Morgunblaðið - 11.04.1979, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
Hvor verður meistari,
Valur eða Víkingur?
ÚRSLITALEIKUR íslandsmótsins í handknattleik fer
fram í Laugardalshöll klukkan 20.30 í kvöld. Þar eigast
við risarnir í íslenzkum handknattleik. íslandsmeistarar
Vals ok bikarmeistarar Víkings. Hér er um hreinan
úrslitaleik að ræða, það liðið sem sigrar er íslandsmeist-
ari en ef viðureigninni lyktar með jafntefli verða bæði
liðin jöfn með 24 stig og þurfa að leika aukaleik. Ef til
slíks íeiks kemur fer hann fram miðvikudaginn 18. aprfl
n.k.
Búist er við geysilegri aðsókn á
leikinn í kvöld enda hafa hand-
knattleiksunnendur beðið í allan
vetur eftir viðureign þessara
tveggja liða. Leikir liðanna undan-
farin ár hafa ávallt verið mjög
skemmtilegir og spennandi og er
þess skemmst að minnast að fyrri
leikur liðanna í mótinu endaði með
jafntefli 22:22. Forsala aðgöngu-
miða verður í dag í Laugardalshöll
og hefst hún klukkan 18. Skóla-
lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts
leikur fyrir leik og í leikhléi undir
stjórn Olafs L. Kristjánssonar og
fyrir leikinn munu heiðursgestir
leiksins, borgarstjóri og borgar-
ráð, heilsa upp á leikmenn. Ef
hrein úrslit fást verður Islands-
bikarinn afhentur í leikslok. Full
ástæða er til þess að hvetja hand-
knattleiksunnendur til þess að
koma tímanlega á leikinn svo þeir
losni við biðraðir og troðning.
Ómögulegt er að spá fyrir um
úrslit leiksins í kvöld. Liðin eru
ákaflega ólík, Valsliðið mjög
sterkt varnarlið en leikur fremur
þungan og hægan sóknarleik en
Víkiiigsliðið er aftur á móti beitt-
asta sóknarlið landsins, enda
stefnir það að nýju markameti í 1.
deild en liðið hefur hins vegar
veriði talið fremur slakt varnarlið.
Það mun því koma í ljós í kvöld
hvort vegur þyngra á vogarskálun-
um varnarleikur Vals eða sóknar-
leikur Víkings og einnig mun
markvarzlan hafa sitt að segja.
Á blaðamannafundi í fyrradag
sátu m.a. fyrir svörum fyrirliðar
beggja liðanna, Stefán Gunnars-
son og Páll Björgvinsson, en ef að
líkum lætur mun annar hvor
þeirra taka við Islandsbikarnum í
kvöld. Hér fer að eftir í endursögn
það helsta sem þeir félagar höfðu
um leikinn að segja:
„Villidýr“ á Vellinum en
vinir þess utan
Stcfán Gunnarsson, fyrirliði
vals:
„ Það er góður hugur í okkur
Valsmönnum. Við höfum æft á
hverjum degi og við stefnum að
sigri. Liðið hefur verið í öldudal í
síðustu leikjum og gætti þar fyrst
og fremst áhrifa frá Spánar-
ferðinni en nú er þetta allt að
koma og ég spái jöfnum og
skemmtilegum leik. Leikirnir við
Víking hafa alltaf verið jafnir og
þótt annað liðíð nái einhverju
forskoti í leikjunum hefur hinu
liðinu jafnan tekist að vinna það
upp aftur. í fyrri leik liðanna í
vetur komust við Valsmenn t.d.
3—4 mörkum yfir í seinni hálfleik
en máttum svo prísa okkur sæla
með jafntefli í lokin. Það er engin
vafi á því að Valur og Víkingur
eiga tvö sterkustu handboltaliðin í
dag og tel ég ástæðuna vera fyrst
og fremst þá að þessi tvö lið æfa
bezt og leikmenn þeirra leggja
harðast að sér, auk þess sem þau
• Hvor hampar (slandsbikarnum að leikslokum, Páll Björgvinsson fyrirliði Víkings
(t.v.) eða Stefán Gunnarsson fyrirliði Vals.
Kveójuleikur Viggós
LEIKUR VÍKINGS og Vala í kvöld verður kveðjuleikur
Viggós Sigurðssonar, skyttunnar miklu í Víkingi, en
hann mun leika með spænska liðinu Barcelona
næstu tvö árin a.m.k.
Viggó lýsti Því yfir á blaðamannafundinum (
fyrradag að hann sstti að vera mættur til Barcelona
um miðjan apríl og hann gæti Því ekki leikið með
Víkingi aukaleik við Val ef til kæmi nó í bikarkeppn-
inni.
Viggó er litríkur handknattleiksmaöur, sem tekiö
hofur stórstígum framförum í vetur. Hann bætist í
stóran hóp góöra handknattleiksmanna, sem Víking-
ur hefur orðið að sjá af til erlendra liða á undanförn-
um árum.
hafa tvo beztu þjálfarana.
Samkomulagið milli leikmanna
Vals og Víkings er í alla staði til
fyrirmyndar, t.d. í landsliðs-
ferðum, leikmennirnir eru kannski
„villidýr" inni á vellinum en vinir
þess utan.
Þeir eru erfiðir þessir
stóru og sterku menn
Páll Björgvinsson, fyrirliði
Víkings:
Við Víkingar kvíðum þessum
leik ekki, við teljum að nú sé
komin röðin að okkur að vinna. En
Valsmennirnir verða erfiðir eins
og alltaf, þessir stóru og sterku
leikmenn. Undirbúningurinn hefur
staðið yfir í 4 vikur hjá okkur og í
síðustu leikjum höfum við verið að
reyna ýmislegt, sem notað verður í
leiknum í kvöld. Við ætlun að
berjast til síðasta blóðdropa og
tryggja okkur titilinn. Þrátt fyrir
að Valsmenn séu okkar aðaland-
stæðingar á leikvellinum er sam-
komulagið mjög gott milli leik-
manna þessara tveggja liða, það
sannaðist áþreifanlega í Spánar-
ferðinni. Ég vona að leikurinn
verði spennandi og skemmtilegur
og ég get lofað því að þetta verður
hörkuleikur fyrir áhorfendur.
Dómarar í kvöld: Gunnlaugur
Hjálmarsson og Karl Jóhannsson
milliríkjadómarar.
-SS.
1. ólafur Benediktsson
2. Brynjar Harðarson
4. Bjarni Guðmundsson
5. Gísli Arnar Gunnarsson
6. Karl Jónsson
7. Steindór Gunnarsson
8. Stefán Gunnarsson
9. Þorhjörn Jensson
10. Jón Karlsson
11. Jón Pétur Jónsson
13. Þorbjörn Guðmundsson
14. Björn Björnsson
15. Gisli Dan Rafalowich
lfi. Brynjar Kvaran
Þjálfarar: Hilmar Björnsson og
Gunnsteinn Skúlason.
Leikir í mfl: Landsleikir:
155 98
13
153 48
100
70
163 20
290 60
73 20
350 68
222 20
200 55
72
10
73 10
Lið
Víkings
Markverðir: Leikir í mfl: Landsleikir:
1. Eggert Guðmundsson 58
12. Kristján Sigmundsson Aðrir leikmenn: 42 25
3. Steinar Birgisson 48
4. ólafur Jónsson t 128 22
5. Skarphéðinn óskarsson 187 „
6. Sigurður Gunnarsson 44 4
7. Páll Björgvinsson 286 44
8. Erlendur Hermannsson 105 2
9. Árni Indriðason 46 60
10 Guðm. Skúli Stefánsson 12
11. Viggó Sigurðsson 160 48
13. Gunnar Gunnarsson 2
14. Einar Magnússon 249 69
Þjálfari: Bogdan Kowalzyk.
Liðsstjóri: Ilannes Guðmundsson.