Morgunblaðið - 11.04.1979, Side 40
Datrinn er nú mikið tckiö að lengja og flcstir farnir að vænta vorkomunnar á hverri stundu, þó hafís og
páskahret geti sett þar strik í reikninginn. Þessi skötuhiú voru í gær á gönguferð í sólinni og hvíldu sig
á tröppum Morgunhlaðshússins stutta stund, þar sem Olafur K. Magnússon ljósmyndari gekk fram á
þau.
V araforsetinn
kemur í kvöld
— Héðan fer Mondale til Mundal
í Noregi, en þaðan er hann ættaður
OPINBER heimsókn Walter Mondale varaforseta Bandarfkjanna
hingað til lands hefst í kvöld, er flugvél hans lendir á Keflavíkurflug-
velli. væntanlega klukkan 20.20. Frá flugvellinum heldur hann
rakleitt að Ilótel Sögu, þar sem hann gistir ásamt föruneyti sínu, en
þar tekur Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra á móti honum.
Á morgun, klukkan níu árdegis,
verður síðan fundur í Ráðherrabú-
staðnum, þar sem Mondale og
fylgdarmenn hans ræða við for-
sætisráðherra, utanríkisráðherra
og embættismenn sem verða með
þeim.
Síðan er fundur með frétta-
mönnum klukkan ellefu í fyrra-
málið, einnig í Ráðherrabústaðn-
morgni föstudagsins langa, og
liggur leiðin þá til Bergen í Noregi,
en hingað til lands kemur Mondale
frá Washington, og er Island fyrsti
viðkomustaður hans í þessari ferð.
Megináhersla þessarar ferðar
Mondale verður lögð á heimsókn-
ina til Noregs, en þaðan er hann
ættaður. Er hann frá litlum bæ á
vesturströndinni, er Mundal heit-
ir, og þaðan dregur hann nafn sitt,
er síðan hefur verið breytt í
Mondale, en það voru afi varafor-
setans og amma sem fluttust frá
Noregi til Bandaríkjanna á sinni
tíð. Mun Mondale heimsækja Mun-
dal, en fara síðan til Óslóar, þar
sem hin opinbera heimsókn hans
til Noregs hefst.
Sjá: Mondale kunnugur
ýmsu hér á landi: hls. 20.
að
um, en síðan verður farið í Árna-
stofnun og á eftir verður snæddur
hádegisverður á Bessastöðum í
boði forseta íslands, herra Kristj-
áns Eldjárns.
Frá Bessastöðum verður farið til
Þingvalla þar sem staðið verður
við nokkra stund og staðurinn
skoðaður. Þá verður haldið aftur
til Reykjavíkur, og klukkan 20
hefst kvöldverður á Hótel Sögu í
boði forsætisráðherra.
Flugvél varaforsetans heldur
síðan héðan um klukkan níu að
Alvarlegt
umferðarslys
MJÖG alvarlegt umferðarslys varð
í Reykjavík í gærkvöldi, er ekið var
á pilt á vélhjóli á mótum Breiðholts-
brautar og Bústaðavegar. Slasaðist
pilturinn mjög mikið, og var flutt-
ur á slysadeild.
Aðalfundur
Hugmynd um einn
Flugleiða:
forstjóra ög aukna ríkisaðild
Allar afgerandi breytingatillögur felldar
í RÆÐUM þriggja forstjóra Flugleiða á aðalfundi félagsins í gær kom
fram, að rekstur fyrirtækisins stendur ekki eins föstum fótum og oft áður
og fram komu hugmyndir um að kanna ýmsar leiðir til að rétta hag
fyrirtækisins við. Voru ræðumenn sammála í því efni að nauðsyn sé fyrir
allt starfsfólk Flugleiða að standa saman í uppbyggingu félagsins til þess
að það haldi sínum hlut a.m.k. Nokkrar umraeður urðu um skýrslu stjórnar
og fram komu tillögur og hugmyndir á fundinum um verulegar breytingar
á rekstrinum, en allar tiílögur sem gengu langt til breytinga voru felldar.
í ræðu Arnar 0. Johnson forstjóra
kom m.a. fram, að hann telur ástæðu
til þess að forstjóri fyrirtækisins
veri einn og kvaðst hann tilbúinn að
hætta störfum þegar sá maður væri
fundinn. Þá taldi Orn ástæðu til þess
að ríkissjóður eignaðist allt að
20—25% hlutafjár í Flugleiðum með
það fyrir augum að gera stöðu
fyrirtækisins sterkari. Meðal fund-
armanna, sem gagnrýndu stjórnina,
var Jón Sólnes alþingismaður. Vildi
hann að Flugleiðamenn kappkostuðu
sjálfir að að leysa sinn vanda, slíkt
yrði ekki gert á aðalfundi og hann
kvaðst eindregið á móti eignaraðild
ríkissjóðs í Flugleiðum, því ríkið
gæti ekkert sem Flugleiðir gætí ekki
sjálft. Kvað hann fyrirtækið enga
þörf hafa fyrir kommissara í stjórn.
Allmargar tillögur lágu fyrir fundin-
um og voru þær ræddar og afgreidd-
ar. Tillaga Kristjönu Millu Thor-
steinsson um að félögin, Flugfélagið
og Loftleiðir, verði aðskilin, var
felld, en í þeirri tillögu var gert ráð
fyrir að félögin myndu stunda áfram
flugrekstur eins og þau gerðu áður
með samræmingu og hagkvæmni þó.
Tillaga um fríar ferðir hluthafa var
felld. Er reikningar höfðu verið
samþykktir var gengið til stjórnar-
kjörs.
Þeir Kristján Guðlaugsson, Svan-
björn Frímannsson og Thor R. Thors
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs í
stjórn. Einar Árnason gaf sömuleið-
is ekki kost á sér til kjörs í aðal-
stjórn, en tók sæti í varastjórn.
Þessum mönnum voru færðar þakkir
fyrir farsæl störf í þágu flugfélag-
anna og síðar Flugleiða. í stjórn
félagsins voru kjörnir Sigurgeir
Jónsson, Alfreð Elíasson, E. Kristinn
Olsen, Örn Ó. Johnson, Grétar Br.
Kristjánsson, Halldór H. Jónsson,
Óttarr Möller, Bergur G. Gíslason og
Sigurður Helgason. Varastjórn er
þannig skipuð: Dagfinnur Stefáns-
son, Olafur Ó. Johnson, Einar Árna-
son. Endurskoðendur voru kjörnir
Björn Hallgrímsson og Þorleífur
Guðmundsson og til vara Stefán J.
Björnsson og Valtýr Hákonarson.
Ríkisstjórnin ákveður
44% hækkun bílatrygginga
SAMÞYKKT hefur verið að
iðgjöld ábyrgðartrygginga bíla
hækki um 44% svo og iðgjöld
framrúðutryggingar, en þessi
hækkun var staðfest á fundi
ríkisstjórnarinnar ( gær.
Eðlilegt að ríkissjóður
eignist 20-25% hlutafjár
— sagði Örn 0. Johnson á aðalfundi Flugleiða
Á AÐALFUNDI Flugleiða í gær lét Örn ó. Johnson í Ijós þá skoðun
sína. að ríkissjóður ætti að eiga kost á að kaupa stærri hlut í
fyrirtækinu en þau 6% sem hann ætti nú. Kvaðst hann vera andvígur
ríkisrekstri sem slikum. en hann teldi þó eðlilegt að ríkissjóður
eignaðist t.d. 20—25% hlut í félaginu og gæti hann þar með verið það
jafnvægisafl innan félagsins og sú festa sem þyrfti nú á að halda
fremur flestu öðru.
Örn Ó. Johnson sagði, að
sundrung og flokkadrættir innan
félagsins og einstakra starfshópa
hefðu ágerzt til muna og að þjóðin
myndi eflaust skilja neikvæðar
afleiðingar lítt viðráðanlegra
vandamála, en hún myndi aldrei
skilja né fyrirgefa ef samgöngu-
mál hennar yrðu höfð að leiksoppi
vegna hagsmunabaráttu fárra ein-
staklinga eða hópa. Kvað hann
þess vegna nauðsynlegt að þjóð-
félagið skærist í þennan leik.
Þá ræddi Örn um skipan mála
varðandi stjórnun fyrirtækisins og
sagði að núverandi háttur þar á,
þ.e. stjórnarnefnd , þriggja
forstjóra, væri ekki heppilegur og
hefði gengið sér til húðar. Sagði
hann nauðsynlegt að stjórnað yrði
af einum forstjóra sém almennt
tíðkaðist. „Slíkur maður þarf að
hafatil að béra þekkingu, festu og
hæfileika til stjórnunar. Verði
þessi stefna upp tekin, er það í
verkahring stjórnar félagsins að
finna slíkan mann og eigi síðar en
þegar hann er fundinn mun ég
segja upp starfi mínu sem aðalfor-
stjóri, með eðlilegum uppsagnar-
fresti," sagði Örn Ó. Johnson.
Sjá: „Sundrung og flokkadrættir
innan félagsins ...“ bls. 18.
Tryggingarfélögin höfðu sótt um
79% hækkun. Að sögn Magnúsar
Magnússonar kom einnig til
umræðu að tryggingarfjárhæðin
yrði hækkuð úr 24 milljónum í
120 milljónir, en ekki var það
endanlega ákveðið og mun dóms-
málaráðherra gera tillögur um
hækkunina. Ekki var heldur
tekin ákvörðun um hver skyldi
vera sjálfsábyrgð. Ilún var kr. 24
þúsund og sagði Magnús að rætt
hefði verið um 40—50% hækkun
hennar, en á sama hátt myndi
dómsmálaráðherra fjalla um
hækkunina.
Jóhann Björnsson forstj.
Ábyrgðar sagðist í samtali við
Mbl. líta á þessa hækkun sem
eðlileg viðbrögð, í þessari tölu væri
við það miðað að verðbólgan
myndi hafa í för með sér um 35%
hækkun tjónakostnaðar, en það
hafi verið “tægsta viðmiðun
tryggingaeftirlitsins. Sagði hann
að miðað við 79% beiðnina hefði
verið tekið mið af tjónareikningi
fyrri ára þar sem munatjón hefðu
hækkað um 59% og slysatjón um
41%. Kvað Jóhann því þessa
hækkun, sem leyfð hefði verið nú,
það sem hefði mátt gera ráð fyrir
miðað við þessar forsendur.