Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979 Minning: Arni Einarsson fyrrv. framkvœmdastjóri Fæddur 17. janúar 1907 Dáinn 5. apríl 1979. Árni á Reykjalundi er látinn. Hann andaðist á Borgarspítal- anum þann 3. apríl eftir stutta legu og verður jarðsettur í dag. Árni fæddist að Hvoli á Akranesi þann 17. jan. 1907. Foreldrar hans voru þau Einar Tjörvason sjómaður og kona hans Sigríður Sigurgeirsdóttir. Árni ólst upp í foreidrahúsum en fór til Reykjavíkur til náms 16 ára gam- all. Skömmu síðar veiktist hann af berklum og dvaldi að mestu á haelum eða sjúkrahúsum frá 1925 til 1933. Hælin voru á þeim tíma þéttset- in ungu fólki er barðist hetjubar- áttu gegn hvíta dauðanum en með misjöfnun árangri. Áhrif hinna sérstæðu félagslegu aðstæðna er þar ríktu greiptust í hug Árna og því var það að 1938 þegar berkla- sjúklingar stofnuðu samtök sín SÍBS, þá var Árni einn af stofn- endum Reykjavíkurdeildarinnar. Fljótt hlóðustu trúnaðarstörf á Árna innan SIBS. Hann var kjör- inn meðlimur stjórnar sambands- ins árið 1942 og þegar fyrsta byggingarnefnd Reykjalundar var skipuð, þá varð Árni Einarsson formaður hennar. Kynni okkar Árna hófust við komu hans í miðstjórn SÍBS og náið varð samstarf okkar þegar er undirbúningurinn hófst að bygg- ingu Reykjalundar. Við vorum báðir í fyrstu byggingarnefndinni og starf hennar var ekki auðvelt. Byggja þurfti endurhæfingar- og vinnuheimili fyrir berklasjúkl- inga, heimili, sem ekkert fordæmi var fyrir hér á landi eða við íslenskar aðstæður. Aðeins fá heimili þeirjar tegundar voru þá til í veröldinni. Byggja átti heimili á stuttum tíma við styrjaldar ástand og af aðilum sem nær ekkert fjármagn höfðu og væri einhver aur fyrir hendi, þá var óvíst um byggingar- efnið. Mannafli var þá einnig af skornum skammti og fyrir kom að við Árni urðum báðir að gerast handlangarar múraranna til þess að áætlun stæðist. Við þessar aðstæður naut hæfni Árna sín með afbrigðum vel. Dugnaður hans, útsjónarsemi og áhugi ruddu hverri hindrun úr vegi og þrátt fyrir alls konar annmarka, þá stóð fyrsti áfangi Reykjalundar tilbúinn til notkun- ar á tilsettum tíma, þ.e. 1. febr. 1945. Árni gerðist þá formaður stjórnar heimilisins. Brátt kom í ljós, að það var ofviða einum manni að vera bæði læknir og framkvæmdastjóri þess- arar vaxandi stofnunar og 1948 varð Árni Einarsson forstjóri Reykjalundar og flutti með fjöl- skyldu sína á staðinn. Starf okkar Árna varð nú mjög samtvinnað, flókið og margþætt. Auk þess að halda áfram að byggja upp staðinn, þá þurfti að viðhalda heilsu vistmanna, þjálfa til hinna fjölbreyttustu starfa, breyta sjómanni í trésmið, vinnu- konu í saumakonu, verkamanni í járnsmið o.s.frv. Allt þetta krafð- ist mjög náins samstarfs læknis- ins og framkvæmdastjórans. Eg minnist með þakklæti og virðingu þessara samskipta við Árna, hans takmarkalausa áhuga fyrir þróun og vexti þeirrar stofn- unar sem við unnum við. Skilningi hans og hlýju í garð þeirra sem við erfiðleika áttu að stríða og máske voru á mörkum þess að geta hagnýtt þá litlu starfskrafta sem eftir voru. Þegar svo Árni lét af störfum framkvæmdastjóra að Reykja- lundi sjötugur að aldri fyrir 2 árum síðan, þá var ekki um neinn hokurbúskap að ræða á þeirri merku stofnun eins og þegar hann kom þar til starfa. Þar er nú orðin mikil breyting á. í glæsilegum vinnusölum er nú framleidd nytja- vara, sem er þekkt og notuð um land allt. Undir stjórn Árna er Reykja- lundur orðinn að einu stærsta iðnfyrirtæki landsins. Uppbygging og rekstur Reykjalundar varð hans ævistarf, starf sem hefur borið ríkulegan ávöxt og öll þjóðin nýtur. Þjóðin stendur því í þakkarskuld við þann sem nú er kvaddur, starf hans mun um ókomin ár tryggja betur en ella félagslegt öryggi og heilbrigði í þessu landi. Árni er greindur og bókhneigður maður sem las hvenær sem færi gafst. Heimili hans var þekkt menningarheimili þar sem hjónin voru samhent um að efla, styðja og meta það sem best er í íslenskri menningu. Þann 1. okt. 1934 kvæntist Árni Hlín Ingólfsdóttur frá Innra Hólmi. Þau höfðu kynnst, er bæði voru sjúklingar á hæli. Þau hjón voru einstaklega sam- hent og eitt af þeirra sameiginlegu áhugamálum var að byggja brúna á milli hælisins og atvinnulífsins. Þessa brú sem svo mjög vantaði þegar þau voru bæði sjúklingar. Árni var því ekki einn að verki að starfi sínu fyrir Reykjalund, þar naut hann aðstoðar konu sinnar sem skildi svo einstaklega vel mikilvægi starfs, sem hann var að vinna að. Árni og Hlín eignuð- ust 6 börn, þau eru nú öll upp komin. Ég og fjölskylda mín flytjum aðstandendum innilegar samúðar- kveðjur. Við þökkum lærdómsrík og ánægjuleg ár í samstarfi og nábýli. Þau mörgu ár eru okkur ógleym- anleg. Oddur Ólafsson. Árni Einarsson í Reykjalundi er nú fallinn frá um aldur fram og komið skarð í hóp þeirra manna sem hófu hina félagslegu baráttu í samtökum berklasjúklinga á Is- landi. Þessi fátæklegu kveðjuorð við líkbörur þessa mæta manns segja ekki allt sem vert væri að minnast. Árni gerðist forstjóri að Reykja- lundi 1948 og fluttist þá í Mosfells- sveitina. Verk Árna skýra sig sjálf hverjum þeim er lítur heim að staðnum en hann hefir verið einn þeirra ágætu manna sem hafa mótað og stjórnað þessu stóra heimili. í starfi sínu hefir Árni notið trausts og virðingar ekki einungis heimilisfólks að Reykjalundi held- ur einnig og í ríkum mæli meðal fólks í hreppnum. Þrátt fyrir annríki heima fyrir gaf hann sér tíma tit þess að sinna ýmsum trúnaðarstörfum fyrir samfélagið og þá einkum þeim sem voru vandasöm og kröfðust réttsýni og nákvæmni. Að leiðarlokum vil ég færa vini okkar þakkir fyrir sam- fylgdina og samstarfið. Árni stóð ekki einn í lífinu. Hann átti því láni að fagna að eiga ágæta konu og bjó við farsælt barnalán en þessi fjölskylda hefir markað spor í sögu héraðsins á ýmsum sviðum. Ég þakka samverustundir þær sem ég hefi átt á heimili þeirra hjóna og einnig og ekki síður í stjórn Reykjalundar síðustu árin. Ég leyfi mér að færa Hlín og börnunum og öllum aðstandendum hlýjar kveðjur og samúð við fráfall hans. Með virðingu og þakklæti kveð ég góðan dreng, blessuð sé minning hans. J.M.G. Þegar ég heyrði lát vinar míns og félaga, Árna Einarssonar, fyrr- verandi forstjóra Reykjalundar og núverandi stjórnarmanns S.I.B.S., var mér innanbrjósts eins og brostið hefði strengur hið innra. Við Árni áttum svo margt eftir ósagt og ógert, að erfitt var að sætta sig við það óhjákvæmilega, að eitt sinn skal hver deyja. Síðasta samtal okkar Árna var aðeins nokkrum dögum fyrir and- lát hans, þar sem við vorum að ræða okkar sameiginlegu áhuga- mál um málefni S.I.B.S. og Reykjalundar. Lauk því samtalj með ákvörðun að hittast í byrjun þessa mánaðar til frekar umræðna og athugana, sem aldrei verður og það tóma- rúm, sem Árni lætur nú eftir sig í okkar röðum, get ég í dag ekki séð hvernig fyllt verður. Starfssaga Árna Einarssonar er einnig saga S.I.B.S. og Reykja- lundar. Árni veiktist af berklum aðeins 18 ára gamall. Sjúkrasaga hans var löng og ströng eins og þá gerðist. Fyrst lá leiðin á Vífils- staðahæli, en þaðan Kópavogshæli og að lokum Reykjahæli í Ölfusi og tók þessi för 8 ár, en hann útskrif- aðist frá Reykjahælinu 1933. Árni var því gerkunnugur aðstöðu allri á berklahælunum og því vonleysi, sem hvíldi yfir bata- horfum þeirra sem þar voru enda voru þær smáar á þeim árum og margt ungmenni féll í valinn. Samband ísl. berklasjúklinga var stofnað haustið 1938 af sjúkl- ingum berklahælanna, en fyrsta deildin utan hæla var stofnuð árið 1939 í Reykjavík af fyrrverandi berklasjúklingum. Árni var einn af stofnendum Reykjavíkurdeildarinnar. Kosinn í fyrstu stjórn þar og frá þeim tíma verið í forystusveit samtakanna. Verkefni þessara ungu samtaka, sem stofnuð voru.af sjúku, dauð- vona fólki, voru óteljandi og virt- ust óleysanleg. En með trúna á lífið og bjart- sýnina að leiðarljósi var hafist handa. Á stofnárum S.I.B.S. voru berklahælin yfirsetin og hlutur margra var að bíða eftir vist. Þvi neyddust læknar til að útskrifa sjúklingana fyrr en ákjósanlegt var, en því miður til hinna erfið- ustu lífsskilyrða og starfa, ef völ var á þeim á tímum atvinnuleysis og skorts, sem þá var hér á landi. Samtök sjúkra þekktu þvi betur en nokkrir aðrir þörfina fyrir nauðsyn vinnuþjálfunar og endur- hæfingar, þegar hælisvistinni lyki, og því fæddist hugmyndin um að brúa bilið frá hælisvistinni til starfa á ný með því að reisa slíka stofnun, sem fékk nafnið „Brúin til lífsins". Á fyrstu starfsárum S.Í.B.S. var því hafist handa með undirbúning og var Árni kosinn í fyrstu bygg- ingarnefnd væntanlegs vinnu- heimilis og var fyrsti formaður stjórnar vinnuheimilisins að Reykjalundi. Byrjað var á byggingafram- + Stjúpsonur minn og bróöir okkar GUÐMUNDUR BJARNASON natagaróarmaóur, Öðinagötu 20 A, Raykjavfk, andaöist aö Landspítalanum sunnudaginn 8. apríl. Anna þórarinadóttir Baldur Bjamaaon, Unnur Bjarnadóttir, Erla Bjarnadóttir, Auður Bjarnadóttir. t Faöir okkar SÉRA SIGURJÓN Þ. ÁRNASON Flókagötu 65 andaöist f Borgarspítalanum aö morgni þriöjudagsins 10. apríl. Eyjólfur K. Sigurjónsson, Árni Sigurjóntson, Línoy Sigurjónsdóttir, Þóray J. Sigurjónsdóttir, Páll Sigurjónsson, Þórunn Ásthildur Sigurjónadóttir, Snjólaug Anna Sigurjónadóttir. + Faöir okkar, tengdafaöir og afi, SVAVAR SIGURDSSON, btfrsióastjóri, lést aö heimiii sínu 1. apríl s.l. Jaröarförin hefur fariö fram. Hslsna Svavarsdóttir, Birgir Guðmundsson, Þorstsinn Svavarsson, Siguröur Ingi Svavsrsson, Hóimfríöur Guómundsdóttir, Margrát Svavarsdóttir, Síguröur Þórarinsson, Ssssslja Svavarsdóttir, Borgar Skarpháðinsson, Guómundur Svavarsson, Ólöf Aóalbjörnsdóttir, Sóhrsig Svavarsdóttir, Einar Hilmarsson, Rósa Svavaradóttir, Pátur Jsnsson og barnabörn. Lokað í dag 1—3 vegna útfarar GUÐMUNDAR GRÍMSSONAR, húsgagnasmíöameistara. Helgafell bókabúö Laugavegi 100, Skóbúö Austurbæjar Laugavegi 100. Lokað eftir hádegi í dag vegna jaröarfarar ÁRNA EíNARSSONAR, fyrrverandi framkvæmdastjóra að Reykjalundi. S.Í.B.S. Suðurgötu 10, Múlalundur, Ármúla 34. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns, fööur, tengdaföður og afa ÓLAFS B. KRISTJÁNSSONAR, Ásta Markúsdóttir, Ingibjörg Ó. Bussa, Poul Bussa, Banoný Ólafsson, Guófinna Snorradóttir, og barnabörn. + Þakka sýnda samúö og vináttu vegna fráfalls elginkonu mlnnar ÓNNU BLAKSTAD ÓLAFSSON. Björn Ólafsson. + Innilegt þakklætl til allra þeirra sem auösýndu samúö, hlýhug og heiöruöu minningu eiginmanns míns SIGURBJÖRNS RAGNARS JÓHANNSSONAR sem lést 6.3. 79. Sérstakar þakkir vlljum viö fœra lögreglumönnum Hafnarfjarðar fyrir veitta aöstoð og virölngu. Erla Bára Andrásdóttir, börn og stjúpbörn. Vegna jarðarfarar ÁRNA INGVA EINARSSONAR, fyrrverandi framkvæmdastjóra á Reykjalundi veröa skrifstofur, söludeildir og framleiösludeildir vinnuheimilisins aö Reykjalundi lokaöar efti? hádegi í dag miövikudag. Vinnuheimilið að Reykjalundi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.