Morgunblaðið - 11.04.1979, Síða 1
40 SÍÐUR
85. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fýkur nú í flest
skjól fyrir Amin
Nairobí, Kenya, 10. apríl. AP. Reuter.
TANSANÍUHER ásamt úgönskum uppreisnarmönnum héldu í dag inn í
Kampala eftir hörðustu eldflauga- og fallbyssuárásir, sem gerðar hafa
verið á höfuðborgina frá upptökum strfðsins. í úthverfum borgarinnar
segja útlagar, að liðsveitum Tansanfu hafi verið fagnað með söng og
dansi, en stórskotalið Idi Amins forseta hélt uppi gagnárásum frá stærstu
hæð borgarinnar.
Upplýsingar um stöðu mála liggja
ekki á lausu þar sem flestir íbúa
borgarinnar héldu sig innandyra
meðan eldflaugar þutu yfir húsþök-
um. Haft var eftir einum Kampala-
búa, að ekki væri „svo mikið sem
hund“ að sjá á rápi í miðborginni.
Haft er eftir diplómötum í
Kampala, að svo virðist sem innrás-
arliðið reyni að ráða niðurlögum
varnarhersins með linnulausum
sprengjuárásum jafnframt því sem
fótgöngulið sæki í átt að borgar-
miðjunni úr tveimur áttum.
Einn opinber sendimaður sagði
ástandið í Kampala ömurlegt; þar
væri rafmagnslaust og hvorki hægt
að fá vatn né matvöru í því borgar-
hverfi er hann býr í sjálfur.
Sprengjur sprungu í aðalsjúkrahúsi
borgarinnar þar sem þrír læknar
létu lífið og nokkrir aðrir meiddust.
Þá hafa einnig orðið nokkrar
skemmdir á Makarere-háskóla, en
þar leituðu dyggustu stuðningsmenn
Amins skjóls um helgina.
Leiðtogi Líbýumanna, Khadafy,
lýsti því yfir í dag, að sögn líbýsku
fréttastofunnar Jana, að stjórn hans
væri ekki aðili að deilu Úganda og
Tansaníu. Tansaníuher hefur engu
síður skýrt frá því, að um fjögur
Callaghan
virðist
hjarna við
London, 10 apríl, Reuter.
SÍÐASTA skoðanakönnunin meðal
kjósenda á Bretlandi bendir til, að
Verkamannaflokkur Jimmy
Callaghans sé að rétta ögn við
gagnvart íhaldsflokknum.
Könnunin, sem birtast átti í
miðvikudagsblaði The Daily
Express, sýnir að forskot íhalds-
flokksins yfir Verkamannaflokkinn
hefur minnkað úr þrettán af
hundraði í tíu af hundraði ef marka
má skoðanakönnun sama aðila í
síðustu viku. Fjörutíu og níu af
hundraði sögðust nú fylgja íhalds-
flokknum, en þrjátíu og níu flokki
Callaghans.
hundruð Líbýumenn hafi fallið í
bardögum um Entebbe-flugvöll eftir
að hermenn Amins lögðu á flótta.
Að sögn diplómata hrjáir nú
eldsneytisskortur liðsveitir einræð-
isherrans, en stríðið, sem staðir
hefur í fimm mánuði, mun kosta
Tansaníumenn um þrjú hundruð og
fimmtíu milljónir ísl. króna á dag.
Prófessor
í lögum
ákærður
vegna
morðsins
á Moro
Padua, Ítalíu, 10. aprfl. Reuter.
LAGAPRÓFESSOR hefur
verið ákærður fyrir að vera
viðriðinn rán og morð Aldo
Moros, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Ítalíu, og var hann
yfirheyrður í dag.
Prófessor Toni Negri, öfga-
fullur vinstrisinni, kenndi að
sögn lögreglu við Paduaháskóla
og Sorbonne-háskóla í París.
Hann var ákærður í gærkveldi
en hefur setið í fangelsi síðan á
sunnudag. Talið er að Negri,
sem er hálf fimmtugur að aldri,
sé aðalhugsuður, ef ekki leiðtogi
Rauðu herdeildanna svo kölluðu,
blóðugustu hryðjuverkasamtaka
á Ítalíu. Alls munu um sextán
grunaðir hryðjuverkamenn hafa
verið handteknir um helgina og
er tuttugu og fjögurra annarra
leitað.
Negri var stofnandi svo-
nefndra „sjálfræðissinna", hópa
vinstrisinnaðra verkamanna og
námsfólks snemma á áttunda
áratugnum.
Beztu leikarar
1978. — Þau John
Voight og Jane
Fonda hafa ástæðu
til að gleðjast yfir
verðlaununum sem
þau halda hér á, en
það eru Óskars-
verðlaun bezta
leikarans og beztu
leikkonunnar árið
1978. Verðlaunin
fengu Voigh t og
Fonda fyrir leik
sinn í myndinni
Coming Home, en
myndin sækir efni-
við sinn í stríðið í
Víetnam. Verð-
launin voru veitt í
Hollywood í gær og
segir nánar frá
verðlaunaafhend-
ingunni á bls. 19.
Símamynd-AP.
Smith segist eiga
í höggi við Rússa
T.usaka. Salisbury,
10. aprfl. AP. Reuter.
RHÓDESÍSKAR herflugvélar
gerðu í dag loftárásir á a.m.k. tvær
bækistöðvar þjóðfrelsisskæruliða
nærri Lúsaka í Zambíu.
Kaunda forseti segir einn mann
hafa látið lífið og sex særzt. Skæru-
liðar höfðu hótað að gera að engu
þær kosningar, sem hófust í
Rhódesíu í dag en þær eru áfangi í
Egyptar draga úr
ummælum Khalils
Kaíró, Damour, Tel Aviv, 10. apríl. Reuter. AP.
EGYPTAR reyndu í dag að draga broddinn úr vaxandi deilum um framtíð Gólan-hæða, er fram komu vegna
yfirlýsingar egypska forsætisráðherrans, Mustapha Khalils, þess efnis að Egyptar myndu styðja Sýrlendinga
ef kæmi til styrjaldar þeirra við ísraelsmenn. Segja Egyptar ummæli forátisráðherrans hafa verið illa
mistúlkuð.
ísraelskar orrustuflugvélar réð-
ust í dag á tvær strandborgir í
Suður-Líbanon og er litið á það sem
hefndarráðstöfun vegna sprenging-
ar, sem varð einum manni að bana
og særði þrjátíu og þrjá í miðborg
Tel Aviv í dag.
ísraelsstjórn sagðist í gær hafa
sent Sameinuðu þjóðunum mót-
mæli sín vegna orða Khalils, sem
henni virtist að brytu í bága við
nýundirritaðan friðarsáttmála
þjóðanna. En fréttastofan Mena
greindi hins vegar svo frá, að dr.
Khalil hefði ekki verið látinn njóta
sannmælis og hefði hann átt við að
Egyptar myndu verja Sýrlendinga
því aðeins að ísraelar neituðu að
semja við þá.
Palestínskir embættismenn
herma, að ísraelskar sprengjuflug-
vélar hafi haldið uppi árásum á
borgina Damour í tuttugu mínútur
og eftir því sem næst verður komizt
drepið tugi manna áður en þær
héldu sömu erinda til hafnarborg-
arinnar Tyrusar.
Frelsissamtök Palestínumanna
hafa játað á sig ábyrgðina af
sprengjunni á markaðstorgi í Tel
Aviv aðeins fimm klukkustundum
áður.
takmarkaðri sjálfstjórn blökku-
manna f landinu. Eftir árásirnar
lýsti Ian Smith, forsætisráðhcrra.
því yfir við fréttamenn, að sovéskir
herforingjar hefðu tekið við stjórn
þjóðfrelsisskæruliða með aðsetur í
Zambíu.
Smith segist hafa komizt á snoðir
um sovésku herforingjana fyrir
nokkrum mánuðum. „Rússar hafa í
reynd tekið við ábyrgðarstöðum í
ZAPU (Afrísku einingarsamtökin
Zimbawe)," sagði hann, „og öðrum
hefur verið ýtt til hliðar." Forsætis-
ráðherrann taldi þó ólíklegt að
Rússar hefðu komið við sögu frá
upptökum Rhódesíustríðsins fyrir
sex árum.
Flugvélar Rhódesíuhers gerðu
sprengjuárásir með kúlnahríð á
tvær af aðalstöðvum ZAPU en leið-
togi þessara samtaka er Joshua
Nkomo. Bækistöðvarnar voru í að-
eins fimmtán kílómetra fjarlægð frá
höfuðborg Zambíu. Árásin átti sér
stað í þann mund sem 300 fulltrúar
frá Einingarsamtökum Af-
ríku-Asíuþjóða komu saman til
fundar í Lusaka í þeim tilgangi að
lýsa yfir stuðningi við þjóðernis-
hreyfingu blökkumanna í Suður-Af-
ríku. Kaunda forseti fékk skilaboð
um loftárásirnar í inngangsorðum
sínum á ráðstefnunni og skýrði við
það tækifæri fulltrúum þjóðanna
fimmtíu frá því, að Zambía myndi
aldrei láta deigan síga í stuðningi
við Föðurlandsfylkingu Rhódesíu-
skæruliða. Nkomo lýsti því yfir við
sama tækifæri, að fylkingin yrði nú
að beita nýjum árásaraðferðum þar
sem Rhódesíuher hefði ráðist á
bækistöðvar herforingja í dag.
Kosningarnar í dag snúast um
fjögur þingsæti hvítra manna og eru
þær fyrsta skrefið í átt að meiri-
hlutaþingi blökkumanna. Búist er
við að Rhódesíufylking Smiths taki
öll sæti hvítra manna á þinginu.
Byltingin
auðsýnir
náð í íran
Toheran, 10. áprfl. Reuter.
BYLTINGARDÓMSTÓLAR í íran
héldu í dag áfram uppteknum ha'tti
við að da'ma menn og lífláta á laun.
Nú ber hins vegar svo við í fyrsta
skipti síðan dómstólar þessir tóku
réttla'tið í sínar hendur, að aðrir
dómar en dauðadómar eiga upp á
pallborðið. Sextán fangar voru í
gær sýknaðir af áka>rum og einn
lögreglumaður dæmdur í tveggja
ára fangelsi.
Talsmaður Iransstjórnar, Abbas
Amir-Entezam, lét það álit sitt í ljós
í dag, að byltingardómstólar myndu
e.t.v. starfa í ár til viðbótar áður en
yfirvöld dómsmála í landinu fengju
að hafa stjórn á réttarfarinu á nýjan
leik.