Morgunblaðið - 26.01.1979, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1979
Greinarnar. sem hirtust í Mhl. síðast í desemher um líkklæði Krists
hafa vakið athyKli marj?ra. ok nú hefur Launaráshíó undanfarna
lau«ardajía sýnt kvikmynd. sem hyjíjjó er á sömu rannsóknum oj?
jjreinarnar. — Myndin hér aó ofan er úr kvikmyndinni. sem sýnd er
kl. 3 á lauKardiij'um.
Lítiðtil beggja
Utsölumarkaður
IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG
Þarf að setja lögbann
á Reykjavíkurmótið?
Yfirlýsing frá fulltrúum tveggja bridgefé-
laga í stjórn Bridgesambands Reykjavíkur
Kemur nú aftur að upphafs-
spurningunni:
Þarf að setja lögbann á Reykja-
víkurmótið?
Þeir bridgespilarar sem lesa
bridgeþætti blaðanna, hafa að
undanförnu lesið í fréttum að nýtt
og líklega betra snið eigi að verða
á væntanlegu Reykjavíkurmóti í
sveitakeppni. Þessum fréttum
hefur síðan fylgt upptalning á
hverjir séu fulltrúar hinna ýmsu
félaga í stjórn Reykjavíkursam-
bandsins og um leið er gefið í skyn
að líklega standi allir þessir
fulltrúar að baki þessum breyting-
um. En er svo? Til þess að útskýra
fyrir iesendum hví slíkir hlutir
hafi ekki verið afgreiddir með
einfaldri atkvæðagreiðslu í stjórn
Reykjavíkursambandsins þarf
stutta sögu!
Fundur var haldinn í stjórn
sambandsins áður en undan-
keppnir hófust í Reykjavíkurmóti í
tvímenning. Var það um mánaða-
mót október, nóvember. Á þeim
fundi voru helstu línur lagðar um
framkvæmd tvímenningsins, en
auðvitað var gert ráð fyrir að 2—3
fundir yrðu haldnir fram að
úrslitum.
Svo fór þó ekki. Hátt-
virtur formaður sambandsins
leyfði sér að hunza aðra stjórnar-
menn og tók einn allar ákvarðanir
sem snertu Reykjavíkurmótið. Það
gerði hann með þeim einfalda
hætti að kalla ekki saman fund í
stjórn sambandsins. Aðrir
stjórnarmenn reyndu að koma
saman löglegum fundi, vikuna
fyrir úrslit en formaður brá fyrir
sig óvenjumiklum önnum og varð
ei af fundi. Öðrum stjórnarmönn-
um tókst þó á síðustu stundu, með
því að hringja sig saman, að koma
í veg fyrir ýmis tæknileg mistök
hvað varðar úrslitakeppnina, þ. á
m.: staðfestingu reglugerðar,
skipun dómnefndar, hækkun
keppnisgjalda. Því miður tókst
þeim ekki að koma í veg fyrir
mistök formanns hvað varðar
auglýsingar á tímasetningu
mótsins, til þess vannst ekki tími.
Enda er skylt að geta þess að þau
mistök liggja hjá formanni en ekki
ráðsmanni Hreyfilshúss. Því
miður urðu þessi mistök til þess að
eitt af okkar bestu og þekktustu
pörum varð að hætta keppni. Þau
mistök verða ekki bætt.
Nú fóru úrslit fram, desember-
mánuður leið og miður janúar og
þá fyrst kallar forraaður saman
fund. Sá fundur var ekki haldinn,
þó ekki vegna formanns í þetta
sinn, heldur vegna þess að þrír
stjórnarmenn af fimm, sýndu í
verki hug sinn til þessa skrípa-
leiks, sem þeim fannst vera
viðhafður gegn sér, og mættu ekki.
Nú er það lögbundin regla að til
þess að stjórnarfundur sé lögmæt-
ur í stjórn sem þeirri og hér um
ræðir, þurfa allir stjórnarmenn að
vera boðaðir á fund og meirihluti
að mæta. Þaraf leiðir að löglegur
fundur hefur ekki verið haldinn í
stjórn sambandsins frá mánaða-
mótum október, nóvember.
Til að breyta keppnistilhögun
Reykjavíkurmóts þarf a) sam-
þykki stjórnar sambandsins fyrir
slíkum breytingum b) samþykki
formanns félaganna fyrir hinni
nýju skipan.
í því tilfelli sem hér um ræðir
hefur hvorugu atriðinu verið
fullnægt, en þrátt fyrir það leyfir
háttvirtur formaður sér að aug-
lýsa nýja skipan, og bendla
nöfnum annarra stjórnarmanna
við þær breytingar að þeim
forspurðum.
Einnig skal þess getið að til þess
að mót sé löglegt sem Reykja-
víkurmót þarf stjórn sambandsins
að hafa ákveðið það mót. Það mót
sem nú er auglýst sem Reykja-
víkurmót með upphafstíma 27.
janúar 1979 er bundið einhliða
ákvörðunum Ólafs Lárussonar og
er þar af leiðandi ekki lögleg sem
Reykjavíkurmót nema löglegur
fundur verði haldinn í stjórn
Reykjavíkursambandsins sem
leggi blessun sína yfir mótið.
Til viðbótar: Formaður hefur
auglýst upp mótið yfir þrjár
helgar. Samkvæmt heimildum frá
ráðsmanni Hreyfilssalar er að
undantekinni upphafshelginni um
að ræða aðra tímasetningu en
auglýst hefur verið. Vonandi munu
þau mistök ekki kosta tapaðar
sveitir.
Að lokum: Undirritaðir full-
trúar í stjórn Bridgesambands
Reykjavíkur ætla ekki að leggja
dóm á gjörðir Ólafs Lárussonar
sem formanns stjórnar B.S.R. Við
ieggjum spilin á borðið og eftirlát-
um öðrum allar niðurstöður. Samt
álítum við að sú spurning hljóti að
verða knýjandi fyrir spilara hvort
það Reykjavíkurmót sem þeir eru
að skrá sig í, sé löglegt. Vonandi
grípa einhverjir í taumana áður en
keppni hefst; einstakir spilarar
með lögbann, formenn félaganna,
stjórn Bridgesambands íslands, til
þess eins að tryggja að þegar
spilamennska hefjist á laugardag
verði um að ræða löglegt mót sem
haldið verði með þeirri reisn sem
Reykjavíkurmót á skilið.
Rvk. 23. 1. ’79
Guðlaugur Karlsson BDB
Sigurjón Tryggvason BBII
OPIÐ TIL KL: 7 í DAG
OG 9—12 Á MORGUN
Verö kr. 11.900—
Verö kr. 2.200— Verö kr. 10.900— Verö kr. 14.900
Verö kr. 10.900
Sendum i postkröfu
Sími 15425 — 28550
VINNUFATABUÐIN