 skýjað Vancouver 5 skýjaó Vín 2 skýjaö Begin bjartsýnn Kaíró. 25. janúar. AP. Reuter. BEGIN forsætisráðherra ísraels sagði í dag að samkomulag milli Egypta og ísraelsmanna mundi nást um síðir. en það yrði að vera óháð viðbrögðum annarra aðila eins og t.d. Jórdaníu og Sýrlands. Alfred Atherton, sérlegur sendi- maður Carters Bandaríkjaforseta, kom í dag til Kaíró með nýjar málamiðlunartillögur Israels- manna, sem samdar voru á meðan hann dvaldi í Jerúsalem undan- farna daga. Atherton átti þriggja stunda fund með Boutros Ghali utanríkis- ráðherra Egyptalands, þar sem skipzt var á skoðunum, en hvorug- ur vildi láta uppi eftir fundinn, hvað þeim hefði farið í milli í smáatriðum. Að því er næst verður komist er nú fyrst og fremst reynt að ná samkomulagi um það hvort samningsuppkast það sem fyrir liggur skuli ryðja úr vegi samningum, sem Eg>fptar hafa gert við önnur Arabalönd, en ísraelsmenn hafa haldið því ákveðið fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.