Morgunblaðið - 11.02.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.02.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 fUínrgjn Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjórn og afgreiósla Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480. Áskriftargjald 2500.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakiö. ess er nú minnzt, að 800 ár eru frá því snjallasti rithöfundur og sagnfræðingur íslands- sögunnar, Snorri Sturlu- son, fæddist. Hann er „réttan“ hátt, þ.e. að mið sé vandlega tekið af marxistískri tízkustefnu samtímans. Morgunblað- ið vill hvetja marx-leninista í kennara íslenzku fornritunum að nemendum sínum, hvorki íslendinga sögum né kon- ungasögum. Þetta væru yfirstéttarrit, skrifuð af höfðingjum og þeir einir, sem hefðu átt a.m.k. stórt hundrað kálfa, hefðu haft efni á því að rita eina sögu forna á bókfell. Innrætingin ætti að taka mið af alþýðufróðleik og öreigabókmenntum, en ekki klassískum ritum íslenzkrar höfðingja- stéttar. Voru kennarar áminntir um að vera vel á verði! En þá brá svo við, að að svara að engum hefur dottið þetta í hug fyrr. Jón Leifs sagði á sínum tíma í samtali, sem birt- ist hér í Morgunblaðinu: „Listin er aristókratísk. Hún getur ekki dafnað, nema það sé auðvald á bak við hana. Það sýna fornar bókmenntir okkur. Þær hefðu aldrei verið skrifaðar, ef ekki hefði staðið sterkt auðvald á bak við þær. Það þurfti skinn af 120 kálfum til að skrifa á meðal sögu, hef- ur Jón Helgason prófess- orsagtmér.l20kálfar allt okkar stolt! Það var eng- að vera nú vel á verði gegn kapítalískri bók- mennt — og helzt að stinga ritum hans undir stól, svo að æskan fari nú ekki að álpast í þau. Eða — hvað sagði ekki Sig- urður Nordal í riti sínu um Snorra Sturluson? Hann sagði m.a.: „Það sem bezt er í íslenzkri sagnaritun er allt ritað af höfðingjum (leikum og lærðum) fyrir höfðingja." Og ennfremur: „Það er nauðsynlegt að hafa þetta sjónarmið í huga: að Snorri hefur engar mætur á því alþýðlega; Varið ykkur á Snorra! frægastur allra íslend- inga fyrr og síðar. Þykir því mikið við liggja að gera honum nokkur skil. Hans verður án efa ræki- lega minnzt í skólum landsins. Við skulum vona, að það verði gert á stétt til að detta nú ekki af línunni. Mikið er í húfi! Ekki alls fyrir löngu voru lærifeður hvattir til þess í forystugrein Mbl. að gæta sín vandlega á því að halda sig á línunni og fara nú ekki að halda blessaður Þjóðviljinn dró upp rykfallinn essa- yuræfil eftir Einar Olgeirsson, þar sem því er haldið fram í blákaldri marxistískri alvöru, að fornsögurnar séu alþýðu- bókmenntir. Þessu er til inn ölmusumaður, sem átti svoleiðis bústofn." Og til að bæta gráu ofan á svart og einnig til að halda 800 ára afmæli Snorra dálítið hátíðlegt — mætti enn áminna marxistíska kennara um grófa, barnalega, að hann er sífellt að gæta virðing- ar konunganna.“ Kennarar allra landa sameinist — í baráttunni gegn Snorra og öðrum kalkvistum íslenzkrar höfðingjamenningar! Rey kj av íkurbréf 10. febrúar Yfirburdir kristninnar I hugvekju sr. Jóns Auðuns sunnudaginn 2. júlí 1978 talaði hann um kristna trú og þá ábyrgð, sem fylgir kristinni kenningu. Hugvekjan er ekki sízt athyglis- verð fyrir þá sök, að í henni kemur fram, að „nálægt 50 af 60 kennara- efnum, sem eru að ljúka prófi frá Kennaraháskólanum neita að skila úrlausnum um kristindóm." Segir hann, að þetta hafi vakið undrun margra, enda sé hér alvörumál á ferð, eins og hann kemst að orði. Sr. Jón gerir kristindómsfræðsl- una og kennslumálin að umræðu- efni í þessari hugvekju sinni og vitnar í því sambandi í predikun sr. Hjalta Guðmundssonar, sem hann flutti í Dómkirkjunni fyrr á árinu. Sr. Hjalti sagði m.a.: „Mér fannst því mjög dapurleg frétt, sem ég sá í blaði í sl. viku og var á þá leið, að „yfirgnæfandi meiri- hluti þeirra 60 kennaraefna, sem útskrifast frá Kennaraháskóla íslands í vor hefðu skilað auðu á lokaprófi í kristnum fræðum. Að- eins 11 þreyttu prófin, hinir létu sér nægja að skila prófblaðinu með nafninu 'sínu einu,“ sagði blaðið. Þetta áttu að vera mótmæli gegn því, að einvörðungu séu kennd kristin fræði en ekki víð- tækari trúarbragðafræði." Bessí Jóhannsdóttir kennari, einn af varafulltrúum Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórn Reykja- víkur, skrifaði kjallaragrein í Vísi, Um pólitíska innrætingu í skólum, og segir þar m.a.: „Hvað finnst mönnum um það, þegar nemandi á grunnskólastigi á Stór-Reykjavík- ursvæðinu kemur heim til sín og spyr foreldra sína: „Af hverju eru vondu mennirnir, sem stjórna landinu, að ræna af okkur kaup- inu?“ Eða ungi kennarinn, sem var yfirlýstur kommúnisti og kenndi fermingarbörnum úti á landi einn vetur. Hann bað þá að rétta upp hönd, sem tryðu á guð. Síðan valdi hann einn úr hópnum, fékk honum krít, og sagði: „Teiknaðu hann þá á töfluna." Er þetta sú meðferð, sem við viljum að kristin trú fái í skólum landsins? Kristinfræði er ein mikilvægasta námsgrein grunnskólans. Þar lærir nemand- inn ekki samsafn þurra stað- reynda, heldur þann kærleika og þá mannúð, sem sízt má víkja á þeim tímum, þegar öfl mannfyrir- Iitningar og neikvæðni hafa náð tökum á alltof mörgum." Þessi orð félagsfræðingsins og kennarans eru íhugunarefni, ekki sízt í tengslum við þær fréttir, sem bárust af fyrrnefndum mótmælum Kennaraháskólanema. En kristin trú þarf enga sérstöðu. Hún er mikil af sjálfri sér og engin trúarbrögð komast í hálfkvist við kærleiksboðskap Krists né heldur þann siðalærdóm, sem felst í kristninni. Það er því ástæðulaust að óttast um kristna trú sé hún kennd í skólum landsins í ein- hverjum tengslum við önnur trú- arbrögð, svo mjög sem hún ber af þeim. En þá þurfa kennarar að vera á verði og koma boðskap hennar vel og hlutlaust til skila, svo að nemandanum megi auðnast að finna yfirburði kristinnar trúar og mannúðarstefnu hennar, eins og hún birtist í orðum og raunar öllu lífi og starfi meistarans sjálfs, en ekki í margvíslegum útlistun- um síðari tíma boðenda harla sundurleitra trúarsafnaða. Skilningur — ekki afkristnun Það var fróðlegt að kynnast öðrum trúarbrögðum en kristninni í kennslu sr. Jakobs Jónssonar í Menntaskólanum í Reykjavík á sínum tíma og engin hætta á því, að sú kennsla yrði til þess með neinum hætti að skyggja á þá kristnu uppfræðslu, sem nemend- ur höfðu hlofið í föðurhúsum, skólum og hjá prestum sínum. Kennaraefni eiga að sjálfsögðu að hljóta fræðslu í almennri trúar- bragðasögu og fá þannig undir- stöðu, sem nauðsynleg er til sam- anburðar í kennslu sinni. Það er rétt, sem sr. Jón Auðuns segir í fyrrnefndri hugvekju: „Sé rétt haldið á kennslunni, á fræðsla um önnur trúarbrögð að kenna mönn- um betur en ella að skilja og meta kristindóminn. Og mér er það kunnugt um kennara í kristin- dómsfræðum við eina æðstu menntastofnun þjóðarinnar, að honum var það starf fyrir ung- mennin hið ljúfasta og leiðin auðveld til að vekja áhuga þrosk- aðra nemenda á kristindómsmál- um, enda haldið af viti og víðsýni hleypidómalaust á kennslunni." Sá, sem kynnist Biblíunni ræki- lega, finnur, að hún er innblásin af anda, sem er manninum æðri og af sérhverri setningu Krists sjálfs sindrar það guðdómlega fyrirheit, sem er öllum fyrirheitum meira: að maðurinn standi í skjóli þess kærleiksríka guðs, sem himininn skóp og jörðina. íslenzka þjóðin þarf á þessum boðskap að halda, ekki síður en aðrar þjóðir heims. Nemendur Kennaraháskólans ættu að gera sér grein fyrir því, ekki síður en aðrir þeir, sem hafa fundið köllun hjá sér til að bæta umhverfi íslenzkrar æsku, styrkja siðgæði hennar og náungakærleika og leiða hana inn í fögnuð og fyrir- heit Fjallræðunnar. Það er fjall- ræðufólkið í þjóðlífi íslendinga, sem hefur varðað veginn og enda þótt það eigi undir högg að sækja vegna nýrra siða og háværrar tízku þurfum við á því að halda nú fremur en nokkru sinni áður, að það standi sem eins konar tákn þess þjóðfélags, sem við viljum þróa í átt til frjálshyggju og íslenzkrar mannúðarstefnu. Is- lenzkur samtími stendur á göml- um merg þjóðlegrar menningar og ekki síður kristinnar trúar. Þetta tvennt hefur farið saman í gegnum aldirnar og við getum án hvorugs verið, ef við ætlum að halda þeirri andlegu reisn, sem hefur verið stolt okkar á stórum stundum og skjól þegar á móti hefur blásið. En þessi kristna arfleifð kallar einnig á umburðarlyndi fyrir trú annarra og skoðunum. Forsenda slíks umburðarlyndis er skilningur — og það er væntanlega þessi skiln- ingur sem nemendur Kennarahá- skólans sækjast eftir, en ekki afkristnun æskunnar. Undirstaða uppeldis hér á landi eru heimili, skóli og kirkja. Samstarf þessara stofnana er mikilvægast í uppeldi æskunnar. Þetta samstarf þarf að byggjast á gagnkvæmu trausti, en ekki tortryggni og togstreitu. En af þessu þrennu eru heimilin hornsteinninn. Skólinn Það er einnig rétt, sem Bessí Jóhannsdóttir, segir í kjallara- grein í Vísi, að kennarinn megi aldrei líta á sig sem trúboða ákveðinna kenninga, svo og sú fullyrðing að skólinn sé ein af mikilvægustu stofnunum samfé- lagsins. Á það hefur oft verið bent hér í blaðinu og verður aldrei lögð á það of mikil áherzla. Skólinn á að vera bjarg sem lýðræði okkar er| reist á, ekki sízt nú þegar fjölmiðl- ar sækja eins hart á hugi manna og raun ber vitni. „Almenningur hefur vaxandi tilhneigingu til að láta mata sig á einföldum stað- reyndum," segir Bessí. Ennfremur: „I sjónvarpi virðist skipta meira máli hvað menn sjá en þau rök, sem fram eru færð. Þetta kallar á ný vinnubrögð innan skólans. Það þarf fyrst og fremst að þjálfa og örva nemendur til að leita sér ítarlegri upplýsinga í ýmsum mál- um og kenna þeim heiðarlega gagnrýni í afstöðu sinni til mála. í þessu reynir á aukna ábyrgð kenn- arans.“ Hún varpar fram þeirri spurn- ingu, hvort rétt sé, að kommúnist- ar misnoti aðstöðu sína innan skólanna til að innræta marxískar kenningar. Hún segir, að erfitt sé „að festa hönd á þeim, sem beita pólitískum áróðri í skólum, eink- um vegna þess að nemendur hafa hvorki þroska né þekkingu eða kjark til að andmæla slíku. Skól inn sinnir ekki þeirri skyldu af upplýsa foreldrana um námsefn barna sinna. Foreldrar eiga hér Oj nokkra sök á. Þeir hafa verið o( eru mjög andvaralausir. Það ætt að vera grundvallarskylda þesí foreldris, sem ann lýðræði oj kristnu siðgæði að fylgjast náii með námsefni barna sinna fri upphafi skólagöngunnar." Húi bendir á, að sumir kennarar sýn fornum verðmætum fyrirlitningt svo og valdhöfum nema væntan lega á vinstri vængnum! Þá einnij foreldrum, kirkju og kristn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.