Morgunblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979 3 Frá aðalfundi Flugleiða „Hagkvœmt að hluti Ameríku- flugsins sé án viðkomu” segir Sigurður Helgason „ÞAÐ LIGGUR fyrir að Norður-Atlantshafsleiðin er mun erfiðari viðureisnar í flugrekstrinum en aðrar leiðir Flugleiða,“ sagði Sigurður Helgason forstjóri félagsins í samtali við Mbl. að loknum aðalfundinum í gærkvöldi. „Mér finnst staða fyrirtækisins mjög tvísýn í dag. en í ráði er að gera tiltækar ráðstafanir til þess að leysa vandann, finna jafnvægi f rekstrinum og kom- ast hjá tapi. Til þess eru ýmsar leiðir, m.a. að kanna möguleikana frekar utan hefðbundinna leiða og nýta betur þær leiðir sem eru með hagkvæmara flugi. Þar kemur til dæmis inn í myndina að fljúga hluta af Bandaríkja- fluginu beint frá Luxemburg til New Y'ork, en þar sem það eru allt að 3 ferðir á dag á þessari leið um Island ætti ekki að vera mikill vandi að láta nægilega margar ferðir fara um ísland. Þetta myndi þýða hagkvæmari flugrekstur og myndi skipta talsverðu máli að hafa þannig blandað ferðafyrirkomulag, en má'ið er nú m.a. í athugun hjá utanríkisráðuneytinu." „Stefna ber hátt í uppbgggingu flugsins” segir Kristjana Milla Thorsteinsson MORGUNBLAÐIÐ ræddi við Kristjönu Millu Thorsteinsson, en hún flutti tillögu þess efnis á aðalfundi Flugleiða að félagið yrði aðskilið á ný í Loftleiðir og Flugfélag íslands þar sem sameiningin hefði ekki skilað þeim vonum sem bundnar voru við hana. Vildi hún aðskilinn flugrekstur, en sameiginlegt starf þar sem það hentaði. Tillaga hennar var felld með hlutfallinu 18 gegn 5. „Eg held að það megi segja í raun og veru að flugfélögin tvö eigi fátt sameiginlegt, þau fljúga ekki sömu leiðir, hafa ekki sömu vélategundir og eru byggð upp á mismunandi hátt,“ sagði Milla, „en hins vegar gætu félögin haft sameiginlegt bók- haid og farmiðasölu og samræma þyrfti ferðir á Norðurlandaleiðinni og Bret- landsleið. Mér finnst satt að segja að þessi sameining hafi verið gerð í allt of miklu hasti, það var ekki farið nógu vel í saumana á sameiningunni og því er alls kyns misklíð enn við lýði. Loft- leiðamenn reiknuðu t.d. með því að vera með 65% hlutafjár þegar sameiningin var gerð, en þegar niðurstaða matsaðila kom 2'/2 ári seinna og var óbreytan- leg þá kom í ljós að hlutur Loftleiða var ekki nema 54%. Þetta m.a. hefur valdið mikilli óánægju og úlfúð. Þótt talað sé um að innan stjórnarinnar sé eining og samstaða þá er þar virkilegt valdatafl þar sem meirihlutinn ræður en minnihlutinn kemur ekki sínu fram. Eimskip • t.d. eru með 20% hlutafjár og þegar einn aðili er kominn með svo stóran hlut, aðili sem á einnig hagsmuna að gæta á sjóleiðum til þeirra landa sem flogið er til, þá er markaðsyfirráðasjónarmiðið komið inn í myndina. Eins og stendur veldur það ef til vill ekki hækkuðum fargjöldum þar sem samkeppnin er svo hörð, en það getur komið niður á þjónustu við farþega og ég tel algjörlega óeðlilegt að sú einokun, sem er við lýði í dag í flugmálum sé eins og hún er. Sérstaklega þegar hlutafé lendir að svo miklu leyti undir einum og sama hattinum. Eimskip á um 20% , tveir aðilar um 10%, ríkissjóður 6.1% og síðan eru um 20 einstaklingar sem eiga tiltölulega stóra hluti en þó mun minna en fyrr hefur verið nefnt. Ég vil þó taka fram að í fyrsta skipti á þessum aðalfundi var ríkissjóður hlutlaus í kosning- um eins og honum ber siðferði- leg skylda til. Sameining flugfélaganna í Flugleiðir hefur ekki gefið neinn sparnað og hagræðingin hefur ekki sézt. Það er mergurinn málsins. Hins vegar eins og staðan er í dag tel ég að leggja beri mesta áherzlu á að reyna að vinna félagið upp á Norður-Atlants- hafsleiðinni og finna ný verk- efni bæði í pílagrímsflugi og t.d. við Persaflóa þar sem möguleik- arnir eru miklir. Það þarf að taka fast og ákveðið á þessum málum fyrirtækisins, byggja upp og stefna hátt, en miða ekki aðeins við að halda í horfinu. Flugið skilar nú ámóta miklum gjaldeyri í þjóðarbúið og allur iðnaður landsins að álfram- leiðslunni undanskilinni. Það þarf að auka þann hlut enn frekar og það hefst aðeins með áræði og skynsemi". Að loknum aðalfundi Flugleiða í gær ræddi Morgun- blaðið við nokkra aðila úr hópi fundarmanna, en alls sáfu á fimmta hundrað manns aðalfundinn. „Ekkert hrœddur við framtíð Flugleiða” segir Krisján Guðlaugsson KRISTJÁN Guðlaugsson hætti í stjórn Flugleiða eftir um það bil 30 ára starf í stjórn Loft- leiða fyrst og síðan Flugleiða. Hann tók sæti í stjórn Loftleiða 1953, 6 árum eftir að það var stofnað, en áður en hann tók sæti í stjórn hafði hann haft talsverð afskipti af flugmálum og var m.a. í nefnd sem kann- aði sameiningu flugfélaganna fyrir 1950. Mbl. ræddi við Kristján að loknum aðalfundi í gær og innti hann álits á stöðu fyrirtækisins: „Ég er bjartsýnn," sagði hann, „og sé engin verulega alvarleg vandamál á ferðinni. Það sem upp hefur komið eru svona smágos sem hjaðna. Samstarf innan stjórnarinnar er ágætt, en hitt er svo að átökin á vettvangi flugmanna hafa sett strik í reikninginn. Ég hygg þó að það sé vaxandi skilningur meðal starfsfólks á því hvað það skiptir miklu máli að menn vinni saman af einurð í þessu starfi. Mér líst því vel á stöðuna og óttast ekkert í sambandi við framtíð félagsins. Þetta hefur ávallt gengið ýmist vel og illa. Sveiflur eru eðlilegar í þessari atvinnugrein. Þótt illa ári nú verða gerðar réttar ráðstafanir til þess að rétta hag fyrirtækis- ins og víst hefur fyrirtækið séð það svartara en þetta. Ég er ekkert hræddur við framtíð félagsins á Norður-At- lantshafsfluginu miðað við það að fast og ákveðið verði haldið áfram stefnu uppbyggingar. Við höfum að ýmsu le.vti betri skil- yrði nú til þess að standast samkeppnina en áður, rri.a. með nýjum vélum. Þegar ég hætti nú í stjórn er ég ánægður með ágæta sam- vinnu, ekki sízt hjá Loftleiðum. Ég tel að við höfum búið í haginn fyrir komandi kynslóðir og að því leyti vona ég að félagið hafi góða aðstöðu. Ég vil árna þessu félagi allra heilla því ég tel það sterkara sameinað en sundur skilið." ,yAð ríkið og einstaktíngar taki höndum saman ” segir Örn Ó. Johnson „ÉG tcl eðlilegt undir þessum kringumstæðum sem Flugleið- ir búa nú við að þjóðfélagið og einstaklingur taki höndum saman í því mikilvæga hlut- verki sem flugsamgöngurnar eru í þessu landi", sagði Örn O. Johnson forstjóri Flugleiða í samtali við Mbl. í gærkvöldi þegar hann var inntur nánar eftir þeirri hugmynd sem hann varpaði fram á aðalfundinum um að ríkið eignaðist 20—25% hlutafjár í Flugleiðum. „Þó tel ég fyrst og fremst að einstaklingsframtakið eigi að fá að njóta sín og að fyrirtækið byggist að meirihluta á því, en þetta er þannig vaxið að ég tel þessa leið öllum hagkvæma. Þá kvaðst Örn telja ástæðu til þess að forstjóri Flugleiða yrði aðeins. einn og kvaðst hann reiðubúinn að láta af því starfi sem einn af þremur forstjórum þegar sá maður væri fundinn. „Dreg í efa að reikn- að sé á réttan hátt” segir þjóðhagsstjóri um tölur Alþjóðabankans „ÉG VIL sem minnst um þetta mál segja að sinni, en ég kannast ekki við þessa reikninga eins og þeir eru fram settir.“ sagði Jón Sigurðsson þjóðhagsstjóri í sam- tali við Morgunblaðið síðdegis í gær. er hann var spurður álits á frétt í blaðinu í gær um þjóðar- tekjur hér á landi og á hinum Norðurlöndunum. í fréttinni kom fram að þjóðartekjur hér eru mun lægri en á hinum Norður- löndunum. og hafa þær farið lækkandi hér á síðustu árum, samkvæmt skýrslu Alþjóðabank- ans. Jón Sigurðsson kvaðst draga í efa að þessir reikningar væru gerðir á réttan hátt, og sagði hann að sér virtist að notað væri annað gengi en okkar skráða gengi við þennan samanburð, en sagðist þó ekki vilja tjá sig efnislega um þessar niðurstöður fyrr en sér hefðu borist þær í hendur. -— , Þióðartekjur á Is- lrnidi eru langlægst- ar á Norðurlöndum t.mi.r fr»m »•' 1 KÍ ».,...r -r ^,,»r. i-l-n/K.. ........ '»*■' V'innlHiul l.»20 1.700 II Ki iWnnöHr i <1 >) l.þyvnrtrkjur ll i.),WVHrt* k)ur UUnd- r. iWnHðnr -u IsUnd- rrikn.ðHr (l„H;ira Ira ar»n» 1 *' 1 \ ’l'.i 870 'f.'iw fi.ordi 7.0'“' 8,or«o Sv íþ)**d fi/.WiO 7.210

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.