Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979 15 Hvers má ég vænta? Ár barnsins 1979 UMSJÓN: Alfreö Haröarson kennari. Guömundur Ingi Leifsson sál- fræöingur. Halldór Árnason viöskipta- fræðingur. Karl Helgason lögfræöingur. Sigurgeir Þorgrímsson sagn- fræöinemi. beiöslunni. Þaö er þess vegna ekki aðeins ánægjuleg sjón aö sjá fjölskyldur sitja saman í kirkju.l því felst líka vísbending um það, aö veriö sé aö rækja skyldur allt frá skírn barnsins. Athyglissviö barnsins er annaö en hins fullorðna. Þaö þarfnast meiri tilbreytingar. Mörg orö eru barninu torskilin. Óþolinmæöi gæt- ir, þegar ekki er eitthvaö aö gerast, sem þaö skilur og getur tekið þátt í. Kirkjan hefur þess vegna sér- stakar samverustundir, sem ætlaö- ar eru börnum (og þá fullorðnum líka í fylgd barna, til dæmis). Þar er allt miöaö viö þaö aö ná til barns- ins meö boðskap kirkjunnar, og fræöslan gerö auöskilin. Þessar samverustundir safnaö- anna fyrir börn eru ýmist kallaöar barnasamkomur, sunnudagaskólar eöa fjölskyldumessur. Ekki þarf þó mismunandi nafngift aö gefa til kynna ólíkt efni eöa ólíka uppbygg- ingu. Börnin eru gerö virk meö því aö syngja söngva sem þau eiga létt meö aö læra, bæöi Ijóö og lag. Hreyfisöngvar eru vinsælir, þegar hendur og handleggir túlka oröin, sem sungin eru. Víxllestur prests og barna er mjög nauösynlegur. Og víöa er hin almenna messa kirkjunnar lesin, til þess aö börnin séu búin aö kynnast henni, áöur en þau fara aö sækja messuna, þar sem tónaö er og sungiö. Oftast fá börnin einhverja mynd, sem fjallaö er um og hún skýrö. Síðan taka börnin myndina meö sér heim. Þau minnast þá kirkjunnar sinnar, þeg- ar þau skoöa myndina og ýmislegt rifjast upp fyrir þeim seinna meir. Gott er einnig aö nýta kvikmyndir og myndræmur, en skortur á slíku efni er þó mikill. Þessar barnasamkomur eru yfir- leitt vel sóttar. En veikur hlekkur og mjög bagalegur eru síöustu árin tvö næst á undan fermingarundir- búningi barnanna, þegar þau sækja allt of fá. Er þetta sérstak- lega slæmt, þar sem fermingar- börnin komast úr snertingu viö kirkju sína einmitt á þeim tíma, sem ætti aö vera góöur undirbún- ingur fyrir staöfestingu skírnar- heitsins, sem foreldrar stóöu fyrr aö, en barnið samþykkir í ferming- unni. Þyrftu bæöi söfnuöir og heimili aö kanna hvernig má bæta úr þessu, og síðan aö taka höndum saman meö úrbætur. Hvers getur barniö og heimiliö vænst af söfnuöinum? Jú, einmitt þess, aö þar sé aö finna þá hjálp og þaö samstarf, sem bezt getur tryggt farsælt trúarlíf með skilningi og eölilegri þekkingu. Án stuönings heimilanna er aöstaöa kirkjunnar erfiö. Og án tengsla viö kirkjuna veröur viöleitni heimilanna í þessu efni marklausari og rofin frá rót sinni. Frönsk kynningarvika í Reykjavík: Frönsk vika hefst í Reykjavík næstkomandi þriðjudag. Þar verður með ýmsu móti kynnt frönsk menning og franskar vörur. Verður kynningin í þremur aðaldráttum: 1) kvikmynda- vika með frönskum kvik- myndum í Regnboganum 2) vörusýning með frönskum framleiðsluvörum í Arsöl- um, sýningahöllinni á Bílds- höfða og 3) Litla París á Hótel Loftleiðum, þar sem boðið verður upp á franskan mat og vín, franska tónlist og sex listamenn frá Frakk- landi koma og skemmta gestum. Er kvikmyndavikan á vegum franska sendiráðs- ins og ágóði rennur til ís- lenzka Rauða krossins, kynningin á Loftleiðum á vegum hótelsins, skrifstofu Flugleiða í París, franska ferðamálaráðsins og við- skiptadeildar franska sendi- ráðsins í Reykjavík. Á frönsku vörusýningunni er mikið af frönskum vörum, m.a. tveir bílar, sem ekki hafa sést hér fyrr, Citroen Visa og Renault-bíll. Forstöðumenn kynningar- innar kynntu frönsku vik- una fyrir blaðamönnum: sendiherra Frakka í Reykja- vík Francois Desbans, Robert Poublan verzlunar- FRONSK VIKA á la Frangaise Fjóla og Frans heitir ein fyrsta kvikmyndin á frönsku kvikmyndavikunni. Isabelle Adjani leikur Violettu og Jacque Dutrone leikur Frans. Kvikmyndavika, vörusýnmg og Litía París á HótelLoftleiðum Vín og franskir ostar verða meðal þess sem Frakkar kynna á frönsku vikunni í Reykjavík. Hér eru franski sendiherrann, Francois Desbans, Emil Guðmundsson aðstoðarhótelstjóri og Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi að skoða þessar frönsku landbúnaðarafurðir sem boðið verður upp á á Hótei Loftleiðum. í ráðstefnusal Hótels Loftleiða fer fram Frakk- landskynning á vegum Flug- leiða, þar sem sýndar eru kvikmyndir frá Frakklandi, og 18. apríl verður ferða- kaupstefna, þar sem íslenzk- ir og franskir ferðamála- menn skiptast á upplýsing- um og skoðunum. Sagði Sveinn Sæmundsson að þetta væri átak til að efla aftur þau tengsl, sem voru milli Islands og Frakklands, en dofnuðu um skeið, og eru nú að lifna við aftur með vikulegum ferðum Flugleiða til Parísar á sumrin. En hann sagði landið alls ekki eins dýrt og menn héldu hér, og skemmtilegt að ferðast um lítil þorp með kaffihús- um, krám og matstöðum. Einnig hefðu Frakkar nú mikinn áhuga á Norðurslóð- um og Islandi. • Tveir nýir franskir bílar Hinn 18. hefst einnig franska vörusýningin í Ár- sölum við Bíldshöfða 20 kl. 6. Þar verða auk bílasýningar- innar sýndar franskar fram- leiðsluvörur, með snyrtivör- um, ilmvötnum, húsgögnum og innréttingum, sport- og fulltrúi og aðstoðarfulltrú- inn Dominique Pledel, frú Daniele Sæmundsson, sem sagði frá kvikmyndavikunni, og Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi og Emil Guð- mundsson aðstoðarhótel- stjóri Loftleiða kynntu vik- una á hótelinu. Á kvikmyndavikunni í Regnboganum við Hverfis- götu verða sýndar samtímis fjórar myndir dag hvern fram til 26. apríl. Hefur verið gefin út sýninarskrá. Nöfnin á myndunum eru Fjóla og Franz, 3 milljarðar án lyftu. Eiturlyf (með Jean Gabin í aðalhlutverki), Segðu að þú elskir mig, Með kjafti og klóm og Krabbinn. En þar sem margar myndir eru sýndar daglega, er hver mynd sýnd í nokkur skipti. Þetta er fimmta franska kvikmyndavikan, sm sendi- ráð frakka efnir til á Islandi. • La vie Parisienne Miðvikudaginn 18. apríl hefst franska vikan á Hótel Loftleiðum. Franskir réttir verða á boðstólum og franskur matreiðslumeist- ari, M. Jean Jacque Moulin- ier, mun stjórna í eldhúsinu ásamt yfirmatreiðslumann- inum Þórarni Guðlaugssyni og hans fólki. Frönsk tónlist verður leikin og sex lista- menn frá Frakklandi munu koma fram og skemmta gestum. Meðal atriða, sem sýnd verða, er Can Can dans, einnig látbragðsleikur um „la vie Parisiennne“, París- arlífið með sínum sérkenn- um, gamanþáttum og þjóð- dönsum frá Catalognehér- aði. Þá verða leikin gömul og ný frönsk lög. Sýningin verður táknmynd Parísar millistríðsáranna og blóma- tíma St. Germain de Pres með kaffihúsaheimspeking- um sínum. Þar verða teknar fyrir víðfrægar persónur úr ýmsum áttum, svo sem Tou- louse Lautrec, Jean Paul Sartre, La Goulue, o.s.frv. Salir hótelsins verða skreyttir í samræmi við frönsku vikuna. Dansað r á hverju kvöldi. Stuðtríó leik- ur. tómstundavörum, iðnaðar- vörum að ógleymdum frönskum vínum og mat- vöru, en Frakkar eru kunnir fyrir mat sinn og drykk. Þá sýnir sendiráðið franska í sýningarsalnum kvikmyndir, bæði barna- myndir svo og tæknimyndir af ýmsu tagi. Þar verða kynnt ilmvötn og fleira. Sýningin verður opin kl. 4—9 daglega, en helgidaga kl. 2 til 10. Fjórir framleið- endur taka þátt í sýning- unni. Þar verða 30 sýningar- básar með vörum og tvö frönsk fyrirtæki sýna sér- staklega. Franska kynningarvikan í Reykjavík stendur fram til 26. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.