Morgunblaðið - 26.01.1979, Síða 11

Morgunblaðið - 26.01.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979 1 1 Sex milljón Bandaríkja- menn undir tvítugureykja LANDLÆKNIR Bandaríkj- anna. Julius B. Richmond. hefur lagt fram skýrslu um reykingar sem unnið hefur verið að undanfarin ár. en þetta er 1200 blaðsíðna skýrsla þar sem m.a. er staðhæft að reykingar valdi lungnakrabba- meini. hjartaáfalli og mörgum öðrum sjúkdómum. Skýrslan er sögð mun ákveðnari en sú er kynnt var árið 1964 og nær hún að þessu sinni yfir 30.000 rannsóknir er fjalla um þjóð- félagsleg. sálfræðileg. líffræði- leg og heilsufræðileg áhrif reykinga á manninn. Þá er í henni varað ákveðnar en áður við reykingum meðal þungaðra kvenna þar sem þær eru taldar hafa skaðleg áhrif og valda ungbörnum erfiðleikum í uppvextinum. Tóbaksframleiðendur hafa andmælt skýrslu þessari og telja hana ekki gefa rétta mynd af áhrifum reykinga en and- reykingamenn hafa hins vegar sagt að þeir álíti hana ekki ganga nógu langt. I skýrslunni kemur fram að reykingar hafi aukizt úr 8,4% í 15,3% meðal ungra kvenna, nokkuð minnkað hjá karlmönnum, en staðið mikil til í stað hjá eldri konum. Meðal staðhæfinga skýrslunn- ar er að þeim er vinna við asbest-, gúmmí-, úran- og önnur efnaiðnaðarstörf og reykja, sé 90 sinnum hættara við lungna- krabba, að kyrrsetu- eða skrif- stofumenn reyki meira en t.d. verka- og iðnaðarmenn, að reykingar 12—14 ára stúlkna hafi áttfaldast árin 1968—1974, sex milljónir Bandaríkjamanna undr tvítugu reyki þar af 100.000 undir 12 ára, og að 54 milljónir Bandaríkjamanna reyki og hafi 75% þeirra hafið reykingar fyrir 21 árs aldur. Reykingar hafa minnkað nokkuð síðustu árin sögðu starfsmenn heilbrigðisyfirvalda Bandaríkjanna þegar þeir kynntu skýrsluna fyrir frétta- mönnum og segja að það megi rekja til aukins fræðslu- og áróðursstarfs og að menn séu sífellt að verða sér þess meira meðvitandi hversu reykingar séu hættulegar heilsufari. Reykingar meðal fullorðinna í Bandarikjunum eru sagðar minni í janúar 1979 en nokkru sinni áður frá því að athuganir hófust árið 1955 og sögðu starfsmenn heilbrigðisyfirvalda að slíkt benti ótvírætt til þess-að fólk andæfði, sérstaklega þegar það væri haft í huga hve erfitt mörgum reyndist að hætta. Mjög miklu fjármagni hefur verið varið til þessara rannsókna og verður auknum fjárveitingum haldið áfram á næsta ári. Meira yrði auglýst í sjónvarpi, farið yrði þess á leit við opinbera aðila að reykingar yrðu bannaðar í opinberum byggingum, að tryggingafélög lækkuðu iðgjöld til þeirra er ekki reyktu, en það hafa 30 slík fyrirtæki þegar gert. * nieti fahbÍt Stakir tu Lee Coop riffíuði „fj^ skyrtu, * Leð,.f:^r/eSU úrr Jdnúar 17,000.- 15,000.. ■Jakkar. Ath! Opiö laugardag fyrir hádegi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.