Morgunblaðið - 13.05.1979, Page 7

Morgunblaðið - 13.05.1979, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ1979 HUG- VEKJA eftir séra Jón Auðuns Um það þarf engum blööum að fletta, að heimsmynd vísindanna aðhyllist allur þorri manna hins menntaða heims. Allt fram á miðaldir var ríkj- andi hin ævaforna hug- mynd trúarbragðanna um heiminn og stöðu manns- ins í alheiminum. Menn trúðu því að sól og máni, stjörnur, hauður og haf með öllu því lífi, sem þar hrærist, hefði oröið til í einni svipan fyrir almættis- orð skaparans. Jörðin var skilyrðislaust talin miö- depill alheimsins og mað- urinn kóróna allrar sköp- unar Drottins. Einhvers- staðar í tilverunni var heimkynni Guðs í stað- bundnu himnaríki, þar sem sálir réttlátra lifðu fullkomnu sæluríki í návist hans, og annarsstaðar, undir yfirborði jarðar var heimkynni þeirra, sem með rangsnúinni jarðlífs- breytni sinni höfðu unnið inn, eða vitneskju okkar um hann, svo stórkost- lega, að mæla fjarlægðir geimanna svo svimandi miklar að byltingu hefur valdið í heimsmynd nú- tímamannsins. Nú vitum við ennfremur að sagan, sem við lærðum í bernsku um að Guð hefði skapað heiminn á sjö dögum er skáldleg goðsögn ein, því að jörðin var milljónir ára í sköpun, — sköpun eða fremur þróun. Það verður að játa, að nálega allar þessar stór- felldu nýjungar leiddu til átaka viö kirkjuna og guö- fræðina, og þó engin fremur en þróunarkenning Darwins. Trúmálaaftur- haldið, sem vikið hefur verið að í blaðagreinum nýlega, hefur kannski aldrei gert kirkjunni annað eins ógagn og þaö gerði hanni með vandræðaleg- um og ofsalegum árásum á Darwin og kenningu skapað, hvað er þá mað- urinn þess að þú minnist hans og mannsins barn að þú vitjir þess“! Svo mælir skáld, sem hörpu Davíð sló fyrir ár- þúsundum, svo gátu menn staðið fullir trúarlotningar andspænis þeim litla heimi sem þeir þekktu þá, en hvað er um okkur, sem höfum margfalt stórkost- legri mynd af mikilleik alheimsins fyrir augum? Er lotning okkar að sama skapi voldugri andspænis undri Guðs verka en þeirra var með sína þröngu litlu heimsmynd í huga? Hvað er þá maður- inn þess, að skapari enda- lausra sólkerfa og veralda víðari en nokkur veit skuli minnast hans. Hlýtur ekki „mannsins hrokahjóm aö hjaðna í sitt eigið gróm“ (M.Joch.)? Gætum að: Þú horfir upp í alstirndan him- in og minnist þess að í endalausum fjarlægðum Gamlar hugmyndir — ný heimsmynd til eilífra, endalausra kvala. Þessi var sú hugmynd um alheiminn, sem menn bjuggu við um aldaraðir, vísir jafnt og fávísir, vitr- ingar heims, listamenn og spekingar jafnt og ólæs alþýða manna, og þessar hugmyndir lifa enn í ódauðlegum listaverkum og jafnvel í sálmum, sem við syngjum enn. Og þó eru hugmyndir nútímamannsins orönar allt aðrar. Við vitum nú, að jörðin er ekki einu sinni miðdepill þess sólkerfis sem hún heyrir til, og sólin sem er miödepill þess, er aöeins ein af milljónum þeirra stjarna, sem heyra Vetrarbrautinni til. Og ennfremur eigum við að vita, að i alheiminum eru hundruð milljóna sólkerfa með hundruðum milljóna stjarna, hver fyrir sig, sem jafnast á við jörðina litlu, sem við byggjum, og sum- ar margfalt, margfalt stærri. Stjarnvísindin hafa að ýmsu leyti leyst af hendi ágætustu afrek þessarar aldar, ekki sízt þegar það er haft í huga að afrek þeirra virðast ekki í náinni framtíö veröa notuö sem eyðingaröfl til tortímingar eins og mörg önnur vís- indaafrek aldarinnar, en þau hafa stækkað alheim- hans, sem vitanlega gekk í algert berhögg við sköp- unarsögu 1. Mósebókar. Upp úr þeim átökum urðu fjölmargir vísinda- og menntamenn hvassir and- stæðingar kirkju og kristni. Nú kveður að sjálf- sögðu við annan tón, þótt vísindamenn suma greini á við fyrstu hugmyndir Darwins um þróunina. Nú er heimsmyndin orð- in breytt. Gamlar trúar- hugmyndir um uppruna, eðli og stærö alheimsins eru fæstum mönnum leng- ur annaö en forvitnilegir fornmunir, sem fróðlegt er að skoða. En ósköp hefur hún verið hlýleg og nota- leg að flestu gamla hug- myndin um heiminn eins og þriggja hæða hús, þar sem Guð og góðir andar réðu húsum á efstu hæö, mannskepnurnar á mið- hæðinni og í kjallaranum þeir sem vonlaust var um hvort eða var og ekki þýddi að gera sér grillur út af þótt byggju við bágan kost. Og þótt okkur þyki þarna lágt undir loft og ekki vítt til veggja, gátu menn staðið lostnir lotn- ingarundrun andspænis dýrð hinna voldugu Guðs verka og sungið með orð- um hebreska skáldsins: „Þá er ég horfi’ á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefur sveima milljarðar voldugra hnatta, og þó er auga mannsins e.t.v. meira furðuverk en undur upp- heima. Þú ert smár, manns- barnið litla, og finnur smæð þína andspænis furðuverkum vísindanna, sem hafa opnað þér nýja sýn yfir undur alheims og uppgötvað stórmerki, sem e.t.v. vekja þér ógn en ekki lotningarfögnuðinn einan. En vísindunum er afmarkað svið. Tölvan, þetta furðuverk, kann að geta gert fjölda verkfræð- inganna óþarfan, eins og sjálfvirki síminn leysti frá störfum fjölda af síma- starfsfólki, en hún getur ekki komið í staðinn fyrir Shakespeare, Milton og Matthías. Ég las nýlega þessi um- mæli merks manns: „Mað- urinn smækkar aö sama skapi og heimsmynd hans stækkar". Nei, kenning Krists um gildi mannsins og eilíft verðmæti hans haggast ekki. Guðshug- mynd þín á að stækka og hækka jöfnum höndum viö það að vitneskja þín vex um dýrö hans vold- ugu, miklu verka, lotning þín fyrir valdi og vísdómi hans, trú þín og traust á eilífum föður alheimsins, sem sindrandi sólkerfin skóp en man þig og elskar þig í aliri þinni smæö. Ég þakka innilega öllum þeim sem sýndu mér vinarhug í tilefni af 90 ára afmæli mínu þann 6. maí 1979. Sérstaklega ’þakka ég systrum og starfsfólki sjúkrahúsinu Stykkishólmi fyrir sérstaka vinsemd og umönnun. Guö blessi ykkur öll. Sigurborg Sturlaugsdóttir, Stykkishólmi. VIÐGERÐAR ÞJÓNUSTWf?" mjt! . , *>n Iðnaðarhurðir fáanlegar einangraöar og óeinangraöar. Rafdrifnar meö fjarstýringu. Umboðsaöili MÁLMBYGGINGAR HF. Fellsmúla 26 sími 83711. Nýtt símanúmer á afgreiðslu blaðsins 83033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.