Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 170. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 27. JULI1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Nicaragua: Stjómin þjóð- nýtir banka Managua — 26. júlí — AP — Reuter BYLTINGARSTJÓRNIN í Nicara- Kua þjóðnýtti í gær alla sjö banka landsins. sem eru í einkaeign. Jafnframt var bönkum í eigu erlendra aðila, fjórum að tölu, skipað að hætta inn- og útlánsvið- skiptum. Nýjar reglur verða settar um starfsemi þeirra. Jafnframt tilkynnti byltingarstjórnin þjóð- nýtingu fiskveiða, skógarhöggs og námugraftar en sagði að trygg- ingafyrirtæki yrðu áfram í einka- eign. Búist er við að bankar opni aftur á mánudag. Stjórnin hvatti eigendur verslana og leikhúsa til að opna að nýju. Þrír meðlimir byltingarstjórnarinnar héldu i dag til Kúbu til að halda upp á afmæli kúbönsku byltingarinnar undir stjórn Fídels Castro. Upp- byggingarstarfið er hafið af krafti í Nicaragua, gert er við vegi og samgönguleiðir og hús, er skemmd- ust, eru lagfærð. Akstur almenn- ingsvagna er hafinn í Managua en þeir eru aðeins 20 í borginni, aðrir eyðilögðust í stríðinu. Alfonso Robelo, einn valdamesti maður stjórnarinnar, sagði í dag að þjóðnýting banka þýddi ekki að Nicaragua stefndi í átt til sósíal- isma. Hann sagði að stjórn landsins yrði í bland einkaframtak og ríkis- afskipti. Jimmy Carter, forseti Bandaríkj- anna, sagði í Washington: „Við höfum góð samskipti við hina nýju stjórn. Ég tel stefnu okkar í sam- skiptum við Nicaragua rétta og að landið verði ekki önnur Kúba.“ Og hann bætti við. „Staðreynd málsins var, að stjórn Somoza hafði misst stuðning þjóðarinnar." Mohsen lést af völdum skotsára Nice, 26. júlí. — AP, Reuter. ZUHAIR Mohsen. yfirmaður her- afla PLO, frelsissamtaka Palestínu- manna, lést á sjúkrahúsi í Nice í Frakklandi af skotsárum. Læknar tóku súrefnistæki úr sambandi þeg- ar ljóst var að heilaskemmdir Mohs- Sársaukalaus- irtanndrættir íKína Tókfó 26. júlí - AP. KÍNVERSKUR læknir hefur með giæsibrag dregið rösklega þrjátfu þúsund tennur úr iöndum sfnum með þvf einu að þrýsta fingri sfnum á nokkra ákveðna bletti f námunda við sýktu tönnina, segir Hsinhua fréttastofan f dag. Hefur læknirinn sem heitir Gong Xuebin ekki beitt neinum deyfingum hvað þá svæfingum við þessar aðgerðir. Hefur Gong þróað þessa aðferö um alllanga hrfð og byrjaði f smáum stfl, tók eina tönn f einu. Nú hefur honum vaxið svo ásmegin f leikni sinni að hann dregur fyrirhafnar- lftið ailt að tfu tennur samtfmis. Sjúklingar hans finna sáralftinn sársauka, missa iítið blóð og f 97% tilfella veldur þessi tanndráttur engum eftirköstum, bólgum né öðru slfku, segir fréttastofan. ens væru það aivarlegar að hann næði aldrei bata. Enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér og brigslyrðin ganga á vfxl. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, sak- aði ísraelsmenn um ódæðið og sagði hann, að aðgerðir gegn ísrael yrðu hertar vegna dauða Mohsens. Blað í Beirut ásakaði Egypta um að standa á bak við morðið á Mohsen. Sýrlend- ingar hafa sakað Egypta og Israels- menn. Heimildir í Karíó segja hins vegar, að talið sé, að morðið á Mohsen sé vegna innbyrðis deilna innan PLO-samtakanna. Mohsen réð yfir herafla Palestínu- manna og var í raun nokkurs konar varnarmálaráðherra. Hann var ný- kominn frá Monrovíu af leiðtoga- fundi Afríkjuríkja þegar hann var myrtur. Jafnframt því að hafa verið yfirmaður herafla PLO var hann einnig yfirmaður Saiga, skæruliða- fylkingar í Sýrlandi. Þegar Sýrlend- ingar héldu inn í Líbanon börðust meðlimir Saiga með sýrlenskum hermönnum gegn PLO í Líbanon undir stjórn Yasser Arafats. Mohsen var þá rekinn úr samtökum PLO en var hafinn á ný til metorða þegar sættir tókust með Sýrlendingum og PLO. Lítið var vitað um einkalíf Mohsens, leynd hvíldi ávallt yfir honum vegna ótta við tilræðismenn og svo fór að hann féll fyrir þeim. Tilræðið virtist mjög vel skipulagt og ekki hefur náðst til banamanna Mohsens. Feðgar frá borlákshöfn björguðust í gúmbát í gærkvöldi er bátur þeirra, Valur KÓ 3, sex tonn, sökk skyndilega um 11 sjómílur suður af Hafnarnesi. Þessa mynd tók Rax ljósmyndari Mbl. af gúmbát feðganna um ellefuleytið í gærkvöldi, skömmu áður en þeim var bjargað um borð í Arnar ÁR 55. Sjá baksíðu. Singh falin stjómar- myndun á Indlandi Nýja Delhi, 26. júlí - AP. Reuter CHARAN Singh, leiðtoga smábændaflokksins á Ind- landi. var í dag falin stjórnarmyndun af Sanjiva Reddy, forseta landsins. Þar með vann Singh kapphlaupið við Morjai Desai, fyrrum for- sætisráðherra, um það hvorum yrði falin stjórnarmyndunin. Reddy forseti kallaði Singh til Forsetahallar- innar og þar var fjöldi fréttamanna þegar Reddy afhenti Singh bréfið, sem Deilur í Noregi vegna norsks skips á Kínahafi Frá (réttaritara Mbl. f ÓhIó 26. júlí. NORSKA skipið „Lysekil“ hefur nú tekið um borð 256 flóttamenn frá Víetnam í Suður-Kínahafi. Skipið er á leið til Singapore. Norska utanríkisráðuneytið hefur lýst því yfir, að fólkið um borð í „Lysekil“ fái ekki landvistarleyfi í Noregi þar sem fólkið sé ekki meðal þeirra 3000 flóttamanna, sem Noregur hefur lofað að taka við. Fólkið um borð í „Lysekil" fær ekki að fara í land í Singapore nema einhver þjóð heiti að taka við fólkinu. Mál þetta er nú mikið deilumál í Noregi. Hávær- ar raddir eru uppi um, að með því að senda skip til Suður- Kínahafs þá sé Noregur einungis að auka á vandann, því fleira fólk leggi sig í þá miklu hættu að leggja á haf út á bátskel. Samtökin sem sendu Lysekil til Suður-Kínahafs hafa brugðist hart við þessu. „Við viljum bjarga mannslífum. Samviska okkar leyfir ekki að þúsundir deyi á hafi úti. Aðeins fjórir af hverjum tíu sem leggja á haf út komast lífs af. Við gerum þetta af mannúðarástæðum," sagði talsmaður samtakanna. Charan Singh felur honum stjórnar- myndun. Singh, sem fyrst tók virkan þátt í stjórn- málum fyrir þremur árum, las skipunarbréfið fyrir fréttamönnum og var hann sigurreifur. Hann sagðist búast við að honum tækist að mynda ríkis- stjórn fyrir laugardag en Reddy gaf Singh frest til þriðju viku í ágúst til stjórnarmyndunar. Stjórnarmyndun Singhs hvílir á trausti Kongress- flokksins, og mun flokkur- inn taka ákvörðun á morgun. Charan Singh er 76 ára gamall og í fyrsta sinn í hinni ellefu daga stjórnarkreppu á Indlandi lét Reddy mynda sig með leiðtoga flokkanna, sem berjast um völdin. Singh segist hafa stuðning 279 þingmanna, þar af er um fjórð- ungur stuðningsmenn Indiru Ghandi, fyrrum forsætisráðherra. Singh gagnrýndi Indiru mjög þegar hún setti á neyðarlög 1975, og hann sat um tíma í fangelsi. Indira Ghandi sagði í dag, að flokkur hennar myndi styðja Singh en ekki taka þátt í ríkis- stjórn hans. „Ég er fegin því að Janatabandalagið er ekki lengur við stjórn," sagði Indira við frétta- menn. Pandolfi næsti for- sætisráð- herra? Róm, 26. júlí — AP, Reuter HEIMILDIR í Róm segja að Sandro Pertini, forseti ltalíu, hafi ákveðið að fela Filippo Pandolfi stjórnarmyndun. Búist hafði verið við, að Pertini fæli forseta þingsins, Amintore Fanfani, stjórnarmyndun og að hún yrði tilkynnt í kvöld. Pandoífi er núverandi fjármáia- ráðherra landsins og er mikils metinn á Ítalíu fyrir starf sitt í fjármálaráðuneytinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.