Morgunblaðið - 11.02.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 11.02.1979, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 Skólasýning í Ásgrímssafni I daK verður 15. skólasýning AsKrímssafns opnuð. Eins og undanfarin ár er leitast við að gera sýningu þessa sem fjölþætt- asta. og sýna hinar ýmsu hliðar í listsköpun Ásgríms Jónssonar og verkefnaval. Sýndar eru í vinnustofu lista- mannsins vatnslita- og olíumynd- ir, einnig nokkrar þjóðsagnateikn- ingar. Viðfangsefni eru m.a. lands- lag, blóm, hestar og eldgos. I heimili Ásgríms er sýning á þjóðsagnamyndum frá ýmsum tímabilum, flestar málaðar með vatnslitum, en safnið hefur gert sér far um að kynna skólafólki þessar merkilegu bókmenntir okk- ar í myndlist Ásgríms Jónssonar. Þær voru honum óþrjótandi við- fangsefni allt hans æviskeið. Og síðasta verkið sem hann vann í, fjórum dögum fyrir andlát sitt, þá veikur á sjúkrahúsi, er þjóðsagna- teikning sem honum tókst ekki að ljúka við. Hún er ætíð sýnd á öllum sýningum safnsins. Guðmundur Benediktsson myndhöggvari aðstoðaði við val mynda, og sá um upphengingu þeirra. Þessar árlegu skólasýningar Ás- grímssafns virðast njóta vaxandi vinsælda. Ýmsir skólar gefa nemendum sínum tómstund frá námi til þess að skoða listaverka- gjöf Ásgríms, hús hans og heimili, sem er nákvæmlega í sömu skorð- um og þegar hann hvarf þaðan, en heimili hans er eina listamanna- heimilið sem til sýnis er í Reykja- vík. Skólayfirvöld borgarinnar hafa stuðlað að heimsóknum nemenda í söfn, enda virðist slík listkynning sjálfsagður þáttur í námi uppvax- andi kynslóðar. Breyting hefur orðið á stjórn Ásgrímssafns. Hjörleifur Sigurðs- son listmálari, sem verið hefur í stjórn safnsins undanfarin ár, og tók við því starfi af Jóni bróður Ásgríms, er nú á förum til útlanda Kötlugos. Á flótta undan jökulhlaupi. Olíumálverk. málað 1955. • um óákveðinn tíma. Við starfi hans á meðan tekur Guðmundur Benediktsson myndhöggvari. Þegar Ásgrímur Jónsson kunn- gerði erfðaskrá sína á sinni tíð óskaði hann þess að í stjórn safnsins tæki sæti frænka hans Guðlaug Jónsdóttir hjúkrunar- kona. En vegna heilsubrests lætur hún af því starfi nú, en við því tekur frænka hans Sigrún Guðmundsdóttir kennari. Skólasýningin er öllum opin sunnudaga, þriðjudaga og fimmtu- daga frá kl. 1.30—4.00. Sértíma geta skólar pantað hjá forstöðu- konu Ásgrímssafns í síma 14090 og 13644. Aðgangur er ókeypis. Skákþlng Reykjavíkur 1979. A-flokkur (14. jan,—8. feb.) hann fær annað tækifæri á Islandsmótinu, því að þar hefur hann þegar unnið sér landsliðs- réttindi. I B flokki kom efsta sætið í hlut Þorsteins Þorsteinssonar. Hann hlaut tíu vinninga af ellefu 'mögulegum, sem er frá- bær árangur. Þeir Gylfi Magn- ússon og Jóhann Þórir Jónsson veittu honum þó lengst af harða keppni, en með sigri yfir Jóhanni í síðustu umferð í æsi- spennandi skák tryggði Þor- steinn sér efsta sætið. Lokastað- an í riðlinum varð þessi: 1. Þorsteinn Þorsteinsson 10 v. 2. Gylfi Magnússon 9 v. 3. Jóhann Þ. Jónsson 7 (/2 v. 4. Karl Þorsteins 7 v. 5.-7. Þórir Sigur- steinsson, Björgvin Guðmunds- son og Björgvin Jónsson 5‘/2 v. Róbert Harðarson, unglinga- Asgeir var sterkari á lokasprettinum... SKÁKÞINGI Reykjavíkur 1979 er nú lokið með sigri Ásgeirs Þórs Árnasonar eftir harða og spennandi baráttu á milli hans og ómars Jónssonar. Ómar var einn efstur lengi framan af, en í níundu umferð hleypti hann Ásgeiri upp að hlið sér með því að tapa fyrir Braga Ilalldórs- syni. I næstu umferð unnu þeir félagar báðir og ríkti því raf- mögnuð spenna í síðustu um- ferðinni. Þá tefldi Ásgeir við Júh'us Friðjónsson, en Ómar við Sævar Bjarnason. Júh'us misstei^ sig illa í byrjuninni gegn Ásgeiri og reyndi síðan mannsfórn sem stóðst ekki og varð því að gefast upp. Athygli manna beindist þvi' lengst af að skák þeirra Ómars og Sævars, þar sem Ómar hafði greinilega öruggt frumkvæði. Sævar varð- ist hins vegar af hörku og ieitaði mjög eftir uppskiptum. í framhaldinu missti Ómar þráð- inn, honum sást tvívegis ýfir mjög vænlegar ieiðir og um tíma virtist Sævar vera að ná yfirhöndinni. Skákin leystist þá skyndiiega upp í riddara- endatafl, sem flestum virtist steindautt jafntefli. Ómar þrá- aðist samt við 1' biðskákinni, enda til mikils að vinna, en tókst ekki að brjóta varnir Sævars á bak aftur. Ásgeir Þór, sem er 21 árs gúmall lögfræðinemi, varð þar með skákmeistari Reykjavíkur. Það kemur vart nokkrum á óvart, því að Ásgeir hefur sinnt skáklistinni mikið á undanförn- um árum, hann varð t.d. í þriðja sæti á Skákþingi íslands 1977. Skákstíll Ásgeirs er mjög skemmtiiegur fyrir áhorfendur, hann teflir mjög djarft til sókn- ar og finnur oft úrræði þegar öðrum virðast öll sund lokuð. Með þessum sigri sínum er Ásgeir tvímælalaust aftur kom- inn í röð fremstu skákmanna okkar og verður fróðlegt að fylgjast með honum á íslands- mótinu í vor. Stíll Ómars er hins vegar gjörólíkur stíl Ásgeirs. Ómar kann bezt við sig í þungri stöðu- Ásgeir Þór Árnason, baráttu og minnir að því leyti mikið á Magnús Sólmundarson, byrjanavai þeirra er t.d. svipað. I þriðja sæti kemur aðeins 15 ára gamall piltur, Elvar Guðmundsson. Elvar var lang- stigalægstur þátttakenda, en hann lét ekki reynsluleysið á sig fá og bjargaði sér oft skemmti- lega úr erfiðum stöðum. Jafn- aldri Elvars, Jóhannes Gísli Jónsson, kemur síðan í 4.-5. sæti ásamt Birni Þorsteinssyni. Það er athyglisvert hversu mik- ið skákiðkun virðist leggjast í ættir hérlendis, eins og allir vita eru þeir Ásgeir Þór og Jón L. Árnason bræður og faðir Jóhannesar Gísla er enginn annar en Jón Þorsteinsson. Þótt Jón hafi greinilega kennt synin- um margt, mætti hann þó miðla honum meira af sinni alkunnu endataflskunnáttu, því að Jóhannes missti a.m.k. tvö unn- in endatöfl niður í jafntefli á mótinu. Ef þeim feðgum tekst að lagfæra þennan galla, er mikils að vænta af Jóhannesi í framtíðinni, því að á öðrum hliðum skákarinnar kann hann góð skil. Þeir Björn og Sævar ollu töluverðum vonbrigðum. Þeir byrjuðu báðir vel, en þegar efsta sætið fór að fjarlægjast virtust þeir báðir missa áhug- ann. Að þessu sinni lék lánið ekki við Jóhann Hjartarson, en meistari íslands, varð efstur í C riðli, hlaut áttá vinninga af 11 mögulegum. Jóhann Pétur Sveinsson varð annar með sjö vinninga, en þriðja sætinu deildu þeir Magnús Alexanders- son og Haukur Arason . sem hlutu báðir 6‘A v. í D riðli varð Ólöf Þráinsdótt- ir efst, en hún er einmitt dóttir hins kunna siglfirzka skák- manns Þráins Sigurðssonar. Þessi ágæti sigur Ólafar sýnir vel þá< miklu framför sem hefur orðið í kvennaskák hér á landi á síðustu árum. Lokastaðan í riðlíF inum varð þessi: 1. Ólöf Þráins- dóttir 8 v. 2.-3. Páll Þórhalls- son og Hrafn Loftsson 7‘/2 v. 4. Gunnar Freyr Rúnarsson 7 v. í E flokki sem var opinn bar Gylfi Gylfason bæði höfuð og herðar yfir alla andstæðinga sína og sigraði með 10 vinning- um af 11 mögulegum, heilum tveimur og hálfum vinningi á undan næstu mönnum, þeim Jóni H. Steingrímssyni, Birgi Guðmundssyni og Jónasi G. Friðjónssyni, sem hlutu 7*A v. En lítum nú á eina jskemmti- Skák eftir MARGEIR PÉTURSSON EUang Nafn 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. ' Vinn. Röð 2145 1. Ómar Jónsson T.K. 'k 1 1 1 1 1 'h 0 1 'h 'k 8 2 2240 2. Jónas P. Erlingsson T.R. 'h \ 1 0 0 0 'h 'h 'h 'k 0 'h 4 10.-11. 2220 3. Guðmundur Ágústsson T.R. 0 0 'k 'h 0 1 0 'h 'h 0 0 3 12. 2240 4. Jóhann Hjartarson T.R. 0 1 'h 0 0 'h 0 1 'h 'h 'h h'k 8.-9. 2300 5. Björn Þorsteinsson T.R. 0 1 'h 1 0 0 1 1 'k 1 0 6 4.-5. 2170 6. Júlíus Friðjónsson T.K. 0 1 1 1 1 0 'k 0 0 0 0 4'/! 8.-9. 2165 7. Haraldur Haraldsson S.M. 0 'h 0 'k 1 1 1 0 'k 1 0 % 6.-7. 2130 8. Jóhannes Gísli Jónsson T.R. 'k 'h 1 1 0 'k 0 1 ''h 'h 'h 6 4.-5. 2205 9. Bragi Halldórsson S.M. 1 'k 'k 0 0 1 1 0 0 0 0 4 10.-11. 2060 10. Elvar Guðmundsson T.R. 0 'h 'h 'h 'h 1 'k 'h 1 * 111 1 'h 6 'k 3. 2285 11. Sævar Bjarnason T.R. 'h 1 1 'h 0 1 0 'h 1 0 9 5 'h . 6.-7. 2270 12. Ásgeir Þór Árnason T.R. 'h 'h 1 'h 1 1 1 'h 1 'h 1 8 'h 1. / lega skák frá Reykjavíkurmót- inu, með sigurvegurunum í A flokki: , Hvítt: Ásgeir Þ. Árnason Svart: Sævar Bjarnason Ben-Oni byrjun 1. d4 - RÍ6. 2. c4 - c5, 3. Rí3 — e6, 4. d5 — exd5, 5. cxd5 — d6,6, Rc3 — g6,7. e4 — Bg7,8. Be2 - 0-0, 9. 0-0 - He8, 10. Rd2 - Ra6, 11. f3 - Rc7, 12. a4 - b6, 13. Rc4 - Ba6, 14. Hbl (Hið hvassa framhald 14. Bg5 hefur verið töluvert í sviðs- ljósinu að undanförnu, en ekki reynst valda svörtum umtals- verðum erfiðleikum) Bxc4, 15. Bcx4 — a6 (15. ... Rd7, 16. Bd2 - a6, 17. b4 - cxb4, 18. Hxb4 - De7, 19. Khl — Hfc8, með tvísýnni stöðu. Adamski-Matulovic, Óiympíu- mótinu í Lugano 1968. I þessari skák ákveður Ásgeir hins vegar að blása til allvafasamrar sókn- ar á kóngsvæng). 16. Dd3 - Rd7, 17. Í4 - Db8, 18. e5I? - dxe5,19. Í5 - e4, 20. Dg3 — b5 (Svartur hefur nú náð ágætu mótspili, en í stöðum eins og þessari njóta leikfléttu- hæfileikar Ásgeirs sín vel) 21. d6J? - bxc4, 22. dxc7 - Db7, 23. Bg5 - Hac8, 24. Hbdl — Bd4+, 25. Khl - Dxc7, 26. Dh4 - Dc6. 27. Dh6 - gxf5 (Hvítur hótaði 28. Hxd4 — cxd4, 29. f6, en 27. ... Dd6 kom ekki síður til greina) 28. Dh3 - Rf8, 29. Hxf5 - Rg6? (29.... e3!) 30. Hxf7! - Rf8, 31. Hafl - Hc7, 32. Df5-------Rg6? (Afger- andi afleikur. Bezt var 32. ... Hxf7, 33. Dxf7+ - Kh8, og hvítur á fullt í fangi með að sýna fram á nægilegt mótvægi fyrir peðið. T.d. 34. Be7 — Dg6!, 35. Bxf8 - Dxf7, 36. Hxf7 - Kg8) 33. h4! - Hxf7, 34. Dxf7+ - Kh8, 35. h5 - Rf8, 36. h6! (Hótar bæði 37. Dxf8+ og 37. Hf6! Svartur getur því ekki umflúið liðstap). Dg6. 37. Dxf8+ - Hxf8, 38. Hxf8+ - Dg8, 39. Hxg8+ - Kxg8, 40. Bcl — e3, 41. g4 Gefið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.