Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ1979 Olíuútflutningur Sovét- ríkja til Vesturlanda mun minnka næstu ár í BLAÐINU Financial Times segir nýlega frá því að ráðamenn í Sovétríkj- unum muni hafa í huga að takmarka olíuútflutning á næstunni við það mark sem hann er nú, sakir þess að Sovétríkin kunni sjálf að standa andspænis því að skorta olíu upp úr ár- inu 1980. Þessi ákvörðun þýddi í reynd að úr olíu- sölu Sovétríkjanna drægi til Vesturlanda segir í blaðinu. Aftur á móti verð- ur olíusala til Comecon ríkjanna aukin um allt að 20 prósent 1981 — 1985. Og ekkert bendir til að í vændum sé samdráttur í sölu á hráolíu til Bret- lands. Sú olía er unnin í hreinsistöðvum og blönd- uð olíu úr Norðursjónum. í frétt blaðsins er sagt frá því að Hamish Gray, orkumálaráðherra Bret- lands, hafi rætt þessi mál öll ítarlega við Sovétmenn, er hann var þar á ferð á dögunum, meðal annars þeirra erinda að opna sýn- ingu á brezkum olíu- og gasvarningi í Moskvu. Hon- um hafi þar verið tjáð að Sovétmenn myndu ekki auka heildarútflutning sinn sem nú mun nema um 160 milljónum tonna árlega heldur verði hann svipaður á næstu árum, sem þýði í reynd samdrátt eins og áður sagði. Gray sagði að Sovétmenn hefðu látið í Ijós mikinn áhuga á full- komnari tækni við vinnslu olíu en vinnsla þeirra á olíu úr sjó hefur þótt standa að baki því sem gerðist víða annars staðar og Sovét- menn sætt ámæli fyrir að vera svifaseinir í því að tileinka sér nýjustu tækni og hraðvirkari vinnubrögð við vinnslu olíunnar. AÐ HIKA ER SAMA OG TAPA.... Hlé gert á slökkvistörf- um við Atlantic Empress Port of Spain 26. júlí AP. BJÖRGUNAR- og slökkviliðs- sveitir gerðu í dag hlé á störfum sínum við að reyna að slökkva eldana sem enn loga í risaolíu- skipinu Atlantic Empress. Ástæðan er að froðubirgðir eru til þurrðar gengnar og verður ekki búið að ráða bót á því fyrr en undir helgi. Nú hefur verið barizt við eldana í skipinu sj'ðan fyrir helgi og enn spýtast eld- súlur metratugi í loft upp og svartur mökkurinn hvílir yfir skipinu. Hitt skipið í árekstrin- um. Aegeean Captain. sökk um helgina. Nú er talið að enn séu í skipinu um 75 prósent af þeim 70 milljón- um olíugallona sem skipið flutti í tönkum sínum, en milli 7 þúsund og fimmtán þúsund gallon á klukkustund hafa runnið í sjóinn síðan fimmti af átján tönkum þess sprakk á þriðjudaginn. Sax með forustu í IBM-mótinu Eru nýjar veröhækkanir í aösigi? Hækkun á sölu- skatti? ... Innflutningsgjald? .. hratt gengissig? ... Hver veit? Af hverju ekki aö tryggja sér strax nýtt Philips litsjónvarpstæki á hagstæöu veröi meöan færi gefst? y?- • - ,1 . .... mma PHILIPS m. ...mestselda ..Él sjónvarpstækió í Evrópu. — -vr—' Þaö er sitt hvaö aö sjá hlutina í lit eöa svart/hvítu. Nú hefur þú tækifæri til aö láta langþráðan draum um litsjónvarpstæki rætast. Philips svíkur ekki lit. heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚN 8 - 15655 Amsterdam. 26. júlí — AP. GYULA Sax. ungverski stórmeistarinn hefur nú forustu á IBM-skákmótinu í Amsterdam. í 11. umferð vann Sax Hollendinginn Hans Ree og hfur hlotið 8 vinninga. Sax sem hafði hvítt náði uppskiptum á drottningu fyrir tvo hróka og Ree gaf eftir 43 leiki. Tékkinn Vlastimil Hort gerði jafntefli við Ungverjann Istavan Farago, sem er í neðsta sætinu. Jan Smejkal, Tékkóslóvakíu, vann Ligterink, Hollandi, er lék illa af sér í tímahraki. Ulf Anderson, Svíþjóð, gerði jafntefli við Sosonko, Hollandi, Eugenio Torre, Filippseyjum, gerði jafntefli við Shaovic, Júgóslavíu, Sovétmaður- inn Anatoly Lein vann Donner, Hollandi, og Stean, Bretlandi, og Browne, Bandaríkjunum, gerðu jafntefli. Staðan í Amsterdam er nú: Sax 8, Hort 7,5, Smejkal 6,5 og biðskák við Farago, Anderson 6,5, Lein, Byrne, Torre 6, Sosonko 5,5 Ree 5, Donner og Sahovic 4,5, Stean 4, Ligterink 3,5 og Farago 2,5. Svíar hækka olíuver ð SÆNSKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka verð á eldsneyti, bensíni, díselolíu og olíu til húsa- hitunar en þó mun minna en olíufélögin höfðu óskað eftir. Ola Ullsten forsætis- ráðherra sagði að innan- landsverð á eldsneyti yrði að hækka eftir að OPEC ríkin hefðu ákveðið hrá- olíuverðshækkun sína, en hann bætti við: „Við getum ekki lagt útsmogna Rott- erdamverðlagningu til grundvallar verðlagningu í Svíþjóð.4* Bensín hækkar um 10 aura sænska eða tæpar 9 krónur íslenzkar og kostar lítri af bensíni nú 2.30 sænskar krónur (um 214 kr.) Olíufélögin höfðu óskað eftir því að þau fengju að hækka bensínlítrann um 20 s. aura.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.