Morgunblaðið - 11.02.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979
7
HUG-
VEKJA
eftir séra
Jón Auðuns
Höldum áfram frá
síðasta sunnudegi með
líkingu Krists af mustarðs-
korninu og sáðmanns-
starfi. Hvað mundi blasa
við, mættum við
skyggnast um í hugar-
heimi sjálfra okkar:
Garður fullur af margvís-
legum gróðri og honum
óvæntum á marga lund.
Hverjir höföu verið hér að
verki? Hverjir höfðu hinir
óvæntu sáðmenn veriö?
Alla ævi eru áhrif frá
öðrum aö seytla inn í sál
okkar, sum af því aö við
viljum þau, önnur án þess
við vitum, og þó vaxa þau
fræin engu síöur en hin,
sem sótzt var eftir.
Allir erum við sáðmenn,
stundum vitandi vits,
áróðursmenn, en stundum
án þess við gerum okkur
þess grein. En uppskeru-
tíminn kemur, ávöxturinn
kemur í Ijós. Þorst.
Erlingsson kvað um þá,
sem sáð hföðu í sál hans á
yngri árum:
„Ég veit þó sitt bezta
hver vinur mér gaf,
og viljandi blekkti mig
enginn,
en til þess aö skafa það
allt saman af
er ævin að helmingi
gengin."
Sú er reynsla margra á
efri árum, þegar litið er um
öxl yfir málefni og menn af
meiri rósemi, meiri
skilningi en fyrr, en á ári
sem barninu skal helgað,
er sérstök ástæða til að
gefa þessu gaum.
Þú kannt að vera
trúgjarn á yngri árum og
áhrifagjarn. Barnssálunni
er oft og með réttu líkt við
vorjörðina, gljúpa og mót-
tækilega, og greiðari leið
finna frækorn annarra,
áhrif annarra að henni en
hugskoti þeirra, sem
fullorðnir eru og reynsla
hefir kennt að vera á
verði, ekki síður gegn
þeim sem þeir bera góöan
hug til en hinna, sem þeir
gruna um græsku.
Rennum hug að
heimilunum, þar sem börn
eru að alast upp, fyrst og
fremst að þeim. Meöan
börn eru lítil, áður en þau
eignast daglega félaga
utan heimilisins, mótast
þau af heimilinu mest.
Ríkir ekki of víða á heimil-
unum það andrúmsloft,
sem skaðar börnin svo að
þau bíða þess aldrei
bætur?
Svo er víða því ekki til
að dreifa að foreldrar móti
heimilin þegar báöir for-
eldrar vinna fullan vinnu-
dag utan heimilisins og
koma svo þreytt frá vinnu-
deginum heim, aö þau
geta ekki lifað verulegu
samfélagslífi með börnum
sínum. Mér rann oft til rifja
þegar ég spurði
fermingarbörnin um starf
móöur þeirra og þau
sögðu næstum feimnis-
lega: „Mamma er bara
húsmóðir.“ Bara
húsmóðir! Á því er
blygðunarlaust þrástagast
að þjóðfélagið, „vinnu-
markaðurinn" þurfi
nauösynlega aö kalla
mæðurnar frá heimilun-
um, börnunum, til aö auka
„hagvöxt“ fólksins í land-
inu. Víst veit ég að vegna
dýrtíöarflóösins er afkoma
margra heimila svo erfið,
aö full þörf er þess aö
móðirin vinni úti. En jafn-
vel veit ég hitt, aö margar
mæöur vinna utan
heimilisins allan daginn
vegna þess að lífskröfurn-
ar eru óheilbrigðar og
unninn er hóflaus vinnu-
eru af kynofsa, allskonar
siöleysi, moröum og of-
beldi? Það er vissulega
lofstvert aö seðja hungruð
börn og lækna þau af
líkamsmeinsemdum. En
börn eru víöar en í van-
þróuðum löndum, og lofs-
vert væri ekki síður aö
hafizt væri handa um að
vernda þau fyrir látlausum
straumi óþverra, sem yfir
þau er hellt í svonefndum
siðuöum heimi. Og hver
áhrif hefur þaö á ungling-
ana að lesa, heyra og vita
að margskonar forsmán,
glæpir og margt, sem
jaðrar viö glæpi þrífst í
óhugnanlegum mæli í
þeirra eigin þjóöfélagi?
Ekkert væri veröugra
viðfangsefni á ári barnsins
en aö gefa því sem skýr-
asta mynd af kenningu
Krists og honum sjálfum.
Hvernig rækja heimilin
þaö hlutverk, — og
skólarnir? Leita heimilin
þess ? Er sú fræðsla í
höndum kennara, sem
Sáðmenn
Ar barnsins
dagur utan heimilis til
þess að afla heimilinu
þeirra hluta, sem hver
heilbrigður maður veit, að
lítilsvirði eru hjá því, aö
foreldrarnir geti lifað eðli-
legu samfélagslífi með
barninu heima. Ég veit líka
þaö, að margar mæður
myndu kveðja „vinnustað-
inn“, ef þeim væri Ijóst
hverju þær svipta börn sín
meö því að láta þau fara á
mis viö daglegar samvistir
við sig.
Sáömenn í stórum stíl
eru fjölmiðlarnir meö sínu
sefjandi valdi. Þaö er
býsnast mikið yfir óþverra,
sem sjónvarpið flytji inn á
heimilin og oft með þeim
fyrirvara aö myndin sé
ekki ætluð börnum, sem
vitanlega orkar öfugt á vel
stálpuð börn. Tímar hafa
breytzt og börn ekki síður
en fullorðnir. Vindhögg og
annað ekki væri það aö
sýna þær glansmyndir af
lífinu, sem ég og jafnaldr-
ar mínir ólumst upp viö.
En þarf munurinn aö vera
eins mikill og er á þeim og
þeim myndum, sem sjón-
varp og aörir fjölmi^ar
sýna og fjöldi barna og
unglinga horfir á og fullar
verðugir eru þess, sem
þeim er trúað fyrir?
Foreldrar, sem hafa
viljað leysa af hendi þetta
hlutverk, hafa sagt mér frá
sárum vonbrigðum, að
sáðmannsstarf þeirra hafi
ekki boriö þann ávöxt í
barninu, sem þeir þráðu.
„Sæðið grær og vex,“
sagði Kristur. í undirvit-
und, sálardjúpum
barnsins lifir fræiö og ber
ávöxt þótt jarðnesku árin
leiði hann ekki í Ijós og
foreldrarnir hverfi svo af
þessum heimi, að þau sjái
ávöxtinn ekki. En hver
sem sáir þeim fræjum,
sem Kristur fær okkur
öllum í hendur, er ekki aö
sá fyrir jarðnesku árin ein,
heldur einnig fyrir „eilífa
tíð“. Árin líöa, líða fljótt og
í eilífð Guðs verður
frækornið aö miklum
meiði þótt okkur skamm-
sýnum virðist það hafa
kulnaö og dáið.
Lofsvert er að bæta
skortinn, seðja hungruð
börn, og lækna þeirra
líkamsmein, en það eitt
skapar ekki betri þjóð,
betri heim, ef barnssálin
gleymist á sjálfu ári barns-
ins — barnssálin og Krist
ur.
■
P
r
V búoin
Skipholti 19
Sími 29800
27 ár í fararbroddi
Vatnsþéttur
krossviður
af öllum geröum og þykktum.
Mjög hagstætt verö.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Öllum þeim, ættingjum, lögmönnum og öörum
vinum, sem heiðruðu mig með heimsóknum og
gjöfum á sjötugs afmæli mínu, 25. jan. s.l. færi ég
mínar innilegustu þakkir.
Jón N. Sigurdsson,
hæstaréttarlögmadur.
' *....... ..............C
Það bezta í bænum
ÞORRABAKKAR
Útbúum þorramat í hverskonar veizlur
og mannfagnaði.
Á þorrabakkanum okkar eru 17 mismun-
andi tegundir af úrvals þorramat.
Komið og reynið.
Stjórnunarfélag íslands Ék
Efnahagsmál
Dagana 19., 20. og 21. febrúar efnir Stjórnunarfélag
íslands til námskeiðs um efnahagsmál. Námskeiðið
verður haldið að Hótel Esju og stendur frá kl. 15—19
dag hvern.
Á námskeiöinu verður
gefiö yfirlit yfir helstu
þjóðhagsstærðir. Fjallað
verður um samhengi
hinna ýmsu stærða,
áhrif opinberra
aðgerða og einnig
verða skilgreind
helstu þjóðhagfræði-
hugtök. Meðal máms-
gagna er bókin „Efna-
hagsmál" sem nýlega
kom út hjá A.B.
Leiöbeinendur veröa Ásmundur Stelánsson hagfræðingur og dr.
Þráinn Eggertsson hagfræöingur, en eins og kunnugt er önnuðust
peir gerð sjónvarpspátta um efnahagsmál sem sýndir voru á
liönum vetri.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, Skipholti 37, sími
82930.