Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ1979 5 Sparisjóðsstofnun til höfuðs áfengisbölinu Hafinn er undirbúningur að stofnun nýs sparisjóðs á höfuð- borgarsvaeðinu, en markmið sjóðsins verður auk almennrar sparisjóðsstarfsemi að beita sér fyrir aðstoð við einstaklinga og félög sem tengjast áfengisbölinu. Markmiðið er að aðstoða ein- staklinga sem áfengið hefur leik- ið grátt, lána til náms f samræmi við tilgang sjóðsins og koma á stofn upplýsingamiðlun og fjár- málaráðgjöf fyrir viðskiptavini. Söfnun stofnfélaga Söfnun stofnfélaga er nú að hefjast og er þátttaka öllum heimil, enda skuldbindi stofnfél- agar sig til að greiða kr. 100 þúsund sem stofnframlag innan 3ja mánaða frá því að raðherra veitir leyfi til stofnunar spari- sjóðsins og stofni auk þess vaxta- aukareikning með 12 mánaða upp- sagnartíma í sparisjóðnum strax og hann tekur til starfa og leggi inn á hann með jöfnum greiðslum fyrsta árið a.m.k. kr. 250 þúsund. Stofnframlag er óafturkræft nema sparisjóðnum verði slitið. Listar fyrir þá sem vilja gerast stofnfélagar munu liggja frammi á nokkrum stöðum í Reykjavík sem auglýstir verða um helgina frá mánudeginum 30. júlí til þriðjudagsins 7. ágúst n.k., en einnig er hægt að skrá sig hjá undirbúningsnefndarmönnum. í undirbúningsnefnd eru: Albert Guðmundsson, alþm., Árni Gunn- arsson, alþm., Baldur Guðlaugs- son, hdl, Björgólfur Guðmunds- son, forstjóri, Ewald Berndsen, forstöðumaður, Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka- mannasambands íslands, Guðm- undur G. Þórarinsson, verkfræð- ingur, Hilmar Helgason, stór- kaupmaður, Jóhanna Sigurðar- dóttir alþm., Lúðvíg Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri, Pétur Sig- urðsson, formaður Sjónmanna- dagsráðs, Ragnar Júlíusson, skóla- stjóri, Svava Jakobsdóttir, alþm., Sveinn Grétar Jónsson, verzlun- armaður, og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, framkvæmdastjóri. Stefnt er að því að stofnfundur sparisjóðsins verði haldinn fyrir lok ágústmánaðar n.k. Jón Sveinsson for- maður Tæknifræð- ingafélags íslands AÐALFUNDUR Tæknifræðinga- félags íslands árið 1979 var nýlega haidinn að Hótel Loftleið- um. Fundarstjóri var kosinn Kristján Kristjánsson og fundar- ritari Sigurður Georgsson. Fráfarandi formaður, Ingvi I. Ingvason, flutti ítarlega skýrslu um starfsemi félagsins á síðast- liðnu starfsári, fjallaði hann m.a. um stjórnarfundi, félagsfundi, kynningarfundi með nemendum Tækniskóla íslands og væntanlega aðild félagsins með Verkfræðifél. íslands að „FEANI" - (Fédération Européenne D’Associations Nationales d’Ingenieurs). Á fundinum kom einnig fram, að danska menntamálaráðuneytið hefði sent frá sér sérstaka stað- festingu um, að tæknifræðingar frá dönskum tæknifræðiskólum (Ingenior Teknium) hefðu Bachel- or of Science gráðu að loknu námi. Þá tók til máls gjaldkeri félags- ins og skýrði reikninga þess og voru þeir samþykktir samhljóða. Jón Sveinsson Kosin var stjórn félagsins og skipa hana þessir menn: Jón Sveinsson, formaður. Með- stjórnendur: Guðmundur S. Guð- mundsson, Heimir Sigurðsson, Þorleifur Finnsson og Gísli Gísla- son. Varamenn: Bolli Magnússon og Hermann Hermannsson. Hæstu gjaldendur opinberra gjalda í Vestmannaeyjum Hæstu gjaldendur opinberra gjalda í Vestmannaeyjum. Einstaklingar: Millj. kr. Sigurður Þórðarson, útgm., Hólagötu 42.................... 12.159.617 Sigmundur Andréss., bakaram., Vestm.br. 37................ 12.006.884 Emil Andersen, útgm., Heiðavegi 13....................... 7.657.910 Kristmann Karlss., heildsali, Hólagötu 40................. 7.450.936 Gísli M. Sigmarsson, útgm., Faxastíg 47.................... 6.922.912 Engilbert Sigurðsson, bifr.stj., Fjólugötu 7............... 6.912.755 Jón Hjaltason, lögfr., Heimagötu 22........................ 6.805.614 Jón Steindórsson, kaupm., Kirkjuvegi 17.................... 6.602.574 Guðjón Pálsson, skipstj., Hraunslóð 2...................... 6.545.774 Ragnar Sigurgeirss., kaupm., Heimagötu 30.................. 6.363.434 Félög: Millj. kr. Fiskiðjan h.f. 51.415.359 Bæjarsjóður Vestmannaeyja 45.949.192 (launatengd gjöld) Vinnslustöðin h.f. 34.293.513 Fiskimjölsverksmiðjan h.f. 31.079.544 ísfélag Vestmannaeyja 30.824.911

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.