Morgunblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979 7 Ráöherrar rægja hver annan Ekki líður svo dagur, aö ekki megi lesa Það í ein- hverju dagblaöanna, hversu lólegur bessi eða hinn ráðherrann só og er haft eftir hinum eða Þessum ráðherranum. Þetta er sennilega leik- araskapur allt saman, uppi haföur til pess að gera ríkisstjórnina trú- verðugri en ella. „Baráttan heldur áfram við kauplækkunaröflin," sagði Svavar Gestsson á AlÞingi og er haft eftir honum f Þjóðviljanum: „Kaupl»kkunaröflin“ eru Þeir ráðherrar, sem sam- Þykktu frumvarp forsæt- isráöherra í ríkisstjórn- inni. Þar á meðal var hann sjálfur, Hjörleifur og Ragnar. Allir Þessir Þrír ráðherrar AlÞýöubanda- lagsins eru Þannig höf- undar „kauplækkunar- frumvarpsíns“ og bera á Því fulla ábyrgð, Þótt Þeir reyni að skjóta sór undan henni nú. Á hinn bóginn er kunn- ugt, að ýmsir forystu- menn AlÞýöubendalags- ins innan verkalýðshreyf- ingarinnar hafa með að- stoð Lúðvíks Jósepsson- ar beygt ráðherrana prjá ofan í duftið og síðan eru Þeir eins og barðir hund- ar meö skottið milli aftur- lappanna og pora ekki aö standa við sín fyrri orð. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra ræðst með mikilli heift aö fjármálaráðherra fyrir aö Fonturinn skuli fara norð- ur en ekki til Suðurnesja. Á sama tíma hneykslast aðrir á Því, að Þetta skip skuli ekki hafa verið selt Þeim mönnum, sem vildu gera Það út á úthafs- rækju. En sjávarútvegs- ráðherranum Þykir senni- lega ekki skipta máli, Þótt áfram verði fjölgað togurum á Þorskveiðum. A.m.k. ekki ef Þeir fara í hans kjördæmi. Svo má bara lengja Þorskveiði- bannið í staðinn, Þannig að aflinn standi í staö Þótt skipum fjölgi. Ekki trú- veröugt al- þýöu manna Ríkisstjórnin er núna aö fara fram á Þaö, að menn sætti sig við veru- lega skerðingu á kaup- gjaldsvísitölunni og falli jafnvel frá grunnkaups- hækkunum, meðan verið só að koma verðbólgunni niður. Þetta er fróm ósk, ef hún væri af heilindum fram borin. En svo er bara ekki. Ráðherrarnir eru komnir í hár saman. Þjóðviljinn hamrar á Því, að Ólafur Jóhannesson só „kaupl»kkunarafl“, en Tíminn segir í staðinn, aö Þeir AIÞýöubandalags- menn sóu „byrjaöir að gera sór götuvígi til Þess að hindra framgang stjórnarstefnunnar". Kratarnir segja ekki eitt einasta orö í Þessu sam- bandi og er Þaö góð til- breyting, en um leið vís- bending um Það, að Þeir hafi fengið allar sínar óskir uppfylltar. Ég þakka ættingjum og öörum vinum mínum heillaóskir og góöar gjafir mér sendar í tilefni afmælinu 11. marz s.l. Lifiö heil. Júlíus Þórdarson, Akranesi. Dorset-leirtau nýkomið Litir: Blátt Grænt Sendum í póstkröfu Verö: Djúpur diskur 1.195,- Grunnur diskur 1.195,- Bollapar 1.410.- Kökudiskur 720,- Búsáhöld og gjafavörur, Miðbæ, sími 25997 Glæsibæ sími 86440.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.