Morgunblaðið - 26.01.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANUAR 1979
29
hátt svo hann yrði spakur. Þar er
lítið gert til að lækna sjúklingana,
þeir eru bara taldir geðveikir og
búið.
Nei, ég held að bæði landlæknir
og allir aðrir sem hlut eiga aö máli
ættu að samgleðjast ef sjúkur
maður læknast á hvaða hátt sem
er.
Ilenrik Jóhannesson. Sandgerði.
• Menning
eða ekki?
Eg held ég mæli fyrir munn
margra þegar ég leyfi mér að bera
af mér Svía hatrið. Það hefur verið
sagt um okkur sem gagnrýnt
höfum bókina Félagi Jesús að við
höfum verið að svala Svía hatri,
kommúnistahatri og jafnvel
mannhatri yfirleitt. Svona
sleggjudóm er ekki hægt að bera á
borð fyrir nokkurn. Ég er uppalin
við Bellmanssöngva, Selmu Lager-
iöf og fleira sænskt góðgæti og er
það allt annað en þessi menn-
ingarþvæla sem fjölmiðlarnir
segja manni að sé sænsk og
sleitulaust er troðið upp á saklaus-
an almenning. Ég veit fyrir víst að
þetta fer alveg eins í taugarnar á
sænsku þjóðinni eins og okkur.
Tökum t.d. sænsku sjónvarps-
myndina sem sýna átti lífið í einu
Eystrasalts-landanna. Hver á yfir-
leitt að sýna slíka mynd. Svíarnir
eru búnir að taka á móti svo
mörgum flóttamönnum þaðan að
þeir ættu ekki að hafa ánægju af
því. Ekki er hægt að láta leppríki
horfa á þessa dýrð, því þau bera
þetta saman við sína eigin þjóð.
Kannski er þetta gull í hinni
svörtu Afríku, en ég veit ekkert
um þeirra sjónvarpsstöðvar.
Kommúnistahatrið tek ég til
mín en ef það á að sýna sérstakt
mannhatur, að kenna í brjósti um
þjóðir sem lifað hafa Stalíns-tím-
ana og svo í dag fangabúðirnar og
allan skortinn, þá skal óg lifa allt
út til enda og vera kölluð mann-
hatari. Það er ekki hægt að kenna
heilli þjóð um glæpi Stalíns og
aðrar stjórnaraðgerðir sem enn
eru hafðar í frammi í nafni
sosíalismans og flestar eru ekki
mannlegar.
Húsmóðir.
Til eftir-
breytni
Fyrr á árum Ríkisútvarpsins
var ævinlega örlítil þögn er sagt
hafði verið frá dauðaslysum. Það
var þó aldrei gert fyrr en hægt var
að birta nöfn hinna látnu.
Þegar sjónvarpið sagði frá
leitinni að rækjubátunum sem
týndust frá Húsavík, framhaldi
leitarinnar og líkur þess að
áhafnirnar væru á lífi voru nöfn
mannanna að sjálfsögðu ekki
nefnd. (Hér er átt við fyrstu fréttir
sjónvarpsins af hvarfi bátanna).
En þulurinn talaði á svo þýðan
hátt að samúðin með aðstandend-
um mannanna var augljós. Þetta
vona ég að sjónvarpið og hljóð-
varpið taki til eftirbreytni fram-
vegis og haldi áfram að hafa
stutta þögn er nöfn látinna manna
eru lesin.
Karl Helgason.
Þessir hringdu . .
• Meginregl-
an er að
hljóðsetja
Björn Baldursson starfs-
maður sjónvarpsins hringdi vegna
greinar í Velvakanda 23. janúar
s.l.
„Meginreglan er sú að hljóðsetja
erlendar fræðslumyndir sem
sýndar eru í Sjónvarpinu. Af
tæknilegum ástæðum er stundum
ekki um annað að ræða en texta
myndir þ.e. þegar rödd erlends
þular er á sama tónbandi og hljóð
sem myndinni fylgja. Loks skal
bent á að það er ákaflega lítill
sparnaður í að sýna myndir með
textum eingöngu.“
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á heimsmeistaramóti unglinga-
sveita í Mexíkó í sumar kom þessi
staða upp í skák þeirra
Federowicz, Bandaríkjunum, og
Sunye Neto. Brasilíu, sem hafði
svart og átti leik.
40. - Hd3+! 41. Kxd3 - Bxf3
(Hvítur verður nú að gefa annan
hrók sinn fyrir h peð svarts og er
þá heilum manni undir. Lokin
urðu: 42. Ifafi - h2, 43. Ha7+ -
Kf8. 44. Ke3 - Hg8! 45. e6 -
Hgl og hvítur gafst upp.
HÖGNI HREKKVÍSI
Egill Þorfínnsson:
íran og
keisarinn
& SIG6A V/öGA l iiLVttAU
WtffiA •3tfTA\\lfe9lNG\!
Wttt íg ‘bé <böm AW /$-
ÉG m K0V//A/AI \ ^OYtM Yltf,
a mo mrní
Eftir að hafa lesið grein um íran
í Morgunblaðinu síðastliðinn
láugardag sem var eftir Stefán
Snævarr, sá ég að hann virðist
ekki vita nóg um Iranskeisara, til
þess að skrifa grein um hann, því
að hann segir ekki alveg rétt frá og
gerir keisarann miklu verri en
hann er. Hann segir í grein sinni
að þegar Mossadeq var forsætis-
ráðherra, þá hafi keisarinn flúið
til Sviss en það er ekki rétt, hann
flúði til Iraks og þaðan til Rómar.
Hann talar um leyniþjónustuna
SAVAK, sem eitthvert einkafyrir-
tæki, sem keisarinn stjórni eftir
sínu eigin höfði og noti ti!
allskonar glæpaverka, t.d. að ryðja
þeim úr vegi sem keisaranum er
illa við. Hann talar bara um ókost
keisarans og hvað hann er hræði
legur harðstjóri. En hann hefur
marga kosti, sem Stefán virðist
ekki vita um og Stefán talar um
glæpáverk keisarans, en talar ekki
um glæpaverk andstæðinga hans.
Ég skal nefna eitt dæmi. Stefán
segir: Pyntingameistarar írans-
keisara skirrast ekki við að
misþyrma börnum. En 19. ágúst
síðastliðinn, brenndu andstæðing-
ar keisarans 377 manns inni í
kvikmyndahúsi og voru þar konur
og börn í miklum meirihluta.
Þetta virðist Stefán ekki hafa séð,
en ef stuðningsmenn keisarans
hefðu gert þetta þá hefði hann séð
þetta og skrifað um það.
Hann segir að keisarinn sé einn
af ríkustu mönnum í heimi, það er
rétt. En hann rómar og dásamar
Mossadeq og talar um hvað hann
hafi ætlað að gera fyrir írönsku
þjóðina, hann minnist ekki á hvað
keisarinrt hafi gert fyrir þjóðina.
Og því má skjóta hér inn í að
Mossadeq var ríkari en keisarinn
og Mossadeq og klerkastéttin voru
stærstu landeigendurnir. En ekki
datt Mossadeq í hug að skipta
þessum jörðum á milli fátækra
leiguliða. Keisarinn gerði það og
þegar því var lokið höfðu 15
milljónir bænda eignast sínar
eigin jarðir. Keisarinn er kannski
óvæginn nokkuð en það verður
hann að vera og hann líður engum
að koma í veg fyrir áætlanir sínar,
en því miður eru margir sem hafa
reynt það.
Keisarinn hugsar lengra en þeir
þjóðhöfðingjar, sem stjórna
miklum olíuríkjum, hann veit að
þegar olían verður búin verður
mikill hluti þjóðarinnar atvinnu-
laus. Hann vill iðnvæða landið og
eyðir óhemju fé í það, hann vill
koma landinu í vestrænt horf,
hann fær menn aðallega frá U.S.A.
til þess að leiðbeina þjóðinni og
skipa henni á bekk menningar-
þjóða.
Nú sjá klerkarnir að þeir eru að
missa tök sín á fólkinu, sem þeir
hafa stjórnað í áldaraðir og notað
sér fávisku þess. Þeir skilja ekki
að þjóðin vill fylgja nútímanum.
En nú hafa þeir haft sitt fram með
því að æsa fólkið upp gegn
kejsaranum og hrakið hann úr
landi. í rauninni fylgir fólkið
klerkunum í blindni, það veit ekki
hvernig það er að lifa eftir
Egill Þorfinnsson
Kóraninum. Klerkarnir vilj;
meðal annars banna kvikmynda
hús, vín, alla afþreyingarskemmt
un og kvenmenn mega ekki ak
bílum og það má ekki sjást í andli
þeirra úti á götu. Þetta er vilj
þeirra sem æsa fólkið upp geg)
keisaranum.
Stefán segir: Það ógeðslegast
sem ég hef lesið er meðfer
SAVAK á föngum. En hann hefu
víst ekkert lesið um CIA og KGE
Hann heldur Sovétríkjunum uta:
við þetta eins og hann sé að hlíf
þeim en þau eiga drjúgan þátt
óeirðunum, sem verið hafa í Ira
og t.d. fannst vopnabúr við landa
mæri Rússlands í Iran me
rússneskum vopnum og var það
eigu andstæðinga keisarans
Stefán segir að lokum: Ég vona a
grein mín verði til þess a
fréttamiðlun af ástandinu í Ira
skáni eitthvað. En hvernig á svo a
geta verið þegar maður fær bar
að vita hálfan sannleikann.
Egill borfinnsson.
Lítið
barn
hefur
lítið
sjónsvið
íg iw 6ó/na/A9 stowta mrömk
wmr mannswm wérna allt
VRA WHWL mtfbTJÓM woz \ Ó- z
KytmiLiéouo