Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.07.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ1979 Minning: Guöríui Pétursdótt- ir fyrrv. biskupsfrú Fædd 5. október 1893 Dáin 20. júlí 1979 Þriggja látinna biskupa á prestsævi minni minnist ég með þakklátri gleði; drs. Jóns Helga- sonar hins sífræðandi fróðleiks- brunns og hispurslausa manns í orðum og æði, drs. Sigurgeirs Sigurðssonar, sem með opnum örmum, opnum augum, opnu hjarta og hug horfði til marg- breytilegra lífstjáninga samtíðar sinnar, ófjötraður af kennisetn- ingum fyrri alda, þótt gæddar væru helgi og hefð, — og loks drs. Ásmundar Guðmundsonar, hins hógværa lærdómsmanns, hins trausta vinar og hins vammlausa embættismanns í þeim stíl, sem einkenndi bezt virðulegustu em- bættismenn hins gamla tíma en nú gerist æ fátíðari. Og eiginkonur, biskupsfrúr hinna tveggja síðasttöldu þekkti ég náið: Frú Steinunni Magnús- dóttur, sem var kvenna fegurst ásýndum og duldi, svo að marga blekkti, með fyrirmannlegu yfir- lætisleysi fágætar sálargáfur, svo að náin kynni af henni þurfti til að komast að raun um, hve mikið sú kona vissi og kunni, — og loks frú Guðrúnu Pétursdóttur, sem hér skal að nokkru getið og lokið hefur hálfníræð merkum og fallegum ævidegi. Ætt hennar og uppruna munu aðrir rekja, en ég minnist hennar fyrst heima á gamla Isafirði, þar sem hún var í fulla tvo áratugi prests- og prófastsfrú við miklar vinsældir. Þegar dr. Jón Helgason gerðist biskup kom sra Magnús Jónsson þá prestur ísfirðinga, síðar próf- essor, ráðherra m.m. að guðfræði- deild í hans stað, en Sigurgeir Sigurðsson, sem þá hafði nýlokið embættisprófi vígðist til ísafjarð- ar 1917. Kom hann fyrst ókvæntur og einn vestur, en fáum vikum síðar kom heitmey hans, Guðrún Pétursdóttir frá Hfolfsskála, ann- áluðu myndarheimili, og var hún systir hins þjóðkunna manns, Sig- urðar skipstjóra Péturssonar á Gullfossi. í kirkjunni á ísafirði voru ungu brúðhjónin vígð 17. nóv. * 1917, og er gómlum isfirðingum sá hátíðisdag :r enn í minni. Hiklaust ná segja, að þeir prestar tveir, sem þjónuðu Isfirð- ingum næstir á undan sra Sigur- geiri, hafi verið honum ólíkir á marga lund, þeir gamli prófastur- inn virðulegi, sra Þorvaldur Jóns- son frá Gilsbakka, og Magnús síðar prófessor Jónsson, en fljót- lega varð sra Sigurgeir ákaflega vinsæll af sóknarfólki sínu, og einnig í nágrannaprestaköllum, sem hann þjónaði margsinnis, en þar átti frú Guðrún sinn stóra hlut. Isfirðingar höfðu notið þess fyrr að eiga ágætustu prestskon- ur, frú Þórdís Jensdóttir kona sra Þorvalds og bróðurdóttir Jóns Sigurðssonar forseta, var einstak- lega fyrirmannleg kona, svo að athygli vakti, og frú Bennie Lár- usdóttir kona sra Magnúsar var gáfuð fríðleikskona. Sess sinn skipaði frú Guðrún Pétursdóttir frá byrjun þannig að vinsældir hennar urðu miklar. í starfi eig- inmanns síns tók frú Guðrún fullan þátt, í hverri messugjörð sat hún sinn bekk í kirkjunni, og óteljandi sinnum sat hún við píanóið sitt og annaðist undirleik við helgiathafnir. Um hitt var kannski ekki minna: Af litlum embættislaunum höfðu þau frú Guðrún og sra Sigurgeir opið hús til gistingar og greiða nálega hverjum, sem hurðir þeirra knúði, og mæddi þar ekki sízt á húsfreyj- unni. Af mannkostum sínum, geðprýði og góðvild varð frú Guð- rún svo ástsæl af ísfirðingum, að mjög var þeirra hjónanna saknað, þegar sra Sigurgeir var kvaddur til biskupsdóms eftir dr. Jón Helgason. En frú Guðrún saknaði ísafjarðar og ísfirðinga einnig. Þar festi hún ung fljótlega rætur þótt umhverfi væri ólíkt milli ísfirzku fjallanna og víðsýnisins í foreldrahúsum í Hrólfsskála. Þegar frú Guðrún setti upp biskupsheimili í Rvík, nú fyrir réttum 40 árum, beið henni víðari verkahringur en fyrr, margar skyldur, einkum um risnu og virðulega móttöku erlendra fyrir- manna og íslenzkra gesta, prest- anna, sem flestallir gengu út og inn um heimili hennar í biskups- garði og nutu beina. Breytt ytri kjör breyttu frú Guðrúnu að engu. Hún var sama virðulega, ástúð- lega húsfreyjan sem fyrr. Hún sat hógvær matborð sitt, oft með mörgum gestum auk fjögurra barna þeirra hjóna, og tók glöð þátt í umræðum þeirra, sem að borði hennar sátu. Sigurgeir biskup var allra manna glaðastur, eins og Snorri segir um Ólaf konung, og hann var allra manna gestrisnastur. Ein- hverjum gat fundizt það tillits- leysi við biskupsfrúna þegar bisk- up kom leiðandi heim óvænta gesti, en hann þekkti konu sína, og hún þekkti hann. Ég var nákunn- ugur heimili þeirra á þessum árum og spurði sjálfan mig stund- um, hvort gestkvæmara heimili væri til í landinu en biskupsheim- ilið. Þau ár öll stóð frú Guðrún í sinni háu stöðu með stórri sæmd. Það mega margir, leikir jafnt og lærðir þakka. Hún var virðuleg biskupsfrú, hvort sem hún tók hversdagsbúin hjartanlega á móti gestum bisk- upsins, eða hún sat veizluborð búin faldbúningnum íslenzka, sem hún bar með prýði. Hún var drengileg í lund, fjarlæg hvers- konar mærð í máli eða væmni í viðmóti og háttum. Og móður- hjarta hennar var heitt og stórt. Það fundu fleiri en börn hennar fjögur, sem öll bera vitni þeim heimilisbrag sem hún skóp. Þegar Sigurgeir biskup dó, fyrir aldur fram að því er samherjum hans og vinum þótti, urðu vegaskil á leið frú Guðrúnar. Hún fluttist í íbúð sína, bjó þar fallega um sig, gaf frá sér öll óþörf umsvif og lifði iífi „hinna kyrrlátu í landinu", umvafin ástúð barna, niðja og vina. Síðustu æviárin urðu henni mæðusöm vegna þráláts sjúkleika, hún bar með rósemi margar erfið- ar læknisaðgerðir, og horfði örugg heim til dagsins handan dauðans. Svo vildi til að fyrir skömmu lá ég um hríð í næstu og næstnæstu sjúkrastofu við frú Guðrúnu. Ég hafði fótavist og gat nálega dag- lega litið inn til hennar andar- taksstund. Ég sá krafta hennar þverra frá degi til dags, en eitt brást aldrei: Þótt hún mætti ekki mæla lyfti hún varlega hendi og brosti, þegar ég kvaddi. Fylgi Guð góðri og merkri biskupsfrú, sem kirkja íslands stendur í þakkarskuld við og margir víða um byggðir landsins. Jón Auðuns. „Aldrei deyr þótt allt um þrotni endurminninK þess sem var.“ Þegar ævi hallar erum við stöð- ugt minnt á þá skuld, sem við eigum öll að síðustu að gjalda. Gömlu vinirnir sem glöddust með okkur á góðum stundum og veittu styrk í harmi og yl í einveru, hverfa hver af öðrum um hinar dimmu dyr. Fyrr en varir er sú veröld, sem var, aðeins veröld minninganna, og þangað leitar hugurinn athvarfs. Og nú þegar kær vinkona mín, Guðrún Pétursdóttir, fyrrv. biskupsfrú, er horfin í veröld minninganna, stöðvast hugur minn fyrst við æskuheimili hennar að Hrólfsskála á Seltjarnarnesi. Þar bjuggu Pétur Sigurðsson útvegsbóndi og kona hans, Guðlaug Pálsdóttir, ættuð austan úr Skaftafellssýslu. Og þar ólust upp fjögur börn þeirra, Sigurður, síðar skipstjóri á Gull- fossi, Ólafur, er lést áður en hann lauk háskólaprófi, Þóra, sem lauk seinna kennaraprófi og stundaði skrifstofustörf, og yngst þeirra systkina , Guðrún, er giftist séra Sigurgeiri Sigurðssyni, síðar biskupi. Það var undislegt heimili þessara systkina og þar hlutu þau vandað uppeldi. Ég man stofuna umvafða vafningsviði og glæsilegt píanó, sem börnin lærðu á og léku löngum stundum. Við Guðrún gengum saman í barnaskóla hjá Sigurði skóia- stjóra, þeim afbragðs kennara, er jafnframt gerði sér ætíð far um að rækta það, sem best er í manns- sálinni. Svo skildu leiðir okkar Guðrúnar um margra ára skeið. Ég fór í Kennaraskólann og síðan út á land til kennslustarfa. Leiðir okkar lágu ekki aftur saman fyrr en ég fluttist til ísafjarðar, þar sem maðurinn minn' varð skóla- stjóri og ég gerðist þar kennari. Þá var séra Sigurgeir orðinn þjónandi prestur á ísafirði fyrir skömmu. Þarna á ísafirði endurnýjuðum við Guðrún vináttu bernskuár- anna og frá þeim árum á ég margar ljúfar minningar um vin- áttu og tryggð Guðrúnar og manns hennar, séra Sigurgeirs. Börn þeirra eru mér einnig hugstæð frá þessum árum, en þau eru séra Pétur vígslubiskup, Sigurður bankafulltrúi, Svanhild- ur sendiráðsritari og Guðlaug læknisfrú. En tímans hjól hélt áfram að snúast, og enn skilja leiðir okkar Guðrúnar, er séra Sigurgeir tekur við biskupsembætti og fjölskyldan flytst til Reykjavíkur. Én vinátta okkar Guðrúnar rofnaði ekki, þótt vík yrði á milli vina og aftur verður styttra á milli okkar, þegar starfsdegi okkar hjóna lauk á Isafirði og við flytjumst einnig suður. En nú er kær vinkona horfin inn í veröld minninganna. Ég þakka henni af hjarta glaða leiki bernskuáranna á Seltjarnarnesi, ógleymanlegar samverustundir í „faðmi fjalla blárra" á ísafirði og ekki síst þá vináttu, tryggð og hlýju, sem hún átti í svo ríkum mæli, þegar ég varð að stíga svo mörg og erfið spor hér syðra á efri árum. Guð blessi minningu Guðrúnar Pétursdóttur. Börnum hennar og öllu öðru venslafólki sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Jónína Þórhallsdóttir. Frú Guðrún lézt í Landspítalan- um eftir þunga og langa legu. Hún var fædd í Hrólfsskála á Seltjarnarnesi. Foreldrar hennar voru hjónin Pétur Sigurðsson útvegsbóndi og oddviti, f. 1852, d. 1918, og Guðlaug Pálsdóttir, f. 1849, d. 1933. Var Pétur einn af kunnustu útvegsbændum við Faxaflóa á skútuöldinni. Hann var einn fremsti áhugamaður um stofnun Slippfélagsins í Reykjavík ásamt Tryggva Gunnarssyni og einn af stofnendum þess félags. Sonur Péturs og bróðir frú Guð- rúnar var Sigurður Pétursson skipstjóri, sá er sigldi óskabarni þjóðarinnar, Gullfossi, nýjum til Islands árið 1915 og stýrði því giftusamlega í aldarfjórðung. Föð- ur-faðir frú Guðrúnar var Sigurð- ur, f. 1806, Ingjaldsson Ottasonar, f. 1728, d. 1805, báðir búandi á sinni tíð í Hrólfsskála. Þannig bjuggu forfeður hennar af Engeyj- arætt mann fram af manni í Hrólfsskála. I móðurætt var frú Guðrún af svonefndri Pálsætt, úr V-Skafta- vellssýslu. Móðir hennar Guðlaug var Pálsdóttir bónda og snikkara í Hörgsdal og víðar. Sá var sonur Páls Pálssonar, f. 1779, d. 1861, prófasts í Hörgsdal og síðar á Prestsbakka, en hann var sonur Páls klausturhaldara Jónssonnar, f. 1737. Páll klausturhaldaði flúði + Eiginmaöur minn og faöir okkar GEORGE E. HOWSER Stekkjarkinn 3, Hafnarfirðí andaöist aö Borgarspítalanum miövikudaginn 25. júlí. Lilja Hjartardóttir Howser og börn. Eiginkona mín AÐALHEIÐUR PÉTURSDÓTTIR Kambsvegi 21 andaöist þriöjudaginn 24. júlí. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Jónas Jónsson frá Bessastöðum. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför fööur okkar tengdafööur, afa og langafa FINNS INDRIÐASONAR Skrióuseli í Aðaldal Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landspítalans, séra Siguröi Guðmundssyni Grenjaöarstaö og öllum sveitungum og vinum sem tóku þátt í þessu. Baldur Finnsson Sigrún Finnsdóttir Dýrleif Fínnsdóttir Gestur Finnsson Eiður Finnsson Sigríður Finnsdóttir Unnur Finnsdóttir Hulda Óskarsdóttir Bergbóra Magnúsdóttir Gísli Víglundsson Halldór Garöarsson barnabörn og barnabarnabörn. + Móöir mín, stjúpmóöir okkar og fósturmóöir ANNA ÓLAFSDÓTTIR Brimnesi, Dalvík sem andaöist þ. 19. þ.m., veröur jarösungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 28. júlf kl. 2. e.h. Eyvör Stefánsdóttir Sverrir Stefánsson Ragnar Stefánsson Sverrir Már Sverrísson frá Hörgslandi vegna Skaftáreld- anna og settist að í Gufunesi en bjó síðan á Elliðavatni til dauða- dags, árið 1819. Marga þjóðkunna menn og konur mætti enn nefna. Skal því staðnæmst við móður- bróður frú Guðrúnar, Pál Pálsson „Jökul", er gat sér frægð fyrir fádæma dugnað og þrek sem leið- sögumaður um óbyggðir landsins, m.a. Vatnajökul — en þar, uppaf Síðujökli, — heitir Pálsfjall eftir honum. Því tel ég fram lítið eitt um ættir frú Guðrúnar, að mér virðist hún hafa erft margt af því sem einkenndi þá sterku ættstofna sem að henni stóðu. Pétur og Guðlaug í Hrólfsskála eignuðust 7 börn, en þrjú þeirra dóu mjög ung. Fjögur komust til fullorðinsára. Með fráfalli frú Guðrúnar eru þau nú öll horfin af þessum heimi. Þannig líður lífið, kynslóðir koma og kynslóðir fara. Hún var yngsta barn þeirra hjóna og ólst upp í föðurgarði ásamt 3 systkinum. Hún naut almennrar menntunar, var mjög söngeisk og áhugi hennar fyrir tónlist kom snemma í ljós og lærði hún því að leika á slaghörpu hjá Önnu Péturs, er um langt skeið stundaði kennslu í þeirri grein í Reykjavík. Guðrún lofaðist ungum guðfræðinema, sem á skólaárum sínum hafði einnig iðkað sönglist- ina, lært orgelleik og sungið í karlakórnum „17. júní“ undir stjórn Sigfúsar Einarssonar tón- skálds. Þessi ungi maður var Sigurgeir Sigurðsson, síðar sókn- arprestur og prófastur á ísafirði og enn síðar biskup íslands. Hending mun hafa ráðið því að séra Sigurgeir fór til ísafjarðar. Þannig var, að séra Magnús Jóns- son, síðar prófessor, alþm. og ráðherra, var kosinn prestur á ísafirði 15. júlí 1915, eftir að séra Þorvaldur Jónsson hætti störfum. Magnús þjónaði Garða- og Þing- vallasöfnuðum í Norður-Dakota í Bandaríkjunum frá miðju sumri 1912, en sótti um ísafjarðar- prestakall þegar það var auglýst laust. Hann taldi sig þó ekki hafa efni á því að koma til ísafjarðar til þess að sýna sig og láta í sér heyra, en skrifaði áhrifamanni eða mönnum á ísafirði, lýsti hög- um sínum og gat þess að sig langaði til að koma heim og vinna fyrir föðurland sitt. Þessi tíðindi bárust um bæinn og menn vildu stuðla að heimkomu hans undir slíkum kringumstæðum og var hann því kosinn enda þótt margir ágætismenn aðrir væru í boði. En Isfirðingar nutu Magnúsar og hæfileika hans skamma stund. Hann var skipaður dósent við Háskóla íslands í sept. 1917, en af einhverjum ástæðum vildi hann þó ekki segja upp prestsembætt- inu að svo komnu, en fékk leyfi til að ráða sér aðstoðarprest. Hann sigldi því til Reykjavíkur og svip- aðist um og árangurinn varð sá, að hann valdi í starfið þennan unga guðfræðing, Sigurgeir Sigurðsson, son hins þjóðkunna Sigurðar Ei- ríkssonar regluboða og Svanhildar Sigurðardóttur. Sigurgeiri stóð þá til boða embætti á Svínafelli í Öræfum í A-Skaftafellssýslu, en með þessari ráðningu var tening- unum kastað og hann settist í eina af stærstu, fjölmennustu og erfið- ustu af sóknum landsins. Það hefur vafalaust þurft kjark til, en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.