Morgunblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
33
©
Vorumarkaðurinn hf.
Armúla 1 A Sími 86112.
Berfœttir yfir kolaglóð
+ Búddamunkarnir í hinum
fjarlægari Austurlöndum, eins
og Asíulöndin eru stundum
kölluð í fréttum, virðast
óhræddir við að fást við eld. —
Á dögum Víetnamstríðsins
bárust fregnir af því að Búdda-
munkar f S-Víetnam steyptu
yfir sig bensíni og kveiktu svo í
sjálfum sér. — Þessi mynd sem
er tekin í einu borgarhverfi
Tokýóborgar fyrir nokkru
sýnir japanskan Búddaprest
ganga berfættan yfir kolaglóð.
Þeir hafa stundað þetta þar í
landi síðan um árið 744. Þeir
hvorki finna til hitans né
heldur brenna þeir sig. —
Skýringin er sögð vera sú að
þeir eru á svo miklu hærra
plani en sauðsvartur almúginn.
Björninn unninn?
+ DANSARINN heimsfrægi, Rudolf Nureyev, kom um daginn á hinn
fræga dans- og skemmtistað „Studio 54“ í New York. — Þar var þá
þessi litli drengur, sem stórdansarinn er að skemmta með nokkrum
völdum disco-danssporum í spari-Grease-buxunum sínum. — Af texta
myndarinnar má ráða að drengurinn, sem er 9 ára, gæti verið ný
barnastjarna. Hann heitir Ricky Schroder, kominn með annan
fótinn inn í kvikmyndabransann. — Þá ætti björninn að vera
unninn!
Klukkan?
+ Er Bandarflcjaforseti aft gá að því
hvað klukkan á veggnum sí? — Svo
getur verið. En torsetinn er hér
staddur í þeirri byggingu, sem verið
hefur hvað mest f fréttum að undan-
förnu, nefnilega kjarnorkuverinu (
Harrisburg. — Hann vildi sjálfur
fara á staðinn þegar fregnirnar um
hina alvarlegu bilun bárust honum.
Þegar hann kom þangað var hann og
fylgdarmenn hans látnir draga sér-
stakar geislahlffar á fætur sér áður
en þeir fóru inn í völundarhós
þessarar atómstöðvar. — Maðurinn
iengst til vinstri er yfirmaður kjarn-
orkumálastofnunarinnar, Harold
Denton, sem fór með forsetanum. Að
baki þeim er fyíkisstjóri
Pennsylvaniafylkis, sem hefur sagt
að það sé ekki vfst að kjarnorkuverið
verði tekið aftur f notkun.
Svefnbekkir, veggeiningar.
Hagstætt verö
Sænsk bambus-húsgögn, sófar —
borð — stólar. Falleg og vönduð
vara
Aðventkirkjan Reykjavík Ingólfsstræti 19
Verið veikomin Miðvikudagur 11. april:
á guösÞjónustur Guösþjónusta kl. 20:30. Skírdagur:
og samkomur um Biblíulestur kl. 9:00
hátíöarnar: Guösþjónusta kl. 20:30. Föstudagurinn langi: Biblíulestur kl. 9:00 Guösþjónusta kl. 20:30 Laugardagur 14. apríl: Biblíulestur kl. 9:45 Guösþjónusta kl. 11:00 Æskulýðssamkoma kl. 20:30 Páskadagur: Guðsþjónusta kl. 20:30
Dr. B.B. Beach og Hugh Dunton frá N-Evrópudeild S. D.
Aöventista prédika og veröur þýtt á íslensku jafnoöum.
Fjölbreyttur söngur, m.a. kirkjukór safnaðarins.
fclk í
fréttum