Morgunblaðið - 01.07.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ1979
7
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 7. Þáttur
“Hef flutt—
snyrtistofu mína frá Tómasarhaga 31 að Þing-
holtsstræti 24.
Sími 14910 eða 16010.
Ásta Halldórsdóttir,
snyrtifræðingur.
Heimir Hannesson í Reykja-
vík, mikill áhugamaður um ís-
lenskt mál, skrifar mér á þessa
leið:
„Ég hef lengi hugleitt, hvort
einhver málsnjall maður gæti
ekki fundið gott íslenskt orð,
sem leysti af hólmi hið hvim-
leiða orð „túrismi", sem menn
nota í tíma og ótíma. Menn, sem
vanda vilja málfar sitt, hafa
reynt að nota orð eins og ferða-
þjónusta, ferðaiðnaður og ferða-
mál — það síðastnefnda er ef til
vill mest notað, en nær engan
veginn tilætlaðri merkingu. Er
t.d. hótelrekstur ferðamál — eða
er það ferðaþjónusta, og þannig
má áfram telja. Og er þetta ekki
vansalaust með þriðju stærstu
atvinnugrein landsmanna, ef lit-
ið er á erlendar tekjur þjóðar-
búsins...“
Nú fer sem oftar að mér
verður orðs vant. Ef ég skil rétt,
felur erlenda orðið túrismi í sér
margvíslega þjónustu við ferða-
menn og alls konar vafstur í
kringum þá: flutninga, leiðsögn,
minjagripasölu og hótelhald. Ég
vísa þessu vandamáli til lesenda
og er þess viss að málsnjallir
menn muni finna eitthvert gott
orð sem kemst að minnsta kosti
nærri því að hafa sömu merk-
ingu og margnefndur túrismi.
Þetta stendur okkur mjög
nærri, svo sem marka má af því
að séð hef ég þess getið tvisvar á
þessu vori, að Snorri Sturluson
væri leiðsögumaður 1215—1218
og aftur síðar, enda eru nú
lögsögumenn að sama skapi fá-
tíðir sem leiðsögumenn eru al-
gengir. Og ekki getum við snúið
okkur út úr þessum vanda með
hálfkæringi í alþýðuskýringa-
stíl, eins og þegar Stefán vinur
minn Þorláksson, margreyndur
leiðsögumaður, kallar túristana
sína túrhesta, svona til þess að
gera orðið pínulítið íslensku-
legra.
N.N. hringdi til mín í fram-
haldi af því sem sagði í síðasta
þætti um viðurlag í tímamerk-
ingu, orðaröð og áhersluþunga.
Honum þykir betra að segja:
Þetta eru firn mikil, heldur en
mikil firn, hann er drengur
góður, heldur en góður drengur
og nú verða fréttir sagðar, frem-
ur en nú verða sagðar fréttir.
Ahersluþunginn á að koma, seg-
ir N.N., á það sem mestu máli
skiptir, og orðaröð þarf að laga
sig eftir því. Til viðbótar þessu
ætla ég að tilfæra fræga máls-
grein úr Njálu. Hallgerður
Höskuldsdóttir langbrók segir
við Sigmund, frænda Gunnars
bónda síns: „Gersemi ertu,
hversu þú ert mér eftirlátur."
Öllu minna yrði úr þessum
frægu orðum, ef þeim yrði breytt
í: Þú ert gersemi, af því að þú ert
mér svo eftirlátur.
N.N. minnir einnig á það
mállýti, þegar tvær forsetning-
ar, sem stjórna sínu orðinu hvor,
eru hafðar með sama fallorði.
Dæmi: Flutningar til og frá
Búðardal. Vandann er auðvelt að
leysa í þessu dæmi með því að
segja að og írá Búðardal, því að
báðar þessar forsetningar stýra
þágufalli.
Enn þykir N.N. ástæðulaust
fyrir íslendinga að hafa minni-
máttarkennd gagnvart ensku,
sem ekki eigi til orð um algeng-
ustu fyrirbæri eins og systkin og
sólarhringur. Að minnsta kosti
ættum við ekki að apa eftir
enskumælandi mönnum að eitt-
hvað hafi staðið í 72 klukku-
stundir, af því að þá vantar orð
yfir sólarhringinn, heldur segja í
þrjá sólarhringa eða sex dægur.
Aðalsteinn Sigurðsson í
Reykjavík er ekki sáttur við það
að ég hafi lagt blessun mína yfir
orðið föðurland eða föðurlands-
buxur í merkingunni síðar ull-
arbrækur. Hann segir að þetta
sé dönskusletta. Skylda var i
danska hernum að vera í síðum
nærbuxum, talað um að trække
sig í fædrelandsbukserne. Ég
þakka Aðalsteini þennan fróð-
leik. Ég hélt í einfeldni minni að
föðurland í þessari merkingu
væri einskorðað við síðbrækur
úr íslenskri ull og nafnið væri
myndað vegna þess.
I Tímanum á þriðjudaginn var
er spjall við húnvetnskan bónda
og eftir honum haft: „Ég er nú
ekki gamall í hettunni í bú-
skapnum en ég man eftir tíma-
bilum, þar sem búið var að slá
þurrt hey (auðkennt hér) um
miðjan júní. Nú er sveitamaður-
inn í mér ekki með á nótunum, ef
það hefur skipt tímabilum, þeg-
ar Húnvetningar stóðu við slátt
á þurru heyi. Eg bar þetta undir
Jón vin minn botnan. Hann
kvað:
Fréttir nýjar fékk ég spurt,
forviða þá brúnum lyfti.
Húnvetningar heyið þurrt
hjómuðu svo árum skipti.
Að lokum er tillaga um eitt
nýyrði.herkill, í staðinn fyrir
töffari, sbr. hark, harka, herkja
og hörkulegur.
íþrótta- og
leikjanámskeið
íþróttabandalag Keflavíkur gengst fyrir íþrótta- og
leikjanámskeiði dagana 2.—20. júlí. Þátttökugjald er
kr. 1.000-
Innritun fer fram í íþróttavallarhúsinu, mánudaginn 2.
júlí milli kl. 17 og 19. í B K
Einn glæsilegasti
einkabíll landsins
Pontiac Bonneville Brougham
til sölu á tækifærisverði
Árgerð 1976, ekinn 33 þús. m. Útlit og ástand sem
nýtt. Litur: hvítur með rauðum vinyl-toþþi, sjálfskipt-
ing, vökvastýri og -bremsur. Rafknúnar rúður, hurðir
og sæti, sjálfvirk hurðastilling (cruise), dekk nýleg,
stereo-kassettur, -útvarp ofl. Otrúlega sparneytinn.
Upplýsingar í símum 42954 og 26611
Nýr og endurbættur
Bedford vörubíll sérstaklega hannaður fyrir grófa
vegi og með þægindi ökumanns í huga.
Getum fljótlega afgreitt eftirtaldar gerðir af lager:
2ja öxla 260 HÖ Detroit dísilvél, heildarburðargeta 17000 kg
2ja öxla305 HÖ - - - 19000 -
3ja öxla 305 HÖ - - - 23000 -
Allir þessir Bedford bílar eru búnir lúxus innrétt-
ingum, eru með veltihúsi, með eða án svefnhúss og
miklum aukabúnaði.
Mjög lipur Bedford flutningabíll fyrir létta bæjar-
og utanbæjarflutninga af ýmsu tagi.
Eftirtaldar gerðir til afgreiðslu af lager fljótt:
EJM gerð 107 HÖ dísilvél, 5 gíra 8600 kg
EJR gerð 107 HÖ dísilvél, 5 gíra 11300 -
Bedford KD er þekktur og vinsæll vinnubíll, þægi-
legur til af- og áfermingar og með mjög góðum útbúnaði
Otrúlegt verd!
BEDFORD BEDFORDKD
GM
BEDFORD