Morgunblaðið - 11.04.1979, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
39
INGÓLFUR ÓSKARSSON, ÞJÁLFARIIR.
— t>að er geysilega erfitt að spá um
úrslit þessa leiks því liðin eru svo jöfn.
Annaðhvort liðið vinnur með 1—2 mörkum.
Ef markvarzlan verður góó hjá Vfkingun-
um vinna þeir leikinn annars vinnur Valur.
GEIR HALLSTEINSSON, FH:
— Ég held að Valur vinni og spái að
leikurinn endi 18—16. Valsmenn hafa
sterkari vörn og markvörzlu og sðknarleik-
ur hefur ekki svo mikið að segja f svona
leik, þar sem taugaspennan verður gffurleg.
Hitt er svo annað mál að Vfkingar búa yfir
meiri baráttuviija og ef markvarzlan hjá
Kristjáni verður góð getur Víkingur unnið.
Hann verður mikiivægasti maður Vfkings-
iiðsins f kvöld. Ég vil svo koma þvf að í lokin
að sem sóknarleikmaður óska ég þess að
Vfkingarnir vinni, mér finnst sóknarleikur
skemmtilegri en varnarleikur og Vfking-
arnir eru beztu fulltrúar góðs sóknarleiks f
dag.
STEFÁN JÓNSSON, HAUKUM:
— Ég held að Vfkingur vinni lelkinn með
tveggja marka mun og gizka á lokatölurnar
17:15% VfUngsliðið er að mfnu mati sterkara
lið en Valur og virðist vera f mjög góðri
æfingu.
PÉTUR JÓHANNESSON, FRAM:
— Ég hugsa að Valur vinnl leikinn 15:14.
Valsmenn vinna leiklnn fyrst og fremst á
vörninni, hún hefur mest að segja f svona
leik. Einnig tei ég að Valsliðið verði f melra
jafnvægi í svona erfiðum leik. Hins vegar
gætu hraðaupphlaup orðið Vfkingunum
drjúg. Ég hlakka mikið til þessa ieiks þvf
það eru mörg ár sfðan við höfðum fengið
annan eins úrslltaleik f handboltanum.
PÉTUR BJARNASON, ÞJÁLFARI
FYLKIS:
— Víkingur vinnur leikinn 10:15. Ég tel
Vfkingsliðið einfaldlega betra lið og ég held
að það brenni sig ekki á þvf sama og f fyrra.
Ég vona að leikurinn verði skemmtilegur á
að horfa en auðvitað verður taugaspennan
mjög mikil.
RAGNAR ÓLAFSSON, HK:
- Ef dæma á eftir því sem ég hef séð til
þessarra tveggja llða í vetur held ég að
Vfkingarnir séu betri. Ég spái þeim tveggja
marka sigri og gizka á tölurnar 20:18.
Valsmenn eru sterkari í vörn en Víkingarn
ir mjög gott sóknarlið auk þess sem vörnin
hjá þeim hefur batnað að undanförnu. Ég á
von á skemmtilegum leik og trúi ekki öðru
en fólk fjölmenni í Höllina.
Skíðalandsmótið sett á ísafirði i gær:
„Þriðjudeginum
frestað um einn dag
ísafirði, 10. apríl. Frá Sigurði Grímssyni,
fréttamanni Mbl:
KLUKKAN 14.30 í dag hófst
mótssetning Skíðalandsmóts
íslands á Skarðsengi í
Seljalandsdal. Guðmundur
Ingólfsson forseti bæjarstjórnar
ávarpaði viðstadda en að loknu
ávarpi hans setti mótsstjóri.
Fram
vann
EINN leikur fór fram í
Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Fram
vann Víking 2:1, eftir að stað-
an hafði verið 2:0 í hálfleik.
Framarar sóttu mun meira
undan norðan-strekkingi í f.h.
og skoruðu tvö mörk, Gunnar
Orrason það fyrra og Pétur
Ormslev það seinna. I seinni
hálfleik snerist dæmið við,
Víkingar sóttu þá mun meira
en tókst aðeins að skora eitt
mark og var Heimir Karlsson
þar að verki.
Oddur Pétursson, mótið, sem nú
er haldið í 41. skipti.
Vegna veðurs var ekki hægt að
hefja keppni í göngu, sem fram
átti að fara klukkan 15 í dag, og
var henni frestað fyrst fram eftir
degi, en þar sem veður lægði ekki
var ákveðið að geyma keppnina til
morguns.
Veður er nú að lagast hér á
ísafirði og vona menn að göngu-
keppnin geti hafist fyrir hádegi
eins og áformað er og stökkkeppn-
in síðdegis geti einnig farið fram
samkvæmt áætlun.
Oldungamót
i skíðagöngu
áá
F
SKÍÐARÁÐ Reykjavíkur gengst
fyrir svökölluðu „01dungamóti“ í
skíðagöngu á skírdag klukkan 14
í Bláfjöllum. Keppt verður í 6
flokkum, 4 flokkum karla og
Vítaköstin
rétt dæmd
— segir dómarinn
VEGNA frásagnar af leik FH og Þórs í
1. deild kvenna haföi annar dómara
leiksins samband viö blaöiö og vildi
koma því á framfæri aö öll vítaköstin
í leiknum, 22 aö tölu, heföu veriö
dæmd af illri nauösyn vegna þess
hve leikmenn beggja liða heföu
brotiö gróflega á andstæöingum
sínum í góðum færum. Kvaö dómar-
inn þaö hafa veriö áberandi í leiknum
aö stúlkurnar heföu leikið vörnina af
kæruleysi og væri þeim hollt eins og
mörgum öðrum handboltamönnum
að kynna sér betur reglurnar um
vítaköst.
tveimur kvennaflokkum. Sport-
val hefur gefið hikara til keppn-
innar og páskaegg verða í auka-
verðlaun. Þeir, sem ætla sér að
vera með. eru beðnir að koma til
skráningar klukkan 13 á skírdag
í skálann í Bláfjöllum. Myndin er
af verðlaunagripnum.
Víðavangshlaup
Hafnarfjarðar
VÍÐAVANGSHLAUP
Hafnarfjarðar fer fram 19 apríl
næstkomandi og hefst það klukk-
an 14.00 við Lækjarskólann.
Keppt verður í aldurshópum og
eru það eftirfarandi flokkar:
Álafosshlaupinu lýkur við
Álafossverksmiðjuna.
Álafosshlaup á skírdag
SJÖTIU ár eru í dag, miðvikudag,
liðin frá því að ungmennafélagið
Afturelding í Mosfellssveit var
stofnað. I tilefni þessara tímamóta
mun félagið efna til íþróttakeppni
ýmiss konar yfir bænadagana.
M.a. heldur félagið sitt árlega
Álafosshlaup á morgun, skírdag,
en hlaupið hefst á Úlfarsfellsvegi
klukkan 14.
Keppt verður í þremur aldurs-
flokkum beggja kynja. Karlar
fæddir 1962 og síðar hlaupa tæpa
sex kílómetra, konur í sama flokki
2,8 kílómetra. Þeir sem fæddir eru
árin 1963, ’64, og ’65 hlaupa 2,8 km,
bæði kynin. Þriðja aldursflokkinn
skipa þeir sem fæddir eru 1966 og
síðar og verður vegalengd í þeim
flokki 1500 metrar.
8 ára og yngri strákar og stelpur
9—12 ára stelpur
13 ára og eldri stelpur
9—13 ára strákar
14 — 16 ára strákar
17 ára og eldri karlar
Verðlaun verða veitt fyrir 3
fyrstu sætin í hverjum flokki og
auk þess fá allir keppendur viður-
kenningarskjai. Innritun í hlaup-
ið er hjá Verslun Valdimars
Long, Strandgötu 41, dagana 17.
og 18. apríl.
Fyrirtækja-
keppni í
badminton
BADMINTONSAMBAND íslands hef-
ur ákveöiö aö efna til badrhintonmóts
með þátttöku starfsmanna fyrirtækja
og stofnana. Fer mótiö fram í
TBR-húsinu aö Gnoðarvogi 1,
Reykjavík. Hefst mótiö sunnudaginn
22. apríl kl. 1.30 e.h.
Keppnin er útsláttarkeppni með
því fráviki, aö liö sem tapar í í fyrstu
umferö tekur sæti í B-flokki og heldur
áfram keppni þar eftir sama fyrir-
komulagi.
Keppt skal í tvíliöa- og tvenndar-
leik. Annar eöa báöir keppendur
skulu vera starfsmenn fyrirtækisins
sem þeir keppa fyrir. Ef fyrirtækiö
eða stofnunin getur aðeins sent einn
keppanda má viðkomandi velja sér
meðspilara. Hverju fyrirtæki eöa
stofnun er heimilt aö senda fleiri en
eitt liö.
Keppnin fer aö öllu leyti eftir
reglum BSÍ.
Þátttökugjald er kr. 10.000 - á liö,
sem greiðist á mótsdegi.
Nónari upplýsingar gefa eftirtald-
ir aöilar: Rafn Viggósson, Magnús
Elíasson, Adólf Guðmundsson sem
einnig taka á móti þátttökutilkynn-
ingum og skulu þær berast fyrir 19.
apríl.
Liverpool vann
og jók forystuna
Slagur
í Stapa
UNGMENNAFÉLAG Keflavíkur
gengst fyrir sterku júdómóti á
annan í páskum til að halda upp á
50 ára afmæli félagsins. Fer
mótið fram í Stapanum í Ytri
Njarðvík. Er hér um opið mót að
ræða, keppt verður í 3 þyngdar-
flokkum og verða þarna flestir
sterkustu júdómenn landsins.
Ætlar UMFK að halda mót þetta
árlega framvegis.
FJÖLMARGIR leikir fóru fram í
ensku og skozku deildarkeppn-
inni í gærkvöldi og verður hér
getið úrslita f helztu leikjunum:
1. deild:
Arsenal — Tottenham 1:0
Bristol City — Chelsea 3:1
Everton — Coventry 3:3
Middlesbr. — Leeds 1:0
Wolverhampton — Liverpool 0:1
2. deild:
Burnley — Newcastle 1:0
Crystal Palace — Cambridge 1:1
Millwall — Orient 2:0
Sheffield Utd. — Notts County 5:1
Skotland:
Ranges — Motherwell 3:0
Liverpool virðist alveg óstöðv-
andi og stefnir markvisst að
meistaratitlinum. Alan Hansen,
skozki miðvörðurinn, skoraði mark
liðsins gegn Woiverhampton á 34.
mínútu. 54 þúsund áhorfendur
fylgdust með slökum leik nágrann-
anna í Lundúnum, Arsenal og
Tottenham. Sigurmark Arsenal
skoraði Frank Stapleton á síðustu
mínútu leiksins. Liam Brady lék
að nýju með Arsenal og lagði upp
sigurmarkið. Everton var í vand-
ræðum með Coventry, sem komst
yfir 3:1 með mörkum Wallace (2)
og Ilunt en Latcford og Brian
Kidd, jöfnuðu metin, en áður hafði
Ross skorað fyrir Everton.
Middlesbrough er í miklu stuði
um þessar mundir og mark Billy
Ashcroft gaf liðinu sigur gegn
Leeds. Annað lið, Bristol City,
hefur einnig staðið sig vel, unnið
fjóra síðustu leikina og er það ekki
sízt að þakka Hollendingnum
Geert Meyer, en hann skoraði eitt
markanna gegn Chelsea, sem nú er
örugglega fallið í 2. deild.
Jafntefli hja
þýzku liðunum
EINN leikur fór fram í UEFA-keppninni í gærkvöldi. Þýzku liðin
Duisburg og Borussia Mönchengladbach mættust f undanúrslitum
keppninnar og lauk lciknum mcð jafntefli 2:2 eftir að staðan hafði
verið 0:0 í hálfleik.
Mörk Duisburg skoruðu Worm og Fruck en Alan Simonsen og
Lausen skoruðu mörk Borussia. Áhorfendur voru 25 þúsund.
Telja má líklegt að Borussia hafi svo gott sem tryggt sér sæti í
úrslitum keppninnar mcð þessu jafntefli.