Morgunblaðið - 26.01.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
13
Jónas Pétursson fyrrv. alþm.:
99
Reiður ertu nú sonur minn
99
Svo mælti Rannveig á Hlíðar-
enda við Gunnar son sinn eitt sinn
er hann tók atgeir sinn og söng
hátt í vopninu.
Ég var niðri á loftinu hérna við
Lagarfljótið í dag og heyrði þá
tilkynningar í hádegisútvarpinu —
enn heyri ég, — ef einn og
ótruflaður. Dundu þá í sífellu
tilkynningar stjórnmálaflokka um
fundi þar og fundi hér — í dag, í
kvöld og á morgun. Kom þá allt í
einu í huga minn þessi setning úr
Njálu. En hvers vegna nú?
Kosningasumar er nýliðið og ný
ríkisstjórn kom eftir langt þóf og
hefir starfað um skamma hríð.
Stjórn, sem almennt var talið að
hlyti að koma er úrslit kosning-
anna lágu fyrir. Slík stjórn hafði
Bræðrafélag
Garðakirkju
tíu ára
Næstkomandi sunnudag, 28. jan.
mun Bræðrafélag Garðakirkju
minnast tíu ára afmælis síns með
hátíðafundi á Garðaholti að lok-
inni Guðsþjónustu í Garðakirkju.
Félagið var stofnað 1968 í
nóvember og hefur æ síðan stutt
drengilega kirjulegt starf í Garða-
sókn, en hæst ber byggingu hins
nýja safnaðarheimilis, sem nú er
risið. Þar hafa félagar lagt að
mörkum mjög mikið starf.
Formenn félagsins hafa verið
Kristján Fr. Guðmundsson, Einar
Guðmundsson, Matthías Gíslason,
Jón Bárðarson, Magnús S.
Magnússon og núverandi for-
maður er Benedikt Björnsson.
Hann mun minnast þessara tíma-
móta á afmælisfundinum, en auk
þess mun Jón Sigvaldason sýna
litmyndir úr Kínaferð og Bill Jón
Hólm, ungur háskólakennari frá
Minneota í Minnesota mun flytja
kveðjur frá íslendingum á þessum
slóðum, en Bill er alíslenskur og
þekktur fyrir góða sönghæfileika
og auk þess er hann skáld gott.
(Fréttatilkynning).
beggja
hliða
verið krafa kjósendanna. En mér
fannst vera vopnagnýr í þessum
látlausu tilkynningum í útvarpinu,
sem ekki ætti að heyrast svo að
segja í upphafi stjórnarsamstarfs
— ekki sízt séð í ljósi þeirrar
niðurstöðu er kosningarnar skil-
uðu.
Vopnagnýr í fjölmiðlum er
tæpast undrunarefni þegar kjör-
tímabilinu er að ljúka. En nú eru
hér einhverjir alvarlegustu tímar,
sem stjórnmálamenn og alþingis-
menn ættu að líta alvarlegum
augum. Tímar sem krefjast að
vopn séu slíðruð og bökum snúið
saman til að ráða bót á ástandinu
— kröfuþjóðfélaginu. sem allir
stagla með orðinu verðbólgu.
Miklu betur lýst með gömlu,
rómversku orðunum: Brauð og
leikir.
Stjórnarkreppa væri enn nýtt
heimilisböl og þungt, sem á dögum
Brynjólfs biskups.
Við tvær síðustu Alþingiskosn-
ingar skeði mikil efnahagsógæfa
vegna langtíma óstarfhæfis á
Alþingi. Að efna nú enn til slíkrar
stöðu ætti ekkert heiti frekar
skilið en landráð.
Hvað á að uppskera með nýjum
kosningum? Halda sjálfstæðis-
menn að þeir hafi stækkað eða
batnað í augum þjóðarinnar á
þessum fáu mánuðum? E.t.v. en
væri þá ekki von meiri við lengri
setu þessarar stjórnar? Eða er hún
að gera of gott?
En framsóknarmenn? Jafnvel
efast ég um að augun hafi opnast
enn á þeim nytsömu sak-
leysingjum hér á Austurlandi, sem
kusu Alþýðubandalagið. En þetta
er ekki málið. Heldur hitt að þessi
ríkisstjórn verður að gegna skyldu
sinni og sýna hvað hún getur.
Þjóðin óskaði eftir henrti, og hvort
sem hún gerir gott eða illt, er hið
skemmsta að hún ríki 10—12
mánuði. A þeim tíma mætti
einhvern dóm byggja — og ein-
hvers árangurs mætti vænta í að
stöðva smækkun okkar litlu krónu.
Jónas Pétursson
Kjósendur eru áttavilltir enn.
En skelli kosningar yfir vegna
stjórnarkreppu yrði forseti vor að
skipa stjórn á meðan, sem
stjórnaði.
Sýningu
Guðbergs
að Ijúka
SÝNINGU Guðbergs Bergssonar í
Suðurgötu 7 lýkur á föstudags-
kvöld kl. 10. Sýningin hefur verið
ágætlega sótt og Guðbergur hefur
selt nokkur verk.
'm aF9
afborgunárskilmálar
á Kanaríevjaferðum
25% út
og eftirstöóvar á
5 mánuóum
Kíktu inn til okkar
og kynntu þér
Kanaríeyjafeió á kostakjörum
FLUCFÉLAC LOFTLEIBIR URVAL LANDSYN ÚTSTTN
/C/á Lækjargötu 2 og Hótel Esju
' aL/i/fí/a Sími 27800.
v/Austurvöll
Sími 26900
Austurstræti 12
Sími 27077
Austurstræti 17
Sími26611