Morgunblaðið - 11.04.1979, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
Skáldsagan er sí-
fellt eftirsótt
kvikmyndagerðarefni
Þrátt fyrir hina margum-
töluðu „kvikmyndakynslóð“,
nýja, sjálfbyrgingsiega
kvikmyndaskóla, hið vax-
andi álit kvikmyndarinnar
og hina „sjóniega uppöldu“
sjónvarpskynslóð. þá leita
handariskir kvikmynda-
gerðarmenn f ekki minni
mæli en áður að myndefni í
heim bókmenntanna. Kvik-
myndarétt nýjustu bókar
Michael Crichton, sem á að
baki sér nokkrar metsölu-
bækur sem allar hafa notuð
engu síðri vinsælda í kvik-
myndabúningi, er kvik-
myndaverið 20th Century -
Fox nýbúið að kaupa fyrir
sjöstafa tölu — f dölum að
sjálfsögðu. Bókin er enn
óútkomin, en fyrri verk rit-
höfundarins (og leikstjór-
ans), THE ANDROMEDA
STRAIN, WESTWORLD,
COMA, THE GREAT
TRAIN ROBBERY, eiga að
tryggja gæðin. Svipaða sögu
er að segja af Peter Bench-
ley (JAWS, TIIE DEEP),
fyrir skömmu voru boðnar
2.15 millj. dala í rétt-óút-
komna, nýjustu bók hans —
THE ISLAND.
Það dylst engum að nokkr-
ir útvaldir pennar eru komn-
ir í svipaða valdastöðu í
kvikmyndaborginni er áður
bauðst eingöngu örfáum af-
burðaleikstjórum og súper-
stjörnum. Nicholas Meyer,
höfundur metsölubókarinnar
THE SEVEN-PERCENT SO-
LUTION (sem jafnframt var
velsótt kvikmynd), er nýfar-
inn að leikstýra sínum eigin
myndum. Sama máli gegnir
um Michael Crichton, fyrir
nokkru var frumsýnd fyrsta
mynd hans sem leikstjóra —
reyndar höfundar líka —,
THE GREAT TRAIN ROB-
BERY, og nýtur hún mikilla
vinsælda þessa dagana. Paul
Erdman, höfundur bókarinn-
ar THE CRASH OF ’79, fékk
greidda 1 milljón dala til að
skrifa skáldsögu undir nafn-
inu ATLANTIC CITY - efn-
ið á að falla vel að gerð
kvikmyndar. Höfundar á
borð við James Michener geta
farið fram á ágóðahlut af
tekjum þeirra mynda sem
gerðar eru eftir bókum
þeirra. Og Harold Robbins er
það loðinn um lófana að hann
rekur sína eigin kvikmynda-
framieiðslu.
Gott merki um aukinn
áhuga á skáldsögum er hin
harðnandi samkeppni um
þær. Þegar MGM áleit núna á
dögunum, að þeir fengju
fyrstir að líta á bókina
SPHINX, vegna fyrri við-
skipta við höfundinn, kom
annað kvikmyndaver, hið ný-
stofnaða ORION PICTURES,
til skjalanna og keypti kvik-
myndaréttinn á eina milljón
— án þess að hafa augum
litið innihaldið. „Ef sá orð-
rómur kemst á kreik að ein-
staklega góð skáldsaga sé í
smíðum, verða allar línur
rauðglóandi," segir Owen
Laster, yfirmaður bók-
menntadeildar William Mor-
ris umboðsskrifstofunnar.
Jafnvel líttþekktir rithöf-
undar virðast ekki í vandræð-
um með að selja verk sín ef
þeir eru með æskilegt kvik-
myndagerðarefni í pokahorn-
inu. Cameron Crowe, ungur
blaðamaður hjá ROLLING
STONE, sem aldrei hefur
ritað skáldsögu, fékk sex
tölustafa tilboð frá Universal
fyrir óklárað handrit um lífið
í menntaskóla.
Til að firra sig þessari
samkeppni um leið og þau
tryggja sér möguleika á því
að ná í æskilegar bókmenntir
til kvikmyndagerðar, hafa
kvikmyndaverin í æ ríkari
mæli farið inn á þá braut að
semja við rithöfunda um
væntanleg verk þeirra. T.d.
greiddi MGM rithöfundinum
Chuck Sailor allvæna upp-
hæð til að skrifa THE SE-
POND SUN, skáldsögu um
mann sem hrapar niður af 48.
hæð og lifir það af. I staðinn
fær kvikmyndaverið að vega
og meta bókina í rólegheitum
áður en hún fer á markaðinn.
CASABLANCA FILM-
WORKS, sem upp á síðkastið
hefur notið góðs af vinsæld-
um myndarinnar MID-
NIGHT EXPRESS, hefur
jafnvel stofnsett sína eigin
bókaútgáfu. Það gaf út fyrir
skömmu bókina THE
GREAT L.A. FIRE, sem
fjallar um baráttu við geysi-
legan eldsvoða sem er að
leggja Los Angeles í rúst.
Jafnframt því að Casablanca
sleppur nú við að leggja út fé
til að kaupa kvikmyndarétt-
inn, þá hagnast það á sölu
bókarinnar.
En hvers vegna eru kvik-
myndaframleiðendur svo
háðir skáldsögunni? Að dómi
fjölda umboðsmanna og
framámanna kvikmynda-
vera, eru ástæðurnar einkum
tvær. í fyrsta lagi það umtal
og athygli sem velheppnuð
bók vekur. Og þar sem stefna
kvikmyndaveranna í dag er
að gera færri, en vandaðri
myndir, þá skiptir hinn stóri
hópur, sem þegar kannast við
verkið áður en myndin kemur
á markaðinn, talsverðu máii.
Því var George Englund, —
framleiðandi kvikmyndar-
innar ATLANTIC CITY, svo
áfjáður í að semja við Paul
Erdman. ,Um svipað leyti og
bókin kemur út, ætla ég að
vera byrjaður á myndatök-
unni og um leið og hún kemur
á markaðinn í pappírskilju-
formi á kvikmyndin að vera
tilbúin. Og þegar Erdman
verður að kynna skáldsögu
1 sína út um allar trissur, þá
fylgir kvikmyndin í kjölfar-
ið.“
Að sjálfsögðu eru dæmi
þess að birting sögunnar er
ekki alltaf eftirsóknarverð
fyrir framleiðandann. Eink-
um hvað varðar myndir eins
og STAR WARS, þar sem
meginburðarásinn er sér-
staklega frumlegur og for-
vitnilegur efnisþráður. Þetta
dæmi býður einnig upp á
stuld á brellutækni.
Hvað varðar rétt-óút-
komna bók eftir William
Kinsolving og fjallar um ætt
skozkra viskýgerðarmanna,
þá var bókin gefin út á
kostnað 20th Century - Fox
kvikmyndaversins, og það
jafnvel látið taka þátt í
kostnaði við kynningu bókar-
innar.
Önnur meginástæðan fyrir
vinsældum skáldsögunnar
sem kvikmyndaefnis er sú að
af og til ryður hún nýjar og
ótroðnar slóðir. „Handrita-
höfundum hættir um of að
elta hver annan og eru sér
þess vel meðvitandi hvað er
að gerast í iðnaðinum," segir
Nancy Hardin, varaforseti
þeirrar deildar Para-
mount-kvikmyndaversins,
sem sér um kaup á efni til
kvikmyndagerðar, „aft-
urámóti getur rithöfundur,
sem vinnur einangraður,
komið upp með ferskar hug-
myndir." Því var fyrsta
skáldsaga Lucien K. Truscott,
DRESS GRAY, sem fjallar
um kynvillu og spillingu með-
al kennara og nemenda við
herskólann fræga í West
Point, samstundis keypt. Hér
var verið að fjalla um efni
sem átti sér enga hliðstæðu í
kvikmyndasögunni. Sama
máli gilti um hina rómuðu
metsölubók John Irvings,
THE WORLD ACCORDING
TO GARP; Warner Bros hef-
ur fyrir löngu tryggt sér
kvikmyndaréttinn á bókinni.
Þá hefur góð skáldsaga —
gott efni — örvandi áhirf á
hinar torfengnu súperstjörn-
ur kvikmyndaheimsins, hvort
sem um er að ræða leikara
eða leikstjóra, nöfn sem
tryggja aðsókn. Til dæmis fer
Dustin Hoffman, ásamt
Meryl Streep (THE DEER
HUNTER), með aðalhlut-
verkið í myndinni KRAMER
VS KRAMER, sem byggð er á
skáldsögu Avery Kormans og
segir frá konu sem hleypur á
brott frá fjölskyldu sinni.
Orion keypti kvikmyndarétt-
inn á bókinni FINAL
PAYMENTS, er fjallar um líf
ungrar, kaþólskrar stúlku
eftir að hún missir föður
sinn. Efnið hefur nú vakið
athygli Diane Keaton, en hún
fór með ekki ósvipað hlutverk
í myndinni LOOKING FOR
MR GOODBAR. Og MGM
keypti kvikmyndarétt AT
PLAY IN THE FIELDS OF
THE LORD, eftir Peter
Mathiesen, sem segir af
málaiiða sem er
Cheyenne-indíáni í aðra ætt-
ina, og kemur suður-amerísk-
um indíánaættbálki til að-
stoðar, sökum þess að hin
sterka meginpersóna sögunn-
ar getur seitt til sín leikara á
borð við Jack Nickolson.
Þá er það einnig athyglis-
vert að ekkert kvikmyndatil-
boð hefur borist í fjölmargar
metsölubækur. Þeirra á með-
al er hið stóra verk m.m.
Kayne, THE FAR
PAVILLION, en að kvik-
mynda söguna í hinu fjar-
læga umhverfi sínu (mikið til
í Himalayafjöllunum) yrði
sjálfsagt alltof kostnaðar-
samt. Sama máli gegnir um
skáldsöguna sem fékk
National Book Critics Circle
Award árið 1977, SONG OF
SOLOMON. Og það þarf mun
færri viðskiptavini til að
skapa metsölubók en mynd
sem slær í gegn. „Þú kemst á
^metsölulistann ef þú selur
30—40.000 eintök skáldsögu,"
segir Mel Solokow hjá
Casablanca. „Ef þú ætlar að
koma þessari hugmynd með
góðum árangri á hvíta tjald-
ið, þá þarftu að fjölga við-
skiptavinunum úr 40 þús.
uppí 3 milljónir. Þetta er bil
sem oft reynist ógerlegt að
brúa.“
Jafnvel þó að um sé að
ræða heimsþekta höfunda og
bækur þeirra sem seljast í
geysilegum upplögum, þa er
ekki þar, með sagt að um
heppilegt kvikmyndagerðar-
efni sé að ræða. Ný skáldsaga
vel þekkts höfundar getur
einfaldlega verið full keimlík
fyrri verkum höfundar sem
hafa þegar verið kvikmynd-
uð. I þessu sambandi má
nefna nýjustu metsölubók
James Michene,
CHESAPEAKE; það hefur
enginn framleiðandi boðið í
hana enn þar sem umgjörð
hennar svipar svo til næstu
bókar höfundar á undan,
CENTENNIAL, og þegar hef-
ur verið fest á filmu, sem
sjónvarpsþáttur. THE
HONOURABLE SCHOOL-
BOY, eftir John Le Carré,
hefur heldur ekki freistað
neins framleiðanda enn sem
komið er. Astæðan er sú að
sagan og persónur hennar
eru of líkar fjölmörgum slík-
um sem fram hafa komið
bæði á hvíta tjaldinu og á
skjánum síðustu árin. Nýj-
asta skáldsaga Arthur
Haileys, OVERLOAD, þykir
ekki nógu fersk, þar sem um
dýra stórmynd yrði að ræða
ef bókin yrði kvikmynduð. Og
þrátt fyrir hið sögufræga
gengi THE GODFATHER,
sem kvikmyndar þá hefur
enginn, enn sem komið er,
keypt kvikmyndarétt á nýj-
ustu skáldsögu sama höfund-
ar, Mario Puzo. Nefnist hún
FOOLS DIE, og þykir koma
inná of mörg svið til að geta
talist heppileg til kvik-
myndagerðar. En aðalper-
sóna sögunnar er einmitt
rithöfundur sem hlýtur
skyndilega frægð í Holly-
wood, og tengist kvikmynda-
heiminum, fjárhættuspila-
borðum Las Vegas, Mafíunni
ofl.
Aðrar ástæður geta og
komið til. Morris West hefur
ekki selt kvikmyndarétt
helmings metsölubóka sinna,
þ.á m. þeirrar nýjustu,
PROTEUS. Ástæðan er sú að
í bækur hans sumar vantar
meiri spennu og þéttari at-
burðarás. Bækur eins vinsæl-
asta rithöfundar okkar tíma,
Robert Ludlum (hvenær
skyldi hann verða þýddur á
íslensku?), sem gjarnan
fjalla um síðari heimsstyrj-
öldina og eftirhreytur henn-
ar, eru oft teknar sem dæmi
um vinsælar bókmenntir sem
henta illa til kvikmyndagerð-
ar sökum þess fjölda mynda
sem þegar ha£a verið gerðar
um sama efni.
Af þeim bókum sem núna
eru að skríða uppá metsölu-
listana, má telja allvíst að
hinn nýi þriller Len
Deightons, SS-GB, nafnið
skýrir sig sjálft, verði fljót-
lega tekinn til meðhöndlunar
af kvikmyndaframleiðanda.
Og skáldsaga Ken Folletts,
EYE OF THE NEEDLE, en
bakgrunnur hennar er inn-
rásin í Normandie, einkum
þær aðferðir sem bandamenn
notuðu til þess að rugla Þjóð-
verja í ríminu, hefur þegar
verið keypt af United Artists.
„Við erum í bransa þar sem
engar reglur gilda," segir
Eric Pleskow hjá Orion. „Það
sem oft virðist pottþétt reyn-
ist svo alls ekki pottþétt. Það
tók heila eilífð að koma í
gegn kvikmyndagerðinni
ONE FLEW OVER THE
CUCKOO’S NEST. Á daginn
kom að þar var á ferðinni ein
ágætasta mynd sem gerð
hefur verið. Ef farið hefði
verið eftir formúlunni; að
gera aldrei kvikmyndir um
geðveikraspítala, þá hefði
ONE FLEW ... aldrei orðið
til . . .“
Heimildir: Aöaliesa grein e.
Francis Levy. sem birtist í
N.Y. TIMES 25. mars. S.V.
Best Sellers
a 1
vwfc Weeks
Week OnLisl
1 CHESAPEAKE, by James A Mlchener. (Ran- * dom House, $12.95.) Four centurles of Maryland s Eastem Shore 1 14
2 WAR AND REMEMBRANCE, by Herman Wouk. *• (Little, Brown. *I5.) The Henry famlly of The Winds of War" during World War II. 2
O OVERLOAD, by Arthur Halley (Doubleday, ** $10.95.) A public utillty encounters a crisls. » 1
4 THE STORIES OF JOHN CHEEVER. by John ^ Cheever (Knopf. *15.) Vislons of lost moral order amid contemporary domestic disarray. 4
5 THE COUP, by John Updtke. (Knopf. *8.95 ) A ** comedy of incongruities set in modem Africa S 9
C FOOLS DIE, by Mario Puzo. (Putnam’s, »12.50.) v Hollywood tycoons and llterary celebrities gam- ble with fate •
7 SECOND OENERATION, by Howard Fast. * (Houghton Mifflin, *8 95 ) The chtldren of “The ímmigrants" on the eve of World War 11. 7 19
O THE FAR PAVILIONS, by M M Kaye (St. Mar- ** tjn'S_ »12.95.) Love and war in the high Htma- layas 19 19
Q EVERGREEN, by Belva Plain. (Delacorte *10.) 9 Jewish immigrant woman’s rlse from Lower East Side poverty 9
lO THE SIXTH COMMANDMENT, by Lawrence Sanders (Putnam s. »10 95.) Susplclous prac- ticesota doctor-researcher. II
1 1 BRIGHT FLOWS THE RIVER, by Taylor Cald- ** well. (Doubleday, *I0.95.) The angst of a man confined toa sanitarlum. 8 14
12 THE SILMARILLION, by J R R Tolkien (Houghton Mlfflln, *10.95.) Mlddle-earth in pre- Hobbit days 1S
n THE STAND. by Stephen King. (Doubleday. *
$12 95 ) Terrible disease sweeps acroas the
United States
14 SECRETS.byF Lee Balley. (Stein* Day. ».9Ö.) 1
Courtroom mekdrama
1 C THE WOKLD ACCORDING TO GARF. by John 14 U
**' lrving. (Dutton/Henry Robbins, $10 95.) Comlc,
extravagant novel about son pf famous mother
Tht lislings above are bosed on computer-processed sales ftfuret
Meryl Streep og Dustin Hoffman f KRAMER VS
KRAMER, sem fjallar um óvenjulegt kvikmyndaefni:
konu sem yfirgefur heimiii sitt.
Sean Connery og Lesley-Ann Down í THE GREAT
TRAIN ROBBERY, leikstýrð af Michael Crchton og
byggð á metsölubók hans.